Morgunblaðið - 05.11.1944, Page 1
16 síður
31. árgangur.
223. tbl. — Sunnudagur 5. nóvember 1944
Isafoldarprentsmiðja h.f
Þjóðverjar
farnir úr öllu
Grikklandi
London í gærkveldi.
.Enginn þýskur her er nú
lengur á grískri grund, og eru
framsveitir Breta, sem veita
Þjóðverjum eftirför, komnar
yfir landamæri Jugoslavíu hvar
vétna. •— Var allmikill fögnuð j
ur vegna þessa í Aþenu í dag,
en gerðist þó nokkuð galli
blandinn, er á leið.
Svo stóð á, að sleppt var 660
glæpamönnum úr einu fangelsi
borgarinnar og dreif þar að
fjölda manns. Þar á meðal var
stór hópur manna af róttækum
stjórnmálaflokki, sem hjelt því
frám, að þrír meðlimir flokks
ins hefðu nýlega myrt þrjá fje
laga þeirra.
Varð úr þessu mikil kröfu-
ganga og ljet lýðurinn illa.
Þusti hann að lokum til að-
setursstaður forsætisráðherrans
Papandrou og ljet ýmsum ill-
um látum við aðsetursstað hans
um langan tíma, áður en að var
gert.
Bandamenn hafa nú látið
flyíja nokkuð af mat til
Aþenu, enda er allmikill fæðu
skortur þar í borginni. Var
flutt mikið af ávöxtum sunnan
af Peloponnesskaga í Suður-
Grikklandi. — Reuter.
ORUSTUNNI UM WALCHEREN AÐ LJÚKA
Stilwell
Stilwell hershöfðingi Banda-
ríkjamanna, sem stjórnað hefir
herjum beirra ' Suðaustur-Asíu,
og er ekki víst, hvenær hann
tekur við lierstjórn þar eystra
aftur. í tilefni af brottför hans
hafa Kínverjar lýst því yfir, að
ekkert ósamkomulag við þá hafi
valdið brottför hans.
IJrslitaorustan um Buda-
pest stendur yfir
London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgun-
blaðsins frá Reuter.
LOKAORUSTAN um höfuðborg Ungverjalands er nú hafin
og geysa ákafar skriðdrekaorustur um 12 km. frá borginni. Var
barist í alla nótt sem leið og ekki hefir heldur orðið hlje á bar-
dögum í dag. Rigningar eru miklar þar sem stendur og vegir
illir. Báðir aðilar hafa sent liðsauka til vígstöðvanna við borg-
ina, en fólk flýr nú eystri hluta hennar.
Stalin tilkynli í dagskipan 11---------------------------
kvöld, að herir Malinowskis (herra Ungverja hefði nú tekið
hefðu í dag tekið borgina
Szoldok, eigi alllangt frá Buda
pest. — Var borg sú sögð mjög
rammlega víggirt. Þá er sagt í
hersljórnartilkynningu Rússa,
að teknir hafi verið bæirnir
Cegled og Abony, en þeir eru
einnig báðlir nærri Budapest.
Þjóðverjar gera atlögur.
Þjóðverjar hafa, að sögn
Rússa, haldið uppi árásum
miklum á Goldapsvæðinu í
Austur-Prússlandi, en ekki
segja Rússar þeim hafa orðið
neitt ágengt. Þjóðverjar kveð-
ast hinsvegar hafa náð nokkru
landsvæði á sitt vald á þessum
vígstöðvum.
Ríkisleiðtogi í Ungverjalandi.
Þýska útvarpið tilkynnti í
kvöld, að Salazy forsætisráð-
upp titilinn ríkisleiðtogi, en
ríkisstjórnarembæltið yrði lagt
niður. Tekur ríkisleiðtoginn við
störfum ríkisstjóra. Ekkert er
vitað um það, hvar Horthy er
nú niður kominn.
