Morgunblaðið - 15.09.1944, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 15.09.1944, Blaðsíða 16
1G ; Forseti heimsækk Mosfellssveit Frá utanríkisráðuneytinu: Ferðalagi forseta íslands lauk með heimsókn í Kjósar- sýsld í dag. Hjelt forseti af stað klukkan 4.30. Komið var við í Grafarholti, og heilsaði forseti upp á Björn bónda. Þar afhenti lítil stúlka forseta blómvönd. Staðnæmst var á Alafossi, en þar var Sigurjón verksmiðjueigandi staddur, á- samt starfsfólki Alafossarverk- smiðjunnar. Sigurjón bauð for- seta velkominn með ræðu og af henti honum tvær Alafoss værðarvoðir að gjöf. Var önn- ur merkt forseta, en hin forseta frúnni. Forseti þakkaði með ræðu. Siðan var ekið að Reykj um, en þar var saman kominn fólksfjöldi. Þar bauð Ólafur Bjarnason frá Brautarholti forseta velkominn í nafni sýslu nefndar. Þá talaði Hálfdán Helgason prófastur, Mosfelli. En söngkór Mosfellinga söng nokkur lög, þá var forseta af- hentur blómvöndur. Síðan var setin kaffidrykkja í boði sýslu nefndar að Reykjum. Undir borðum hjeldu þessir menn ræður: Sjera Haldór Jónsson, að Reynivöllum, Björn í Graf- arholti, Bjarni Ásgeirsson, alþm., forseti Islands. Að lok- um voru gróðurhúsin að Reykj um skoðuð, en dóttir Tybergs, garðyrkjumanns færði forseta blómvönd. Forseli íslands viðsíaddur úrslilaleik Á SUNNUDAGINN kemur fer fram úrslitaleikurinn í Walterskeppninni, síðasti meist tiraflokksleikur sumarsins, og verður forseti Islands viðstadd- ur leikinn. K. R. og Valur keppa til úrslita. Það ber og til nýlundu í sam bandi við þenna leik, að leik- menn verða tölusettir og leik- skrá prentuð, þannig að menn geta af henni fylgst með nöfn um leikmanna, þótt þeir þekki pá ekki á vellinum. Mun leik- í.kráin verða til sölu í bókabúð Lárusar Blöndal á laugardág. Hr. V. Rae, breski- dómarinn, sem dæmdi fyrsta leik Walters keppninnar, mun dæma þenna leik og verður sama aðferð við höfð og þá: tveir línuverðir rneð dómaraprófi aðstoða, þeir Haukur Óskarsson og Jón Þórð arson. Hefir hin nýja aðferð við leikdómana þegar mælst vel fyrir hjer, enda er miklu meiri regla í leiknum með henni. — Verður vafalaust hin besta skemtun á vellinum á sunnudaginn. Eden fer til Quebec Húist er við Anthony Eden, utanríkisráðherra Breta tiL Quebec í kvöld og nran hann taka þátt í viðræðum þeirra líoosevelts og Churchills. Enn- frenrar er búist við því, að aðiiar að ráðstefnunni gefi í vikulokin út opinbet’a yfirlýs- ingu uni hernaðinn gegn -Tap- an. — Roosevelt og Churchill sátu á rökstólum allan daginn Marlene Dietrich með íslenskum blaðamönnum í fremri röð: Marlene Dietrich. Til vinstri við hana ungfrú Sva va Ragnarsdóttir (Vikan), Bjarni Guðmundsson, blaðafulltrúi. Til hægri við leikkonuna: fvar Guðmundsson (Morgunblaðið). Aft- ari röð: Hersteinn Pálsson (Vísir), Asmundur Sigurjónsson (Þjóðviljinn), Jón H. Guðmundsson (Vikan), Svavar Hjaltested (Fálkinn), Thorolf Smith (Alþýðublaðið) og Jón Magnúss (Ríkisútv) Ljósm.: Mbl. (Jón Sen). — Viðtal'við leikkonuna bls. 4. Frá Rauiarhöín Frá frjettaritara vorum 8. september. FRJETTIR helstav hjeðan eru þær að verið er