Morgunblaðið - 27.09.1944, Side 1
Bl. árg'angnr.. 217. tbl. — Miðvikudagur 27. september 1944. Isafoldarprentsmiðj* h.f.
FRJETTABANN A ARNHEIIVIORUSTUNA
FLUGHERJUHI IVIIKIÐ BEITT í GÆR
Framsókn við Adria-
hafið
Á Ítalí.u eru enn miklar
órustur háðar og sækja banda
menn hvarvetna nokkuð fram,
J>ótt mótspyrna sje allsstaðar
hörð. Er það einkvun við
Adriaháfið, sem bandamenn
vinna á, en gengur treglega
inni í landinu, þar sem Þjóð-
verjar hafa dregið að sjer
varalið, að sögn 3 herfylki.
Þjóðverjar kveða banda-
menn hafa gert 27 áhlaup á:
stöðvar þeirra fyrir norðan
Fiorens. á einum 36 klukku-
stundum. — Ileuter.
Engin viðkoma
í Argentínu
Opinberlega var tilkynnt
hjer í dag, að eftir 1. október
n. k. verði skipum Bandaríkj-
anna á norðurleið frá Suður-
Ameriku, bannað að koma við
í höfnum í Argentínu.
Sagt er að þessi ráðstöfun
hafi verið gerð vegna mikilla
hernaðarþarfa fyrir skipastól-
inn og því við bætt, að þau
lönd, sem styðja hinar sam-
einuðu þjóðir í ófriðnum
myndu látnar sitja fyrir um
ákiprúm. — Reuter.
Sigurður Kristjáns-
son bóksali sæmd-
ur stjörnu stór-
riddara
Frá orðunefnd hefir blað-
inu borist eítirfarandi til-
kymling: i
’ „FORSETI ISLANDS veitti
að tillögu orðunefndar Sig-
urði KristjánsSýni hinn 23. þ.'
m. stjörnu stórriddara hinn-
ar íslensku Fálkaorðu.
Sigurður hafði unnið ís-
iensku bókaútgáfu mikið
gagn og stuðlað meðai annars:
að því með ódýrri heildarút-
gáfu l.slendingasagnanna, að
þær urðu almenningseign".
Á níræðisafmæli Sigurðar
Kristjánssonar bókssala, 23.
þ. m. heimsótti forseti íslands
hann og sæmdi hann stjörnu.
stórriddara, sem að framan
greinir. Mjög margir heim-1
sóttu Sigurð og færðu honum
veglegar g.jafir.
Fulltrúar Oddfellowregl-
unnar, ITins íslenska prentara.
fjelags, Fjelags íslenskra
prentsmiðjueigenda og Bók-
salafjel. Islands heimsóttu Sig-
urð og sýndu honurn marg-
víslegan sóma.
(hurchill flytur
á morgun
London í gærkveldi:
Eden tilkynnti á þingi Bret-
lands í dag, að Churchill for-
sætisráðherra myndi flytja
ræðu um styrjaldarmál í þingi
á morgun, fimtudag, en þing er
nú nýkomið saman eftir sumar
leyfið. — Eftir ræðuna verða
tveggja daga umræður um mál
þau, er ráðherrann ræðir. Ekki
er vitað hvenær um daginn
ræðan verður haldin.
— Reuter.
Svifsprengjur og
stórskotahríð
London í gærkveldi:
Þjóðverjar skutu enn svif-i
sprengjum á Bretland í gær-
kveldi, og í dag skutu þeir mik
ið úr fallbyssum sínum hand-
an Ermarsunds, eða samfleytt
í fimm klukkustundir. Varð
margt fólk að vera í loftvarna-
byrgjum um langan tíma, og
skemdir urðu talsverðar sums-
staðar. Álitið er að Þjóðverjar
hafi skotið vegna þess, að mikl
ar loftárásir voru gerðar í fall
byssustöðvar þeirra í dag við
Grisnez-höfða. — Reuter.
Rússar taka bæi í
Karpatafjöllum
Miklar orustur við Riga
London í gær. Einkaskeyti til Morgunblaðsins
frá Reuter.
Rtissar segja í herstjórnartilkynningu sinni í kvöld, að
rússneskar hersveitir hafi í dag tekið bæinn Turka og
nokkra aðra í illfærum fjallahlíðum Karpataf jallanna fyr-
ir suðaustan Sanok.
Þjóðverjar skýra einnig frá miklum orustum á þessu
svæði.
Norðmenn
eyðileggja vopna-
verksmiðju
FRÁ NOREGI er símað, að
aðfaranótt 16. sept. hefði ver-
ið gerð sprenging í Kongsberg
vopnaverksmiðjn með þeim á-
angri að mikið af verksmiðj-
unni er óstarfhæft.
Þetta er eina vopnaverk-
smiðja landsins og hafa Þjóð-
verjar rekið hana síðan 1940.
ITafa 900 verkamenn verið
þar í vinnu. Þar hafa verið
frarpleiddar fallbyssur, liríð-
skotabvssur og ljettari vopn.
Þar hafa verið gerðar sjálf-
virkar Bofors fallbyssur með
leyfi frá Bofors-verksmiðjun-
um sænsku.
Frá Zurich berast þær fregn
ir, að til hressingarhælis eins í
Sviss sje kominn dr. Paul
Schimdt, einn af nánustu sam-
verkamönnum Hitlers og túlk-
ur hans á öllum mikilvægum
ráðstefnum um mörg ár. Talið
er að dr. Schmidt sje aðeins
kominn til Sviss sjer til heilsu
bótar.
