Morgunblaðið - 18.07.1944, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 18.07.1944, Blaðsíða 12
12 í, miljón kr. hag- dæður verslunar- jöfnuður iyrsfu mánuði ársins SKÝRSLUR hafa nú borist um verslunina við útlönd fyrstu 6 ‘mánuði ársins, Flutt hefir ver ið til landsins fyrir 114.6 ■miljónir króna í jan^-júní, en útflutt á sama tíma fyrir 115.6 miljónir. Hefir verslunarjöfn- uðurinn því verið hagstæður um 1 miljón kr. fyrri helming ársins. I fyrra var verslunarjöfnuð- urinn á sama tíma ónagstæður um 10 milj. kr. Verslunin í júní. I júnímánuði s.l. var flutt inn fyrir 18 miljónir króna, en út úr landinu voru fluttar vör- ur fyrir 16.8 miljónir króna. Varð verslunarjöfnuðurinn því óhagstæður í þessum mánuði um 1.2 milj. kr. Aðalútflutningsvörur í júní voru: Isfiskur fyrir 9.8 miljón- ir, freðfiskur fyrir 2.5 miljónir, gærur fyf'ir 2.6 miljónir, lýsi fyrir 1.4 og saltkjöt fyrir 0.9 miljónir króna. 'florauttb íslensk doklorshjón í Svíþjóð Prófessor Beck á ísafirði ísafirði í gær. •— Frá frjettaritara vorum. PRÓFESSOR Richard Beck kom hingað með Óðni síðari hluta laugardags, í boði bæjar- stjórnarinnar. Um kvöldið hafði bæjarstjórnin boð í Uppsölum til þess að fagna heiðursgest- inum. Sátu það 70—80 manns. Boðinu stjórnaði Jón Guðjóns- son, bæjarstjóri, sem setti hóf- !ð og bauð Beck velkominn. — •Forseti bæjarstjórnar, Guðm. G. Hagalín, mælti fyrir heiðurs- gestinum og Vestur-íslending- um- Þá flutti prófessor Beck kveðj ur frá Vestur-íslendingum, sjer staklega frá Þjóðræknisfjelag- inu og Góðtemplarastúkunni í Winnipeg. Arngrímur Bjarna- son svaraði kveðjunni til Góð- templara. Síðan voru frjáls ræðuhöld. í gærdag fór prófessor Beck að Núpi í Dýrafirði og flulti þar erindi, en síðar um daginn flutti prófessorinn erindi hjer um þjóðrækisbaráttu íslendinga í Vesturheimi. ísfirðingar hafa ákveðið að gefa prófessor Beck mynd af ísafirði og honum og Þjóðrækn- isfjelaginu rúnakefli skorið af Guðmundi frá Mosdal. ísfirskir templarar senda íslensku stúk- unum í Vesturheimi ávarp. Dr. ÁSKELL LÖVE OG KONA HANS, DORIS, með dóttur þeirra, Gunnlaugu. Þau hafa bæði hjónin tekið doktorsgráðu í erfðafræði, og er mælt að þau sjeu yngstu doktorshjón í Svíþjóð. Frú Boris varði doktorsritgerð sína í vor. Áskell og kona hans hafa mikinn hug á að komast hingað heim. Því mörg verkefni bíða Áskels hjer heima. Og ekki vantar hann aðstoðina í fræði- grein sinni, þar sem konan hans hefir numið sömu vísindi og hann. Sundflokkur K. R. kominn heim SUNDFLOKKUR KR und- ír stjórn Jóns Inga Guð- tnundssonar, sundkennara. kom heim á sunnudagskvöid- ið úr Norðurlandsför sinni. Lætur flokkurinn hið besta yfir för sinni og rómar mjög vinsamlegar og glæsilegar rnóttökur á Akureyri og Siglu firðx. Þjóðhálíðin í Vestmannaeyjum 4. og 5. ágúsf Vestmannaeyjum í gær. Frá frjettaritara vorum. ÞJÓÐHÁTÍÐ Vestmannaeyja verður haldin föstudaginn 4. ágúst og laugardaginn 5. ágúst næstk. Á þessu ári eru 70 ár liðin frá því er fyrst var haldin þjóðhá- tíð í Vestmannayjum, og hefir þjóðhátíð verið haldin á hverju sumri síðan, að undanteknum nokkrum sumrum í fyrri heims styrjöldinni. í tilefni þessa aímælis verður reynt að vanda sjerstaklega til þessarar einstæðu hátíðar Eyja búa, og er undirbúningur þeg- ar hafinn fyrir nokkru. Eins og að undanförnu verð- ur mjög margt til skemtunar, svo sem ræður, söngur, frjálsar