Morgunblaðið - 05.11.1944, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 05.11.1944, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ Simimdagur 5. nóv. 1944 Erlendur Árnason áflræður ÁTTRÆÐUR er í dag Erlend ur Árnason, trjesm., Gils- bakka Vestmannaeyjum. Hann er fæddur að Neðradal við Vest ur-Eyjafjöll og ólst þar upp til 18 ára aldurs. Rjeðist þá vinnumaður að Eyvindarholti í sömu sveit til Sighvatar Árna- sonar alþingism., og var þar í 4 ár. Þá fór hann vinnumaður að Árkvörn í Fljótshlíð, var þar til hann fór að læra trje- smíði í Reykjavík, þá 34 ára að aldri. Að námi loknu flutt- ist hann til Vestmannaeyja og skömmu síðar giftist hann sinni ágætu konu Björgu Sig- hvatsdóttur, fæddri og uppal- inni í Eyjum. Þau hjón eign- uðust 2 mannvænlegar dætur, Dagmar gift Ólafi Ólafssyni framkvæmdarstjóra í Vest- mannaeyjum og Júlía Sigur- björg, gift Ragnari V. Jónssyni veitingam., Reykjavík. Erlendur hefir stundað iðn sína af elju og samviskusemi. Utgerð rak hann um skeið, var formaður og aflaði vel. Er lendur er góðum gáfum gædd- ur og vel hagmæltur og munu margir kunna smellnar vísur eftir hann. Trúmaður er hann mikill, enda verið safnaðarfull trúi um 20 ára skeið. Öll dval arár sín í Vestmannaeyjum hefir hann verið einn áhuga- mesti starfsmaður Goodtempl- arareglunnar í Vestmannaeyj- um. Ennþá er hann í fullu fjöri, gengur að smíoum sín- um sem ungur væri. Kæri gamli trygglyndi vin- ur. Nú í dag munu hinir mörgu vinir ykkar hjóna hugsa með hlýjum hug til heimilis ykkar og árna þjer og konu þinni allra heilla. N. K. ^iiiiiiiiiiiiiiiiiiifiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiimiii a — S g lí \ AA | 1 Horðmottur 1 1 Þrjár stærðir. 1 = = HE y 6 fl j= l/eril. V )ova | i Barónsstíg 27. = Sími 4519. = uiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiminiuiiiiiiiinuiiiiDiu Silfurbrúðkaup SIGURÐUR PJETURSSON fyrrum fangavörður og síðari kona hans Sigríður Gilsdóttir, eiga silfurbrúðkaup mánudag- inn 6. þ. m. Fyrri kona Sigurðar var Guð ríður, systir frú Sigríðar. Höfðu þau Sigurður og frú Guðríður fyrri kona hans einnig átt silf urbrúðkaup, en hún ljest 20. apríl 1918. Þau hjónin áttu 7 börn, sem öll eru á lifi: Frú Guðrún á Vatneyri, Pjetur magister háskólaritari, Sigríð- ur starfskona við Alþingi, Gils verslunarmaður, Jón verkfræð ingur, Sesselja skrifstofust. og Sigurður bifvjelavirki. Frú Sigríður varð síðari kona Sigurðar og gekk börnum hans í móður stað. Það mun vera mjög fágætt, að sami maður eigi tvisvar silf urbrúðkaup á ævinni og eink- anlega að konurnar sjeu systur. Var hann þó kominn yfir þrít ugt, er hann kvæntist í fyrra sinni. Sigurður er fæddur á Forna seli á Mýrum 18. apríl 1859. Hann er því vel hálfnaður með sjötta aldurár hins 9. lugar. Hann hefir verið heilsuhraust ur eftir aldri, en lá þó all- lengi síðastliðið vor. Hefir hann rjett vel við aftur og gegn ir enn nokkrum trúnaðar- störfum. Sigurður fór vestur um haf, er hann var á þrítugs aldri, dvaldist þar þrjú ár (1887—90) kom síðan heim og staðfesti ráð sitt. Bjó fyrst tvö eða þrjú ár að Ánabrekku á Mýrum, og síðan á Stafholti, um tvö ár, er sr. Jóhann Þorsteinsson ljet af