Morgunblaðið - 14.09.1944, Blaðsíða 11
Fimtudagur 14. sept. 1944.
MORGUNBLAÐIÐ
pGjlFP’^F
11
Fimm mínútna
krossgála
Lárjett: 1 karldýr — 6 leiðin-
legt hljóð — 8 verkfæri (þf.) —
10 á — 11 órjettmæt — 12 fanga-
mark — 13 guð — 14 skógarguð
■— 16 naprar.
Lóðrjett: 2 tvíhljóði — 3 frjett
ir — 4 ending — 5 merkja — 7
hreinsar — 9 á frakka — 10 klór
•— 14 viðurnefni — 15 frumefni.
»
j^WV%*V%^WWWWWWW%*%“
Fjelagslíf
*i I.R.-INGAR
Innanf j ela gsmót-
ið í frjálsum í-
þróttum heldur
áfram í kvölil kl.
6,30 á Iþróttavéllinum. Keppt
verður í fjölmörgum greinurn
ÁRMENNIN GAR!
Hlutavelta fjelags-
ins verður í l.R.-hús
inu sunnudaginn 17.
sept. Yið treystum hverjum,
einasta fjelagsmanni, að
vinna ötullega að söfnun
góðra muna til hlutaveltunn-
ar. Tekið verður á móti gjöf-
um í I.R.-húsinu frá kl. 1—8
e. h. n. k. laugardag.
Stjóm Ármanns.
MEISTARAMÓT
í frjálsum íþróttum í Hafnar-
firði hefst á laugardaginn.
jÞáttta-kendur gefi sig fram
við stjórn F. H. fyrir föstu-
dagskvöld. Mótið fer fram á
Hörðuvöllum.
Stjóm F. H.
I.O.G.T.
ST. FRÓN 227
Fundur í kvöld kl. 8,30.
Inntaka nýliða. Hagnefnd-
aratriði. Mætið stundvíslega
ST. FREYJA NR. 218
Fundur í kvöld kl. 8,30.
Erindi: Jón Árnason. Upp-
lestur ?
Æðstitemplar.
2>,
acý
bóte
UPPLÝSENGASTÖÐ
ium hindindismál^ opin í dag
kl. 6—8 e. h. í Templarahöll-
inni, Fríkirkjuveg 11.
*♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦»»♦♦
Kaup-Sala
Vandaður
KLÆÐASKÁPUR
— bónuð eik — með inn-
byggðum skúffum og stórum
spegli í hurðinni til sölu í h.f.
Ræsir.
NOTUÐ HUSGÖGN
keypt ávalt hæsta verði. —
Sótt heim. — Staðgreiðsla. —
Sími 5691. — Fornverslunin
.Grettisgötu 45.
257. dagur ársins.
22. vika sumars.'
Krossmessa.
Árdegisflæði kl. 4.40.
Síðdegisflæði kl. 16.55.
Ljósatími ökutækja frá kl.
20.25 til kl. 6.20.
Næturlæknir er í læknavarð-
stofunni, sími 5030.
Næturvörður er í Laugavegs-
Aþóteki.
Næturakstur annast Bs. Hreyf
ill, sími 1633.
í. O. O. F. 5 = 1269148i/2 _
Gunnar Gunnarsson kaupmað-
ur í Vík í Mýrdal, andaðist í
Vífilstaðahæli 12. þ. m., eftir
langvarandi vanheilsu.
Sjötugur er í dag Björn Sig-
urðsson, trjesmiður, Baldursg. 21
Bjarni Bjarnason frá Björgum
Skagaströnd, verður 60 ára í
dag. — Til heimilis nú á Breið-
holtsveg 22.
Silfurbrúðkaup eiga í dag frú
Lára Guðmundsdóttir og Sigfús
Þ. Öfjörð, Vatnsmúla-Norðurkoti
Sandvíkurhreppi, Flóa.
Unglinga vantar til að bera
Morgunblaðið út til kaupenda
við Túngötu, Víðimel og í Kapla
skjóli. — Talið við afgreiðsluna
sem fyrst í síma 1600.
Rukkunarhefti frá Morgun-
blaðinu (Laugavegur-neðri), hef
ir tapast,. Finnandi góðfúslega
skili því til blaðsins strax.
