Morgunblaðið - 09.09.1944, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 09.09.1944, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ Langardagur 9, sept. 1944 IVIinningarorð um: ðlai Bergsson OLAFUR BERGSSON, fyrr- um bóndi að Skriðufelli í Gnúpverjahreppi, andaðist h. 29. f. m. að heimili sonar síns, Jóhanns bónda sama staðar. Og I dag verður Ólafur fluttur til tiinstu hvíldar í heimagrafreit, er hann hafði valið sjer á Skriðufelli — í svonefndum Selhöfðum. Er þar eitt hið feg- tirsta umhverfi og stórbrotn- asta, er getur að líta. Ólafur er fæddur að Skriðu- felli hinn 11. nóv. 1867. Voru foreldrar hans merkishjónin Bergur Jónsson bóndi þar, ætt aður undan Eyjafjöllum, og feona hans Gróa Þórðardóttir frá Traðarholti í Flóa. Ólst Olafur upp hjá foreldrum sín- tim lengst af á Skriðufelli, á- samt systkinum sínum þrem- ur, þeim Elínu, húsfreyju á Skáldabúðum í Gnúpverjahr., JMagnúsi, fyr bónda að Bala í sömu sveit, en siðar að Kat- rínarkoti í Garðahreppi, og Björgu, sem dó á þrítugsaldri. Framan af búskaparárum Bergs var bekkurinn þröngt .setinn á Skriðufelli. Hafði feann til ábúðar aðeins þriðj- ung jarðarinnar. Og ekki lengra en ræktunarmálum var l*á komið, var sjerstaklega erf- itt um heyöflun, sem sækja varð að, að nokkru leyti, um tnjög langar leiðir og vegleys- ur. Það varð því hver að duga, •ungur og eldri, eftir því sem kraftarnir frekast leyfðu. En fyrir staka atorku, dugnað og tragsýni þeirra hjóna beggja farnaðist þeim ætíð vel. I þessu umhverfi sleit Ólaf- ur Bergsson barnsskónum. Það var hans skólaganga á æsku- árunum, en sem reyndist hon- um heilla drjúg og affarasæl alla æfi. Það sýndi hann í verk um sínum. Ólafur byrjaði búskap á Skriðufelli árið 1893, að látn- um föður sínum. Tveimur ár- um síðar giftist hann Mar- grjeti Magnúsdóttur frá Snjall- steinshöfða í Landmanna- Iireppi, ekkju eftir Jóhann toónda Sæmundsson frá Lækj- arbotnum í sömu sveit. Eign- uðust þau hjónin 2 börn, Jó- hann bónda á Skriðufelli og Bergnýju, gifta í Reykjavík.En stjúpbörn Ólafs, börn Margrjet ar konu hans frá fyrra hjóna- foandi, voru 4, Katrín, dáin. Margrjet, húsfi'eyja að Flag- tojarnarholti, Landmannahr., Sæmundur, nýdáinn. fyr bóndi að Selparti í Flóa, og Sigríð- ur, dáin. Árið 1918 misti Ólafur konu sína. 4 árum síðar brá hann toúi og afhenti þá jörðina til ábúðar stjúpsyni sínum, Sæ- mundi. Var hann þar 2 ár. Tók !>á Jóhann hálfbróðir hans við allri jörðinni og hefir búið þar síðan. Fyrir nokkrum árum seldu þeir feðgar Ólafur og Jóhann, sem þá var orðinn meðeigandi að Skriðufelli. Skógrækt ríkis- ( ins jarðeign þessa og það fyr- ir mjög hóflegt verð. Sagði Olafur mjer, að með þeim hætti sæi hann verðmætum eignar- innar best borgið um alla fram I tíð. Er þetta sagt hjer til að t sýna fram á það, hve mikla (trygð hann hefir tengt við þenna stað. Ólafur Bergsson var gædd- ur góðum gáfum, fljótur að læra, minnugur og frásagnar- stíll hans slíkur, að af bar. Hann var því’ á ýmsa lund vel fallinn til þess að inna af hendi trúnaðarstörf. En ekkert var honum fjær skapi en að ti'ana sjer fram, eins og hann orðaði það. En tvent var þó, sem hann tók að sjer af þessu tagi, eða því skyldu, og var það ann- arsvegar ,,fjallkóngsstörf“ um langt árabil, með fjölmörgum aukaleitum seint og snemma, og hinsvegar leiðsögn með inn lendum og útlendum um öræfi og aðrar óbygðir, á vandrötuð- um og villugjörnum leiðum, stundum landsfjórðunga milli. Ymsar sögur eru til af þessum fjallaferðum Ólafs, sem bera vott uib sanna hugprýði, snilli, snarræði og karlmenskuhug- inn harða, sem honum var í blóð borinn. Vert væri að forða ýmsum þeirra frá glötun, þó hjer sje ekki rúm til þess. Síðasta ferðin, sem hann fór hjerna megin „móðunnar miklu“, var líka langt inn á fjöll. Var hann með þeirri ferð að inna af hendi, ásamt öði'um