Morgunblaðið - 17.08.1944, Blaðsíða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ
Fimtudagtir 17. ágúst 1944.
j— Norsku heimavígstöðvarnar
Framh. af bls. 7.
;lið á svo að nota á heima-
; vígstöðvunum. Þýsk-norsk-
ar SS-sveitir, sem ekki hafa
. verið á vígstöðvunum, eru
nú aftur komnar til Oslo og
. hafa verið vopnaðar nýtísku
vopnum. Martinsen hefir
sent út ávarp til hirðarinn-
ar þess efnis, að hún eigi
að framkvæma vilja foringj
ans í samstarfi við þýsk-
norsku stormsveitirnar og
,,láta lífið, ef þess gerist
þörf“. Hirðstjórarnir í hin-
um ýmsu hjeruðum hafa
kallað lið sitt saman til könn
unar og skorað hefir verið
á alla flokksmenn nasista-
flokksins frá 18—55 ára að
ganga í hirðina.Fregnir hafa
jafnvel borist um það, frá
sænskum heimildum, að öll
hirðin hafi verið kvödd til
vopna, en sú frjett hefir ekki
fengist staðfest.
Baráttan er að harðna.
„BARÁTTAN á heima-
vígstöðvunum er nú að fá á
sig öll merki þess, að loka-
uPPgjörið sje að nálgast“ —
sagði Friid að lokum. Hugs-
anlegt er að herbúnaður
quislingasveitanna merki
það, að útfæra eigi nú vinnu
skráninguna með fyllstu
horku. Það er að minnsta
kosti víst, að sveitum þess-
um á að beita gegn föður-
landsvinum, sem kynnu að
gera uppsteit, og verði inn-
rás gerð í Noreg, munu þær
komast undir þýska stjórn
og fá það hlutverk að halda
norskum almenningi í skef j
um. Opinskár nasistafylkis-
stjóri hefir gert það upp-
skátt, að gislar muni verða
teknir og skotnir, ef nokkur
skemmdarverk yrðu framin.
En mótspyrnan harðnar
stöðugt. — Gestapo er nú
grimdarfyllri en nokkru
sinni áður. en þeir* sem
handteknir eru, beita nú oft
fyrir sig skotvopnum, Gesta
po hefir unnið flest afrek sín
í Noregi með hjálp svikara,
og það hefir áreiðanlega vak
ið mikla ánægju í Noregi,
að undanfarið hafa margir
svikarar og Gestapoþý verið
gerð óskaðleg. Vakti það
mikinn óhug meðal quisl-
ingaleiðtoganna, þegar Lind
vig, lögregluforingi var skot
inn, skömmu eftir að hann
hafði látið taka norskan föð
urlandsvin af lífi. Spreng-
ingar hafa verið tíðar að
undanförnu og bera merki
þess, að þar sjeu engir
skussar að verki.
Boðskap Eisenhowers
hershhöfðingja, til íbúanna
á ströndum V.-Evrópulanda
um það, að þeir skyldu flytja
frá strandhjeruðunum, hef-
ir verið tekið á nokkuð mis-
munandi hátt af þýsku yfir
völdunum í Noregi.
Kristianssund og Bodö gáfu
fylkisstjórarnir út fyrirmæli
um það, að fólk mætti ekki
yfirgefa heimili sín, heldur
sinna störfum sínum áfram,
og heimili þeirra, sem ekki
sneru heim aftur úr sumar-
leyfum, myndu gerð upp-
tæk og öll þeirra búslóð. —
í Tromsö var aftur á móti
almenningi tilkynt, að aliir,
sem gætu, skyldu yfirgefa
Troms-loftvarnasvæðið.
Samtökin á heimavígstöðv
unnn munu verða að ganga
í gegnum mikla eldraun
næstu mánuði. Þjóðverjun-
um er það fullljóst, að hin
leynilegu samtök eru skipu-
lögð með það fyrir augum,
að styðja bandamenn á
skipulegan hátt, ef þeir
gerðu innrás. Þjóðverjarnir
leggja sig því nú alla-fram
til þess að fá samtök föður-
landsvinanna til að koma
fram í dagsljósið of snemma.