búskap eftir lát fyrri konu sinnar. Vorið 1898 fluttisl hann hingað til Reykjavíkur. Var oft fylgdarmaður útlendinga á sumrum. Var svo lögreglu- þjónn í Reykjavík um 5 ár. — Fangavörður í Rvík 1907—29 og hafði áður siglt til Danmerk ur til undirbúnings því starfi. Sigurður hefir innt störf sin af hendi með skyldurækni og mannúð. Konur hans báðar hafa verið atgervis- og hefðar- konur. Ættingjar, vinir og aðrir kunningjar senda hjónunum bestu kveðjur og árnaðaróskir. Benedikt Sveinsson. fllllllllllllllllllllllllkllIIIIIUIIIIIIIIIIUIllIIIIIIIIIUIIIIillll. 3 = 5 rr I Æfingar ( f fjelagsins | | í vetur, verða fyrst um = § sinn á þessa leið: = Fimleikar í Austurbæjar- = § skólanum. I Fyrsti flokkur: I Þriðjud. kl. 8V2—9Vz sd. E | Miðvikud. kl. 8V2—9V2 — § | Föstudaga kl. 8V2—9*/2 — 1 | Annar fl. og 2. fl. knattsp.m.l | Þriðjud. kl. 7V2—8V2 sd. S | Föstudaga kl. IV2—8V2 — 1 § Drengjaflokkur til 16 ára: 1 1 Þriðjud. kl. 7V2—8V2 sd. I | í fimleikasal Mentaskólans: | | Meistara og 1. fl. knattspm. i | Mánudaga kl. 9—10 sd. H i Miðvikudaga kl. 8—9 sd. = 1 Islensk glíma: = Miðvikudaga kl. 9—10 sd. i H Föstudaga kl. 7—8 sd. H Laugardaga kl. 8—10 sd. = 5 Handbolti kvenna: 2 Mánudaga kl. 8—9 sd. = Föstudaga kl. 8—9 sd. i = í íþróttahúsi Jóns Þor- 1 = steinssonar: i Frjálsar íþróttir: 1 Þriðjudaga kl. 6—7 síðd. f = Föstudaga kl. 6—7 síðd. | i í Sundhöllinni: i Æfingar í sundi á mánu- | 1 dögum og miðvikudögum i | kl. 9—10. = Æfingar eru þegar byrj- = s aðar. — Iðkið íþróttir! | Æfið í K. R. Stjórn K. R. öiimmiiimmmrammnn«<mumiiiimnimiiiiiimii Reykjavíkurbrjef Framh. af bls. 9 kennilegu samsteypu, varð manni að orði: Þetta er þá eins og einskonar brauðsúpa, þar sem tínt er saman við kex mol- ar og kringlubitar og allskonar skorpum ýmsra tegunda, svo en'ginn getur áttað sig á hvaða lit eða bragð súpan fær. En þetta kemur sennilega á dag- inn, þegar suðunni er lokið, og farið verður að framreiða súp- una. Danssýning Sii Þérs UNGFRÚ Sif Þórs danskenn ari, sem nýlega er komin heim frá námi í danslist í Lond- on, hjelt danssýningu í Iðnó í gærkveldi. Húsfyllir var og fögnuðu áhorfendur dans- meynni mjög. Ungfrúin dansaði ballet- dansa, en einna mesta athygli vöktu enskur sjómannadans og rússneskur bóndadans. Ungfrú Sif Þórs er mörgum kunn hjer á landi fyrir danssýningar sín- ar áður fyr. Hún hefir mikla leikni og er smekkvís í dansi sínum og er auðsjeð, að hjer er á ferð danskona, sem hefir lagt mikla stund á nám sitt. Þeim, sem horfðu á danssýn- ingu ungfrúarinnar í gær- kveldi, hlýtur að hafa fundist, að hún ætti skilið betri undir- leik og betra húsnæði. D. Mimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiumiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiir ’ (Eldfast glerf Skálar — Föt Gjafasett Kaffikönnur | Skaftpottar 0. fl. 1 1 uj. n oua s Barónsstíg 27. Sími 4519. niiiiiiiiiiuiiiiimiiiinmiiiimiiiimrammmiiiiiiiiiuui minmiiiiimimiiiiiiiiiiiimiiiimiiiiiiiimmimiiiiiimi Olíuofnar V. Verð kr. 150.00. Þvottapottar Verð kr. 91.00. | Bollapör með diski | Kr. 4.20. I I uj n oua § Barónsstíg 27. Sími 4519. miiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiimiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiii Sextugur: Ólafnr Kárason ísafirði,, laugard. 