Morgunblaðið - 09.11.1944, Blaðsíða 1
PATTON HEFUR SOKN VIÐ METZ
MANNTJÓN 80 ÞÚS. í SV.-HOLLANDI
ROOSEVELT ÁFRAM FORSETI U.SA.
Bandaríkjamenn
tóku S3 bæi
við Metz
London í gærkveldi:
Einkaskeyti til Morgunblaðsins
frá Reuter.
AMERÍSKAR hersveitir,
sem Patton hershöfðingi
stjórnar, hafa í dag hafið
nýja sókn milli Nancy og
Metz ög þegar unnið tölu-
vert á. Hafa hersveitir þess-
ar náð á sitt vald 13 bæjum
á þessum slóðum og sótt yf-
ir Seille ána á þremur stöð-
um.
Sumar fregnir herma að
Bandaríkjamenn hafi sótt
framhjá Metz og sjeu að um-
kringja þá borg.
Bæirnir, sem fjellu.
Borgirnar, sem hersveitir
Pattons hafa náð á sitt vald,
eru þessar: Rouves, Malau-
court, Jalaucourt, Moyenwic,
Noncourt, Milley-sur-Sylle,
Abaucourt Vic-sur-Salle, Bez-
ange-la-Pelite, Nomeney, Eply,
Raucourt og Aulnois.
C0 km. frá Saarbrucken.
Einhver þýðingarmesti bær-
inn 'af þeim, sem hersveitir Patt
ons hafa náð, er Nomeny, sem
er um 25 km. fyrir suðaustan
Metz, við veginn, sem liggur til
borgarinnar. Nomeney er urri
6Ó km.^frá hinu mikla þýska
iðnaðarhjeraði Saarbrucken-
Moenvic er um 50 km. suð-
austur af Metz.
Þessi sókn getur haft hina
mestu þýðingu og bíða menn
með eflirvæntingu eftir hvern-
ig henni lýkur.
Verkfalli skipa-
smíðasveina afljefl
SAMKOMULAG hefir nú orð
ið um kaup og kjör skipasmíða
sveina.
Voru samningar undirritaðir
s. 1. þriðjudag og voru þeir í
flestum greinum þeir sömu og
hjá járniðnaðarmönnum. Grunn
kaupið er nú 169 krónur á viku
9ð meðtöldum viðhaldspening-
um verkfæra, 11 kr. á viku
eins og verið hefir.
HENRIK S. BJÖRNSSON, fulltrúi íslands á UNRRA-þinginu
í Montreal og dr. Daftary, fulltrúi Iran. Fulltrúar á þinginu
sátu í stafrófsröð landa sinna. —• Henrik S. Bjömsson er fyrir
nokkru kominn hcim og starfar nú sein deildarstjóri í utanríkis-
ráðuneytinu. Hann vstr áður sendiráðsritari í WaShington.
Danir eyðileggja þýskan
flugvöll og 40 f lugvjelar
London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgun-
blaðsins frá Reuter.
DANSKIR skemdarverkamenn hafa eyðilagt stærsta hern-
aðarflugvöll Þjóðýerja og 40 flugvjelar, sem á vellinum voru.
Skemdirnar á vellinum eru sagðar það miklar, að hann verði
ekki nothæfur í langan tíma.
Dönsku skemdarverkamenn-
irnir eyðilögðu flugvjelaskýli,
rennibrautir og verkstæði.
Meðal annars, sem eyðilagð-
ist á vellinum, voru verkfæri,
sem notuð eru við flugvjela-
viðgerðir. Eru þessi verkfæri
með öllu ófáanieg og geta Þjóð
verjar alls ekki bætl sjer upp
það mikla tjón, sem þeir hafa
beðið við þessi miklu skemdai'-
verk danskra föðurlandsvina.
Óeirðir á Sikiley.
London: ítölsk varalögregla
hefir verið send til Sikileyjar,
en þar hafa að undanförnu ver
ið miklar óeirðir. Hefir herlið
skotið á verkfallsmenn í Paler
mo og fjellu 19 menn, en 99
særðust alvarlega. Sagt er að
alvarlegur matarskortur sje
einnig á eynni.
„Draugsrödd" spyr
hvers vegna Hifler
tali ekki
London í gærkveldi.
Illustendur þýska heimaút-
varpsins heyrðu í kvöld
„sterka draugsrödd“, sem
spui'ði livað eftir annað:
Ilversvegna talar Hitler
eTvkif'
Ilitler hefir öll stríðsárin
haldið útvarpsræðu þann 8.
nóvember í tilefni af hinni svo:
nef ndu b j órkjall aruppreisn,
nasista 1923. En í gærkveldi
heyrðist ekkert í Hitler.