Má gera ráð fyrir því. að á
næstunni verði tíðar árásir
gerðar á þá staði, sem ætlað
er að föðurlandsvinirnir
hafi aðsetur á, því að nasist-
um er eðlilega kappsmál að
gera út af við samtök þeirra
áður en bandamenn fá þeim
nóg annað að starfa við varn
ir landsins. Agi sá og bar-
áttuþrek sem fólkið á heima
vígstöðvunum hefir undan-
farið öðlast í baráttunni
gegn vinnuskráningunni,
mun nú koma því að góðum
notum.
Brjef:
Burt með laus-
beisluðuhundana
ITerra ritstjóri!
1 BLAÐI YÐAR 15. þ. m.
er farið hörðum orðum um,
hundahald hjer í bæ. •— Jeg
er alveg á sama máli, að hund
ar þeir, er leika lausum hala
og ónáða fólk, eiga að vera
rjettdræpir og með öllu ó-
friðhelgir. Hn hitt tel jeg al-
veg rangt, að- banna-mönnum
að eiga meinlausa og vel þrif-
aða hunda, sem aldrei eru
látnir ganga lausir. —- 1 er-
lendum. bæjum, sem að öllu
Jeyti bera af okkar bæ, hvað
þrifnað snertir, er mikið af
hundum, en þeir ganga yfir-
leitt ekki lausir. — Sá hunda-
faraldur, sem nú gengur hjer
yfir, er ein af þeim mörgu
plágum, sem fylgdu ástandinu
eins og margt annað böl. —•
Jeg sje enga ástæðu til þess
að útrýma öllum hundum,
þótt vargar þeir, er iausir
sjeu „teknir úr umferð“ að
fullu. •— Merktir hundar, sem
skattur hefir verið greiddur
af, eiga alls ekki sammerkt
við flækingshunda setuliðsins
og annara þeirra, er lítt hirðá
um reglur og velsæmi.
Þorsteinn Jónsson.
Heiftúðugar svif-
sprengjuárásir
í gærkveldi
London í gærkveldi:
Lítið var um svifsprengjuá-
rásir framan af degi í dag, en
er líða tók á kvöldið, komu þær
yfir Suður-England og London
í hópum. Margar voru eyðilagð
ar, áður en þær næðu ákvörð-
unarstaðnum, en af þeim sem
þangað komust varð sem fyrr
allmikið eignatjón og manntjón
nokkurt. — Allar loftvarna-
skyttur meðfram Suðurströnd-
inni skutu á sprengjurnar af
byssum sínum og orustuflug-
vjelar voru á lofti. — Reuter.
Svíar rannsaka
vinnuskilyrði í neð-
anjarðarbyrgjum
Stokkhólmi: Styrjöldin og
hætturnar af loftárásum hafa
neytt mörg þúsund verkamenn,
jafnvel í hinni hlutlausu Sví-
þjóð, til þeess að vinna í neð-
anjarðarverkstæðum. — Eru
vinnuskilyrði þar auðvitað á
margan hátt frábxugðin þeim,
sem venjulega eru í dagsljósi,
og til þess að rannsökuð yrðu
hin ýmsu vandamál, sem þessu
eru samfara, hefir verksmiðju-
málanefnd sænska landvarnar-
ráðuneytisins skipað nokkra
sjerfræðinga til rannsókna
þessarra.
Rannsakendur þessir hafa ný
lega birt niðurstöður sínar, og
gefa þeir í henni yfirlit um þau
neðanjarðarverkstæði, sem til
eru í landinu. Sum þeirra eru
sögð hellar, höggnir í berg og
voru þeir upphaflega ætlaðir
til geymslu, en hin nýjustu
byrgi eru mjög háar hvelfing-
ar og þar er allur útbúnaður
samkvæmt nýjustu tækni, ljós-
um vísindalega fyrir komið,
tæki höfð til þess að útiloka
kulda og raka, loftræsting hin
fullkomnasta o. s. frv.
Ekki er hægt a,ð kvarta neitt
yfir ljósinu í hinum nýjustu af
verkstæðum þessum, en í hin-
um eldri er byrtan sumstaðar
álitin ófullnægjandi, sjerstak-
lega vegna þess hve dökkleitt
loft og veggir eru. Rannsóknar
nefndin leggur til að þetta sje.
málað hvítt. Þar að auki gefa
lampar þeir, sem venjulega
hafa verið notaðir þar, ekki
frá sjer útfjólubláa geisla, og
að því leyti eru kvikasilfur-
lampar haldnir vera miklum
mun hentugri hvað það atriði
snertir.
