Morgunblaðið - 09.09.1944, Qupperneq 1
16 síður
Bl. árgangnr..
202. tbl. — Laugardagur 9. september 1944
Isafoldarprentsmiðja b.f.
BRETAR KOMNIR VFIR ALBERTSKIi
HÖRÐ VÖI
ÞJÖOVERJA vie
m
:l
Bretar taka
Ostende
London í gærkveldi:
Einkaskeyti til Morgunblaðsins
frá Reuter.
BRESKAR hersveitir eru
komnar yfir Albertskipa-
skurðinn í Belgíu og hafa
sótt alllangt fram. Eru bar-
dagar þar æði harðir. Eru
framsveitir sagðar um 35
km frá landamærum Þýska
lands á þessum slóðum. —
Vestar sækja Kanadamenn
að Þjóðverjum á Calaís og
Dunkirksvæðunum og
þrengist þar allmjög um þá.
Ostende fjell í kvöld.
Talið er að Þjóðverjar
sjeu bvrjaðir að flytja lið
sitt á skipum og bátum
norður um fljótið Shelde.
Barist um Burg Leopold-
Demond Tighte fregnritari
vor símar, að mótspyrna Þjóð-
verja handan Albertskurðarins
sje hörðust við bæinn Burg
Leopold, en um hann liggur
mikilvægur þjóðvegur. Talið
er að Þjóðverjar hafi þar í ná-
munda talsvert stórskotalið og
beita þeir því óspart. — Eru
Þjóðverjar þarna á hæð, sem
vegurinn liggur yfir og verja
hana af hörku.
Fregnin um það, að banda-
menn hafi tekið bæinn Breda
í Hollandi hefir reynst á mis-
skilningi bygð.
Þrengist um við Ermarsund.
Kanadamenn og hinar pólsku
sveitir, sem með þeim berjast,
sækja stöðugt að Þjóðverjum
á strandsvæðinu við Ermarsund
og þrengist þar sífelt um fyrir
þýsku hersveitunum. Talið er
að Þjóðverjar muni í lengstu
lög verja hafnarborgirnar
þarna, svo bandamenn geti
ekki flutt þar lið og birgðir á
land, en aðflutningaleiðir
bandamanna eru nú orðnar
æði langár.
Griznez-svæðið.
Herir Kanadamanna nálg-
ast nú þær stöðvar, þar sem
Þjóðverjar hafa fallbyssur þar,
er þeir hafa skotið á Bretland
með. Þjóðverjar segjast nú
beita fallbyssunum gegn herj-
um bandamanna, en þetta efa
herfræðingar Breta að sje
rjett, en taka aftur á móti fram
að virki þau, sem fallbyssur
þessar sjeu í, sjeu óhemju ram
ger.
■< .
RIJS8AR VAÐA VFIR
BIJLGARÍll
OG RIJIVIEIMÍU
London í gærkveldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins
frá Reuter.
RÚSSNESKAR hersveitir
sækja nú hratt inn í Búlg-
aríu og er ekki talið að þeim
sje veitt nein mótspyrna. —
Búlgarska stjórnin hefir
sagt af sjer og herforingi
einn tekið við völdum. —
Sagði hann Þjóðverjum
stríð á hendur í dag klukk-
an 6 síðdegis. Rússar halda
áfram að sækja yfir Rúm-
eníu, en ennþá hafa ekki
verið staðfestar fregnir um
það, að þeir hafi sameinast
hersveitum Titos í Júgóslaf
íu. Rússar kveðast ekki ætla
að berjast við búlgörsku
þjóðina, heldur Þjóðverja
og því verði Búlgarar að
slíta öllu sambandi við þá.
Vopnahljesnefndir.
Engar fregnir hafa enn bor-
ist af vopnahljesnefndum Búl-
gara, sem eru í Gairo og Rúm-
ena, sem eru í Moskva, en tal-
ið er að nefndin 1 Cairo hafi
bráðlega lokið þar ætlunar-
verki sínu. — Rætt hefir verið
um undirritun samninga þar,
Búlgarar segja Þjóð-
verjum strið á Kendur
en allar þær fregnir eru óstað-
festar.
Vopnahljesskilmálar.
