Morgunblaðið - 11.08.1944, Side 1
r
81. árgangTir,.
178. tbl. — Föstudag'ur. 11. ágúst 1944.
Isafoldarprentsmiðja h.f.
Á i-E
EMN BYRJAÐI
AIMS TIL PARÉSA
Þióðverjar byrja gagnsókn við
landamæri Prússlands
Rússar nálgast Varsjá
London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgun-
blaðsins frá Reuter.
ÞJÓÐVERJAR hafa byrjað gagnsókn gegn Rússum á
allbreiðri víglínu í nánd við járnbrautina frá Kovno til
Königsberg og eru orusturnar háðar tæpa 20 km frá landa-
mærum Austur-Prússlands. Segja Rússar að Þjóðverjar
beiti þarna miklu skriðdreka- og fótgönguliði, studdu
flugvjelum. Eru bardagarnir að sögn Rússa afar harðir,
en Rúsar segja, að Þjóðverjum hafi enn sem komið er
ekkert orðið ágengt þarna. Þjóðverjar segja aðeins að
þeir hafi hafið mikil gagnáhlaup.
]STálgast Warsjá úr
noröaustri
Á bardagasvæðinu fyrir
nor.ðaustan Warsjá hefir Rúss
um tekist að sækja nokkuð
fram og breikka fleyginn, sem
rekinn hefir verið þar í víg-
línu Þjóðverja. Einnig þar eru
harðir bardagar háðir, en svo
virðist, sem að mestu sje kyrt
fyrir austan og suðaustan
borgina. Fregnir berast stöð-
ugt um það, að Pólverjar
haldi uppi skæruhernaði gegu
Þjóðverjum í Warsjá, en
livergi hafa þær fregnir hlot-
ið örugga staðfestingu.
Strandhögg við
Peipusvatniö
Rússar sæja jafnt og þjett
að þýsku herjunum í norður-,
hluta Lettlands og Eistlands,
og herma frjettaritarar, að
þeim hafi tekist að víkka yf-
irráðasvæði sitt til sjávar
nærri Riga. Þjóðverjar kveð-
ast gera Rússum mikinn óleikj
með því að gera strandhögg
við Peipusvatnið að baki víg-
stöðvum Rússa, en vatnið
myndar sjálft hornsteininn í
vörnum Þjóðverja í Eystra-
saltslöndunum.
Aðal-bardagasvæðin
Að, því er herstjórnartil-
kynníng Rússa skýrir frá, eru
aðal-bardagasvæðin nálægt,
Marinopol, þar sem gagná-
hlaup’ Þjóðverja eru hörðust,:
fyrir vestan Sidlse, þar sem
Rússar hafa sótt fram og svo;
í dölum Karpatafjalla, þar sem’
Rús’sar reyna enn að komast
upp í skörðin.
Þá segja Rússar einnig frá
miklum gagnáhlaupum Þjóð-
verja^fyrir vestan Sandomierz
er var hrundið og uku Rússar
yfirráðasvæði sitt vestan
Vislu.
Ný tegund svif-
sprengja
London í gærkveldi:
Allmörgum svifsprengjum
var skotið á London og um-
hverfi í dag, eftir nokurt hlje.
Hafa ýmsar af svifsprengjum
þeim, er fallið hafa síðustu
daga, verið af nýrri gerð, þar
eð í þeim hafa auk hinnar stóru
sprengju verið um 20 eld-
sprengjur, sem hafa dreifst
víðsvega, er svifsprengjan
sundraðist. — Tjón hefir í dag
orðið nokkurt sem fyrr, en ör-
yggismálaráðuneytið hefir til-
kynt, að ekki muni verða gerð
ar neinar sjerstakar ráðstafanir
Austurvígstöðvarnar.
Sendiherra segir af sjer.
Róm í gærkveldi: Sendiherra
Rúmena við Páfastólinn, —
Carmarescu og sendifulltrúi,
Moschuna, hafa sagt af sjer
Eru komnir til Nantes,
en norðar geisa miklar
orustur
London í gær^ Einkaskeyli til Morgunblaðsins
frá Reuter.
SKRIÐDREKASVEITIR Bandaríkjamanna eru sagðar hafa
byrjað sókn frá borginni Le Mans; en ekki hefir enn frjettst
um gang sóknarinnar, sem mun vera stefnt í áttina til Orleans
og Parísar. — Þá eru Bandaríkjamenn komnir að stórborginni
Nantes við Leiruósa og Lorient er umkringd. Við Angers og
Nantes tefja stór jarðsprengjusvæði framsóknina. Um allan
norðurhluta vígsvæðisins geisa miklar orustur en breytingar
hafa ekki orðið miklar þar.
