Morgunblaðið - 21.09.1944, Page 1

Morgunblaðið - 21.09.1944, Page 1
-81. árgangur. 212. tbl, — Fimtudagur 21. september 1944 Isaíoldarprentsmiðj* h.í. ÞJÓÐVERJAR VEITA HATRAIVIIUT VIÐMÁM A ALLRI VfGLÍNUIMNI Svifsprengja fjell á falabúð Nýlega kom svifsprengja niður í eina af stærstu klæðaversl- unum Bretlands með þeim árangri, sem sjest hjer á myndinni. Fatnaður fauk í allar áttir og var heilt hverfi meira og minna þakið af klæðum. Fólk streymdi að, til þess að vita, hvort það næði ekki í citthvað nýtilegt. Rússar sækja hratt fram í Eistlandi Eru korrmir að Riga London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgun- blaðsins frá Reuter. DAGSKIPAN var gefin úl í Moskva í kvöld af Stalin, þess efnis, að. Rússum yrði mjög vel ágengt í stói’sókn sinni í Eist- landi, en hún var byrjuð fyrir þrem dögum' Hermir dagskip- anin að sótl hafi verið fram um 65 km sumsslaðar og fjöldi bæja ög þorpa tekinn. Sótt er fram nærri Dorpat og einnig norðar. Rússar eru komnir að úthverfum Riga, að því er frjettaritarar segja. Bardagar nú mestir í Hollandi London í gær. Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter. MÓTSPYRNA Þjóðverja gegn sókn bandamanna á vesturvígstöðvunum hefir aldrei verið eins hatröm og í dag, enda hafa bandamenn því nær hvergi sótt fram neitt að ráði, en að því er fregnir herma, hefir þeim að mestu tekist að hrinda gagnáhlaupum Þjóðverja, svo aðstaðan getur talist óbreytt. Fregnritari vot, með herjum bandamanna segir, að þetta hafi verið dagur hinnar hatrömu mótspyrnu: Mestu orusturnar eru háðar um brú eina yfir ána Waal, nærri Niemingen í Hollandi. — Jafnhörð er mótspyrna þýska hersins gegn fyrsta hernum ameríska á Aachen-Trier- svæðinu og sunnar geisa skriðdrekaorustur miklar í borg- unum Luneville og Chateau Salins. r OrólegS í Kaup mannahöfn enn í gær bárust fregnir frá Danmörku, að enn hefði verið hleyþt af nokkrum skotum í Kaupmannahöfn. S. S.-menn éru á verði á götunum, og þýsk lögregla heldur vörð um Frí- höfnina. Bannað hefir verið að skip láti úr höfnum á Sjálandi. Verkíallinu í Kaupmannahöfn heldur áfram. Þá er sagt að 1700 danskir lögreglumenn hafi verið flutt- ir til Þýskalands með skipi. Verkfáll er enn í Helsingör, en þar var lögreglan afvopnuð .rjett.áður, en loftvarnamerkið var gefið. Tóku Þjóðverjar lög reglustöðina með áhlaupi, og settu þar siðar upp fallbyssur. 'Var allt lögreglulið bæjarins handtekið. Frelsisráðið hefir tilkynt Dönum, að enn sje of snemmt að 'gera allsherjarbaráttu við Þjóðverja. Talið er, að verk- fallinu verði afljett í dag. (Úr danska útvarpinu hjer). I bardögunum við Amalien- borg í gær hermir Reuters- fregn, að fallið hafi af Dönum 4 menn. Þjóðarsorg í Finnlandi STOKKHÓLMI: — Mikil sorg ríkir nú í Finnlandi yfir hin- um hörðu vopnahljesskilmál- um Rússa og er mikill uggur í mönnum. Er auðheyrt á þeim finskum blöðum, sem bjuggust við sæmilegúm friðarkostum, að þau hafa orðið fyrir ægileg- um vonbrigðum. Annað ei; það og, sem hefir vakið mjög mikinn óhug í Finnlandi, en það er það, að Rússar eru sagðir munu taka í sínar