Morgunblaðið - 14.11.1944, Síða 1
TIRPITZ SÖKKT í TRÖMSÖFIRÐI
Svíar biðja um her-
skipavernd fyrir
kaupskip sín
Stokkhólmi í gærkvöldi. — Einkaskeyti til
Morgunblaðsins frá Reuter.
SÆNSK gufuskipafjelög, sem halda uppi ferðum yfir
Eystrasaltið, milli Svíþjóðar og Finnlands, hafa beðið
flotastjórnina, að láta herskip fylgja skipum þeirra á
þessari leið.
Breskar sprengju-
flugvjelar sökktu
orustuskipinu
London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgun-
blaðsins frá Reuter.
BRESKA flotamálaráðuneytið tilkynnti síðdegis í dag',
að orustuskipinu „Tirpitz”, eina stóra orustuskipinu, sem
þýski flotinn átti eftir, hefði í gærmorgun verið sökkt af
32 Lancaster-sprengjuflugvjelum, þar sem skipið lá í
Tromsöfirði í Norður-Noregi. ■—■ Var varpað að skipinu
allmörgum 6 smálesta tundursprengjum, sem þannig eru
gerðar, að brynvarnir standa e kki fyrir þeim, og tók
skipið skjótt að hallast og sökk bráðlega.
Hjer í Stokkhólmi er það
álitið ólíklegt, að sænsk
stjórnarvöld horfi upp á
það aðgerðalaus, að ógnað
sje ferðum sænskra skipa,
eða þeim sökt á friðsamleg-
um ferðalögum.
Spurningin, sem nú er á
hvers manns vörum hjer, er
þessi: Byrjar flotinn að
fylgja kaupskipunum, og
verður hafnbannsyfirlýsing
Þjóðverja til þess að við-
burðir gerist svipaðir því,
sem flýttu fyrir þátttöku
Bandaríkjanna í styrjöld-
inni?
Rússar hafa unnið á
við Budapesf
London í gærkveldi.
, RÚSSAR tilkynna í kvöld,
að þeir hefði unnið nokkuð
á nærri Budapest, einkum
fyrir suðaustan borgina, þar
sem þeir eru nú rúma 40 km.
frá borgmni. — Næst’ eru
þeir lcomnir henni að vestan,
þar sem þeir eiga eftir ófarna
um 16 km. til borgarinnar
eftir járbrautinni frá Szolnolc.
Yfirmaður ungverska hersins
hefir skorað á lið sitt að verj-
ast sem fastast, og gleyma,
því ekki, að Þjóðverjar væru
að verja borgina.
I Austur-Prússlandi er ekk-
ert um að vera.
— Reuter.
Wang Ching Wei
láfinn í Japan
LONDON: — Japanar til-
kyntu í gær, að Wang Ching
Wei, forseti kínversku lepp-
stjórnarinnar í Kína, hefði and
ast í sjúkrahúsi í Japan.
Wang Ching Wei var einn af
lærisveinum hins fræga Sun
Yat Sen, sem nefndur hefir
verið faðir kínverska lýðveld-
isins. Barðist Wang Ching Wei
gegn Japönum til ársins 1938,
en tók þá upp samvinnu við
þá- Varð nokkru síðar forseti
lqppstjórnar þeirra og var oft
reynt að ráða hann af dögum.
Eitt virki
tekið við
Metz
London í gærkveldi.
BANDARÍKJAMENN hafa
náð á vald sitt einu af hinum
ramgervu virkjum við Metz,
en þau eru alls níu. Voru Þjóð-
verjar farnir úr virkinu, er það
var tekið.
Þessi virki eru steinsteypt og
ramlega brynvarin, og í þeim
stórar og langdrægar fallbyss-
ur. Bandaríkjamenn eru sums
staðar komnir nær borginni en
virkin eru, og hefir ekkert ver
ið um skothríð úr virkjum þess
um. Ekki hefir orðið vart við
að Þjóðverjar væru að fara frá
j Metz.
Undanhaldsleið Þjóðverja frá
I Metz er nú um 18 km. á breidd,
en á þeirri spildu eru að minsta
kosti 3 góðir þjóðvegir. — Bar-
dagar hafa verið harðastir suð
austan borgarinnar. Við Mos-
ellefljót hafa Bandaríkjamenn
unnið aftur ncjþkuð af land-
spildú, sem þeir mistu í fyrra-
dag. — Þjóðverjar tilkyntu í
kvöld, að setulið þeirra í kast-
alanum Königsmacher hefði
orðið að gefast upp. — Snjór
og hríð er nú á öllum vígstöðv
unum og flugveður ómögulegt.
— Reuter.
Olíulindir á hafs-
bofni
Moskva í gærkveldi:
EUNDIST hafa mjög attð-
ugar olíulindir á botni Ivasp-
iska hafsins, nærri Baku. Var
tekið eftir því, að olía kom
oft up]i á yfirborð hafsins,
og hefir þetta verið rann-
sakað, og kom í ljóst, að um
mjög mikið er af olíu að ræða.
Er þegar tekið að bora fyrir
olíunni á þrem stöðum. ■—
— Reuter.
V - 2 er skot-
ið úr steypt-
um brunnum
Skeyiin vega unt
30 smál.
London í gærkveldi.