Fyrsti leikur Vestmannaeyja-
stúlknanna frá Tý, fór fram í
gærkveldi. Kepptu þa^r við
Hauka, í Engidal við Hafnar-
fjörð. — Leikar fóru svo að Hauk
ar sigruðu með 5 gegn þrem. —
Leikur þessi var mjög spennandi
og vel leikinn, en nokkuð háði
það leiknum, að völlurinn var
blautur. — Næsti leikur er í
kvöld kl. 8, keppa þá stúlkurnar
við F. H.
ÚTVARPIÐ í DAG:
19.40 Lesin dagskrá næstu viku.
20.00 Frjettir.
20.20 Útvarpshljómsveitin (Þór-
arinn Guðmundsson stjórnar):
a) Norrænn íagaflokkur eftir
Kjerulf.
b) „Þúsund og ein nótt“, vals
eftir Strauss.
c) Mars eftir Herzer.
20.50 Frá útlöndum (Jón Magn-
ússon).
21.10 Hljómplötur: Lög leikin á
celló.
21.15 Upplestur: „Myndin af
kónginum", smásaga eftir
Gunnar M. Magnúss (höfund-
ur les).
21.35 Hljómplötur: Amerískir
ættjarðarsöngvar.
Vinna
STÚLKA MEÐ
tveggja ára barn óskar eftir
ljettri ráðskonnstöðu. Uppl.
í síma 55öl frá kl. 6—8.
HREIN GERNIN G AR
Pantið í síma 4966.
Magnús & Björgvin.
HREIN GERNIN GAR
húsamálning, viðgerðir o. fl.
Óskar &Óli. — Sími 4129.
TÖKUM LAX, KJÖT FISK
og aðrar vörur til reykingar.
Reykhúsið Grettisgötu 50. —
Sími 4467.
Tilkynning
GLÖS UNDIR SULTU
og stórar flöskur, til sölu. —
Búðin, Bergstaðastræti 10.
Einar Sigurfinnsson
sextugur
EINAR SIGURFINNSSON
bóndi á Iðu í Biskupstung-
um er sextugur í dag.
Einar er Skaftfellingur að
ætt og uppruna og bjó í Með-
allandi þar til hann var um
fertugt. Fluttist hann þá fyrst
hingað til bæjarins. en dvald-
i.st hjer litla hríð áður en
hann hvarf austur í Biskups-
tungur og reisti þar bú á Iðu
og þar hefir hann búið síðan.
Einar Sigurfinnsson er mörg
um að góðu kunnur. Hann er
prýðilega vel gefinn, fyndinn
og skemtilegur í vinahóp, fróð
ur maður og hagmæltur. Ilafa.
altaf birst eftir hann greinar
í ýmsum blöðum og tímarit-
um/ margar þeirra verið
hnittnar og fjörlega ritaðar.
Hann hefir látið mörg vel—
ferðarmál til sín taka og gegnt
ýmsuw trúnaðarstörfum fyr-
ir samborgara sína, bæði aust-
ur í Meðallandi og í Biskups-
tungunum, verið hreppsnefnd-
armaður, sóknaroddviti og
safnaðarfulltrúi er hann nú í
Skálholtssókn. Hann var líf-
ið og sálin í Ungmennafjelagi-
Meðallendinga meðan hans
naut þar við. Gekst hann fyrir
stofnun Iestrarfjelags austur
þar og var það til mikils
gagns og ánægju í þann tíð
fyrir Meðallendinga, með því
að sveitin var afskekt og ein-
angruð og allur fjöldi einstakl
inga hafði lítið fje til bóka-
kaupa.
Einkum eru það þó bind-
indismálin, sem Einar hefir
látð tiU sín taka. Ilann hefir
Aærið bindindismaður alla sína,
æfi og jafnan unnið ötullega
fyrir góðtemplararegluna,
fyrst í Meðallandi og því
næst í Biskupstungum. Æðsti-
templar stúkunnar „BláfelT
í Biskupstungum hefir hann
verið lengst af frá því hún
var stofnuð.