Að flestu leyti voru ljósaskil
yrðin álitin fullnægjandi, þar
sem ljósið var víðasthvar
fullnægjandi.
Þrátt fyrir það, þótt ljósin
reyndust vera í svo góðu lagi
yfirleitt í þessum klettaborg-
um, hafa fregnir borist um það,
að rannsóknarstofnun land-
varnarráðuneytisins muni
halda áfram rannsóknum í
þessu atriði.
Brjef:
Babylons
fljót
Herra ritstjóri!
NÚ GET jeg ekki lengui'
stilt mig um að þakka sjei’a
Sigurbirni Einarssyni fyrir a'lt:
sem hann hefir talað í útvarp-
ið. — Meðal annars fösturæð-
urnar, Passíusálmana og núria
síðast upplesturinn úr bókinni
frægu <„Við Babylonsfljót“.
Jeg var boðin út fimtudags-
kvöldið 10. ágúst. — En hafði
til allrar hamingu, athugáð
útvarpsdagskrána — og iðr-
ast þess ekki að vera heima
og hlusta á upplestur sjera
Sigurbjörns.
Tiltölulega fáir menn kaupa
eða lesa þá tegund bóka sem
nauðsynlegust er. •— En út-
varpið getur greitt veg þeirra
bókmenta eins og annara.
Allir munu finna, að bókin
•„Við Babylonsfljót“, þýðir
einmitt það sem heiminn vant-
ar svo tilfinnanlega eins og
sakir standa núna. — Aði
hreinsa til í herbúðum lýg-
innar og benda á lifandi leið-
ir hins eina rjetta.
Utgáfan í íslenskri þýðingu
hefir sinn göfuga tilgang á
þann hátt að láta bágstödd
börn njóta verðsins — það'
vitnar um höfundinn seíu
mannvin — og með því að
lesa nú bókina áfram í út-
varpið myndu þessir tveir
prestar, Kaj Munk og Sigur-
björn Einarsson, ennfremur
útbreiða guðríki ,og veita ís-
lensku þjóðinni „sönn hygg-
indi“.
Kristín Sigfúsdóttir.
Þýsk sendisveit kemur
heim.
London: Til Lissabon kom í
gær þýska sendisveitin, sem
verið hafði í Argentínu, en nú
hafa Argentínumenn, sem kunn
ugt er, slitið stjórnmálasam-
bandi við Þjóðverja. Þýski
sendiherrann í Portúgal er
sagður hafa tekið á móti sendi
sveitinni. — Reuter.
X-9
Eftir Robert 'Storm
>♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦<
WHEN X l£?T THE Elö TOWN, TME
FED5 WERE 50 CL05B TO ?LOOP6'i
TMEV COULO REACH OUT AN' 3RU5H
HIS TEETH...VOU WOULDN'T WANT -
T0 TALK TO WAEHIN6TDIV OMEfZ I
. A TAPPEQ WIIZB ? ...
VEAH-.THAT'ð EléHT'
HM/B..W1AV0E X HAP VOU
WPÚN6... WHAT'D VOU
$AV VOU/? TAó WAÓ?
ires Syndicate, fr.r., World riþhts rssrrved.
1—2) X—9: — Því notarðu ekki skynsemina,
Blákjammi? Ef jeg væri lögregluþjónn, þá myndi
jeg ekki reyna að snuðra uppi dvalarstað þinn einn
míns liðs, heldurðu það? Blákjammi: ■— Kannske
ætti jeg að hringja til Floopsy og komast að því,
hvort hann hefir sent þig.
X—9: — Það myndi jeg ekki gera í þínum spor-
um, Blákjammi.
3—4) Þegar jeg fór úr höfuðstaðnum, var lög-
reglan svo á hælunum á honum, að hún þurfti ekki
annað en rjella út sinn armlegg til þess að geta
burstað í honum tennurnar .. Þú myndir ekki kæra
þig um að tala í síma til Washington, þegar hlerað
er á línunni, eða hvað?
Blákjammi: — Já, það er rjett. Hm . . Kannske
hefi jeg hafí þig fyrir rangri sök . . Hvað sagðir þú,
að sjergrein þín væri?