í fyrra hjelt hann ræðu,
sem síðar var útvarpað af
plötu, þar sem hann kvatti
bandamenn til að reyna að
gera innrás á meginlandi
Vörn Þjóðverja á
hollensku eyj-
unum þverrandi
London í gærkveldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins
frá Reuter.
HERFORINGI í herráði
Montgomerys marskálks
skýrði blaðamönnum frá
því að í bardögum í Suð-
vestur-Hollandi hafi mann
tjón Þjóðverja numið alls
um 80.000 manns. Þar af
hafa 40.000 verið teknir
höndum og 40.000 fallið eða
særst.
Bandamenn hafa nú náð til-
gangi sínum í Suðvestur-Hol-
landi, sagði talsmaður Mont-
gomerys. Við höfum unnið sig-
ur á Þjóðverjum og hreinsað
til á báðum bökkum Schelde
og þar með opnað siglingaleið-
iná til Antwerpen. Með þessu
höfum við stytt víglínu okkar
að verulegum mun og erum nú
við Maasfljót og sumsstaðar
komnir yfir það.
Harðar orustur við
Moerdijkhrú.
Afar harðar oijjslur hafa
staðið yfir við Moerdijkbrúna.
Þar verjast um 300 Þjóðverjar
í rammgerðum steinsteypuvirkj
um. Bandamönnum tókst að
vinna bug á tveimur stein-
steypuvirkjunum og banda-
menn hafa brotist í gegnum
varnir Þjóðverjá á öðrum stað
við Moerdijk.
300 Þjóðverjar eftir
á Walcheren.
A Walchereney eru nú einir
300 Þjóðverjar eftir, að því er
talið er. Hafa Þjóðverjar þessir
enga von um undankomu og
aðeins tímaspursmál hvenær
þeir verða upprættir.
Rakettuárásir á Dunkirk.
Typhoon-flugvjelar hafií*
gert harðar árásir á stöðvar
Þjóðverja við Dunkirk og vald-
ið þar miklum spjöllum.
100 milljón króna lán.
Frá norska blaðafulltrú-
anum
SYlAR liafa ábyrgst 100
milj. kr. lán til Norðmanna,
á að nota það til þess að
tryggja starfsemi Norðmanna
í Svíþjóð næsta missiri.
Demokratar
vinna á í þing-
kosningunum
Washington í gærkveldi:
Einkaskeyti til Morgunblaðsins
FRANKLIN D. ROOSE-
VELT verður áfram forseti
Bandaríkjanna næstu 4 ár.
Hefir enginn forseti í Banda
ríkjunum verið lengur for-
seti en 8 ár, eða tvö kjör-
tímabil, á undan Roosevelt,
sem nú verður forseti í 16
ár. — Varaforseti verður
Henry Truman. Roosevelt
fjekk yfirgnæfandi meiri
hluta og hafði er síðast frjett
ist fengið 407 kjörmenn, en
mótstöðumaður hans, Dew-
ev, 124.
Demonkratar vinna á í
þingkosningum.
Um leið og forsetakosning-
arnar fóru og fram kosningar
allra þingmanna fulltrúadeild-
ar Bandaríkjaþings og 1/3
hluti öldungardeildarinnar var
og kjörin nú. Atkvæðatölur,
sem búið er að telja, sýna, að
demonkratar hafa unnið á í
kosningunum til beggja deilda
þingsins. Demonkratar höfðu
| aðeins 4 fulltrúa meiri hluta
í fulltrúadeildinni, ert nú er
talið að þeir muni hafa um 28
fulltrúum fleiri. Síðustu tölur
(um miðnætti í nótt) sýndu að
demokratar höfðu unnið 74
þingsæti til fulltrúardeildarinn
ar, sem republikanar höfðu áð-
ur, en tapað fimm til repu-
blikana.
Síðustu atkvæðatölur í kosn-
ingunum > til öldungadeildar
sýndu, að demokratar höfðu
fengið 17, en republikanar 8.
í fylkisstjórakosningunum
höf ðu demokratar fengið 11
kosna, en republikanar 13. Taln
ingu atkvæða er ekki lokið og
verður ekki lokið að fullu fyrr
en snemma í næsta mánuði í
sumum fylkj-um, sem ekki telja
hermannaatkvæði fyrr.
Frambjóðendurnir á
kjördag.
Roosevelt forseti dvaldi á
sveitasetri sínu við Hudson-
ána á kjördag. Var kona hans
þar með honum og hinn heims
frægi hundur hans, Falla.
Framh. á 2. siðu.