manni, starf, sem hann hafði tekist á hendur, en sást lítt fyrir um það, að heilsan var nú um nokkurt skeið orð- in veilli en áður var. Veiktist hann á leiðinni til bygða, komst með naumindum á síð- asta áfangastað, var sóttur þangað méðvitundarlítill og' dó eftir 2 daga — við hlýja hjúkr un sonar og tengdadóttur. Jeg kveð þig, viaaur minn, tryggur og góður nágranni, vinarkveðjunni: „Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir alt og alt“. Páll Stefánsson. Brýr eyðilagðar. London í gærkvöldi: — Flug- vjelar bandamanna hafa gert árásir á ýmsar brýr yfir Pó- fljótið á Norður-Ítalíu og eyði- lagt að minsta kosti 10 af þeim. — Reuter. i Húsfreyjan í Birtingaholti 75 ára. MÓEIÐUR Skúladóttir húsfreyja í Bírtingaholti er sjötíu og fimrn ára í dag. llún er dóttir Skúla læknis Thorarensen, seni sat á Mó- eiðarhvoli í Rangárvallasýslu, og gegndi læknisstörfum af, fádæma dugnaði í mörgum sýslum alla sína læknistíð. Bjarni Thorarensen amt-i maður var föðurbróðir Móeið-. ar, og þó eru nú rjett 103 ár, síðan hann dó. Tengdir urðu miklar milli, Birtingaholts og Móeiðarhvols tvær dætur Skúla giftust þeim bræðrum sr. Magnúsi og Ágústi í Birtingaholti. Þau Ágúst og Móeiður voru gefin saman af sr. Magnúsi Helgasyni 1. júní 1888 á Mó- eiðarhvoli. Þau hjón hafa búið svo að segja alla tíð síðan í Birtinga- holti og gert þann stað að höf. uðbóli. Þótt Ágúst Helgason sje þjóðkunnur merkismaður, }>á hefir kona hans síst staðiðj honum að baki á sínu sviði. Ilún er kona höfðingleg í orði- og á borði i lún hefir altaf verið þróttmikil atkvæðakona, sem stjórnað hefir stóru og mannmörgu heimili og sjálfl eignast og alið upp mörg mannvænleg börn. Hún hefir, alla tíð verið öndvegiskona sinnar sveitar, þekt að trygg- lyndi og raungæðum, svo að sveitungar hennar hafa sagt.. að birt hafi altaf yfir þeim í. hvert skipti, sem hún var komin í þeirra hóp. Móeiður getur nú litið til liðna tímans og minst þess, hve starf hennar hefir verið lángefið og að hún hefir eign- ast virðingu og vináttu þeirra, sera hana hafa þekt svo orð- stír hennar hefir orðið meiri og traustari, eftir því sem ár- in hafa liðið og samferðalag- ið lengst. Margir' senda henni nú hlýj- ar hugsanir í dag eins og svo oft áður og minnast liðins tíma með þakklæti. Kæra frænka! .Jeg þakka þjer fyrir trygð þína og vin- áttu, fyrir allar góðar stundir, sem jeg hef átt á heimili þínu þar sem söngur og hljóðfæra- sláttur skipa altaf heiðurs- sæti á björtu og lánssömu heimili. Jón Thorarensen. § nýar bækur sem Isafolclarprentsmiðja sendir í bókaverslanir: 1) Rauðskinna, V. hefti. 2) íslensk fræði, menningarsamband Frakka og íslendinga, eftir prófessor Alexander Jóhannesson. 3) Við Sólarupprás. Smásagnasafn eftir skáldkonuna Hugrúnu. . 4) Hve glöð er vor æska, sÖgur fyrir ungl- inga eftir Hermann Jónasson kennara á Strönd í Rangárvallasýslu. 5) Töfraheimur mauranna, eftir Bronson, en Guðrún Guðmundsdóttir Finnbogason- ar hefir þýtt. Falleg bók með fjölda mynda. 6) Spænsk málfræði, eftir Þórhall Þorgilsson. 7) Skrifbók I. fyrir barnaskóla og heima- kennslu, eftir Guðmund I. Guðjónsson. kennara við Barnaskóla Reykjavíkur, og Skrifbók II., eftir sama. 8) Vegurinn, námskver í kristnum fræðum til undirbúnings fermingar, eftir sjera Jakob Jónsson prest í Hallgrímssókn. Only Parker Quink gives your pen the protection of solv-x. This special ingredient saves pens from the rotting of rubber, the cor- rosion of metal unavoidable with highly acid inks. Solv-x keeps pens clean ... ends clogging. No matter what make of fountain pen you own, Qyíink with solv-x will help keep it out of the repair shop. Get brilliant, free- flowing Quink—today! Ideal for steel pens, too. J021-E PARKER THE ONLY INK CONTAINING PEN-PROTECTING SOLV-X

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.