Morgunblaðið - 10.09.1944, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 10.09.1944, Blaðsíða 12
12 Sunnudagur 10. sept. 19441 Tveir verkamenn slasast viU uppskipun TVEI.R MEW' slösuðust í gær, er þeir voru að vinna að uppskipun á sementi. Fót- brotnaði annar, en hinn hand- leggsbrotnaði. — Voru þetta verkamenn, Albert'J. Krist- jansson, til heiuiilis að Þver- veg 2, Skerjafirði og Sigurð- ur Kl. Sigurðsson, til heimij- is Óðinsgötu 14a. Þeii' Albert og Sigurður voru báðir að vinnu í sement- skipi H. I>en. & Co. Var Sig- urður á leið um þilfar skips- ins.. er hann festi annan fót- inn í stiga og fjell á þilfarið. Brotnaði fótur hans mjög illa opið fótbrot. Albert var að vinnu í lest skipsins Varð hann á- miili með handlegg, er hann ætlaði að taka af kast er var á hlera, sem notaður er við uppskipun sements. — Illaut hann einnig nijög slæmt brot, j opið framhandleggs brot. Voru þeir báðir fluttir í, sjúkrahús. Leið þeim eftir vonum í gærkveldi. Verkíail Hlífer hófsi í gær VERKFALL Verkamannafje lagsins Hlíf í Hafnarfirði kom til framkvæmda kl. 8 í gær- kvöldi, en frá þeim tíma hafði Hlíf bannað alla eftirvinnu, nema nauðsyn bæri til svo sem við affermingu skipa, en raun- verulega gengur verkfallið ekki í gildi fyr en í dag. Verkfall þetta nær til 5—600 hafnfirskra verkamanna. Samningsgrundvöllur Hlífar var samþyktur í fjelaginu með 130:1 atkv. en 13:1, eins og misprentaðist í blaðinu í gaar. Ríkisstjórnin sendir menn fil aS aihuga veiðarfærakaup f Iretlandi I GÆR lögðu af stað til Bretlands á vegum ríkisstjórn arinnar þeir Finnur Jónsson, Alþingismaður og Davíð Ól- afsson fiskimálastjóri, í þeim erindum að semja um aukinn skamt af yeiðarfærum og fni í þau. Skamtur sá, er hingað hefir fengist undanfarið er al- gerlega ófullnægjandi og fyr- irsjáanlegt að ekki verða til nægileg veiðarfæri fyrir næstu vertíð ef skamturinn fæst ekki aukinn. (Samkv. fregn frá viðskifta mála rá ðuney t inu). Blaðamaður hand- tekinn, London: — Stjórnarvöldin í Argentínu hafa látið handtaka Arnaldo Cortesi, frjettaritara blaðsins New York Times í Buenos Ayres. Forseli Islands kom inn iil Víkur FORSETI íslands lagði af stað í ferðalag sitt um Suður- land árdegis í gær og var kom- inn til Víkur í Mýrdal í gær- kvöldi. Var forseti ferjaður yfir Olf- usá, en þar beið hans bifreið. I heimleiðinni mun forseti heimsækja Rangárvalla- og Arnessýslur. Á þriöjudag mun forseti heimrækja Hafnarfjörð og Gullbringusýslu, en á þriðju- dag Kjósarsýslu. í för með for- seía er forsetaritari. Tjekkóslóyakar virnia I lleimaherinn í Tjekkóslóv- akíu hefir unnið talsvert á undanfarna daga. I herstjórn- artilkynningri frá yfirhershöfð ingja Tjekkóslóvaka í dag segir, að heimaherinn hafi sótt fram hjá borgunum Zilina og ú'rutky og að þeir haf'i náð á sitt vald borginni Zilina. Um þessar borgir liggja aðal undanhablsleiðir Þj.