Morgunblaðið - 18.07.1944, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 18.07.1944, Blaðsíða 11
Þriðjudagur 18. júlí 1944 MOB GrUNBLAÐIÐ 11 Fimm mínútna krossgéta Lárjett: 13 aumingja — 6 slæm — 8 tveir samstæðir — 10 for- skeyti — 11 ganga úr lagi — 12 mynt — 13 fangamark — 14 heið ur — 16 kynjuð. Lóðrjett: 2 upphrópun — 3 ó- glatt — 4 tveir eins — 5 eink- unna — kvöldi — 9 hjelí á — 10 okkur — 14 borðandi — 15 tví- hljóðar. Fjelagslíf ÆFINGAR I KVÖLD: Á Iþróttavellinum: Kl. 8: Frjálsar íþróttir. Á Háskólatúninu: Kl. 8 I iandbolti kvenna. Á Gamla íþróttavellinum. Kl. 7 Ivnattspyrna 3 fl. — Kl. 9 Knattspyrna 2. fl. Stjórn K. R. ÆFINGA- TAFLA. IV. fl. Mánudagur kl. 6.30 til 7.30 Miðvikudagur kl. 6 til 7 Föstudagur kl. 7 til 8. III. fl. Mánudagur kl. 9 til 10. Miðvikudagur kl. 9 til 10 Föstudagur kl. 8 til 9. Meistarar I. og II. fl. Þriðjudagur kl. 7.30 til 8.45. Fimmtudagur kl. 6.15 til 7,30. Laugardagur kl. 8.45 til 10. Stjóm Knattspymuf j elagsins Fram. KNATTSPYRNU- MENN! Æfing 3.—4. fl. þriðjudaga kl. 7— 8, fimtudaga kl. 6=—7, sunnudaga kl. 11—12. 1. flokkur: Þriðjudaga kl. 8,45—10, fimtudaga kl. 7,30—9,45, laugardaga kl. 6—7,30. Húsnæði LÍTIÐ HÚS eða íbúð, óskast til leigu. Tilboð, merkt „Einbúi“, send- ist Morgunblaðinu. Vinna HREINGERNINGAR úti og inni. Vönduð vinna. Fljót afgreiðsla. S?lni 5786. HÚSEIGENDUR. Athugið! — Kölkum hús, hreinsunv þök og blackferni- serum. Sími 5786. HREIN gernin g ar húsamálning, viðgerðir o. fl. Óskar & Óli. Sími 4129. Ú tvarpsviðgerðarstof a mín er nú á Klapparstíg 16 (sími 2799). — Ottó B. Amar, útvarpsvirkjameistari. Varnir Þjóðverja Þessi mynd barst frá Sví- þjóð, en þangað frá Þýska- landi, og ér af stórri þýskri fallbyssu, sem verið er að skjóta af á bandamenn á ítalíu. Nýir sandpokar í París. LONDON: — Frönsk yfir- völd í París hafa enn gert nýj- ar varúðarráðstafanir til þess að varðveita fjársjóði og lík- neski borgarinnar. Nýjum sand pokum hefir verið hlaðið um styttur á Place de la Concorde, og þar hefir verið komið fyrir öflugum trjáhler-um. Stórt hvítkálshöfuð. LONDON: — Grænmetissali einn í London sýndi nýlega í búðarglugga sínum blómkáls- höfuð, sem vóg 17 pund. Leikaraútgáfan Tilkynning LAUFSKÁLA CAFE Tökum alls konar veisiur. Upplýsingar í síma 5346. «««««»««M>«WWMIM«< Kaup-Sala LAXASTENGUR 15 og 16 feta. notaðar, en prýðilega útlítandi, til sölu. Hjól geta fylgt. Uppl. í síma 4001. BARNARÚM til sölu. Uppl. í síma 1696 eftir kl. 6. NOTUÐ HÚSGÖGN keypt ávalt hæsta verði. — Sótt heim. — Staðgreiðsla. — Sími 5691. — Fornverslunin Grettisgötu 45. Frú Jóhanna Stefánsdóttir Mínningarorð Ú •• * | FRÚ JÓHANNA STEFÁNS- DÓTTIR, ekkja Guðmundar verslunarstjóra Einarssonar frá Hraunum, verður jarðsungin í dag. Hún var fædd að Reynistað í Skagafirði þ. 26. sept. 1867, dóttir Stefáns Einarssonar, er þar bjó, og Ingveldar Jónsdótt- ur Hallssonar prófasts. 