íþróttir, alls konar flugeldar, brenna, svo og dans á pöllum bæði kvöldin í dalnum. Ákveðið er, að hanknatt- leiksflokkur kvenna úr Knatt- spyrnufjelagi Akureyrar komi á hátíðina og keppi í handknatt leik við stúlkur úr íþróttafjelög unum hjer. Iþróttafjelagið Þór sjer um hátíðina að þessu sinni. Isfirsku handknalt- leihssfúlkurnar komnar til bæjarins ÍSFIRSKU handknattleiks- stúlkurnar, sem taka ætla þátt í handknattleiksmeistaramóti kvenna, sem hefst í Hafnarfirði 23. þ. m., komu til bæjarins með Esju í gærkvöldi. Stúlkurnar eru alls níu, úr þremur fjelögum á Isafirði, Vestra, He’rði og Valkyrjum, og keppa fyrir íþróttabandalag Isfirðinga. Fararstjóri stúlkn- anna er Ágúst Leós. — Flokk- urinn dvelur hjer syðra í boði Iþróttafjelags Reykjavíkur. Benedikf Jakobsson heiðraður Á „SIGURHÁTÍГ áfem K. R. hjelt s. 1. föstudagskvöld í til- efni hins glæsilega sigurs fje- lagsins á Allsherj armótinu, af- hentu frjálsíþróttamenn K. R. Benedikt Jakobssyni, þjálfara fjelagsins í frjálsum íþróttum, forkunnar fagra útskorna fána- stöng, ásamt fána K. R. Er gjöf þessi þakklæti fyrir 10 ára kenslu í frjálsum íþróttum hjá fjelaginu, sem borið hefir svo ágætan árangur. Haraldur Matthíasson, for- maður íþróttanefndar K. R. hafði orð fyrir gefendum og af- henti gjöfina. Við sama tækifæri voru þeir Gunnar Huseby og Skúli Guð- mundsson heiðraðir af stjórn íjelagsins. Afhenti formaður fje lagsins, Erlendur Pjetursson, þeim sinn hvorn silfurbikarinn, fyrir framúrskarandi afrek í sumar. Afrek, sem skipa þess- um góðu íþróttamönnum í flokk keppenda á alþjóðamæli- kvarða. Sagðist formaður vona, að þeim, ásamt bestu íþróttamönn um fjélagsins, gæfist kostur á, áður en langt um liði, að keppa á erlendri grund. (hurchill lofar sókn gegn Japönum London í gær. CURTIN, forsætisráðherra Ástralíu, skýrði frá því í dag, að í viðræðum, sem hann hafi átt við Churchill í sumar, hafi Churchill lofað, að nú þegar á þessu ári myndi vera hægt að senda allsterkan breskan her til sóknar gegn Japönum. Bret- ar myndu þó ekki geta snúið sjer að því af fullum krafti að berjast við Japana, fyr en Þjóð verjar væru að velli lagðir. En þá skyldi heldur ekki neitt til sparað af hendi Breta og Ástralíumanna til að koma Japönum á hnje. — Reuter. Glæsilegl hjeraös- méf Sjálfsfæðis- manna í Nausta- borgum Akureyri í gær., Frá frjettaritara vorum. HJERAÐSMÓT Sjálfstæðis- manna á Akúreyri og í Eyja- fjarðarsýslu var haldið í Naustaborgum við Akureyri s.l. sunnudag. Veður var hið á- kjósanlegasta og fjölmenni mik ið var þar saman komið úr bæn um, nálægum sveitum og einn- ig margt ferðafólk. Formaður Sjálfstæðisfjelags Akureyrar, Jakob O. Pjeturs- son ritstjóri, setti mótið og stjórnaði því. Jón Pálmason alþm. frá Akri og Sigurður Eggerz bæjarfógeti fluttu snjall ar og skörulegar ræður. Lúðra- sveit Akureyrar undir stjórn Jakobs Tryggvasonar ljek mörg lög og Karlakór Akureyrar undir stjórn Jóhanns O. Har- aldssonar söng. Dans var stig- inn um kvöldið í hinu stóra tjaldi Sjálfstæðisfjlagsins. — Veitingar voru seldar á staðn- um allan daginn. Bresk skip í ferðum til Svíþjóðar London í gærkveldi. FRÁ ÞVÍ var skýrt í dag, að s.l. vetur hafi nokkur bresk skip haldið uppi föstum ferðum milli Bretlandseyja og Svíþjóð- ar og flutt verðmætan varning til Englands og ennfremur nokkra farþega. Þykir það hin mesta hetjudáð af áhöfnum hinna bresku skipa, að