Morgunblaðið - 09.09.1944, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 09.09.1944, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ Laugardagur 9. sept. 1944 Ungmenna- og íþróttasamband V.- Barðstrendinga stofnað FÖSTUDAGINN þanu 18, ágúst var á Sveinseeyri í Tálknafirði, stofnað Ung- menna- og íþróttasambancL Vestur-Barðastrandasýslu, og* er heimili sambandsins á Sveinseyri. FjeJögin, sem stöðu að stofnun sambandsins eru: „Iþróttafjelag Bílddælinga‘% Iþróttafjel. „Drengur" Tálkna íirði, Iþróttafjelagið „Hörð- ur“ Patreksfirði ' og U.M.F. „Morgunn" Bakkadal í Dala- hreppi. 1 stjóm sambandsins voru kosnir: Formaður Albert Guð mundsson Sveinseyri og með- stjórnendur, Elías Jónsson, Bíldudal og Guðbjartur Guð- jónssqp, Dalahreppi, Svavar Jóhannesson og Salómon Ein- arsson, Patreksfirði. Samþykt var, að hið ný- stofnaða samband gengi í I-> þróttasamband Islands, og Ungmennasamband Islands. Sambandið ákvað að gefa bikar til kepni í handknatt- leik kvenna, og skal hann vera farandgripur. Sunudaginn þann 20. ágúst hjelt hið nýstofnaða samband fyrsta íþróttamót sitt að Sveinseyri, og tóku öll fje- lógín, sem stóðu að stofnun sambandsins þátt í mótinu, og var því stjórnað af Jóakim Pálssyni íþróttakennara. Kept var í eftirtöldum í- þróttagreinum: handknattleik kvenna, 80 m. hiaupi kvenna, 50 m. bringysundi kvenna, 100 m. bringusundi karla, há- sttökki, langstökki, þrístökki, spjótkasti, kringlukasti, kúlu- varpi og 800 m. hlaupi. Iþróttafjelag Bílddælinga vann mótið og hlaut 69 stig, íþróttafjelagið Drengur hlaut 26 stig, Iþróttafjel. Hörður hlaut 21 stig og U.M.F. Morg- unn hlaut 6 stig. Af einstaklingum hlutu þessir flest stig: Páll Ágústs- son 24, Jón Hannesson 12, og Valdimar Ottóson 11 stig, all- ir fró íþróttafjel. Bílddælinga, frá íþróttafjelaginu Drengur Tálknafirði hlaut Ingibjartur’ Þorsteinsson 8 stig. Handknattleikinn unntr stúlkur frá íþróttafjel. Bíld- dælinga, og unnu þær alla leikina. Mótið fór hið hesta fram' og veður sæmilegt. lþróttafjelagíð Drengur sá um móttökur íþróttaflokks- ins og annaðist þær af hinnii mestu rausn. Amery á Ítalíu. London f gærkveldi. — Amery Indlandsmálaráðherra Breta er nýfarinn til Ítalíu, en þar mun hann heilsa upp á þær ind- versku hersveitir, sem berjast með áttunda hernum. Tvær frægar borgir Reykjavíkurmót í golfi: ) keppa EFRI MYNDIN er af höfninni í Cherbourg, sem nú er á valdi bandamanna. Verið er að gera við höfnina nú, svo að hægt sje að flytja þar birgðir á land, en verkið mun sækj- ast seint. — Neðri myndin sýnir borgina Rouen, eða Rúðuborg, þar sem víkingar norrænir sátu fyrrum. Þjóðvegur í Ögur Sigurður Bjarnason . og Barði Guðmundsson flytja í N.d. Alþingis svohljóðandi til- lögu 1.(1 þingályktunar um fullnaðarákvörðun vegarstæð- is að Ögri og kostnaðaráætlun' um vegagerð: „Neðri deild Alþingis álykt ar að fela ríkisstjóminni að láta fram fara á næsta sumri fullnaðarákvörðun vegarstæð- is frá Múla í ísafirði að Ögri. Jafnframt verði gerð kostnað- aráætlun um vegagerðina“. 1 greinargerð fyrir tillög- unni segir m. a.: Þeir þrír hreppar í Norður- Isafjarðarsýslu, sem vegur sá, er hjer að ofan greinir, mundi liggja, um, eru Nautevrar-, Reykjarfjarðar- og Ögurhrepp ur. Hreppar þessir eru blóm- iegustu landbúnaðarsveitirnar við Isafjarðardjúp. Vegur um þessar bygðir, frá Múla í ísafirði, nm ísa- fjörð innanverðan, út með Mjóafirði, fyrir myuni Laug- ardals og í ögurvík, mundl skapa stórbætta aðstöðu fyrir þessi bygðarlög. Jafnframt^ sköpuðust sjávarþorpunum útf með Djúpinu auknir mögu-, leikar til þess að fá meiri; mjólk, en segja má, að á Isa- firði og öðrum sjávarplássumj í nágrenninu ríki verulegan hluta ársins sannkallað mjólk urhungur. Með tillögu þessari er því lagt til, að vegarstæði verði á næsta sumri ákveðið á þess ari leið. Handknattleiks- mót Vestfjarða FYRIR SKÖMMU fór fram á ísafirði handknattleiksmót Vestfjarða og var kept í tveim aldursflokkum. í fyrsta flokki fóru leikar svo, að í úrslitaleik vann Hörður, ísafirði