óð- verja frú Ungverjalandi. Frá lislsýningunni Jóhann Briem: Tristan og Isold. Þjóðverjar óttast innrás í Danmörku Frá norska blaða- fulltrúanum. FRA ÞVI er skýrt í sænskurti blöðum, að Þjóðverjar búist við innrás bandamanna í Dan- mörku í náinni framtíð. Þeir hafa því kvatt alla þýska borg ara í Danmörku til vinnu við virkjagerð í Jótlandi, hina svo kölluðu Norðursjávarlínu. ■ ~»'SS>s*aes“3)Hr’^S@C Bandamenn vinna á norður af Flor- ens London í gærkveldi. HERSVEITIR bandamanna eiga í hörðum bardögum á ít- alíu. Á Adríahafsströndinni eru bardagar einkar harðir enn við Rimini. Þrír breskir tundur- spillar hafa gert harðar árásir á stöðvar Þjóðverja á strönd- inni. Norður af Florens hafa banda menn unnið nokkuð á. Litlar fregnir berast um bardagana á vesturströndinni. — Reuter. Marteinn Guðmundsson: Torsó. LISTSÝNING þeirra Jóhanns Briem og Marteins Guðmunds- sonar var opnuð í sýningarskála myndlistarmanna í gær. — Á þessum fyrsta degi sýningarinhar sóttu hana á þriðja hundrað manns. Eins og áður hefir verið getið, sýnir Jóhann þarna tæplega 30 olíumálverk og um 40 vatnslitamyndir, en Marteinn sýnir 18 höggmyndir. Eru myndirnar flestar nýjar, en þær elstu rúmlega 10 ára gamlar. Myndirnar hjer að ofan eru frá sýningunni. Mynd Jóhanns er úr myndaflokki úr sögunni Tristan og Isold, en þær myndir eru málaðar á pergament. Eru alls 7 myndir í þeim flokki. Auk þess sýnir Jóhann þarna annan þjóðsagnamyndaflokk, það er Fjalla-Éyvind (5 myndir) Annars eru myndirnar yfirleitt þjóð- lífs- og þjóðsagnamyndir. Ekki er enn fullráðið, hve lengi sýningin stendur. Unnið af krafti við Ölfusárbrú Kláf-lerja til vöruflufninga VINNA er nú hafin af full- um krafti við Ölfusárbrú. — Byrjað er með ýmsum örygg- isráðstöfunum, til tryggingar því, að brúin falli ekki niður í á. Gengur verkið vel. — Svo verður hafist handa um að lyfta brúnni. Mkil umferð. Til marks um það, hve mikil umferðin er á þessari leið, má geta þess, að fyrir hádegi í gær höfðu 300 manns yerið ferjaðir yfir ána. Voru tveir bátar í notkun yið fólksflutningana. Þá hefir Kaupfjelag Árnes- inga einnig tvo báta við mjólk- urflutningana. Þeir eru í notk- un myrkvanrfa á milli. Kláf-ferja. Fram að þessu hefir ekkert verið aðhafst með vöruflutn- inga yfir ána, enda engin að- staða til þess enn sem komið er. En nú er til athugunar að setja kláf-ferju á streng og nota hana til vöruflutninga. Ef þessari kláf-ferju verður haganlega komið fyrir, ætti að mega notast við< hana, meðan verið er að setja brúna í stand. En- að sjálfsögðu verður lögð höfuðáhersla á, að ná gömlu brúnni upp og styrkja hana svo að hún verði nothæf meðan verið er að byggja nýja brú. Slysavarnir. Sýslumaður Árnesinga hefir beðið Jón Bergsveinsson fram kvæmdarstjóra Slysavarnafje- lagsins að koma austur, til þess að athuga hvaða ráðstafanir er nauðsynlegt að gera til varnar slysum, meðan flutningar y.fir Ölfusá fara fram með þeira hætti, sem nú er. Mun Jórx Bergsveinsson fara austur þess ara erinda í dag. Kluge er dauður — Rommel sjúkur Eftir Desmond Tighe. London í gærkveldi: von Kluge hershöfðingi eþ dauður og Rommel hershöfð-i ingi er alvarlega veikur. —« Þetta er staðfest af þýskurn, hershöfðingja, sem Bretar) hafa tekið höndum í Belgíu. Hershöfðinginn sagði frá því, að von Kluge hefði verið innikróaður með hersveitun- um í Falaise-krikanum. Erj hann kom til aðalstöðva sinnaí kom í Ijós, að Hitler hafðil rekið hanh frá embætti. IIei’S-4 höfðinginn ljest af sárum, serai hann hafði hlotið í Falaise-< krikanum, er hann var á leið-< inni til Þýskalands í járnbrautj arvagni. Ilershöfðingmn, sem haiuU tekinn var staðfestir, a<í Rommel væri veikur og dveldij nú sjer til hressingar í Kreud-t stadt. Iíershöfðinginn sngði, að Rommel myndi vera orðintí! fullfrískur eftir 3—4 niánuðú

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.