Morgunblaðið - 05.08.1944, Side 1

Morgunblaðið - 05.08.1944, Side 1
81, árgangur. 174, tbl. — Laugardagur 5. ágúst 1944. Isafoldarprentsmiðja h.f, Ný hreinsun innan þýska hersins Re ykja vík urm ó tið K.R. Reykiavíkurmeistari 144 Vann Va! 1-9 í sfeeœSHegtsra teik KNATTSPYRNUFJELAG Reykjavíkur cr ' nú orðiS besta knattspyrnufjelag höfuðstaðarins á þessu ári að nafnbót og náði það þessum titli á því að vinna Val í úrslitaleik Reykjavíkur- mótsins í gærkveldi með einu marki gegn engu. K. R. hlaut 4 stig. Víkingur var annar í röðinni (eftir alþjóðalögum um markafjölda að minsta kosli), skoraði 7 mörk gegn 4 og hlaut 3 stig. Valur varð þriðja fjelagið í röðinni, hlaut 3 stig, skoraði 2 mörk gegn tveim. Fram hlaut 2 stig. Leikurinrp þar sem úrslitin voru ráðin, var mjög skemtileg ur og nokkuð jafn. Höfðu liðin sóknariotur á víxl. Mark K. R. skóraði Hörður Óskarsson um miðjan fyrri hálfleik; eftir langa sendingu frá Hafliða. — Skot K. R. voru yfirleitl hættu- legri en Vals, en Hermann varði vel5 enda var oft skotið af nokkuð löngu færi. K. R.-ingar höfðu nú endur- heimt Birgi í vörnina og var hún mjög-styrk og ákveðin. Óli B. Jónsson ljek framvörð með mikilli prýði. Áhorfendup sem voru fjöl- margir; höfðu mjög gaman af leiknum, sem Þráinn Sigurðs- son dæmdi vel. Þetta er fyrsti tapleikur Vals á árinu; en K. R. liðið er nú líka orðið þannig( að önnur hjer mega stórum vara sig á því. London í gærkveldi: — Um 1200 stórar sprengjuflug vjelar amerískar, varðar orustu flugvjelum, rjeðust á marga staði í Þýskalandi í dag, þar á meðal tilraunastöðina við Peenemúnde, þar sem tilraunir með leynivopn eru gerðar. Þá var ráðist á olíustöðvar við Bremen og Hamborg. 14 sprengjuflugvjelar og 16 orustu flugvjelar komu ekki aftur. Síðari hluta dagsins fóru svo margar stórsprengjuflugvjelar til árása á flugsprengju- og stórrakettustöðvar Þjóðverja í Frakklandi. Voru þetta bæði breskar og amerískar flugvjel- ar. 4 komu ekki aftur. — Reuter. Árásir á flugvelli. London: Japanar tilkynna, að þeir hafi að undanförnu hald- ið uppi miklum árásum á flug velli Bandaríkjamanna í Kína •og eyðilagt þar 130 flugvjelar og auk þess unnið annað tjón. Mannerheim ávarp- ar finska þingið Stokkhólmi í gærkveldi: Mannerheim marskálkur; hinn nýkjörni forseti Finn- lands, vann í dag eið að stjórn- arskránni og ávarpaði síðan þingheim. Sagði hann í ræðu sinni, að Finnar ættu í mörgum og miklum örðugleikum, en þó væru vonir til þess að takast mættti að varðveita frelsi og sjáffstæði þjóðarinnar. Hjer í Stokkhólmi er nú ekki talið líklegt að neinar breyt- ingar verði á finsku stjórninni að svo stöddu, en áður hafði, svo sem kunnugt er, verið bolla lagt mikið um það. Manner- heim er talinn njóta almenns trausts og því minni líkur til stjórnarbreytinga. Þó hefir stjórnin sagt af sjer; eins og venja er við forsetaskifti, en Mannerheim beðið hana að sitja áfram. — Reuter. Myitkyína tekin London í gærkveldi: Kínverskar, amerískar og breskar hersveitir hafa nú náð borginni Mýitkyina í Norður- Burma á sitt vald, eftir rúm- lega 10 vikna umsát. Er banda menn að lokum tóku borgina, sem svo lengi hafði verið um- setin, stóð ekki einn einasti af japanska varnarliðinu uppi, en álitið er, að Japanar hafi haft þarna heilt herfylki til varnar, hið kunna 18. herfylki, sem fór í fararbroddi japanska hersins inn í Singapore forðum. . Með töku Myitkyina hægist mjög um fyrir bandamönnum á þessum slóðum, miklu hægra vefður um samgöngur allar, og auk þess er ágætur flugvöllur rjett hjá borginni. Breskar fall hlífasveitir áttu mikinn þátt í sigrinum, með því að rjúfa sam gönguleiðir Japana til borgar- innar. — Reuter. Er nú dúmsforssii Rundstedt marskálkur er enn í frjettunum. Nú er hann orðinn forseti rann- sóknardómsíóls Hiílers, sem 7 j athuga á mál þeirra, er stóðu að samsærinu gegn Hitler. — Og með honurn cr Keitel marskálkur, sem einu sinni var sagður höfuðpaurinn í samsærinu. Mikið tjén ai svif- sprengjum í London Stokkhólmi í gærkveldi: Frjettaritari sænska blaðsins „Stokkhólms Tidningen“ símar blaði sínu í gær, að mjög al- varlegt tjón hafi orðið í London í gær og nóttina þar áður af svifsprengjum Þjóðverja, epda hafi sprengjur þessar sjaldan komið eins margar yfir borgina og þá. I dag hjeldu sprengjur áfram að falla, en þar eð veður var heiðskýrt yfir Ermarsundi, fengu orustuflugvjelar banda- manna grandað mörgum af svif sprengjunum, þannig skaut einn orustuflugmaður niður 3 sprengjur á einum 10 mínútum. — Reuter. Mikið manntjón Japana á Gnam London í gærkveldi. Enn er barisl af hörku á eynni Guam, og hörfa Japanar jafnt og þjett. Hafa þeir til þessa mist þar um 8000 menn, en á eynni Tirnian, þar sem bardagar einnig eru harðir og hallar á Japana, hafa Banda- ríkjamenn talið 5000 fallna Japana. HITLEIt SETBI h STOFl RúlltSÍUIAIiÍMSTÍL / London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgun- blaðsins frá Reuter. HITLER hefir sett á laggirnar sjersíakan rannsóknar- rjett, skipaðan þrem marskálkum. til þess að rannsaka mál allmargra hershöfðingja, sem nú eru í haldi, og sem akæiðir eru fyrir það, að hafa staðið áð samsærinu gegn honum þann 20. júlí s. 1. Eru rannsóknardómararnir þess- ir. Von Rundstedt marskálkur, von Keitel marskálkur og von Guderian marskálkur, yfirmaður þýska herfor- ingjaráðsins, ennfremur 4 hershöfðingjar. Hitler áskilur sjei rjett til þess að athuga niðurstöður rjettarins, en að því búnu verða hinir ákærðu dæmdir af „fólksdómstólí“ svonefndum. ussar nálgast Krakov London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter. Rússneskir herir sækja nú fram í áttina lil hinnar miklu, pólsku borgar, Krakov, eftir að hafa farið yfir Vislu. Eru fram- svéitir þeirra-nú um 64 km. frá borginni og um 120 km. frá landamærum Sljesíu, hins mikla iðnaðarhjeraðs í suðaust ur-Þýskalandi. Eru bardagar þarna harðir og sækja Rússar fram með Vislu að vestan, og hafa þvínær einangrað borgina Tarnov. Nærri landamærum Austur- Prússlands hefir vígsvæðið breikkað allmikið, og bardagar heldur harðnað en hitt, en Rúss ar hafa ekki unnið þar neitt teljandi á ennþá. Norðar, fyrir norðan Kovno, halda orustur líka áfram og hafa Rússar þar tekið nokkur þorp. í skarði einu í Karpatafjöll- um hafa miklir bardagar geys- að, og tilkyntu Þjóðverjar í dag, að þeir hefðu umkringt og strá- felt 271. rússneska fótgöngu- liðsherfylkið þar. Y fir landamærum Austur- Prússlands eru háðir óhemju harðir loftbardagar, og eru úr- slit þeirra enn ókunn. Menn Titos fá flugvelli. London: Nokkrir flugvellir hafa nú verið gerðir á þeim svæðum í Jugoslaviu, sem menn Titos hafa á valdi sínu. Lenda flugvjelar bandamanna þar að næturlagi og færa skæru liðunum hergögn, hjúkrunar- gögn og aðrar nauðsynjar. Blettur þveginn af þýska hernum. Hitler segir í yfirlýsingu þeirri, sem hann gaf út í dag um þessi mál, að hann hafi gert það, til þess að þvo blett af heiðri þýska hersins, sam kvæmt beiðni hersins sjálfs. Kveður Hitler herinn hafa sent sjer beiðni um þetta, sem er svohljóðandi: ,.Til þess að þvo burtu þann skammarblett, sem fall ið hefir á heiður þýska hers- ins við samsæri það gegn foringjanum, sem ýmsir úr hernum stóðu að, biðjum vjer þess, að settur verði á stofn herrannsóknarrjettur. sem rannsaki mál hinna á- kærðu og svo að fólksdóm- stóll dæmi þá, því þeir eru þess ekki verðir að vera dæmdir sem hermenn“. Margir hershöfðingjar ákærðir. Meðal þeirra manna, sem ákærðir eru, eru ýmsir hers- höfðingjar, þar á meðal einn marskálkur, von Witzleben, sem áður stjórnaði þýska hernum í Frakklandi. Er svo ákveðið, að allir þeir, sem sekir eru fundnir, skulu ek.ki framar geta átt neitt sam- neyti við þýska hermenn, sem bera einkernisbúning. Verða þeir því :Kki dæmdir af herrjetti. Hinir ákærðu. Þeir nafngreindir hers- höfðingjar, sem ákærðir eru, eru þessir: Von Witzleben marskálkur, sem nú er í haldi, Fellgieben hershöfð- ingi, vcn Hase hershöfðingi, Stieff hershöfðingi, von Tres chow hershöfói :gi, G. Han- sen ofursti, Be: nardis of- ursti, Hayessen majór, Framh. á 2. síðu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.