að kæfa okkur í síld. Henni er mokað upp rjett utanvið hafnarmynn- ið, meira en verksmiðjurnar báðar geta tekið. í fyrri nótt munu hafa legið um 125 síld- veiðiskip inni á höfninni, og teljum við það vera mestan flota sem legið hefir inni í einu. Nýja verksmiðjan bræðir nú um 5000 mál á sólarhring og sú gamla um 10000. Örðug- leikar hafa verið á að útvega skiptaflotanum matvæli, sjer- staklega nýjar kartöflur, dósa- mjólk, og brauðgerðarhúsið hef ir ekki haft undan að baka nema að hálfu leyti, og ferðir strandferðaskipanna strjálar. Mjölsekkjalaust er að verða og mun síldarmjölið, sem fram- leitt verður næstu daga látið laust í mjölgeymsluna og sekkj að síðar. Þorskafli hefir einnig, í ágúst og september, verið með af- brigðum góður, og er fiskurinn seldur nýr í fisktökuskip. Afkoma almennings mun því verða góð að þessu sirtfii. Nýtt landssíma- og pósthús er hjer í smíðum, í fjelagi við Síldarverksmiðjur ríkisins, fyr ir skrifstofur þeirra. Þjóðverjar enn í Tangier. London: Enn eru tveir þýsk- ir erindrekar í Tangier, þótt Spánverjar lofuðu að láta þá fara. Spænskir embættismenn þar virðast ekki hafa orðið fyr ir neinum áhrifum af sigrum bandamanna, heldur eru þeim jafn fjandsamlegir og áður. Hanni bjarga frá druknun Sigurður Magnússon, lög- gæslumaður, bjargaði í fyrra- kvöld ungum manni frá því að stytta sjer aldur, með því að drekkja sjer. Þetta átti sjer stað við Olíu- stöðina á Klöpp. Var Sigurður á leið vestur Skúlagötu í bif- reið. Sjer hann þá ungan mann þar á götunni. Var maðurinn mjög drukkinn, en sjerstaka grunsemd vakti það hjá Sig- urði að maðurinn grjet. Snjeri hann þá bifreiðinni og ók á eft ir manninum. Sjer hann þá að maðurinn fer úr frakkanum, snarar sjer yfir háa gaddavírs- girðingu, rennir sjer niður há- an vegg og beint niður í flæð- armál. Kallaði Sigurður á mann inn, en hanp svaraði því engu. Fer Sigurður þá þegar úr bif- reiðinni og á eftir manninum. Gekk hann á eftir manninum lánga leið meðfram uppfylling unni og varð hann að vaða upp undir hendur. Ekki tókst Sig- urði að ná manninum fyrr en har.n var kominn út á klappir, sem eru norðan við uppfylling una, en út af þeim er mikið dýpi. Um það bil og maðurinn ætlaði að fleygja sjer í sjóinn, tókst Sigurði að ná í manninn. Tókust nú ryskingar með þeim, en Sigurði tókst að ná yfirtök- um á manninum. Bar nú að þrjá lögregluþjóna og tóku þeir manninn yfir uppfyllinguna með kaðli. I ryskingunum hlaut Sigurð ur me'iðsl á hægri fæti og á annari hendi, einnig rifnuðu föt hans nokkuð. Ágælir hljómleikar Þorsfeins Hannes- sonar í fyrrakvöld ÞORSTEIXX HANNESSON söngvari hjelt hljómleika í Gamla Bíó í fyrrakvöld. Und- irleik annaðist dr. Ur- bantschitsch. Fult hús va r áhorfenda, og tóku þeir söngniini ágætlega, og varð Þorsteinn að tvítaka suni lögin og syngja aukalag. Söngvaranum bárust margir hlómvendir. Á söngskránni vont íslensk og'erlend lög og aríur úr óperum. Þorsteinn niun endurtaka, hljómleikana í kvöld, og hefj- ast þeii' kl. 23,30 í Gamla Bíó. EVlarlene Dietrich Föstudagur 15. sept. 1944« Sráðabirgðalausn á verðlagi land- Framh. af