4. nóv. ■—■ Sextugur er í dag Ólafur Kárason, kaupmaður hjer, sem um langt skeið hefir verið einn allra mesti athafnarmaður þessa bæjar. Rak hann útgerð langa hríð og eigin verslun hef ir hann rekið nær aldarfjórð- ung. Samhliða hefir Ólafur lát ið almenn mál mikið til sín taka og jafnan verið ókvikull Sjálf stæðismaður. Hann hefir átt sæti í bæjarstjórn og var lengi í niðurjöfnunarnefnd- Ólafur er kvæntur Fríðu Torfadóttur, Markússonar skip stjóra. Eignuðust þau fimm börn, sem öll eru á lífi: Kjart an, kaupmaður hjer, Eggert, verslm., Hulda, gift Hösk- uldi Steinssyni b»karameist- ara á Akureyri, Jóhanna, gift Axel Þorbjarnarsyni, kaupm., og Hörður, sem stundar lög- fræðinám við Háskóla íslands. Ólafur er fæddur 4. nóv. 1884 að Krofastöðum í Skálavík í Holtshreppi. Foreldrar hans voru þau Kári Ólafsson og Sigurborg Jónsdóttir. Hann misti foreldra sína ungur og ólst síðan upp á ýmsum stöð- um. Sjómennsku hóf Ólafur um fermingaraldur. Sigldi til Dan- merkur 22 ára að aldri og lærði þar skipstjórnarfræði. Tók hann próf í Álaborg og gerðist síðan skipstjóri á þil- skipum hjeðan. 1918 fór Ólaf- ur aftur til Danmerkur og keypti þar 32 smál. vjelbát og var hann gerður út hjeðan nokkur ár. Fleiri skip hefir Ólafur einnig keypt og gert út. Var hann einn af stofnendum Togarafjelags ísfirðinga og lengi í stjórn þess. 1920 stofn- setli Ólafur verslun hjer og hef ir rekið hana síðan, en nú fyr ir skömmu hafa þeir Kjartan sonur hans og Axel Þorbjarn arson tekið við matvöruversl- uninni. Ólafur var mesta hraust- menni, góður glímumaður og knattspyrnumaður og lengi framarlega í slíkum fjelagsskap Dugnaði og kjarki Ólafs má við bregða, en hann hefir af sjálfsdáðum hafið sig úr fátækt til góðra efna og álits. Heimili þeirra hjóna er viðbrugðið fyr ir myndarskap. , < 1 ^ • v v Eflir Robert Slorm i! 1-9 ^ HEZ. TUCKEfZ 60LD IT l'sOMÍ CITV FELLOWe A F£W /MONTH5 ) AQ0-G07 A GOOD PRICE fOR 7 IT, T60....3EBH PAlNTIN" THE 7 village, eve.e 5inœ ! , yL, THANKSm.KEEP aium ABOUT THI5 ! A MAN<5 UFE DEP£ND$ ON IT! l'LL ÖE UP TO SEE «OU IW A COUPLB OF I40UR5 ! h THI5 15 CONFIDENTIAL... WHO ^ M OWN5 TWE FAP.M AT THE 0A5E OP INDIAN HILL, ON COUNTV ROAD FORTY-5EVEN? M /i CAN TELL YfáÉÆwml vou without 1 V LOOKlN' |T I líCll ímimŒmm \ up... , HELLO? BA_.3 COUNTV CLEPK^ OFFlCE ? THIS 15 THE C.S.I. CALLINÓ PROM NEW YORK — Copr, 19 1 I, Ktnp Fr.itnrcs Syn<Ik,úr, lnc.. W'orKI n/lits rc-..rty.J 1—2) Chuck: — Halló! Er þetta hjá sýsluskrif- aranum í Bass-sýslu? Þetta er hjá lögreglunni í New York. Rödd í símanum: — Já, herra. Chuck: Þetta er trúnaðarmál. Hver á býlið við rætur Indian hæðanna við sýsluveg númer 47? Rödd í símanum: — Jeg get sagt vður það áh þess að gá að því. 3—4) Sýsluskrifarinn: — Hez Tuckér séldi nokkrum borgarbúum það fyrir nokkrum mánuð- um síðan. Hann fjekk líka gott verð fyrir það. Hann hefir lifað hátt síðan. Chuck (í símanum): —■ Þakka yður fyrir! Hafið ekki orð á þessu. Manns-< líf'er undir því komið. Jeg kem að fihna yðúr éftir nokkra klukkulíma.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.