Morgunblaðið - 15.09.1944, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 15.09.1944, Blaðsíða 12
12 MOEGUNBLAÐIÐ Föstudagur 15. sept. 1944. RæSa Jakobs Framh. af bls. 5. beinnar lækkunar á að koma á kaupgjaldi og verðlagi. Nált- úrlega benda verkföllin, sem þegar hefir verið stofnað til og fram undan virðast vera, í alt aðra átt. En ef svo er, að skiln- ingurinn og fórnarviljinn hafi aukist til muna, frá því sem áður var, er þá ekki enn álita mál, hvort ekki væri eins mik- ils eða meiri árangurs að vænta af samkomulagsumleitunum eins og af lagaboðum? ★ ÞAÐ hefir verið talið, að til þess að koma í veg fyrir algert öngþveiti í kaupgjalds- og verðlagsmálum, gæti veríð um tvær leiðir að velja: samkomu- lagsleiðina og löggjafarleiðina. En jeg hygg, að þegar betur er að gáð, þá sje leiðin aðeins ein: samkomulagsleiðin og eng in önnur. Mjer virðist, að reynsla sje fengin fyrir því, að löggjafarleiðin hjóti að mis- takást og leiða einmitt til þess öngþveitis, sem henni er ætlað að bægja frá, nema hún bygg- ist á samkomulagi, og virðist þá alveg einsætt að reyna að minnsta kosti samkomulags- leiðina til þrautar, áður en grip ið er til hinnar. En ef sam- komulag ekki næst, þá er það af því, að almenningur í land- inu hefir ekki enn öðlast rjett- an skilning á því, hvernig hag hans verði best borgið. En slík- an skilning held jeg ekki að menn geti öðlast með neinum élbeina löggjafarinnar. Menn öðlast hann aðeins með því að íiprfast í augu við veruleikann. Frá hraðkepnismótinu í Hafnaríirði Innrás á Filippseyjar á döfinni! Bandaríkjamenn halda nú líppi stöðugum árásum á Fil- ipseyjar, bæði af herskipum og með flugvjelum, og álíta margir herfræðingar. að þetta sje undirhúningur að innrás á eyjarnar. Þá hafa Bandaríkjamenn varpað sprengjum á Marian- evjarnar og gert að þeim stórskotahríð mikla. — Þá voru miklar árásir orustuskipa og beitiskipa gerðar á Palau- eyjar nokkru austur af Fil- ipseyjum. — Reuter. HRAÐKEPNISMOT í hand- knattleik kvenna fór fram í Engidal við Hafnarfjörð s.l. sunnudag kl. 2 e. h. Öllum fjelögum innan í. S. í. á svæðinu Borgarnes að Vík í Mýrdal, að báðum þessum stöð um meðtöldum, var leyfileg þátttaka í mótinu. Aðeins þrjú fjelög tilkyntu þátttöku og keptu því í mót- inu, en það voru Hafnarfjarð- arfjelögin F. H. og Haukar og K. R. úr Reykjavík. Þessi hraðkepni fór í fyrsta sinn fram í fyrra, er Jón Mathiesen kaupm. í Hafnar- firði gaf stóran og fagran bik- ar til að keppa um. Keppendur voru þá þeir sömu og núna, en K. R. vann þá keppinauta sína, Hauka og F. H. með 1:0. A laugard. var dregið um hvaða fjelög skyldu byrja og kom hlutur F. H. og Hauka upp. Eftir að Gísli Sigurðsson hafði sett mótið með stuttri, snjallri ræðu, hófst leikur F. H. og Hauka, en K. R. sat hjá. Framan af var leikurinn afar jafn, en hraður og vel leikinn á báða bóga. En í síðari hluta fyrri hálfleiks fóru Haukar að ná yfirburðum með skemtileg- um, vel skipulögðum samleik, betri staðsetningu og hættu- legum skotum á mark, sem urðu þó ekki árangursrík, því markmær F.H-inganna, Þóra Þorvaldsdóttir, varði af snild hvert skot á fætur öðru. Haukar unnu þennan hálf- leik með 1:0. Síðari hálfleikurinn var mun hraðari, en ekki eins skemti- lega leikinn af F. H., því það var eins og liðinu fjellust hend ur. Sendingarnar fóru að verða ónákvæmari og staðsetn ingarnar verri, sem olli því, að Haukar náðu strax yfirburðum í leiknum og voru altaf í sókn hálfleikinn út. Þessi hálfleikur endaði með 4:0 Haukum í hag og lauk því leiknum 5:0. í þessum leik sýndu Hauka- stúlkurnar mun meiri yfirburði en í leik þessara fjelaga í Hafnarfjarðarmótinu, og tel jeg, að það stafi fyrst og fremst af því, að með Haukunum ljek nú Þorbjörg Magnúsdóttir, en hún var ekki með þeim þá. Þorbjörg er vafalaust besta Sigurvegaramir í hraðkepninni; Haukar aftari röð frá vinstri: Kristín Þorvaldsdóttir, Guðný Guðbergsdóttir, Þor- björg Magnúsdóttir, Þorgerður Þorvarðardóttir. — Fremri röð frá vinstri: Svava Júlíusdóttir, Rut Guðmundsdóttir og Soffía Júlíusdóttir. handknattleiksmær Hafnar- fjarðar, leikur rjett og vel og er sjerstaklega skotviss og markheppin. Leikinn dæmdi Benedikt Jakobsson. Eftir 12 mín. hlje keptu svo Haukar og K. R. Var