bls. 4. . er nú með, hefir fylgt fimta hernum til Ilaliu, en var áður í Norður-Afríku. Flokkurinn skemti hermönnunum fyrst hjá Salerno, síðan á Anzio-svæðinu og fylgdisl loks með honum lil Rómaborgar. Nú er flokkurinn á 6 mán- aða ferðalagi. Frá New York fór hann til I.abrador og síðan til Grænlands, en hjeðan fer hann til Englands. Við verðum senniiega búin að fara um allan heim, áður en við komum heim aflur, sagði Marlene Dietrich og brosti þessu alkunna brosi,1 sem hrifið hefir svo marga kvik myndahúsgesti um allan heim. | ÞINGMENN sitja nú á stöð- ugum fundum frá morgni til kvölds og oft fram á nætur. Samninganefndir þingflokk- anna halda áfram viðræðum. Þingmenn láta lítið uppi um það, hvernig málin standa. Sum ir eru bjartsýnir, aðrir svart- sýnir, eins og gerist og geng- ur. En svo mikið er víst. að ekki er enn slitnað upp úr samningum. En með því að frá og með deginum í dag kemur nýtt við- horf í verðlagsmálum landbún- aðarins, þar sem hin nýja land búnaðarvísitala kemur til fram kvæmda, fór dagurinn í gær að mestu í að gera bráðabirgða- lausn á þessum málum. Tveir þm. Framsóknarflokks ins (Bernh. Stef. og Skúli G ) báru fram í Sþ. svohljóðandi þingsályktunartillögu: ,,Alþingi ályktar að fela rík- isstjórninni að lækka verð á vörum innanlands fyrst um sinn með framlagi úr ríkissjóði, til þess að koma í veg fyrir, að vísitala íramfærslukostnaðar hækki úr 272 stigum“. Tillaga þessi var tekin fyrir á fundi, er hófst kl. 5 s. d. Var tillögunni vísað til fjárveit- inganefndar, en ákveðið að halda fund að nýju kl. 9 um kvöldið. Er fundur hófst að nýju lágut fyrir tvö nefndarálit. Annað var frá fulltrúum Sjálfstæðis- flokksins (P, Ottesen, Þorst, Þorsl., Jóh. Þ. Jós. og Sig. Kr.) og lögðu þeir til að tillögu- greinin yrði orðuð þannig: „Alþingi ályktar að fela ríkis stjórninni að leggja fram fje úr ríkissjóði til þess að halda ó- breyttu verðlagi innanlands til 23. sept 1944, að þeim degi með töldum. á þeim vörum, sem lialdið hefir verið niðri í verði að undanförnu með ríkissjóðs- tillagi“. Hitt nefndarálitið var frá fulltr. Framsóknarfl. (J. J. og Helga J ), sem lögðu til, að lil- lagan yrði samþ. óbréytt. Full- Irúar Alþ.fl. og SósíalistafL skiluðu ekki áliti, en þeir vildu halda verði lándbúnaðarvara óbreyttu til 1. des., en láta ekki á meðan hina nýju vísilölu koma til framkvæmda. Úrslit málsins urðu þau, að brtt. Sjálfstæðismanna var samþykt. Með því má segja að Alþingi hafi tekið sjer frest til 23. þ. m., en fyrir þann tíma verður að vera skorið úr, hvort samn- ingar takast eða ekki. Frakkar dauðadæmdir. London í gærkveldi: Franska útvarpið sagði í kvöld, að franskur herrjettur hefði dæmt 10 franska liðsforingja til dauða í dag, en níu voru dæmd ir í 20 ára fangelsi, en 5 í 10 ára fangelsi. — Ekkert var um það sagt, hvað menn þessir hefðu gert af sjer. — Reuter. Róm: Meira en þúsund menn, sem taldir eru hafa verið hlynt ir Mussolini, hafa verið settir í fangelsi og verða dregnir fyrir dóm síðar. Talið er líklegt að margir þeirra verði skotnir k

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.