Morgunblaðið - 05.08.1944, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 05.08.1944, Blaðsíða 12
12 Laugardagur 5. ágúst 194Í, * Forseti Islands á Akureyri Akureyri á föstudags- kvöld 4. ágúst. , Frá frjettaritara vorum. FORSETI kom frá Ilúsa- vík um klukkan tíu í gærkveli. Fóru hjeðan á móti honum að' sýsl umörkum Þi n gey.j asýslu og Ey.jarfjarðarsýslu við Ytri Vargjá jteir hæjarfógeti Sig. Eggerz, bæjarstjóri Steinn, Steinssen, vígslubiskup Frið_ rik líafnar. Um kvöldið blöstu fánar við hún víðsvegar uin bæinn, sömuleiðis um morguninn, föstudag, og fjkip, er lágu við hafnargarðinn, vo.ru fánum skreytt. Kl. 1 e. h. sat forseti há- degisverð hjá bæjarstjórn Akureyrar og sýálunefnd Eyjaf'jarðarsýslv í samkomu- húsi bæjarins. Ilófið sátu um 150 manns úr bæ og sýslu. Með'aft' setið var undir borð- um, bauð bæjarstjóri forseta velkominu til Akureyrar með ræðu. og ])ví næst flutti for_ seti ræðu. Kl. 4 e. h. var haldið upp í listigarð hæjaiins. Ilafði þar verið komið fvrir ræðustól með hátalara fyrir framan. Var ræðustóllinn fagurlega skreyttur blómuni. Lystigarð- urinn var prýddur fánum. í garðinum mun hafa verið saman komið um 3000 manns. Bæjarfógeti hjelt ræðu og bauð forseta velkominn í nafni sýslunnar og bæjarins 'og mælti síðan fyrir minni Is- lands. þá flutti þæjarfógeti ræðu fyrir minni fánans. Söngmenn úi- karlakórum, . bæjarins, undir stjórn ])eirra Jngimundar Árnasonar og Jóhannesar 0. Ilaraldssonar, sungu og Lúðrasveit Akur- eyrar. undir stjórn Jakobs Tryggvasonar, Ijek ýms lög. Veður var aðdáanlega fag- urt og mjög mikill hátíðar- blær yfii' samkomunni. I kvöld situr forset.i veislu hjá bæjarfógeta. Þann tíma, er forseti dveldst á Akureyri, gistir hann Mentaskóla Akur- eyrar. Forseti leggur af stað áleið- is til Siglufjarðar með varð- skipinu Ægi á morgun kl. 11. í tilefni komu forsetans voru búðir bæjarins lokaðar frá kl. 1—6 í dag. Innrásaríilraun hrundið London í gærkveldi. Þýska frjettastofan segir í dag, að bandamenn hafi gert tilraun til þess að gera innrás á eyna Corcula við Dalmaíiu- strendur studdir af herskipum og flugvjelum, Kom þarna til mikils bardaga og segir frjettastofan. að inn- i'ásartilraun þessari hafi verið hrundið gjörsamlega og land- göngusveitirnar annað hvort hraklar í sjóinn eða feldar. — Ekki hefir nein staðfesting feng íst á þessu frá bandamönnum, — Reuter. Tiífinnanlegur kartöfluskortur á Siglufirði Frá frjettaritara vorum. Mjög tilfinnanlegur kartöflu skortur er nú hjer á Siglufirði, sjerstaklega meðal sjómanna á síldarskipum sem hjer íá vist- ir. Hafa engar kartöflur komið hingað til bæjarins í rúman hálfan mánuð, en nú með Esju komu um 150 pokar, og er menn ætluðu að fara að kaupa kart- öflur af þeirri sendingu fengu þeir það svar, að þær fengju ekki aðrir en meðlimir Kaup- fjelags Siglfirðinga. Ekki er vitað, hvenær úr þessu rætist, og er þetta baga- legra en frá verði sagi fyrir sjómenn, sem eins og kunnugt er, hafa grænmeti mjög af skornum skamti. Þyrfíi hið bráðasta að bæta úr vandræð- um þessum með einhverjum ráðum. F.yrir skömrnu hcimsótti De Gauiie iicrshöfóingi, Roosevelt forseta í Washington og sjást þeir vera að hei’sasi hjer á myndinni. Auk þeii ra sjást á nyndinni Húll utanrskisráðherra og frú John Sctíinger, dótiir ííoosevelts forseta. Frídagur London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgun- blaðsins frá Reuter. Bandaríkjamenn beina nú sókn sinni frá Rennes í áttina til hinnar miklu hafnarborgar St. Nazaire, þar sem Þjóðverjar hafa kafbálastöðvar. Hefir framsókn Bandaríkjasveitanna verið hröð í dag, og eru fremstu sveitirnar nú um 65 km. frá St. Nazaire, og því meira en hálfnaðar yfir Bretagneskagann. — A auslur- hluta vígslöðvanna hefir Bretum sóttst lítt. Þjóðverjar verjast enn í Vire og hafa náð aftur nokkru svæði í gagnáhlaupum. Frjettaritarar með her Banda ríkjamanna síma í dag, að íbú ar Rehnes hafi fagnað hernum vel, er hann kom í borgina. — Bardagar urðu þar litlir og yf- irleitt er mótspyrna Þjóðverja á þessum slóðum því nær eng in. Þá sækja Bandaríkjamenn nú fram frá Dinant áleiðis til St. Malo og eru þar allharðir bar- dagar háðir. Fluglið beggja læt ur til sín taka, þannig segist Bandaríkjamönnum svo frá að flugvjelar þeirra hafi í dag eyði lagt sex herflutningabifreiðir og 4 