23 ára gömul giftist hún Guð- mundi Einarssyni frá Hraun- um. Hann stundaði þá versl- unarstörf á Sauðárkróki. En jafnframt ráku þau hjónin bú á Reynistað, höfðu part af þeirri jörð. Nokkru síðar tók Guðmund- ur að sjer verslunarstjórn við verslunarútibú Popps á Hofsós. En skömmu eftir aldamót gerð- ist hann verslunarstjóri Gránu- fjelagsins á Siglufirði. Var heimili þeirra rómað fyrir gest- risni og myndarskap í hvívetna, enda var frú Jóhanna fyrir- myndar húsmóðir. Guðmundur maður hennar andaðist árið 1907. Flutti hún þá með fjórum börnum sínum, Kristínu, Stefáni, Jórunni og Einari til Hafnarfjarðar og ann aðist, með aðstoð eldri barna sinna, símastöð Hafnarfjarðar. Hjelt hún því starfi uns hún flutti hingað til Reykjavíkur á heimili Kristínar dóttur sinnar og tengdasonar, Ólafs Þor- steinssonar læknis. Frú Jóhanna var frábær dugnaðar og fyrirhyggjukona, enda reyndi á það, er hún misti mann sinn frá fjórum börnum. Henni fjell aldrei verk úr hendi, meðan heilsan entist, og hafði hún alla tíð vakandi auga með velferð barna sinna, meðan þau nutu hennar umsjár. Jór- unn dóttir hennar dó 12 ára gömul, en Stefán dó 1915, mesti efnispiltur, var þá í 6. bekk Mentaskólans. Svo sorg- in fór ekki framhjá hennar dyr um í lífinu. En það var henni mikil raunabót á síðari árum æfinnar, hve stakrar umhyggju og nærgætni hún naut á lækn- isheimilinu á Skólabrú, hjá þeim Kristínu dóttur sinni og Ólafi lækni. Bón og skóáburður með þessu vörumerki eru þekt fyrir gæði og lágt verð. Fyrirliggjandi í Leðurverslun Magnúsar Víg- lundssonar Garðastræti 37. — Sími 5668. fLISTERBIMEf Antiseptic. miiiiiiiiiiiimiiimiHiimiHiiiiiiimiitiiiiiiiiiimiiuiiHL BÓNAÐIR OG SMURÐIR BÍLAR H.f. STILLIR. Lausraves: Cl 199/dagur ársins. Árdegisflæði kl. 4.20. Síðdegisflæði kl. 16.45. Næturlæknir er í læknavarð- stofunni, sími 5030. Næturvörður er í Laugavegs Apóteki. Næturakstur annast Bifreiða- stöð Reykjavíkur, sími 1720. Blaðamannafjelagsfundur er í dag kl. 3 á Hótel Borg. Ýms mál á dagskrá. Heimiiisritið, jún—júlí heftið, hefir borist blaðinu. í þessu hefti birtast m. a. smásaga eftir Tom Kristensen, er nefnist Nýtísku prjedikun, önnur eftir Mary Hastings Brandley, sem heitir Skilnaðarstundin, þriðja eftir Fred Hill, sem heitir 50 þús. doll arar á bak við 60 km. steininn, og fjórða eftir Bertha Marder, sem nefnist Fórnardauði. — Greinar eru þar um flóttann með gull norska ríkisins, önnur eftir Kristmamurti um skopsögur um Hitler og ennfremur frásaga eft- ir japanskan höfund, sem nefn- ist Ljet lífið fyrir eina sígarettu. Einnig eru í ritinu gamansögur, framhald greinaflokks og fram- haldssögu og margt annað, þar á meðal leikarafrjettir og þrautir Nokkrar leiðinlegar prentvill- ur slæddust inn í grein frú Sig- ríðar Eiríksdóttur, sem birtist hjer í blaðinu s.l. laugardag. Eru lesendur og höfundur beðin af- sökunar á því. Hjónaefni. Nýlega opinberuðu trúlofun sína ungfrú Erla Har- aldsdóttir, Reykjavík og Sverrir H. Magnússon íþróttakennari frá Akureyri. Til hjónanna