leikur þessi mun hraðari og betur leik inn en sá fyrri. KR-stúlkurnar virtust í fyrstu ekki ætla að láta hlut sinn fyr en í fulla hnefana, en þó fór það svo, að Haukar náðu yfirhöndinni um tíma, en rjett í lok leiksins náðu KR-stúlkurnar mikilli sókn á Hauka, sem endaði með þeim árangri, að þeim tókst að kvitta og lauk leiknum 4:4. Varð því að framlengja leikn- um um 5 mín. á hvort mark. Og eftir 10 mín. hvíld hófst því leikurinn á ný. Hauka- stúlkurnar náðu strax yfir- höndinni og var það til þess, að KR-stúlkurnar virtust missa alt jafnvægi og urðu ó- nákvæmari í samleik og stað- setningu. Haukar hjeldu aftur á móti hraðri og mikilli sókn alla framlenginguna. út og end aði hún þeim í vil 3:0. Leiknum lauk því með sigri Hauka 7:4. Dómari var Baldur Krist- jónsson. Að leiknum loknum afhenti Gísli Sigurðsson Haukum hinn fagra grip og þakkaði þeim fyrir að færa hann aftur til Hafnarfjarðar. F. H. sá um mótið og fór það fram með mestu prýði. Hauka-stúlkurnar voru vel að sigri sínum komnar, og hvort sem það er hræðslan við það að tapa, sem gerir það, að Armannsstúlkurnar, íslands- meistararnir, sátu heima, eða það, að þær vilja ekki sýna sinn snjalla og góða leik, svo aðrir geti lært af, þá tel jeg þær hepnar að hafa ekki ver- ið með í þessu móti, þó varla hefði vafi leikið á því, að þær hefðu sýnt góðan leik. En við harða keppineuta hefðu þær átt að etja. Hf. í Kaupmannahöin Frá danska blaðafull- trúanum. FRÁ LONDON berast fregnir um, að danska frjetta-’ stofan í Stokkhólmi segi að þýska leynilögreglan og lög- reglan hafi í nótt • sem leið gert margar húsrannsóknir og handtekið fjölda manns. Var afar víða að hringt. til dönsku lögregliumar og hún beðin um vernd. Ekki er enn vitað hve níargir hafa verið hand- teknir. Framh. af bls. 6 inu okkar, mitt í hamförum styrjaldarinnar — nú sameina þjóðina í hinni nýju sjálfstæð- isbaráttu, sem framundan er, og miðar að því, að varðveita frelsið, — treysta grundvöll þess Ojg skapa hjer betra og fuilkomnara þjóðfjelag. En til þess að þetta takist vel, verður forustan að vera góð, forráðamenn þjóðarinnar verða að leggja niður flokka- ríg og þras, og algjör þjóðar- eining að hefjast. Þjóð vor stendur nú á víð- um vegamótum, leiðirnar liggja í ýmsar áttir, við óskum þess af heilum hug, að hún haldi vel hópinn, villist aldrei af rjettri leið, gangi ávalt gæf- unnar brautir — á Guðs veg- um, — já, — megi þessi tíma- mót verða til þess, að andleg og varanleg vakning fari um þjóðina, að áhrif tímamótanna verði yfirleitt margvísleg og góð, og þjóðinni til aukinnar farsældar, svo að við Islend- ingar berum gæfu til að verða á meðal þjóðanna: f yrirmyndarþ j óð. Bergþóra Arnadóttir. Tóntasi Ólafssyni og konu hans haidið kveðjusamsæti TÓMAS ÓLAFSSON kaup- maður og kona hans, Máría Emilsdóttir eru á förum til Bandaríkjanna, en þar mumt þau setjast að.'s 1 tilefni af því, buðu vinir og kunningjar þeim til kveðju: gildis í Oddfellow-höllinni^ niðri. s. 1. þriðjudagskvöld. Margar ræður voru fluttap undir borðum og var þeirn, hjónum færð vegleg gjöf. Að lokum var dans stiginn fram eftir nóttu. Ilófið sátu á annað hundr- að manns. Þau hjón eru vin- sæl og góðkunn hjer í bænum, og er því skarð fyrir skildi, er þau nú hverfa til Vestur- heims. London í gærkveldi: Frakkar hafa tilkynnt að tuttugu lög- reglumenn í Nissa hafi verið drepnir fvrir það að vera hlið hollír Þjóðverjum. — Reuter. ♦♦»♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ Eftir Roberf Sform X-9 5W MMMM ►♦♦« ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦« ' | NOW YOU /V1EN KNOW MOW YOU <5TAH0 W|TM MOUR 0055 IN A CUJTCU! s ALL KlöMT, BOY5...TM5 POT'5 OPEN ... ANTB UP WITH YOUR GUN5 ANO DON'T F0P6ET — l'M 600D AT POT-5HOT5' W£'S 0£AD! Y'KILLED N\M 6LUE-JAW' Al -TMIS MOMBNT, AHAmS’ &O/A&úíZ APPROACUE'S PPOM tuc c,nim! 1—2) Andy: — Hann er daúður. Þú drapst hann, Blákjammi! X—9: — Jæja, strákar, nú vitið þíð, hvernig þið eigið að standa við'hlið foringja ykkar, þegar í nauðirnar rekur. 3—-4) X—9: 4— Jæja, strákar, hendið þið frá ykk- ur byssunum og gleymið því ekki, að jeg er nokkuð hittinn! Á þessari stundu nálgast sprengjuflugvjel úr suðri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.