eigin hendur eftirlit með skeytasendingum, símtöl- um og pósti frá Finnlandi um nokkurn tíma; að því er sagt er, en þetla er sama og að Finn- land verði sambandslaust við umheiminn um óákveðinn tíma og enginn utan landsins viti raunverulega hvað þar fer fram. Þykir mönnum í Svíþjóð þetta mjö.g ills vita. Það er fyrir norðan Dorpat eða Tartu í Eistlandi, sem aðal sókn Rússa er háð, og segjast Rússar þegar hafa hreinsað til á nokkru af vesturbakka Peip- usvatns. Norðar kveður dag- skipanin her Govorovs frá Leningradsvæðinu hafa sótt alllangt fram meðfram strönd- um finska flóans eða á Narva- vígstöðvunum. Voru báðar þess ar sóknarlotur byrjaðar í einu. I herstjórnartilkynningu Rússa hinni venjulegu er sagt, Framh. á 2. síðu. Fólk fluft austur yfir Rín ÞJÓÐVERJAR hafa ákveði ið að flytja alla íbúa hjeraða þeirra vestan Rínar, sem bandamenn eru komnir nærri, austuryfir fljótið, þar á með- al íbúana í Aachen. Er talið að alls verði tvær milljónir manna fluttar austuryfir fljót ið. Tekið er fram, að allt gam- alt og lasburða fólk og einn- ig börn, verði flutt í járn- brautarlestum. Allir karlmenn, á aldrinum 16—40 ára, verða eftir í bi'áð, til þess að að- stoða við virkjagerð. Fólkinu, sein brott er flutt, verður leyft að taka með sjer eins mikið af eignum sínum, og með nokkni móti er hægt. „Þjóðverjar gela enn unnið slríðið" London í gærkveldi. FRJETTARITARI þýsku frjettastofunnar heimsótti í dag aðalbækistöðvar ITitlers, ,og sagði er hann kom þaðan aftur: „ITugarástand manna í að- albækistöðvum Ilitlers á þess- um alvarlegu dögum er þann- ig, að þar eru allir ákveðnir að berjast til hins ýtrasta og sannfærðir um það, að Þjóð- verjar geti enn unnið stríðið, jafnvel þótt ástandið sje ekki betra en það er nú“. — Reuter. Bardagamir í Hollandi. Bretum er það afar mik- ilvægt atriði að geta náð á sitt vald tveim brúm yfir ána Waal, sem er mjög breið við Niemingen í Hollandi, þar sem þetta eru einu brýrnar yfir á þessa, á mjög löngum kafla. Hafa Þjóð- verjar dregið að sjer varalið þarna og hafa margar loft- varnabyssur. Talið er að þeim hafi þegar tekist að eyðileggja aðra brúna yfir fljótið, en um hina er nú barist af ógurlegri heift. Fallhlífalið fær aðstoð. Þrátt fyrir það, þótt flug- veður hafi ekki verið sem best í dag, hafa flugvjelar frá Bretlandi fært fallhlífa- hersveitunum í Hollandi bæði birgðir og liðsauka. — Sums staðar eru fallhlífa- sveitirnar enn einangraðar og halda brúm yfir skurði og öðrum þýðingarmiklum mannvirkjum. A Arnheimsvæðinu geisa stórkostlegar orustur og mun ástandið ekki hafa breyst þar að ráði. Amerisku herimir. Fyrsti ameriski herinn á Trier og Achensvæðunum á í miklum orustum, en hefir htt sem ekkert unnið á. Sunnat’ hefir nú þriðji herinn undin stjórn Pattons lent í miklum bardögum, þar sem Þjóðverj- ar hafa fært þrautreyndar skriðdrekasveitir til þessara. vígstöðva. Er nú barist af miklum ofsa í bæjunum Lune- AÚlle og mistu bandamenn þann bæ aftur í gær og náðu honum svo aftur í dag. •—• Framh. á 2. síðu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.