í Dæli í Sæmund arhlíð: Þ. J. S. 100 kr. S. J. 400 kr. Nína 20 kr. Gunnar Örn 10 kr. Norðlendingur 50 kr. Einar 50 kr. Þ. Á. 50 kr. Ónefnd 10 kr. Hjón 10 kr. Ónefnd 30 kr. Guð- rún 10 kr. Ó. 150 kr. Ónefndur 40 kr. Ónefndur 100 kr. P. E. 100 kr. X. 20 kr. Þ. G. 20 kr. J. Ó. 20 kr. í. Þ. 50 kr. Hjónaefni. S.l. laugardag opin- beruðu trúlofun sína ungfrú Að- albjörg Sigurðardóttir (Þor- steinssonar skipstjóra), Steina- bæ og Haukur Gunnarsson (Guðnasonar bifreiðaeiganda), Hringbraut 147. Konan úr Fríkirkjusöfnuðin- um, sem talaði við mig í síma í gær, er beðin að tala við mig aftur. — Sr. Jón Thorarensen. ÚTVARPIÐ I DAG: 12.10 Hádegisútvarp. 15.30 Miðdegisútvarp. 19.25 Hljómplötur: Lög úr óper- ettum og tónfilmum. 20.00 Frjettir. 20.30 Erindi: Vopnaframleiðsla og vopnaverslun, II (Hjörtur Halldórsson rithöfundur). 20.55 Hljómplötur: Tríó fyrir klarinett, celló og píanó eftir Beethoven. 21.15 Upplestur: „Eftir fjórtán ár“, smásaga (frú Jensína Jensdóttir). 21.30 Hljómplötur: Kirkjutónlist. 21.50 Frjettir. Leiðrjetting. Vegna margra fyrirspurna, sem mjer hafa bor- ist, um, að jeg hafi sagt Hruna- prestakalli lausu vegna heilsu- brests, eins og stóð í dagblaðinu Vísi, lýsi jeg því hjer með yfir, ac þetta eru með öllu tilhæfu- laus ósannindi. Mundi jeg verða fús til þess að starfa í presta- kslli, þar sem jeg nyti ábúðar- rjettar prestsetursjarðarinnar. Virðingarfylst Ragnar Benediktsson. Brosti til hermannanna — og skaut þá svo. LONDON: — Þýskur kven- maður, leyniskytta, 29 ára að aldri, var tekin höndum í St, Mére Eglise í Normandie. — Montgomery hershöfðingi hef- ir skýrt frjettariturum frá því, að þýskar konur, að líkindum eiginkonur þýskra leyniskytta, hafi skotið á hermenn banda- manna, en fallið síðan fyrir skotum þeirra. Konan, sem tekin var hönd- um á Cherbourgskaganum, var ekki í einkennisbúningi. Amer- ískur korporal með hríðskota- riffil að vopni, tóku að sjer vörslu hennar, þegar komið var með hana í fangabúðir. „Mjer var sagt að gæta ítr- ustu varkárni við þennan fanga“, sagði hann. „Verðirn- ir, sem fengu okkur hana í hendur, sögðu, að hún hefði beitt þeirri aðferð að brosa til hermannanna, en skjóta síðan á þá, þegar þeir komu nær. Hún kvað hafa banað nokkrum' mönnum með þessum hætti, svo að jeg vil ekki eiga neitt á hættu“. 10. júní voru mikil brögð. að húsrannsóknum í Hammer- fest, og 30 menn voru teknir, höndum. Þjóðverjarnir komtt ruddalega fram, og lá við ó eirðum, þ’egar þeir misþyrmdui kvenmanni einum. Kauphöllin er miðstöð verSbrjefa- viðskáftanna. Sími 1710. Unnusta mín, HELGA ÓLAFSDÓTTIR, verður jarðsungin föstudaginn 21. þ. m. Athöfnin hefst frá dómkirkjunni kl. 3Ú2 e. h. JBjarni Jónsson. Hjartans þakkir til allra þeirra, er sýndu samúð og vinarhug við andlát og jarðarför mannsins míns, TRYGGVA JÓNSSONAR, vjelstjóra. Fyrir rnína hönd, barna minna og annara að- standenda. Dagbjört Einarsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.