kven- skátafjel. Valkyrjur sama stað ar með 3 mörkUm gegn tveim, en áður höfðu bæði þessi fje- lög sigrast á flokki Grettis frá Flateyri. í öðrum flokki sigraði lið Stefnis frá Súgandafirði, vann tvo leiki, en gerði einn jafn- tefli. Húsrannsóknir Þjóðverja og hand- lökur í Höfn ÞJÓÐVERJAR hafa gert margar húsrannsóknir í Kaup- mannahöfn og handtekið fjölda manns. Meðal annars rjeðust þýskir hermenn inn í hús við Breiðgötu s.l. sunnudag og tóku þar höndum sex karl- menn og einn kvenmann. Á sunnUdaginn handtóku Þjóð- verjar milli 20 og 30 manns. Meðal þeirra voru Kai Lænk- holm sóknarprestur 1 Norð- borg, Aage Schock, fyrverandi ritstjóri „Nationaltidende“, og Nörregaard verkfræðingur og kona hans. — (Frá danska út- varpinu hjer.) Kvöldskóli K F U M Kvöldskóli K. F. U. M. ÞESSI VINSÆLI skóli starf- ar næsta vetur með sama fyr- irkomulagi og að undanförnu. Hann er bæði fyrir pilta og stúlkur, er hafa lokið fullnað- arprófi í barnaskóla og er ekki krqfist inntökupróíp. Skólinn verður starfræktur í 3 byrjun- ardeildum og 1 framhaldsdeild, og fer kensla fram bæði síð- degis og á kvöldin. í byrjun- ardeildum verða kendar þess- ar námsgreinar: íslenska, danska, enska, kristin fræði. reikningur og bókfærsla, og auk þess verðui* námsmeyjum veitt tilsögn í handavinnu. I framhaldsdeild verða kendar sömu námsgreinar og auk þess þýska. Umsóknum um skólavist verður veitt móttaka næstu daga í versluninni Vísi á Laugavegi 1 og ættu menn að tryggja sjer þar skólavist sem fyrst, því að aðsókn að skól- anum er þegar orðin mjög mik il, en nemendafjöldi takmark- ast af 4 deildum. Þeir nemend- ur, er luku prófi i byrjunar- deildum skólans síðastliðið vor, eiga forgangsrjett að framhalds deild hans, ef þeir hafa sótt um hana fyrir 20. sept., annars verða aðrir nemendur teknir í deildina. Skólinn verður sett- ur í húsi K. F. U. M. og K. við Amtmannsstíg mánudaginn 2. okt. kl. 8% síðd. og eru væntan legir nemendur þá beðnir að mæta allir stundvíslega. Gísli og Þorvaldur til úrslita í meislaraflokki NÆSTSlÐUSTU uinferJ Reykjavíkur mótsins í golfi ert nú lokið. I Meistaraflokki fóru leik- ar þannig, að Þorvaldur Ás- geirsson vann Hélga Eiríks- son með 4 holum fram yfir, þegar eftir var að leika 3 holur (4-3), og Gísli Ólafsson. vann Jakob Ilafstein 1-0. Leikí ur þeirra Gísla og Jakobs var sjerstaklega jafn og s])ennandi Þegar þeir voru búnir að leika 34 holur, voru þeir jafnir, en síðustu holuna vann Gísli eft- ir mikla tvísýnu. Þeir Þorváldur og Gíslí keppa því til úrslita í meístará' flokki. 1 í. flokki vann Daníel Fjeldsted Björn Pjetursson 1-0, og Árni Egilsson vann Magnús Vigíusson 4-2. Daníel ög Árni keppa því til úrslita í 1. flokki. 1 kvennaflokkinum vann ólafía Sigurbjörnsdóttir Ragn- heiði Guðmundsdóttur 4-2 og Herdís Guðmundsdóttir vann, önnu Kristjánsdóttur 8-7. Herdís og ólafía keppa því til úrslita. 1 1. flokki og kvennaflokkn um hafa í hverjum kappleik verið leiknar 18 hoiur ‘tveir hringir), en í úrsiitakeppni í öllum flokkum verða leiknar 36 holur. Grænmelisnám- skeið að Álafossi BÚNAÐARSAMBAND Kjal- arnessþings hefir ákveðið að halda grænmetis námskeið að Álafossi í Mosfellssveit dagana 13.—20. þ. m. Kennd verður allskonar mat reiðsla úr íslensku grænmeti, síld og soyjubaunum. Aðal- kennari verður E. Fredriksen. Ennfremur flytja þeir Jónas Kristjánsson læknir og Jóhann Jónasson búfræðingur erindi í sambandi við námskeiðið Þá verður og kennsla í sundi og Möllersæfingum. — Kennari verður Klara Klængs- dóttir. Hjeraðsfundur Húnavatnsprófasfs- dæmis NÝLEGA var haldinn að Skagaströnd hjeraiðsfundur Húnavatnsprófastsdæmis og sóttu hann margir prestar víðs vegar úr sýslunni og ennfrem- ur safnaðarfulltrúar. Fór fund urinn hið besta fram og voru flutt þar erindi og mörg mál rædd. — Guðsþjónusta var haldin í Skagastrandarkirkju, en þar prjedikaði sr. Sig. Nor- land. Er fundínum var slitið, flutti sóknarpresturinn, síra Pjetur íngjaldsson, bæn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.