Morgunblaðið - 10.09.1944, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 10. Scpt. 194í
80 ára:
Þórður Sigurðsson
Tannastöðum
í dag hefir Þórður Sigurðs-
son, fyrv. bóndi á Tannastöð-
um fylt átta tugi ára, því hann
er fæddur á Tannastöðum hinn
10- sept. 1864 og hefir ált þar
heimili æ síðan. Hann hefir því
haft lítið af vistarskiftum að
segja um dagana, en því betur
lagt rækt við þann blett, sem
hann hefir alið allan sinn ald-
ur á.
Þórður ólst upp hjá foreldr-
um sínum, Sigurði Sigurðssyni
og Guðrúnu Magnúsdóttur, er
bjuggu á Tannastöðum um 35
ára skeið. Mjög þóttu þau dug-
leg og reglusöm. Þau eignuð-
ust 11 börn, en ekki nema 5
komust til fullorðinsára. Var
Þórður elstur sinna systkina og
mun því fljótt hafa vanist við
að beita hug.og hönd til starfa.
Fór hann ungur til sjávar, eins
og þá var títt og reri margar
vertíðir, fyrst á Álftanesi og
síðar í Þorlákshöfn. Hefi jeg
fyrir satt, að i því starfi hafi
hann reynst hinn besti liðsmað
ur, sem við önnur störf.
Þórður tók við búi af for-
eldrum sínum vorið 1898, og
bjó þar til vorið 1943, er hann
seldi búið í hendur Sigurði syni
sínum. Búskapinn rækti-harnn
af hinni mestu alúð og mún lít-
ið hafa kynst skuldum og hey-
leysi. Hefir hann mjer svo sjálf
ur sagt, að hann hafi einu sinni
gefið upp, en hafði þó nóg, en
átti oft drjúgum eftir. Var þó
jafnan farið vel með allar
skepnur og mörg tuggan fór í
ferðahesta á lestaárunum, því
Tannastaðir eru í þjóðbraut.
Var þar oft gestkvæmt á þeim
árum, og þágu þar margir góð-
an beina fyrir sig og hesta sína,
fyrir enga eða mjög litla borg-
un.
Eins og kunnugt er, standa
Tannastaðir mjög nærri Ing-
ólfsfjalli. Gnæfir fjallið hátt og
snarbratt yfir bæinn. Hefir því
lúnið legið mjög undir grjót-
hruni og aurskriðum, en með
furðulegu þolgæði og erfiði
hafa skriðurnar verið hreins-
aðar burt eða græddar upp og
steinunum fækkað. fyrst með
hann sjer mjög far um að afla
hinna bestu heimilda, sem kost
ur er á og fullyrðir aðeins það,
sem hann er viss um, en gagn-
rýnir hiklaust það, sem hann
telur rangt, hver sem í hlut á.
Minnið var óvenju traust og
heyrt hefi jeg hann rekja ætt-
líði frá nútíð til landnáms-
manna og tilgreina fæðingar
og dánarár hvers ættliðs. Forn-
ritunum er hann gagnkunnug-
ur, enda auðsjeð á framsetn-
ingu hans og stíl, að hann er
þar eigi ókunnugur. Veit jeg
að hann hefir oft veitt gestum
sínum marga ánægjustund með
því að leiða þá inn á leiksvið
liðinna ára og skýra þeim frá
margskonar mönnum og ýms-
um atburðum í sambandi við
þá. Þá er Þórði og ljett um að
bregða sjer í Bragasmiðju.
Munu þær orðnar margar fer-
skeytlurnar, sem hann hefir
kastað fraín við ýms tækifæri.
Eru vísur hans í senn bæði
ljósar og liprar og hitta beint í
mark.
Þórður er tvíkvænlur. Fvrri
kona hans, Hólmfríður Magn-
úsdóttir frá Litlalandi, ljest eft
ir örstutta sambúð þeirra. Síð-
ari kona hans er Jensína Snorra
dóttir frá Þórustöðum í Ölfusi,
sem nú um fjörutíu ára skeið
hefir staðið við hlið hans sem
best verð'Ur á kosið, enda af
öllum talin góð kona og merk,
sem ekki hefir látið sitt eftir
liggja að sluðla að heill og ham
ingju heimilisins. Þau hafa eign
ast 3 börn. Tvo sonu og eina
dóttur. Öll uppkomin og mjög
mannvænleg.
Þórður á Tannastöðum hefir
verið gæfumaður, gæddur fjöl-
hæfum gáfum. Óhlutdeilinn um
annara hagi, en þó fastur fyrir,
ef á var leitað. Hann hefir
engrar skólamentunar notið, en
kunnaö því betur að læra í
skóla lífsins. Hann er ekki fyr-
ir að láta mikið á sjer bera.
