Morgunblaðið - 29.07.1944, Side 1

Morgunblaðið - 29.07.1944, Side 1
AR HAFA TEKIÐ BREST-LITOVSK Varoslav og Przmysl Skemdarverk hjá Burmeisler og Wain jóðverja Það var Þjóðverjum mikið áfall, þegar 30 danskir skemmd- arverkamenn eyðilögðu hina geysistóru skipasmíðastöð Bur- meister og Wain í Kaupmannahöfn. Mynd þessi er tekin úr lofti; og er skipasmíðastöðin ofan við miðju á myndinni. Auk skipa voru smíðaðar þar Dieselvjelar og varahlutir. Enn deyr þýskur hers- höfðingi af „s!ysförm“ London í gœrkveldi: Þ.vska útvarpið sagði frá hershöfðingi í S.S.-hernum því í kvöld að Ernst Vahl, hafi dáið af slysförum. Utvarpið skýrði frá því, að hershöfðinginn hafi orðið fyrir slysi er hann var í heim- sókn" á vígstöðvunnm. Vahl hafði nýlega £engið það starf að stjórna æfingum „Waff- en SS“. Vahl er fimti hershöfðing- inn, sem Þjóðverjar segjn að hafi látist af slysförum s.l. 4 mánuði. Hæg sókn banda- manna á Ífalíu RÓM í gær: — Áttundi her- inn heldur áfram sókn sinni norður til Florens og hersveit- ir Nýsjálendinga, sem tekið hafa við af Bretum á þessum vígstöðvum, eru nú um 9 km. frá sjálfri borginni. Sóknin norður Tiber-dalinn gengur hægt, en bandamenn vinna smám saman á. NEW YORK í gærkveldi. FRJETTARITARI National Broadcasting Company útvarps fjelagsins í Ankara sagði í út- varpi til Bandaríkjanna í dag, að þýskir diplomatar í höfuð- borg Tyrklands hafi látið svo um mælt, að tyrkneska stjórn- in hafi ákveðið að slíta stjórn- málasambandi við Þjóðverja. Þessi fregn kemur í kjölfar annarar fregnar, sem hermdi, að samningaumleitanir í versl- unarmálum milli Þjóðverja og Tyrkja væru strandaðár og af þeim myndi leiða, að stjórn- málasambandi yrði slitið milli Þýskalands og Tyrklands. Viktoríukross fyrir að sökkva kafbéti 32 japönskum skipum sökt NÝLEGA hefir 32 japönsk- um skipum verið sökt í Kyrra- hafi. Kafbátar söktu 21 jap- önsku birgðaskipi á skipaleið- um í Kyrrahafinu, en flugvjel- ar Bandaríkjamanna 11. Kafbátar bandamanna, bæði breskir og amerískir, hafa haft sig allmjög í frammi upp á síð- kastið í Kyrrahafinu, % Ameríkumenn í Coutences Hafa tekið 4000 þýska fanga ME-323 á erfitt með að hef ja sig til flugs. New York: — Þýska ME-323 flutningaflugvjelin er gvo þung fullfermd, að hún getur ekki, þótt hún sje knúin 700—800 hestafla vjelum, hafið sig til flugs, nema með því^móti að skotið sje rakettum úr vængj- um hennar og önnur flugvjel dragi hana af stað. London í gærkveldi. Einkaske^di til Morgunblaðsins frá Reuter. Bandarík j ahersveitirnar hafa haldið áfram sókn sinni á vestanverðum Normandi- skaga og eru komnar inn í borgina Coutences: — Þjóð- verjar hörfa á allri víglín- unni og er enn ekki að fullu sjeð hvort þeim tekst að bjarga meginhluta liðs síns í geilinni, sem myndaðist fyrir norðan Coutences af framsókn Ameríkumanna. Síðustu fregnir herma, að undanhald Þjóðverja sje skipulegt ennþá og að þeir hafi eina leið opna tii und- ankomu, sem Bandaríkja- mönnum hefir enn ekki tek- ist að loka. 4000 fangar. Þegar síðast frjettist í kvöld höfðu Bandaríkjamenn tekið 4000 þýska fanga í sókninni „og von var á fleirum'^ eins og einn frjettaritari orðaði það í skeyti í kvöld. Fregnir höfðu borist uny að 60000 þýskir hermenn ættu á hættu að verða króaðir innþ en síðustu fregnir herma, að þessi tala sje alltof há. Þjóð- verjar hafi eflt varnir sínar norðvestur af Marigny. Virðast Þjóðverjar ætla að verja hægri fylkingararm liðs síns til hins ítrasta til þess að hersveitirnar sem í hættu eru, geti komist undan. 