ÞJÓÐVERJAR hafa skotið
hinu nýja hefndarvopni sínu,
rakettusprengjunni, sem þeir
nefna V-2, frá Norður-Hollandi
og hafa nokkrir Hollendingar
orðið varir við undirbúninginn
og aðfarir allar. Hafa þeir kom
ist til stöðva bandamanna og
sagt fregnriturum þeirra af
því, sem þeir sáu til Þjóðverja.
Þeir skýra svo frá, að Þjóð-
verjar hafi byrjað á því að af-
girða stórt, autt svæði, og mátti
enginn koma þar inn á, nema
hann hefði sjerstakt vegabrjef.
Síðan voru fengnir til 1500
verkamenn að grafa brunna
mikla, 25 metra djúpa. Hölluð-
ust þeir nokkuð í átt til sjáv-
ar og voru síðan steyptir inn-
an með mjög þykku lagi af
járnbentri steinsteypu, en í þá
hlið þeirra, sem að sjónum
vissi, voru greyptir mjög vold-
ugir stálteinar, svipaðir járn-
brautarteinum. Eftir þetta
komu á vettvang rafmagns-
menn með mjög digra raf-
magnsvíra og lögðu í brunnana
Miðunartæki voru flutt á stað-
Framh. á bls. 6.
Unnu Bandaríkjamenn heil-
an dag að því að eyðileggja
flugstöðina í Luchow, og
sprengdu þeir það af sprengj-
um, sem þeir áttu eftir, á renni
brautum flugvallarins, brenndu
flugskýlin og aðrar flugvalla-
byggingar. Heyrðust sprenging
arnar allan daginn, og logar
báru við himin.
Samband við Indo-Kína.
Japanar stefna nú sókn sinni
Skorað á Franco að
segja ai sjer
París í gærkvöldi.
STJÓRNMÁLAMENN hjer,
að undanteknum nokkrum
Spánverjum eru lílt trúaðir á
það, að Franco láti af stjórn á
Spáni, þrátt fyrir það, þótt Mi-
guel Maura, fyrrum innanrík-
isráðherra á Spáni, afhenti í
dag spánska sendiherranum
hjer, boðskap til Franco, þar
sem skorað er á hann að leggja
niður völd. Ekki er víst, hvort
Franco svarar þessu, en Maura
sagði tíðindamanni vorum í
dag, að hann vildi helst ekki
meira um þetta ræða að svo
komnu máli. Þó gat hann þess,
að hann sjálfur, Mura, ætti að
verða forsætisráðherra hinrrar
nýju stjórnar. —Reuter.
suður á bóginn, til borgarinn-
ar Nanlin, og heppnist þeim að
ná henni, hafa þeir opnað land
leiðina milli Shanghai og bæki
stöðva sinna í Indo-Kína, og er
þeim það mikið hagræði vegna
skipatjóns þess, sem þeir hafa
beðið.
Flugher Bandaríkjamanna í
Kína, verður nú að herja frá
stöðvum, sem eru mörg hundr-
uð milum norðar.
Bretar hafa gert margar
árásir á Tiritz, sem var allt
að 40.000 smálestir að stærð
að sögn, vonaður 8 fallbyss-
um 38 cm hlaupvíðum, auk
fjölda af smærri fallbvss-
um. Var þetta systurskip
Bismarck, er sökkt var af
breskum herskipum og flug
vjelum á Atlantshafi síðari
hluta júnímánaðar 1942, eft
ir miklar viðureignir, þar
sem breska orustubeitiskip
ið Hood fórst. Tirpitz var
bygður 1941 og var mjög
hraðskreiður.
Frá firði til fjarðar.
Tirpitz hefir lengi hrak-
ist fjarða í milli í Noregi.
Var skipið um langa hríð í
Altenfirði, og rjeðust þar að
því breskir dvergkafbátar
og löskuðu það illa. Síðar
rjeðust svo breskar Barra-
cudasteypiflugvjelar að Tirp
itz og komu á skipið sprengj
um. — Fyrir nokkru var svo
skipið flutt suður til Tromsö
fjarðar, og þótti líklegt, að
Þjóðverjar myndu reyna að
koma því heim til Þýska-
lands til viðgerðar.
Tvisvar hæft stórsprengj-
um.
Þessi árás, sem Tirpitz var
sökkt í, var önnur, sem
breskar stórsprengjuflug-
vjelar gerðu gerðu að því í
Tromsöfirði. I fyrri árásinni
mun ein 6 smálesta sprengja
hafa hitt skipið. ,
Bresku sprengjuflugvjel-
arnar flugu alla hina löngu
leið til Norður-Noregs í
náttmyrkri, en rjeðust á
skipið í birtingu. Ein flug-
vjel kom ekki aftur, en tal-
ið er, að hún hafi nauðlent
í Svíþjóð.
Er nú úr sögunni hættan
á þvi, að Tirpitz muni ráð-
ast út á siglingaleiðir banda
manna.
I Bandaríkjamenn
.missa mikilvægor
| flugstöðvar
London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgun-
blaðsins frá Reuter.
JAPANAR hafa unnið ærið þýðingarmikinn sigur í Suðaust-
ur-Kína með töku borganna Kweilin og Luchow, en þar voru
síðustu flugstöðvar Bandaríkjaflughersins í Suðaustur-Kína, og
er hann nú úr sögunni. Er um vika síðan Bandaríkjamenn yf-
irgáfu flugstöðvar þessar.