Morgunblaðið - 08.11.1944, Blaðsíða 1
Norskir ráðherrar
lil Moskva
London í gærkreldi.
Stokkhólmsfregnir í kvöld
lierma. að ráðherrarnir tveir
úr norsku útlagastjótninni,
sem' í Svíþjóð hafa verið að
undanförnu, þeir Trygve Lie
og Terje Vold, sjeu nú farnir
þaðan áleiðih til Moskvu.
Jlákon konungur hefir sent
Kaíinin heillaóskaskeyti í dag,
en Nj-gaardsvold sendi Stalin
skeyti. — Þjóðverjar segja,
að Rússar láti Norðmenn rífa
ii]»]> jarðsprengjur í Norður-
Noregi og bíða margir þeirra
manna bana. — Reuter.
Loffárás á Dorimuod
Ems skipaskurðinn
í nótt sem leið hjeldu banda-
menn áfram loftárásum sínum
ú Þýskaland, og flugu miklir
hópar breskra Lancasterflug-
viela til þess að gera atlögu að
Dortmund-(Ems skipa;skurðin-
um fræga. Er hann nú talinn
lómur á kafla af vatni og ófær
skipum þar af leiðandi.
Mosquitoflugvjelar rjeðust á
Gelsenkirchen þessa sömu nótt,
en flugvjelar,Bandaríkjamanna
frá Italíu fóru enn sem fyrr til
árása á Vín, járnbrautir í
Brennerskarðinu og hersveitir
í Jugoslavíu. — Reuter.
Bardagahlje
við Budapes!
London í gærkveldi.
Fregnum frá vígstöðvum
Ungverjalands ber saman um
það í kvöld, að þar sje nú að
mestu bardagahlje á Budapest-
vigstöðvunum, og muni báðir
aðilar vera að draga að sjer
meiri liðsstyrk. Rússneskir
fregnritarar ætla að Budapest
muni varla falla Rússum bráð-
lega í hendur, en Þjóðverjar
segjast hafa getað hrakið Rússa
nokkuð aftur á bak nærri borg
inni í dag, svo þeir ekki sjeu
lengur í fallbyssufæri við borg
ina. — Sunnan og norðan borg
arinnar eru bardagar harðari,
en austan hennar. — Reuter.
Brefar veila
Grikkjra mal
Vegna hins mikla mat-
vælaskorts, sem er í Grikk-
iandi, sem stendur, hefir
breska herstjórnin minkað
matvælaskamt hermanna um
helming um nokkra daga, svo
unt sje að hjáipa fólkinu i
betur. Þá eru Bretar nú að
gera ráðstafanir .til þess, að
allmikil matvæli verði fiutt
til landsins.
Jugoslafar hafa elt Þjóð-
verja nokkuð norður í Make-
doniu.
Fyrstu tölur frá
. forsetakosningunum
Roosevelt heldur hærri
New York í gærkveldi. Einkaskeyti
til Mbl. frá Reuter.
KLUKKAN 9,15 eftir Bandaríkjatíma stóð atkvæða-
talningin þannig, að Roosevelt var atkvæðahærri í 10
ríkjum og hafði fengið 92 kjörmenn kosna, en Dewey var
hærri í 7 ríkjum og hafði fengið 84 kjörmenn.
Roosevelt er hærri í Kentucky, og fyrstu hermanna-
atkvæðin, sem talin hafa verið, — en þau eru frá New
Jersey, — sýna að þar eru þeir Roosevelt og Dewey
þvínær jafnir.
Dewey hefir fengið fltííri
atkvæði í ríkjunum Maine,
Illinois, Kansas, Massachu-
setts, Michigan, New Mexi-
co og Suður Dakota, en
Roosevelt í New Hamps-
hire, Arisona, landamæra-
ríkjunum og sex suðlægum
ríkjum. *
í síðustu kosningum vann
Roosevelt í Illinois, Massa-
chusetts og New Mexico, en
þá vann andstæðingur hans
í New Hampshire.
Ólíklegt er talið að úrslit-
in verði kunn fyrr en eftir
alllangan tíma, og síst ef
litlu munar.
Verkfail við
gasstöð Brefa
Memi við eina mestu gas-
stöð Bretlands háfa lagt nið-
ur vinnu, og liefir þetta vakið
mikla athygli. Hcfir herinn
tekið að sjer rekstur gasstöðv
arinnar til bráðabirgða, en
talið er, að ef verkamennirnir
snúi ekki aftur til vinnu ó
morgun, verði landráðamál
höfðað á hendur þeim, en það
er nú landráðasök að valda
því'að nauðsynleg verk stöðv-
ist. — Reuter.
ÞJÓÐVERJAR HAFA HÖRFAÐ
AUSTUR YFIR MAASFUÓTIÐ
Fluggarpur Stalíns
Þetta er frægasti flugmaður
Rússa, og hefir verið sæmdur
mörgum heiðursmerkjum. Hann
hefir flogið orustuflugvjelum,
síðan styrjöldin hófst.
Myrfu Gyðingar
Moyne lávarð!
London í gærkveldi.
