Morgunblaðið - 15.09.1944, Blaðsíða 6
t - I' I I
MOEGUNBLAÐIÐ
1 t,; . ; 2 • I ; ■
Föstudagur 15. sept. 1944.
Jrá 'Í^ercjjjóra ._Hmadóttir:
Yið fögnum því og þökkum i
dag, að við erum dætur þessa
blessaða lands
Eftirfarandi ávarp flutti
frú Bergþóra Árnadóttir fyr
ir hönd ísfirskra kvenna 17.
júní s.l. á lýðveldishátíð ís-
firðinga við Stórurð. Birt-
ist það L„VesturIandi“, blaði
vestfirskra sjálfstæðismanna
og hefir Kvennas. fengið
leyfi ritstj. þess til þess að
birta það.
Kæru samborgarar.
Isfirskar konur vildu ekki
láta hjá líða að mæla hjer á-
varpsorð í dag, — og það fór
svo að lokum, að það fjell í
minn hlut að sýna viðleitni í
þessu efni.
Dagurinn í dag — 17. júní
1944. — ,,Hann gnæfir úr dag-
anna fábreyttu fylking“, full-
ur af gleði, og bjartur af þeirri
sól, sem býr í sinni okkar allra
í dag. Dagurinn í dag — er
fagnaðardagur — okkar fá-
mennu þjóðar.
I hug okkar og hjarta er
hann „heiður á svip, þessi há-
tíðisdagur, svo hugirnir fyll-
ast af sumaryl“.
Og eins og eitt skáldið okk-
ar einhversstaðar segir: „Hann
er ráðning á fólksins fegursta
draumi, um framtíðargiftu
þjóðar og lands“. Því að und-
ir blaktandi fánum við fögn-
um í dag, því frelsi, sem unn-
ist hefir.
í dag fagnar öll þjóðin því,
að sú langþráða stund er runn-
in upp, að ísland er algjörlega
frjálst og fullvalda.
Isfirskar konur vilja taka
undir fagnaðaróð þjóðarinnar,
og við viljum bera hjer fram
með fáum orðum þakkir okkar
og árnaðaróskir þjóðinni til
handa.
Við viljum gera að okkar
orðum í dag það, sem góðskáld
ið segir í einu kvæði sínu:
Með fögnuði hyllum við for-
ingja þá,
sem fremstir í baráttu stóðu,
sem mátu það lægra í metorð
að ná
en að miðla þjóðinni góðu.
Hennar frelsi var dýrara, æðra
en alt,
en auður og metorð og völd
Ijetu falt.
Þessi heiðríki dagur geislandi
gleði,
sem gaf oss hin liðna tíð í arf,
er helgaður þessum hetjum
Islands
í hljóðri þökk fyrir unnið starf.
En í hinni fræknu og djörfu
fylkingu er einn maður, sem af
öðrum ber, sá „örninn mær,
sem aldrei hnígur, íslenskt
xneðan lifir blóð“, og þessi
Bergþóra Árnadóttir
sómi íslands var, eins og við
vitum öll, þingmaður okkar
ísfirðinga, Vestfirðingurinn
Jón Sigurðsson, sem öll þjóð-
in færir þakkargjörð á þess-
urrí degi.
ísfirskar konur heiðra í dag
minningu hans, þ>akka, — og
blessa hans fæðingardag. —
Og við konurnar viljum
minnast þess, að Jóni Sigurðs-
syni var góð gjöf gefin, hann
átti GÓÐA KONU, sem stóð
við hlið hans og var honum
styrkur í hinni sigursælu lífs-
baráttu. I hugum okkar lifir
hún sem ímynd trúfestinnar,
og annara þeirra kvenkosta,
sem bestir eru.
Þau voru samhent hjónin,
og unnu sameiginlega að heill
fósturjarðarinnar, og eins og
kunnugt er, urðu þau að lok-
um samferða heim í faðm fóst-
urmoldarinnar, áleiðis til ljóss
ins landa, á lífsins æðri. svið.
Við segjum með þjóðskáld-
inu góða, Matíhíasi:
„Haf vegsemd og lof fyrir
þennan þinn þjón og þá, sem
hann elskaði heitast". —
— Og þjer, —
Fjallkonan fríð, móðir vor
allra, viljum við dætur þínar
,,í faðmi fjalla blárra“, nú
flytja þjer árnaðaróskir og
biðja þess, — að margvísleg
gæSi megi falla þjer í skaut,
og við fögnum því og þökkum
í dag, að við erum dætur þessa
biessaða lands —
ÍSLANDS, —
sem nú eitt allra landa ber
gæfu til að fagna frelsi í frið-
sömu landi, — landi, — sem
er eins og sólskinsblettur á
þeim himni hörmunga, sem nú
leið og við fögnum frelsinu, í
okkar friðsæla landi, ber okk-
ur að hugsa með samúð til
hinna líðandi mæðra í ófriðar-
löndunum, -—til alls hins stríð-
andi lýðs.
— En gæfa okkar góða
lands, — hún byggist ekki
hvað síst á því, að við jöfnum
nú deiluatriðin á annan veg
en aðrar þjóðir gera.
Við notum engin gjöreyðing-
■arvopn.
Höfnum þeim hel-vegi. -—-
HJER er friðarins Guð í
öndvegi. —
Megi sá Guð — sem gaf okk
ur frelsið, og sem hefir hald-
ið verndarhendi sinni yfir land
Framh. á bls. 12
I,
rettt
Finskt brauð.