Þá segja Rússar að . miklir
bardagar haldi áfram í suður-
hluta Eistlands og hafi þeir tek
ið þar marga bæi, þar á meðal
bæinn Hapsalu, sem er hafnar
bær. Einnig' kveðast Rússar
hafa haldið áfram sókn sinni
til Riga og Þjóðverjar segja
einnig frá miklum orustum. —
Þeir segjast hafa eyðilagt yfir
900 skriðdreka rússneska á
hálfum mánuði í Eistlandi.
Ósamstæðar' fregnir berast
frá landamærum Ungverja-
lands og Rúmeníu. Engar opin
berar fregnir hafa borist frá
Rússum nje Þjóðverjum um
bardagana þar, en Ungverjar
og Rúmenar segja, að barist
sje á landamærunum sumsstað-
ar.
Ungverjar kveðja til vopna.
Ungverjar tilkynntu í dag,
að allir vopnfærir karlmenn í
landinu yrðu að vera viðbúnir
því að vera kalaðir til vopna,
því líf þjóðarinnar allrar væri
í veði, ef landið yrði ekki var-
ið. —
Þjóðverjar kveðast nú
hafa sigrað breska fall-
hlífaliðið
London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgun-
blaðsins frá Reuter.
EISENHOWER fyrirskipaði í dag frjettabann til ör-
yggis frá öllum bardögum frá Arnhemsvæðinu, og eru
því fregnir Þjóðverja þær einu, sem berast frá því liði,
en Þjóðverjar segjast hafa yfirbugað leifar þess algerlega.
Annars eru fregnirnar af þessu svæ£i í dag mest um
loftorustur og loftárásir og einnig um framsókn Breta
að ánni Lek sunnanverðri, en Þjóðverjar hrundu þeim
aftur til baka yfir fljótið í fyrradag. Bretum hefir aftur
tekist að opna samgönguleiðir sínar til framsveitanna
fyrir norðan Nijmegen.
Litlar breytingar hafa orðið sunnar. Þjóðverjar gera
gagnáhlaup í Vogesafjöllum og við Belfort.
Utvarp frá Alþingi
ÁKVEÐIÐ hefir verið, að
útvarpsumræður fari fram,
frá Alþingi annað kvöld
(fimtudag). Útvarpað verður
framhaldi 1. vunræðu um frv.
um breyting á dýrtíðarlögun-
um, sem lagt var fyrir þingið
í gær. Er í frv. þessu lagt til,
að dýrtíðarlögunum verði
breytt í samræmi við álykt-
anir Búnaðarþings.
Flugfjelagið hefir
fluft fæplega 4090
farþega á árinu
FLUGFJELAG ISLANDS
hefir, það sem af er þessu ári,
flutt samtals 3877 farþega.
Flugvjelar fjelagsins hafa
verið samtals 1000 klukku-
stundir í lofti og flogið alls
um 225,000 kílómetra.
Til Akureyrar hafa verið,
flognar 245 ferðir, 46 til Eg-
ilsstaða, 28 til Borgarfjarðar
og 25 til Hornafjarðar.
Auk þess hafa verið farn-
ar margar stuttar ferðir og
s j úkr af lutnin gar.
Laval kominn til
Þýskalands.
London: Fregnir frá Sviss
herma, að Laval sje nú kominn
til Þýskalands og hafist við í
höll einni, sem stendur á ey í
Konstanzvatni. Ey þessi tilheyr
ir Þýskalandi. — Þá hefir
heyrst, að Petain marskálkur
sje kominn til borgarinnar
Baden Baden.
Ógurlegar loftárásir.
Um miðjan dag í dag
gerðu um 1100 amerískar
sprengjuflugvjelar stór-
árásir á samgöngumiðstöðv-
ar austan hollensku landa-
mæranna, til þess að hindra
Þjóðverja í því að flytja
meira lið til vígstöðvanna í
Hollondi. Þær borgir, sem
fyrir hörðustu árásunum
urðu, voru Osnabriick og
Hamm. Þýski flugherinn
ljet nokkru meira til sín
taka í dag en að undan-
förnu, gereðu stevpiárásir á
framsveitir Breta fyrir norð
an Nijmegen. Skotnar voru
niður allmargar flugvjelar
af hvorutveggju.
Þögnin um fallhlífaliðið.
Það var nokkru eftir að
Þjóðverjar höfðu sagt, að
þeir hefðu sigrað fallhlífa-
herinn, að Eisenhower fyr-
irskipaði frjettabann á<bar-
dagana á Arnhemsvæðinu,
til þess að fyrirbyggja að
óvinirnir gætu fengið mik-
ilsverðar upplýsingar, þar
sem öll aðstaðan er mjög
breytingum undirorpin, sem
stendur. Síðar í kvöld bár-
ust fregnir um það, að fram
sveitirnar í Hollandi hefðu
fengið miklar birgðir loft-
leiðis, en þær sækja nú ekki
aðeins að stöðvum Þjóð-
veria við ána Lek, heldur
og einnig til suðausturs, að
Groningen og Massfljóti. —•
Sprengja Þjóðverjar brýr á
því fljóti.
Orusturnar sunnar.
Bandaríkjamenn eiga í
hörðum orustum á öllu víg-
svæði sínu. Hafa Þjóðverj-
Framh. á bls. 15.