Viljað vera en ekki sýnast.
Traustur maður í orðum og at-
höfnum. Og síðast en ekki síst:
eignast ágætar konur og gott
heimili og sjeð. börn sín vaxa
I
því að kljúfa þá og síðan að
sprengja. Munu þeir vera um
60, sem þannig er búið að flytja
burt.
Eins og að líkum lætur, hefir
Þórður reist öll hús jarðarinnar
að nýju og stækkað túnið að
mun. Öll bera verk hans vott
um traustleik og vandvirkni,
enda umgengni öll hin besta,
úti sem inni. Man jeg, að eitt
sinn ljet merkur bóndi þau orð
falla, að það væri ánægjulegt
að sjá, er menn sýndi föður-
leifð sinni slíka ræktarsemi
eins og Þórður á Tannastöðum
gerði.
En Þórður á Tannastöðum
á sjer fleiri hugöarefni en bú-
skapinn, þó hann hafi stundað
hann af alúð. Fyrir, löngu er
hann þektur fræðimaður, eink-
um í ættfræði og sagnfræði-
Hefir hann ritað nokkuð um
þau efni í sagnaþætti Guðna
mag. Jónssonar og víðar. Gerir
til manndóms og þroska og ver
\ ið alla tíð vel efnalega sjálf-
stæður. Og honum hefir enn-
fremur hlotnast sú hamingja
að geta öll sín starfsár helgað
krafta sína eigndrjörð sinni.
þar sem hann er borinn og
barnfæddur, og sem hann ann
af heilum hug. Hann er <?nn
furðu ern og gengur að hey-
vinnu sem fyr. Þakka jeg, sem
þessar línur rita, fyrir margar
ánægjustundir liðinna ára og
þeim hjónum fyrir alla þá al-
úð og gestrisni, er jeg hefi not-
ið á heimili þeirra. Jeg óska
Þórði til hamingju með afmæl-
ið og óska þess af heilum hug,
að æfikvöldið megi verða sem
fegurst og best.
Jóhann Kr. Ólafsson.
BEST AÐ AUGLÝSA f
MORGUNBLAÐINU
Dönifz nærri drukn
fsður
London í gærkveldi.
DÖNITZ flotaforingi Þjóð-
verja hefir sagt frá því, að
hann hafi fyrir skömmu slopp-
ið mjög auðuglega, þegar kaf-
bátur af nýrri gerð, sem verið
var að reyna, bilaði á miklu
dýpi og komst rjett með naum
indum upp á yfirborðið aftur.
Dönitz var í kafbát þessum,
en hann er vanur að vera með
í því að reyna nýjar tegundir
sjóhernaðarvopna. Var kafað
svo djúpt, að báturinn þoldi
ekki vatnsþrýstinginn og tók
að leggjast saman, en fyrir snar
ræði kafbátsforingjans komst
hann þó upp aftur.
<MMt!]U!lill!!I!l!iI!lllI!lllIIII!IIHI!!ltlllU!llllt!!IIUIUI!ir
SPEGLAR
= í.
vvvvv
5 X
= margar gerðir og stærðir S
= eru aftur komnar á lager. §
Gólfflísar
= s
Nýkomið
Smergilskífur
fyrir járn og stál
1 X
= x
Brýni
Hurðarskrár
Hamrar s X
Mótorlampar
Casco límduft
Gardínubönd, hringir =
og krókar.
Ludvig Storr. =
=3 =
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiut
X
£ Sumarkjólatau, Storis
= X efni, Satin undirföt
=
X Náttkjólar. Silkisokkar.
og
T
I
?
t
t
?
?
♦>
.j. frá kr. 4.45
X
A
-19.25. — Is- t
5 X garnssokkar 5.60. Barna- *j*
= x
1 $
sportsokkar 2.25.
Dyngja
Laugaveg 25.
•f
í
|
1
X
❖
I utavelta
f í Í.R.-húsinu í dag kl. 2
|
! Aðgangur 50 aura — Drátturinn 50 aura
|
| Fjöibreytfasta hlutavelta
*♦*
í haustsins
v
í Margir ágætir og dýrmætir munir
kr. í.peniuguui
I
l sem greiddar verða á hlutaveltunni
ii j) r
a miTA
næslu páskaviku
Bækur þ. á. ns.
Ritsafn Jéns Trausia
?
t
S
T
X
X
X
i
I
!
I
.♦.
Matvæli til vetrarins
Reynið hepnina og skemiið yður um leið því að
Dynjandi músik verður allan tímann!
Sá, sem kemur í Í.R.-húsið
ver deginum best
i
i
t
T
X
X
X
X
X
X
I
I
X
*
?
X
X
I
X
X
X
VVVVVV... ... ... ... ...