500gr. hveiti •
120 gr. sykur
320 gr. smjörl.
egg, sykur, möndlur
Sykrinum blandað saman
við hveitið og smjörl. mulið
saman við. Hnoðað vel, elt í
mjóa sívalninga. Skorið í smá
bita. Þeir aðeins flattir að ofan
með hníf, smurðir að ofan með
feiti og möndlum og sykri
stráð á. Látið á smurða plötu
og bakað ljósbrúnt við góðan
hita.
Serinakökur.
500 gr. hveiti
375 gr. smjörl.
200 gr. púðursykur
1 tsk. hjartarsalt
2 egg
1 tsk. vanillusykur
egg, möndlur, sykur
Hveiti, sykri og hjartarsalti
blandað saman, smjörlíkið mul
ið saman við, vætt í með eggj-
unum. Hnoðað vel, sett í síval-
ar lengjur, sem skornar eru í
smá bita, sem eltir eru í litlar
kúlur. Þær efu stroknar með
hníf að ofan. Síðan er egg, syk
ur og saxaðar möndlur borið
ofan á. Látnar á vel smurða
plötu, bakaðar ljósbrúnar við
góðan hita.
Smjörhringir.
500 gr. hveiti
375 gr. smjörl.
1 tgk. hjartasalt
2 tsk. ger
1 egg
3 msk. mjólk
möndludropar
Hveiti, ger og hjartasalt
blandað saman, smjörl. mulið
saman við. Vætt í með egginu
og mjólkinni. Hno'ðað vel, flatt
þykt út. Mótaðar kringlóttar
kökur, stungið innan úr þeim.
Egg, sykur og saxaðar möndl-
ur borið ofan á.
Vínarterta.
1 kg. hveiti
500 gr. sykur
500 gr. smjörl.
2 egg
2 tsk. ger
vanilludropar
Smjörlíkið mulið í hveitið,
sem blandað er gerinu, sykur-
inn látinn saman við, vætt í
með eggjunum, hnoðað vel,
flatt út frekar þykt. Skornar
ferkantaðar eða kringlóttar
kökur, sem látnar eru á smurða
plötu og bakaðar ljósbrúnar við
góðan hita.
Rúgkubbar.
900 gr. rúgmjöl
700 gr. hveiti
2 tsk. þurrger
50 gr. sykur
% dl. síróp
7 dl. vatn
Blanda rúgmjöli og hveiti
saman, sykur, síróp og ger lát-
ið í. Vætt í með vatninu. Hnoð-
að vel. Smyr , lyftiduftsbauk,
legg brauðið í og lát hefa sig.
Brauðið soðið í ca. 5 tíma.
Fljótbökuð horn.
500 gr. hveiti
200 gr; smjörl.
5 tsk. lyftiduft
1 tsk. salt
2 tsk. sykur
3 dl. mjólk
Hveiti og lyftiduft sigtað
saman við, salt og sykur látið
í, þynt út með mjólkinni, hnoð
að vel, skift í 3—4 parta, hver
partur flattur út í kringlótta
köku, ekki mjög þunna. Hún
skorin í jafna, þríhyrnta parta.
Þeim vafið upp í horn, byrjað
á breiðari endanum. Egg. borin
ofan á. Látin á smurða plötu
og bökuð Ijósbrún við góðan
hita.
Enskar kúrenukökur.
325 gr. hveiti
250 gr. smjörl.
100 gr. sykur
egg, rúsínur eða kúr-
enur
Hveiti, sykur og smjörl.
hnoðað saman, flatt þunt út,
skorið í tígla, egg borið ofan á
ásamt grófum sykri og kúren-
um eða söxuðum rúsínum.
Svenskt hrökkbrauð.
V2 kg. rúgmjöl
100 gr. smjörl.
25 gr. sykur
2V2 dl. mjólk
4 tsk. kúmen
1 tsk. salt
ger framan á hnífs-
oddi
Ollu blandað saman, vætt í
með mjólk og hnoðað vel.
Deigið látið bíða í 10 mín. áð-
ur en það er flatt út í þunnar
kökur. Þær skornar í tígla með
kleinujárni, tíglarnir pikkaðir
með gafli’ og látnir á smurða
plötu, bakaðir Ijósbrúnir.
Kaffibrauð.
500 gr. hveiti
100 gr. smjörl.
200 gr. sykur
4 tsk. ger
2 egg
sítrónudropar
Smjörl. og hveitið mulið
saman, öllu hinu bætt út i,
deigið hnoðað vel og elt í sí-
valning. Hann er síðan látinn
á smurða plötu og bakaður við
hægan hita í ca, V\ klst. Þá er
sívalningurinn skorinn á ská í
smá bita, sem raðað er á plöt-
una aftur og þeir þurkaðir í
ofni þar til þeir eru orðnir Ijós
brúnir.
Sírópskaka.
V2 kg. hveiti
250 gr. púðursykur
2 tsk. negull
250 gr. síróp
3 tsk. ger
3 Va dl. súrmjólk
Hveiti, geri, sykri, kryddi og
sírópi blandað saman. Mjólk-
inni hrært saman við smátt og
smátt. Deiginu 'rent í vel smurt
mót. Bakað við jafnan hita ca.
1 klst.