3500 þýskir fangar teknir í Lvov: Mikið herfang London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgun- blaðsins frá Reuter. RÚSSAR HAFA ENN í dag unnið mikla sigra. Stalin marskálkur hefir í tveimur dagskipunum tilkynt töku þriggja mikilvægra borga, Brest-Litovsk, sem Þjóðverjar fyrr í dag voru búnir að tilkynna, að þeir hefðu yfirgefið. Yaroslav og“Przymsl við ána San og vel víggirtar borgir á leiðinni til Krakov, hafa einnig fallið í dag. 40 km frá Varsjá. Rússar hafa nú í vikutíma verið svo að segja við borg- ' arhlið Brest-Litovsk, sem er þýðingarmikil borg á leið- inni til Varsjá. Er borg þessi frægust fyrir friðinn, er þar var saminn milli Rússa og Þjóðverja í mars 1918. — Borgin er austan landamær- anna, sem Rússar og Þjóð- verjar sömdu með sjer, er þeir skiftu á milli sín Pól- landi 1939, en fyrir vestan Curzon-línuna. Leiðin til Varsjá er nú Rússum greiðari en áður, en þeir hafa sótt fram í áttina til borgarinnar og eiga að- eins eftir 40 km ófarna á ein um stað. Þrjú herfylki innikróuð. í herstjórnartilkynningu Rússa í kvöld segir, að fvrir vestan Bugfljót, hjá Brest- Litovsk hafi Rússar innkró- að þrjár þýskar herdeildir og sje nú verið að vinna að því að eyða þeim. Fyrir norðan Dvinsk, segj ast Rússar hafa tekið 60 bæi og þorp í dag, en 25 staði suður af sömu borg. Fyrir vestan og norðan Lublin segjast Rússar hafa tekið 300 staði í dag. Yaroslav og Przymsl. Borgirnar Yaroslav og' Przymsl, sem Stalin getur um í fyrri dagskipan Nnni í dag eru fyrir veCan Lvov og eru við poatsamgöngu- leiðir til Kr kov. Voru borg ir þessar b ’óar vei víggirtar. I síðrstu heimsstyrjöld kom T'.riy msl mikið við sögu, því barist var mikið um borgina og hún varinn lengi, enda er þar gotf til varnar, þar sem fjöll iiggja að borginni á þrjá vegu,- 3500 fangar tehnir í Lvov. Rússar segja í herstjórn- artilkvnningu sinni í k\röld, Framhald á 8. síðu. London í gærkveldi. BRET AKONUN GUR hefir sæmt kanadiskan flugmann, David Ernest Hornell, Viktoríu krossi, (æðsta heiðursmerki Breta fyrir hreysti) fyrir vask- lega framgöngu við að sökkva þýskum kafþáti í Norðurhöf- um. Hornell var yfirmaður á Catalinaflugbáti. Er hann sá til kafbátsins, rjeðist hann þegar að honum, þrátt fyrir mikla loft varnaskothríð kafbátsmanna. Tókst honum að sökkva bátn- um, en flugvjelin laskaðist svo, að hún fjell í sjóinn. Hornell og fjelagar hans voru upp undir sólarhring að velkjast í sjónum Ameríkumenn taka mörg þorp. Fyrir norðan geilina sækja Bandaríkjamenn fram í þremur fylkingum og hafa sótt fram 5—6 km frá Lessay til þorpsins Marguerin og tekið það. Enn fremur sækja Bandaríkjamenn fram frá Periers.og nálgast St. Sauver. Fyrir sunnan St. Lo hafa Bandaríkjamenn sótt fram 15 km frá borginni. Obreytt aðstaða hjá Caen. Á vígstöðvum Breta og Kan- Fra.mli. á bls. 8.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.