Borgin Budapest
stendur beggja megin við
Dóná, stærri hlutinn austan
fljótsins, sem á þessum slóðum
er um 600 metra breitt. Eru
sex brýr á fljótinu í borginni.
Ibúar Budapest eru um 1 milj-
og 250 þús.
í Algiers.
F-yrir nokkru
Bólusótt
London: —
braust skæð bólusótt út í Al-
giersborg. Hafa allar samgöng
ur við borgina verið bannaðar.
Fjöldi manns hefir dáið.
Stórárásir
á Þýskaland
i gær
London í gærkveldi.
FLUGHERIR bandamanna
gerðu miklar atlögur að ýms-
um borgum Þýskalands í dag,
og voru þar að verki bæði ame-
rískar og breskar flugvjelar.
Komu sumar þeirra frá Bret-
landi, en aðrar frá Italíu.
Veður var mjög ilt, og var
loft skýjað. Sáu flugmennirn-
ir hvergi sAuptmörk sín og urðu
að varpa sprengjunum niður
gegnum skýin. Staðirnir, sem
á var ráðist, voru þessir: Ham-
borg, Bocchum, Gelsenkirchen,
Vín, Saarbrúcken og Solingen.
Bandaríkjamenn mistu 8
sprengjuflugvjelar og 6 orustu
flugvjelar, en Bretar 6 sprengju
flugvjelar. — Orustuflugvjelar
Þjóðverja voru ekki á lofti.^—
Ókunnugt er um árangur árása
þessara. — Reuter.
Bandamenn komnir að
Maasfljóti.
London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgun-
blaðsins frá Reuter.
Talið er nú, að ekki verði langt að bíða þess, að mót-
spyrna Þjóðverja á eynni Walcheren og einnig á Syðra
Beveland verði brotin á bak aftur. Hafa harðir bardagar
verið háðir á þessum éyjum í dag, en Walcheren er nú
þvínær öll á valdi bandamanna. — Þá er og barist af
hörku við ósa Maasfljóts, en Bandaríkjamenn hafa orð-
ið að hörfa aftur af landsvæði því, sem þeir náðu í gær
í sókn sinni til Köln.
Dewey ásakar
Roosevelf
New York í gærkveldi.
DEWEY, forsetaefni Repu-
blikanaflokksins í Bandaríkj-
unum sagði í dag í aðalkosninga
ræðu sinni, að stríðið hefði
dregist á langinn „vegna ódugn
aðar Roosevelts". — Þetta var
í fyrsta skifti, sem Dewey hef-
ir yfirleitt minst á stríðið í ræð
um sínum, og kvað hann nauð-
synlegt að Bandaríkjaþjóðin
fengi allan sannleikann að vita
um það, hvernig hernaður henn
ar væri framkvæmdur og hon-
um stjórnað, sjerstaklega þó í
september s.l.
Þá rjeðist Dewey gegn Morg
enthau fjármálaráðherra fyrir
það, að hann skyldi hafa komið
með þá ótrúlegu uppástungu
að gera Þjóðverja að landbún-
aðarþjóð. — „Þetta gaf Þjóð-
verjum nýjan þrótt“, sagði
Dewey, „stælti þá til nýrra á-
taka“. — Reuter.
óþægir de Gaulle
London í gærkveldi.
Slegið hefir í brýnu milli De
Gaulle og franskra komúnista,
út af því, að hinir síðarnefndu
hafa ekki viljað láta afvopna
skæruliðasveilir þær, sem vað
ið hafa uppi í Frakklandi
löngu eftir að hætt var að berj
ast þar og haft allskonar ó-
hæfuverk 1 frammi.
Hafa kommúnistar hólað að
segja sig úr stjórn De Gaulle,
ef skæruliðarnir verði afvopn-
aðir, en De Gaulle hefir gefið
út harðort ávarp í garð kom-
múnista, sem hann sakar um
að sjeu að reyna að spilla friði
í landinu og torvelda einingu
Frakka. — Reuter.