halda þessum ferðum uppi. Skipin, sem höfð voru í þess- um Svíþjóðarferðum, voru sjer staklega bygð til þessara Sví- þjóðarferða. Þau eru lítil og vel vopnuð. Hafa diesel-vjelar. Áhafnir skipanna voru alt sjálf boðaliðar og meðalaldur skip- verja var 25 ár, en nokkrir voru undir tvítugt. Enginn skipstjór anna var eldri en fertugur. - Aðeins einu skipanna hlektist á. Náði þýskt herskip því. - Skipstjórinn á biæska skipinu fórst. Ekki hefir enn verið skýrt nánar frá þessum sjóferðum milli Englands og Svíþjóðar, og höfnin í Svíþjóð, sem skipin sigldu til, ekki verið nafn- greind ennþá. Dregið úr svörtum markaði. LONDON: — Kimdersley lá- varður, forseti sparnaðarhreyf- ingarinnar í Englandi, sagði fyrir nokkru á ráðstefnu í London: „Ef það fje, sparað saman smátt og smátt, að upphæð 2.876.000.000 sterlingspund, hefði verið handbært til þess að freista manna til kaupa á ,svörtum markaði“, þá væri „svarti markaðurinn11 með meiri blóma en raun er á. Þriðjudagar 18. júlí 1944 Tapaði minni hjá Selás og vaknaði við vondan draum Lögregluna vantar vitni. UM KLUKKAN 9 á sunnu- dagsmorgun ók bifreiðarstjórí sem var á leið eftir gamla Þingvallaveginum, fram á mann, er spurði hann hvai’ hann væri og á hvaða leið. Maður þessi var þá nývakn- aður í bifreið, er öll var meira og minna brotin, og hann gat enga skýringu gefið á, en. bifreiðin stóð á veginum á móts við Hafravatn. Bifreið þessa hefir h.f. Shell við flutning verkamanna, en áður tilheyrði bifreið þessi setuliðinu, er hún auðkend stöfunum RN—1006. Maður sá, er ók bifreiðinni. segir sig hafa mist algjörlega minni og geta ekki gefið þær, / upplýsingar er skýrt geti mál« ið. Hann kom hingað í bæ- inn á laugardaginn, 16. júlí og kveður sig hafa ætlað upp að Grafarholti um kl. 23, en á leiðinni hafi hann ekið frarn á hermenn, er báðu hann að a*ka sjer upp að Café Broad- wey (Baldurshaga), en er hann hafi komið á móts við Selás hafi hann mist minnið og ekkert vitað hvað skeð hafi eftir það, uns hann hafi! vaknað undir spýtnahrúgu í bíl þeim, er hann ók, mjög timbraður og með áfengis- Ijragð í munninum. ILann fullyrðir að hvorkx hann eða hermennirnir hafi verið með vín. 1 gær upplýstist það í mál- inu, að maður þessi hafði verið á dansleik í OddfelloW húsinu á laugardagskvöld og boðið tveim mönnum með sjer, austur að Selfossi og hafi hann þá verið allhýr. Frá Selfossi hafi hann farið umC nóttina og var þá svo drukk- inn að þeim, er hann bauð með sjer í ferðalagið þótti vænlegsast að yfirgefa hann. Þá hefir og spurst til ferða R.N.—1006 á leið út úr bæn- um á sunnudagsmorgun kl. 6, en bifreiðin fannst, svo sem fyrr getur, kl. 9. Bifreiðin var mjög illa út- lítandi, skýli, sem er úr, allt botið, afturgaflinn vantar al- veg, framfjöður brotin og loks fannst hljóðdunkurinn og úthlásturspípan niður við Geitháls. Er því óliætt að full' yrða, að bifreiðin hafi að minsta kosti oltið eina veltu, og eru þeir, sem einhverjar, up])lýsingar geta gefið. beðn- ir að tala liið fyrsta við ranrí sóknailögregluna. & Nýr japanskur flota- ráðherra. % London í gær: — Flotamála- ráðherrann japanski hefir látið af embætti og við embættinu hefir tekið Numora flotafor- ingi, sá er stjórnaði japanska flotanum við Norður-Kína 1931 og sá sami er var fulltrúi Japana á flotamálaráðstefn- unni í London 1930. — Reuter.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.