herráðsbjfreiðir, en Þjóð- verjar kveðast hafa eyðilagt með flugvjelum 5 skriðdreka og allmargar bifreiðar. Búrhval rekur á Þykkvabæjarfjöru SÍÐASTLIÐINN fimludag rak búrhval á Þykkvabæjarfjöru í Álftaveri. Var hvalur þessi 25 metra langur og virtist heil- legur. Engin verksummerki sá- ust á hausnum, er bent gátu til þess, að hvalurinn hafi rekist á tundurdufl, en það mun stund um hafa komið fyrir, að stórir hvalir hafi drepist á þann hátt. Álftveringar munu ganga til hvalskurðar og kemur þá í ljós, hvort hvalurinn er óskemdur. Þófið á Cacn-Bochage- svæðinu. Milli Villiers Bochage og Caen hafa Þjóðverjar gert gagnáhlaup og hrakið Breta á bak aftur af nokkru landssvæði er þeir áður höfðu náð. I Vire verjast Þjóðverjar enn og um hæð 112 er-barist, og ennfrem- ur hafa Þjóðverjar Evercy, sem Bretar höfðu áður náð af þeim. London: Hinn kunni breski leikari, Noel Coward, hefir að undanförnu verið á vígstöðv- unum í Burma og skemt her- mönnunum þar. Iiefir hann lagt á sig óheyrilega erfið ferðaiög í þessum tilgangi. Þjóðminjasafns- byggingin á Háskóla lóðinni Á FUNDI í gær samþykti bæjarráð fyrir sitt leyti, að þjóðminjasafnabygging verði reist á Háskólalóðinni. Háskólaráðið hefir boðið lóð undir væntanlegt hús þjóð- minjasafnsins á Tóðinni fyrir vestan Gamla Stúdentagarðinn á mótum Melavegs og Hring- brautar og telur byggingar- nefnd þjóðminjasafnsins að þessi lóð geti komið til greina. Reykvíídngur fsr á „jeppa" bfl li! Siglufjarðar Frá frjettaritara vor- um á Siglufirði. Föstudaginn 4. ágúst.. GUNNAR JÓNSSON, kaup- maður frá Reykjavík kom hingað í gær í „Jeppa“-bíl yfir Siglufjarðarskai'ð. Gunnari gekk ferðin mjög að oskum, en leið sú er hann' fór er um garnla reiðveginn út á skarð. Eini faratálminn var; steinn, er hann festi bifreið sína á. — Lætur Gunnar vel að förinni, og má því marka hversu lítið þarf til að gera til þess að leiðin sje fær híl- um, þó ekki A'æri nema til bráðabirgða. Vegurinn Slglu- fjarðarmeginn er ágætur, alla leið upp á Skarðið, en það gengur mjög seint að brjóta göngin í gegnum fjallsvegg- ina, enda er verkið erfitt. Gömul kona fellur á bifreið í gær vildi það slys til, að gömul kona fjell á bifreið, er var á ferð og meidist mikið. — Gamla konan er María Jóns- dóttir, til heimilis á Karlagötu 16. — Tildrög slyssins munu vera þau að María, sem stóð utarlega á gangstjettinni skamt frá horni Hringbrautar og Skeggjagötu, fjell framyfir sig um leið og bifreiðin R-1228 ók hjá. Lenti hún með höfuðið á afturhurð bfreiðarinnar og hlaut meiðsli á höfði. Var María flutt í Landspít- alann í sjúkrabifreið, en í gær- kvöldi seint er blaðið átti tal við spítalann, höfðu læknar ekki enn athugað hversu meiðslin voru mikil, en gömlu konunni leið eftir vonum. VERSLUNARMIJNN miim- ast frídags síns á mánudag- inn með kvöldskrá í útvarp- inu með samkomu að Hótelj Borg. Dags'kráin í útvarpinu verðí ur á þessa leið: Hjörtur Ilans- son, form. Verslunarmanna- fjelags Reykjavíkur, flytur ávarp. Konráð Gíslason kaup- maður flytur minni íslandk og- Bahlur Pálsson verslunar- maður flytur minni verslun- arstjettarinnar. Milli ræðn- anna leikur útvarpshljómsveits in, og frú Elísabet Einarsdótt- ir syngur. Samkoinan að Ilótel Borg' liefst kl. 10 e. hád. Hjörtur ITansson ávarpar gesti. Lúð- vík Iljálmtýsson verslunarm^ flytur ræðu. Ágúst Bjarna- son skrifstofustj. og Jakob’ Hafstein framkvæmdastjói i] syngja tvísöng. Lárus Ingólfs- son leikari skemtir. Skúli] Ilalldórsson gjaldkeri leikurj á píano. Að lokum dans stigi inn. Er ekki að efa, að hóf þettá verður fjölsótt eins og ætíðj áður. Aðgöngumiða að hófinit geta menn fengið í dag í skrif- . stofu V ersíunarmaimaf j elags Reyk.javíkur, Vonarstræti 4, og á mánudag í anddyrinu á! Ilótel Borg, ef eitthvað verð- ur eftir óselt. Þeir verslunar- menn, sem ætla út úr bænuml um helgina, en hugsa sjer að| sitja hófið, ættu að tryggja, sjer aðgöngumiða í dag. Það væri vel við eigandi, að! verslunarfyrirtæki og kaup-. menn drægju fáua að hún í tilel'ni dagsis. Hertogi fellur. London: Douglas Hamilton flugforingi, yngsti bróður her- togans af Hamilton, forsætisráð herra Skotlands, fjell fyrir nokkru í loftorustu yfir Frakk landi. Hann var 32 ára gamall og hafð lengl verið flugmaður. — Reuter.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.