Þeir, sem best þekkja Ein
ar Sigurfinnsson, sjá eftir því,
að hann skyldi ekki geta not-
ið meiri mentunar í æsku
sinni.Að sjálfsögðu hefði hann
þá getað orðið þjóð sinni og
fósturjörð að meira. liði. Sjálf
ur hefir Einar reynt að bæta
úr þessu með því að afla sjer
sjálfmentunar. Ilefir sú ment
un reynst mörgum manni
notadrjúg. Og þegar öllu er á
botninn hvolft mun óhætt að
fullyrða, að Einar Sigurfinns-
son hafi eigi orðið síður nýt-
ur en margur maður, sem
lengri skólagöngu á að baki
sjer.
Að endingu, Einar, til ham-
ingjú með afmælisdaginn
Lifðu vel og lengi. Vinur.
Hörð vörn Þjóðverja
á Ítalíu
RÓM í gær: — Hersveitir
bandamanna á Italíu eru nú
komnar svo að segja alstaðar
að Gotnesku varnarlínunni,
en varnir Þjóðverja eru harð-
ar.
Á miðvígstöðvunum hafa
bandamenn sótt lengst fram og
enníremur hefir 5. ameríski
herinn sótt fram á vesturströnd
inni.
Innilega þakka jeg öllum þeim vinum mínum,
sem glöddu mig á sextugsafmælinu með heimsókn-
um, gjöfum og skeytum.
Jónheiður Einarsdóttir,
frá Arngeirsstöðum
Alúðar þakkir öllum þeim, sem glöddu mig á 75
ára afmælisdegi mínum þ. 4. þ. m. Sjerstaklega þakka
jeg nokkrum konum úr Borgamesi er færðu mjer
höfðinglega gjöf, og glöddu mig með nærveru sinni.
Marsibil Ólafsdóttir frá Haukadal.
^^^><M>^<^<í><^><^$^>^><$>^><$>^^$>^><$^><$>^^$><$>^^^$><$^<$><^><f>
Ný bók:
SAGNAKVER
Alþýðlegur fróðleikur í bundnu máli og óbundnu.
Snæbjöm Jónsson safnaði efninu.
I Sagnakverinu er þetta ,m. a.: Þættir um Símon
Dalaskáld eftir Guðmund Jósafatsson, Pál Guðmunds-
son á Hjálmsstöðum, Jón Pjetursson frá Valadal og
Magnús Jónsson prófessor; Katanesdýrið eftir Ólaf
Þorsteinsson, Ljóðabrjef eftir Sigurð Bjarnason og
Yatnsenda-Rósu; Ása Hrútafjarðarkross með athuga-
semdum eftir síra Jón Guðnason; Dulrænar sögur
eftir Bjarna Ásgeirsson -alþm., Pál Sigurðsson lækni
og síra Þorvald Jakobsson;Fjölkvænismál Sigurðar
Breiðfjörðs, draumsýnir og margt fleira.
Þetta er fjölskrúðugasta sagnasafn, sem komið hef-
ir út um langt skeið.
H.f. Leiftur
^H$>^4>^H^>^>^H$^H$^><$H$H$H$>^H$H$>^HÍHÍH$>^^HÍ^HMH$>^><jHÍH$K$H^H$H$H$KÍ>
lórl timurli
uá
við Laugaveg er til sölu. Nánari- upplýsingar
gefur
GUÐLAUGUR ÞORLÁKSSON
Austurstræti 7. — Sími 2002.
<$>^HÍHÍH$^H$H$HS><S>^><$H^^H^H$>^<$><$>«H»^KÍ^H$H$HÍH$H$H^^$H$H$><$^H$H^^>
Konan mín, móðir og tengdamóðir,
ÞÓRUNN JÓHANNA ÓLADÓTTIR
andaðist að Landsspítalanum í fyrrinótt.
Fyrir hönd aðstandenda
Jón Ingvar Jónsson.
Alúðar þakkir vottum við öllum þeim, er sýndu
okkur samúð við andlát og jarðarför .föður okkar
og tengdaföður,
, JÓNS SIGURÐSSONAR,
áður Rauðarárstíg 1.
Böm og tengdabörn.
Innilegar þakkir til allra, sem auðsýndu okkur
samúð og hluttekningu við andlát og jarðarför föður
míns,
JÓNS JÓNSSONAR
Fyrir mína hönd og annara vandamanna
Jón Kr. Jónsson.