Rússar krefjast þess af Búl-
görum, auk sambandsslita við
Þjóðverja, að Búlgarar fram-
selji Rússum alla þýska her-
menn í landinu og öll þýsk
skip í búlgörskum höfnum. •—
Aðeins ef þetta væri gert, væri
hægt að ræða vopnahlje. Tal-
ið er, að Búlgarar gangi að
öllum kröfum Rússa.
Herlög gilda um alla Búlg-
aríu.
Sóknin inn í Búlgaríu.
Um hernám Búlgaríu er frá-
sögn rússneskuherstjórnarinn-
ar á þessa leið: — Þann 8.
september fóru herir vorir yf-
ir landamæri Rúmeníu og Búl-
garíu á svæðinu milli Giurge-
vo og Mangalieu og sóttu
fram frá 35—-65 km og tóku
margar borgir og bæi, þar á
meðal Villistria og hafnarborg-
ina Varna við Svartahafið.
Barist við Narethfljót.
Rússar kveðast 1 dag hafa
unnið að því að bæta aðstöðu
sína nærri borginni Lomza, er
þeir tóku fyrir skömmu. Kveð-
ast þeir hafa hrundið Þjóðverj-
um úr nokkrum stöðvum
þarna.
Þjóðverjar ræða einnig um
allmikla bardaga þarna í dag.
Karpatafjöllin.
Þar geta Rússar ekki um
nema skærur í dag, en Þjóð-
verjar segja að þeir hafi
hrundið allsnörpum áhlaupum
Rússa í skörðum Karpataíjalla.
Rúmenar kveðast nú eiga í
stríði við Ungverja, en engar
fregnir berast frá aðilum í
kvöld um vopnaviðskifti á
landamærum þessara ríkja.
Aðrar erlendar
frjetfir á 5. síðu
Bandaríkja-
menn taka
Liege
London í gærkveldi.
Einkaskevti til Morgunblaðsins
frá Reuter.
SEINT í KVÖLD barst
tilkynning um það frá að-
alstöðvum bandamanna, að
hin mikla iðnaðarborg
Liege í Belgíu hefði verið
tekin og hjeldu hersveitirn-
ar, sem hana tóku, áfram
sókn sinni austur á bóginn.
Mótspyrna er ekki sögð mik
il þarna, en sunnar hafa
Þjóðverjar hert mjög varn-
ir sínar, eftir að hafa náð
borginni Nancy aftur úr
greipum bandamanna.
Yfir Mosel. #
Bandaríkjamenn eru komn-
ir yfir ána Mosel á fimm stöð-
um milli Metz og Nancy og eiga
í hörðum bardögum þarna. —
Talið er, að Þjóðverjar hafi
dregið að sjer fjögur herfylki
og styrkt varnir sínar að mun
síðustu dagana. í gærmorgun
gátu þeir svo náð borginni
Nancy aftur eftir harða bar-
daga. — Tekið er fram að ekki
sje mikilla fregna að vænta af
þessu svæði á næstunni, til
þess að Þjóðverjar fái ekki
upplýsingar.
Herir sameinast.
Nítjándi herinn -þýski, sem
haldið hefir undan norður á
bóginn, eftir Rhone- og Sone-
dölunum, sameinaðist að sögn
Þjóðverja norðurhernum í dag,
en bandamenn eru á hælum
hersins. Er álitið að Þjóðverjar
muni búast til varnar í hinu
svonefnda Belfortskarði, en
þar höfðu Frakkar áður bygt
mikil virki gegn Þjóðverjum-
Er talið, að þótt virki þessi sjeu
nokkuð gömul orðin, muni vera
hægt að verjast lengi í þeim.
Eru þau af herfræðingum sögð
sömu tegundar og virkin á Ce-
zanne-eyju út af St. Malo, en
þar vörðust Þjóðverjar í marg-
ar vikui-, svo sem kunnugt er.
Einangraðar hafnarborgir.
Enn var varpað 1500 smál.
á Le Havre í dag, og í Brest
er vörn Þjóðverja ekki þrot-
in. Þá verjast þeir enn af
hörku í Lorient og St. Nazaire.
Loftárásir hafa og verið
g'erðar á borgir þessar.