Morgunblaðið - 26.08.1944, Side 1

Morgunblaðið - 26.08.1944, Side 1
BORGARASTYRJOLD í RtJHflEIMÍU Leifar þýska setuliðs- ins í París gefast upp De Gaulle kominn til borgarinnar og lýsir fjórða lýðveldið stofnað London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgun- blaðsins frá Reuter. . ÚTVARPIÐ í PARÍS tilkynti í kvöld, að yfirmaður þýska setuliðsins í París, eða rjettara sag't leifa þess, sem ekki komust úr borginni, hefði gefíst upp fyrir Leclerc hershöfðingja, og komu þeir saman í Montparnassestöð- inni, til þess að undirrita samningana um uppgjöfina. Þá tilkynti útvarpið, að De Gaulle hefði komið til Parísar- borgar í kvöld og verið tekið með miklum fögnuði. Konungur segir Þjóð- ver jum stríð ú hendur Höfuðborgin á valdi konungsmanna London í gær. Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter. ALLAR FREGNIR benda nú til þess að raunveruleg borgarastvrjöld sje hafin í Rúmeníu, en fregnir eru heldur óljósar. Útvarpið í Búkarest tilkynnti í kvöld, að öll höf- uðborgin væri á valdi konungsmanna og var einnig í út- varpinu tilkynnt, að stjórn Michaels konungs hefði sagt Þjóðverjum stríð á hendur. Þjóðverjar segja í dag, að sumar hersveitir Rúmena hafi snúist í lið með Rússum og berjist með þeim, en aðrar eftir sem áður með Þjóðverjum. Uppgjafarskjalið var svo-' hljóðandi: „Jeg, yfirmaður þýska liðsins í París skipa liði mínu að hætta vopna- viðskiftum nú þegar. — Þá hermenn, sem ekki hlýðnast þessu ber að skoða sem leyni skyttur og ná ekki venju- leg hermannalög yfir þá, heldur eru þeir rjettdræpir. Verða menn að afhenda vopn sín óskemd“. Parísarbúar í götuvirkjum. Nokkrir bardagar urðu í borginni í dag, og tóku Par- ísarbúar nokkurn þátt í þeim. Börðust þeir við götu- vígi í borginni, eins og forð- um á dögum frönsku stjórn- arbyltingarinnar, meðan herfylki Leclercs var að fara inn í borgina. Eftir það urðu aðeins lítilfjörlegar skærur, og nú eru amerískar hersveitir einnig komnar inn í borgina. De Gaulle kemur. Mikill fögnuður varð meðal borgarbúa, er það frjettist að De Gaulle væri kominn til borgarinnar. — — Ávarpaði hann mikinn mannfjölda á torgi úti og sagði: ,,Jeg get aðeins sagt: Lengi lifi París. Fór hann síðan til Hotel de Ville og lýsti þar yfir hátíðléga, að fjórða lýðveldið franska væri stofnsett. Bardagarnir umhverfis París. Fyrir norðan París halda Þjóðverjar undan, sem þeir mega og revna að komast yfir Signu, en bandamenn veita þeim hraða eftirför. — Framh. á 2. siðu. Uppþot í Róm Róm í gærkvöldi: Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter. Eftir Charles Buckley. UM 5000 MANNA MÚGUR reyndi í dag að ryðjast inn í ítalska lögreglustöð hjer í borginni. Iíafði safnast sam- gn mikill múgur, til þess að fagna frelsun Parísar, og fyllt jst fólkið gremju, er það sá blakta yþr lögreglustöð einni jtalska fánann með krossi þavoyættarinnar, konungsætt- grinnar ítölsku. Ruddust nokkrir menn inn, l'ifu niður fánann og settu j’auðan fána með hamri og ýiigð í staðinn. Þegar ungur lögregluþjónn reif niður rauða fánann, reyndi lýðurinn að þr.jóta upp húsið, en tveir lög- j’eglumenn fengu hindrað það, Það voru Iika þeir, sem hindr uðu það, að lýðurinn dræpi þinn unga lögregluþjón. Að lokum varð að leyfa Jýðnum að draga upp ítalska fánann, franska fánann og rauða fánann. Washington: — Herstjórnar tilkynning frá Kyrrahafssvæð- inu í gær skýrir frá því, að amerískar sprengjuflugvjelar hafi ráðist