Lausafregnir frá Cairo
lierma, að Gyðingar hafi
myrt Moyne lávarð, ráðgjafa
Breta í Cairo, en ennþá hefir
ekkert verið tilkynt um þetta
opinberlega. — Churchill for-
sætisráðherra harmaði mjög
dauða Moyne lávarðar í dag,
er hann mintist hans í neðri
málstofu breska þingsins, og
kvað hann alla æfi hafa unn-
ið fyrir Bretaveldi af öllum
mætti. Sagði Churchill síðan,
að annað væri ekki vitað enn
um banamenn Moyne lávarð-
ar, en að þeir hefðu ekki ver-
ið egyptskir borgarar, en mál-
ið myndi verða rannsakað
ýtarlega. — Síðasta verk
Moynes var að reyna að leysa
vandamál Gyðinga í Palest-
inu, og kvað Churchill þá ha fíi
mist góðan vin, er lávarður-
inn Ijetst. — Reuter.
Bandamenn
sækja að Forli
Veður fara nú heldur
batnandi á ítalíu, og sækja
| bandamenn nú að Forli ogi
| flugvöllunum þar. Varð þeim
lítilsháttar ágeng't fyrir suð-
I vestan borgina. — Annars-
staðgr voru eingöngu fram-
varðaskærur og breytingar
nær engar. Bandamenn náðu
aftur tveim þorpum.
Mótspyrna þesrra á
Waícheress brotsss
London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgun-
blaðsins frá Reuter.
ÞÝSKU hersveitirnar, sem varist hafa að undanfömu fyrir
vestan Maas í Hollandi, hafa nú hörfað að mestu austurfyrir
fljótið. Hafa þeir yfirgefið bæinn Wilhelmstadt og brotið brýrnar
við Moerdike, en þar mun enn eitthvað verjast af liði þeirra
fyrir vestan ána. Bardagar hafa ekki verið miklir í dag, enda
veður heldur slæmt. Var ekki hægt að beita flugvjelum að
neinu ráði.
___________________ A Walcheren-ey eru bardag
ar nú hættir að mestu og mót-
spyrna Þjóðverja ekki skipuleg
lengur. Bandamenn tóku þar
um 2000 fanga. Middelburg, höf
uðstaður eyjarinnar var því-
nær umflotinn sjó, er Bretar
tóku hann. — Bretar skýra frá
miklu tjóni, er þeir gerðu inn-
rás á Walcheren. Mistu þeir
mörg skip og mikið af mönnum.
Rússar vilja ekki
stjórnmálasam-
band við Sviss
London í gærkveldi.
Að undanförnu hafa farið
fram í London viðræður milli
sendiherra Sviss jg Sovjetrúss
lands þar í borg, .en þær hóf-
ust með því, að svissneska
stjórnin sendi hinni rússnesku
orðsendingu, og óskaði eftir að
taka upp stjórnmálasamband
við Sovjetríkin, en það hafa
Svisslendingar ekki haft all-
lengi. Umræður urðu ekki mikl
ar, því Rússar neituðu nærri
samstundis, að "taka upp sam-
bandið. Telja þeir í svari sínu.
„að Svisslendingar hafi verið
sjer fjandsamlegir um langa
hríð og rekið stjórnmál sín á
grundvelli vinskapar við fas-
istaríki“. — Reuter.
Ný bygging iyrir
Neðri málsfofu
breska þingsins
London í gærkveldi:
1 clag voru lagðir fram í
Neðri málstofu breska þings-
ins, uppdrættir að nýrri bygg-,
ingu fyrir málstofuna, og áj
hún að vera á sama stað og
mjög svipuð þeirri, sem
hrundi í loftárásum Þjóð-
verja, þó með mun meira. ný-
tískusniði og þægindum fyrir
þingmennina. Verðuvbætt við j
371 sæti fyrir þingmenn, 60
Orustur við Vertloo.
Við Venloo, nokkru austan
Wilhelmstadt, hafa nokkrir
bardagar verið, en bandamenn
hafa ekki getað náð þar aftur
landssvæði, sem þeir mistu fyr
ir nokkrum dögum. Heldur
ekki hefir Bandaríkjamönnum
tekist að rjetta aftur hlut sinn
fyrir austan Chapelle, þar sem
þeir voru hraktir nokkuð aft-
ur á bak fyrir skemstu. — Aft-
ur á móti hefir mönnum Patt-
ons tekist að sækja lítið eitt á
í skógunum sunnar.
Alt kyrt við Atlantshafið.
Kyrt er að kalla á öllum
þeim stöðvum, þar sem Þjóð-
verjar verjast á Frakklands-
ströndum, hafa nokkur átök
orðið við Lorient, en ekki er
getið um bardaga annarsstaðar
í dag. í gær gerðu Kanada-
menn árás á varnarstöðvar
j Þjóðverjar við Dunquerque, en
! varð ekki að tjóni. Var árásinni
hrundið.
i Á Syðra-Beveland var ekk-
ert um að vera í dag eða í gær.
Blaskowitz sæmdur
heiðursmerki
London í gærkveldi:
Þýska frjettastofan segir í
sætum fvrir blaðamenn og á-' dag, að Hitler hafi í gær sæmt
horfendasætum einnig fjölg- Blaskowitz hershöfðingja æðsta
að að miklum mun. — Lögð heiðursmerki þýska hersins fyr
verður áhersla á það, að hljóð ir það, að hann stjórnaði und-
bært verði vel í salnum. Bygg-j anhaldi Þjóðverja frá Suður-
ingin er talin muni kosta um Frakklandi. Afhenti Hitler
800.000 sterlingspund og mun1 Blaskowitz heiðursmerkið sjálf
taka 6 mánuði að rífa gamla ( ur, en nú er langt um liðið, síð
húsið til grunna, en 4—5 ár an hann hefir komið fram opin-
að reisa hið nýja. — Reuter. iberlega. — Reuter.