Sir Johii Dill marskálk-
ur látinn.
Washington í gærkveldi: í
kvöld andaðist hjer í sjúkra-
húsi breski marskálkurinn Sir
John Dill, sem var aðalfull-
trui Breta í hinum sameigin-
lega herráði þeirra og Banda
ríkjamanna, en áður forseti
breska herforingjaráðsins. •—
Hann hafði þjáðst af blóðleysi
nokkra undanfarna mánuði.
— Reuter.
Harðnandi barátta
um Leyte-ey
London í gærkveldi: — Fregn-
ir frá Bandaríkjamönnum
herma, að átökin um eyna
Leyte í Filipseyjaklasanum fari
nú mjög harðnandi. Hafa Jap-
anar búið um sig í ramgerum
varnarstöðvum og fengið all-
mikinn liðsauka. Eru bardag-
ar nú hinir hörðustu og örðugt
að sækja Japana.
Flugvjelar Bandaríkjamanna
gerðu árásir á liðsflutningabif-
reiðir Japana á eynni og eyði-
lögðu um 30 þeirra. — Reuter.
Manntjón á Ítalíu.
London: •— Tilkynt var op-
inberlega í dag af Alexander
hershöfðingja, að manntjón
bandamanna í styrjöldinni á
Italíu frá 11. maí s.l. til 1. nóv.
s.l., hefði samtals numið
116.000 manns. — Reuter.
Orusturnar á Walcheren
hafa haldið áfram 1 allan dag,
þrátt fyrir mikið illviðri. —
, Verjast Þjóðverjar enn í
nokkrum stöðvum, meðal ann-
ars í Middelburg, höfuðstað
eyjarinnar. 1 Vlissnigen verj-
þeir óg í 11 a t' 11 a rh v erfu nu m,
og enn hafa þeir nokkur virki
á valdi sínu víðsvegar um
eyna.
Erfitt við grandann.
i Kanadamenn hafa átt í mjög
erfiðum bardögum við grand-
ann milli Walcheren og syðra
Bevelands, þar sem þeir gengu
á land í fyrradag, Hafa Þjóð-
verjar gert. að þeim mörg
snörp gagnáhlaup, og á syðra
Bevelandi er einnig barist af
móði ennþá. — Tundurdufla-
slæðar bandamanna eru byrj-
aðir að hreinsa ytri hlutann
af siglingaleiðinni til Ant-
j werpen.
Neyddust til að hörfa.
Þar, sem Bandaríkjamenn
eru komnir lengst inn í Þýska
land, gerðu Þjóðverjar að
þeim þrjú snörp gagnáhlaup
í dag, og neyddust þeir til að
hörfa nokkuð. Hurfu meðal
annars iir þorpi einu, en þeg-
ar Þjóðver.jar höfðu náð aftur
þorpinu, lögðu Bandaríkja-
menn það gjörsamlega í rúst-
ir með loftárás. Af Aachen-
svæðinu er ekkert að frjetta.
Útrásir og áhlaup.
Þjóðverjar kveðast hafa
hrundið skriðdreka áhlaupi
á Dunquerque. -og gert vel
hepnaðar útrásir frá borgun-
umLorient og St. Nazaire.
: Segjast þeir hafa náð nokkr-
um virkjum bandamanna í
grend við báða þessa bæj.
Sosnokowsky fer að bua.
London: — Sosnokowsky
hershöfðingi, sem nýlega var
sviftur yfirstjórn pólska hers-
ins, hefir nú keypt búgarð í
Parana, Brasilíu og sest þar að.
Spánskir útlagar á fundi
London: — Fjöldi spánskra
útlaga situr nú fundi í Toulouse
á Frakklandi og er umræðuefn-
ið það, hvernig steypa megi
Francostjórninni af stóli á
Spáni, og hvernig best verði
náð sambandi við andstæðinga
Francos heima fyrir.
— Reuter.