á Paramushiro á Kurileyjum. Var þar sökt einu flutningaskipi og sprengjur fjellu á birgðaskemmur. Fór til Stalins NÝLEGA, er forseti pólsku útlagasttjórnarinnar í London, Nikolajczyk. kominn aftur þang að, eftir að hafa farið til Moskva og átt þar viðræður við Stalin og Molotov um málefni Póllands. Ekki er sagtt að neinn árangur hafi náðst í för þessari og alltt í óvissu enn um þessi mál. Hryllilegl slys í Bretlandi London í gærkvöldi. ÞAÐ HEFIR nú komið í ljós, að 59 menn fórust, er amerísk Liberator-sprengjuflugvjel hrapaði til jarðar í Freckleton við Preston og kom niður á barnaskóla þorpsins. Fórst öll áhöfn flugvjelarinnar og því nær allir nemendur og kennar ar hins litla þorpsskóla. Iðnaðarframleiðsla Svía minkar Stokkhólmi: — Framleiðsla sænska iðnaðarins minkaði um tvö stig í maímánuði s.l. Var hún í maí fyrra árs 110 stig, en í maí núna 108. Mest minkaði járn- og stálframleiðslan, sem lækkaði um 5 stig. Vjelafram- leiðsla minkaði einnig nokkuð, eftir að hafa aukist í apríl. Trjáviðar- og pappírsframleiðsl an stóð í stað. (hurchill ræðir við páfa og við Ítalíu- stjórn London í gærkvöldi. CHURCHILL forsætisráð- herra fór í gær í heimsókn til Páfa og ræddust þeir við í eina klukkustund, en í dag ræddi Churchill við Bonomini for- sætisráðherra ítala um innan- ríkismál Ítalíu. Eftir það fór Churchill á fund Umberto landsstjóra og að lokum sat hann langan fund með allri ít- ölsku stjórninni. — Reuter. Samið um bráða- birgða stjórn í Frakklandi UNDIRRITAÐUR var í dag samningur af Anthony Eden utanríkisráherra Breta og Mass igli, utanríkismálafulltrúa -frönsku þjóðfrelsisnefndarinn- ar um bráðabirgðastjórn í þeim hlutum Frakklands, sem teknir verða af Þjóðverjum. — Var í þessum samningi tekið fram, hvernig farið skyldi með stjórn almennra mála, fjármála og gagnkvæma aðstoð. — Einnig vernd eigna og hertekin verð- mæti. Samningtir þessi mun í að- alatriðum verða til þess að Frakkar og hern bandamanna í landinu veiti hverjir öðrum sem gagnkvæmasta aðstoð í hverju máli. Með stjórn í þeim hjeruðum, þar sem bardagar eru hættir, munu Frakkar sjálf ir fara, en annarsstaðar Eis- enhower hershöfðingi, — SagLvar svo frá bardög- unum í höfuðborg Rúmen íu, Bukarest, að þeir hefðu verið ákaflega harðir og blóð ugir, en að lokum hefðu Þjóðverjamir og fylgismenn þeirra verið yfirbugaðir og reknir úr borginni. Einnig er sagt, að flugvöllurinn við borgina hafi verið tekinn og sje nú í höndum konungs- manna. Ekki minnast Þjóð- verjar neitt á Antoneseu, er áður rjeði ríkjum í Rúmen- íu. Aköf sókn Rússa. Rússar sækja fram með miklum hraða í Rúmeníu og herma lausafregnir að þeir sjeu þegar komnir að ósum Dónár. Hörfa Þjóðverjar að eigin sögn, hvarvetna til vesturs. Rússar segjast hafa innikróað þýskt lið vestur af Chernauti í Rúmeníu, en sú borg var tekin í fyrradag. Landamærum lokað. Ungverjar hafa tilkynnt að landamærum Ungverja- lands og Riimeníu hafi verið lokað, og ungverska stjórn- in hefir verið endurskipu- lögð að sögn Þjóðverja, vegna hinnr. \’oveiflegu at- burða í Suðaustur-Evrópu. Er auðsjrð af frjettum Þjóð- verja, at) þeim finnst ástand ið í Ri rneníu heldur óvæn- legt. Dírmd fyrir spellvirki. London: — Frá Róm berast fregnir um það, að 3 ítalskar stúlkur og 7 piltar hafi verið dregin fyrir herrjett banda- manna fyrir skemdarverk. Er álitið, að alt þetta fólk verði dæmt til dauða.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.