Sendiherra Banda-
ríkjanna afhendir
embæiiisskilríki
Roosevelt situr mikil-
væga ráðstefnu á
Havaii-eyjum
London í gær. Einkaskeyti til Morgunblaðsins
frá Reuter. %
TILKYNT IIEFIR VERIÐ í Washington, að Roosevelt
forseti hafi fyrir þrem vikum setið mjög mikilvæga ráðstefnu
í Honolulu með hershöfðingjum sínum og skoðað varnir
Pearl Ilarbour. Var rætt um sóku til ])ess að ná aftur
Filipseyjum og um það, hvernig Japanar yrðu sem fyrst
neyddir til skilyrðislausrar uppgjafar.
ráðstefnu
Þeir, sem sátu
þessa með Roosevelt voru: Mac
Arthur hersh. Leahy flota-
foringi, Hasley flotaforingi og
Niemitz flotaforingi. Ráðstefn-
unni var af Öryggisástæðum
haldið leyndri svo lengi.
Roosevelt, sem fór með her-
skipi til Havaii, lagði af stað
þangað kvöldið eftir að hann
tók við útnefningu Demokrata-
flokksins sem forsetaefni.
Tilkynning frá utanríkisráðu
ney tinu:
í GÆR tók forseti íslands á
móti sendiherra Bandaríkjanna
herra Louis G. Dreyfus jr., í
hátíðarsal Bessastaða, og af-
henti sendiherra forseta embætt
isskjöl sín.
Við þetta tækifæri fórust
sendiherra orð á þessa leið:
,,Mjer er það sjerstakur heið
ur að færa yður í dag, herra for
seti, brjef forseta Bandaríkja
Ameríku, en með því er jeg
gerður sjerstakur sendiherra og
ráðherra með stjórnarumboði
hjá yður, herra forseti Islands.
Þótt jeg eigi hafi dvalið lengi
hjer á landi, hefi jeg tekið eftir
hinum mikla áhuga þjóðarinnar
fyrir landi mínu og orðið var
þeirra óska hennar að lönd vor
megi lifa í andrúmslofti ein-
drægni og góðvilja. Þessi vin-
áttuhugur er mjer mikið gleði-
efni, og jeg mun hlúa að honum
eftir bestu getu.
Jeg vil fullvissa yður, herra
forseti, um það að meðan jeg
leysi af hendi skyldustörf emb-
ættis míns, mun jeg reyna af
fremsta mætti að viðhalda og
auka á þau bönd einlægrar vin-
áttu, sem hinagð til hafa ein-
kent svo mjög samskipti landa
okkar beggja. Myndi jeg telja
það mikið lán, ef jeg gæti á ein
hvern hátt átt tækifæri til að
vera til aðstoðar landi yðar og
landi mínu, þegar leysa verður
úr ótal vandamálum. sem a-11-
ar þjóðir verða að horfast í
augu við að stríðinu loknu, og
aftur þarf að taka upp friðsam
leg störf. Jeg trúi því, og hygg
Framh. á bls. 11.
í Brest og St. Malo.
Þjóðverjar verjast enn af
mikilli-hörku í báðum þessum
borgum, þó ekki hafi þeir að
sögn nema eitt virki á valdi
sínu enn í St. Malo, en hins-
vegar hefir ekki frjettst enn um
að Bandaríkjamenn væru
komnir inn í Brest. — Kafbáta
bækistöðin Lorient á suður-
strönd Bretagneskagans er sögð
umkringd, en sjest hefir til
skipaferða Þjóðverja þangað í
höfn og er álitið að Þjóðverjar
muni flytja lið þaðan.
Mikil flutningamiðstöð.
Borgin Nantes, sem Banda-
ríkjamenn eru nú komnir að,
er stór borg og mikil samgöngu
miðstöð, um hana fóru yfir 2
milj. smálesta af vörum árið
1939, og um hana fluttu Banda-
ríkjamenn mest af hergögnum
sínum í fyrra stríði. í borg þess
ari eru um 200.000 íbúar. Bæði
þar og við Lorient hefir mót-
spyrna Þjóðverja ekki verið-
mikil.
Caen-Mortain-svæðið.
Þar eru bardagar ógurlega
harðir sem stendur, og hefir að-
staðan ekki mikið breytst. —
Þjóðverjar munu enn halda
Mortain, þótt svo virðist nú,
sem þeir muni draga lið sitt af
þeim slóðum þráðlega. — Milli
Caen og Orne-árinnar hafa
Kanadamenn þokast áfram -—
sumsstaðar, en í dal einum fyr-
ir austan Orne hafa Þjóðverjar
aftur unnið nokkuð á. Nálgast
Kanadamenu Falaise gegn mik
illi stórskctahríð.
RáðÍ£Í á skip við Fiiipps-
eyjar.
Washington: Afnerískar flug
vjelar eru nú byrjaðar á því að
gera árásir á skip Japana við
Filippseyjar. Söl:1u flugvjelar
þannig allstóru japönsku flutn
ingaskipi við eyjarnu: í íyrra-
dag. — Reuter.