Morgunblaðið - 21.11.1944, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 21.11.1944, Qupperneq 1
METZ FALLIN, BELFORT UMKRINGD FRANSKAR HERSVEITIR VIÐ RÍN lisenhower krefst aukinnar skotfærafram- ieiðslu. London í gærkveldi. EISENHOWER yfirhershöfð- ingi. flutti I morgun útvarps- ræðu til Bandaríkjaþjóðarmn- ar og ræddi um sigra banda- manna _ á Vesturvígstöðvunum að undanförnu, og hve her- gagnafrekir þeir hefðu verið. Sagði hann, að um miljón þýskra hermanna hefðu verið sviftir möguleikum á frekari þátttöku í ófriðnum hingað til á Veslurvígstöðvunum. Þá ræddi Eisenhower hina óhemju miklu skotfæraeyðslu, og kvað hana hafa sparað mik- ið af mannslífum, og sagði að bandamenn vildu alls ekki fórna mönnum fyrir hergögn og' skotfæri. Kvað hershöfðing- inn óhemju birgðir hafa verið í Bretlandi af allskonar skot- færum, er innrásin var hafin, en fljótt hefði gengið á þær, sem ekki væri furða, þar sem herir bandamanna á Vesturvíg- stöðvunum hleyptu að jafnaði af 5000 skotum á mínútu hverri. .Skoraði Eisenhower á heima- þjóðina að leggja sig alla fram við skotfæragerðina, svo sóknin þyrfti ekki að sljóvgast vegna skotfæraleysis, og mannslíf mættu sparast, og styrjöldin stytlast. — Reuter. Belgisku skæru- liðarnir afhenda vopnin London í gærkveldi: Kýrrt er nú orðið að mestu í Belgíu aftur, eftir óeirðir þær og deilur, sem staðið hafa þar að undanförnu. Hafa skærulið arnir nú samþykt, að láta af hendi vopn sín við herstjórn bgndamanna í Belgíu. I gær var mikið um kröfugöngur víða í borgum Belgíu, og skor- uðu þátttakendur í þeim á Pierlot forsætisráðherra og stjórn hans að segja af sjer hið bráðasta. — Kommúnistablöð víða ráðast mjög á Pierlot, t. d. segir blað breskra kommúnista, ,,Daily Worker“, að honum beri hið skjótasta að leggja niður völd. — Reuter. Róitækar breytingar á stjóminni í Kína London í gærkveldi: Róttækar breytingar hafa verið gerðar á stjórn Chang Kai Sheks í Kína, enda hafði megn óánægja verið með skipan henn ar alllengi. Kom hún greinileg ast fram í september s. 1., sem þjóðfulltrúasamkundan kom saman, Qg meðlimir hennar sátu og lásu blöð eða ræddu saman, meðan Chang Kai Shek flutti setningarræðu sína. — Er hermálaráðherrann tók til máls, gengu fultrúar út. Það, sem aðallega hefir verið fundið stjórninni til foráttu, er að hún sje gamaldags í stjórn- arháttum, og sumir meðlimir hennar ekki sem áreiðanlegast- ir. Talið er óhæfa, að fjármála ráðherrann sje einnig banka- stjóri og eigandi.ýmsra fyrir- tækja. — Einnig eru ráðherrar ásakaðir fyrir að hafa grætt á hergögnum. Breytingarnar á stjórninni eru þær, að nýir menn taka við embættum hprmálaráðherra, fjármálaráðherra, innanríkis- ráðherra, upplýsingaráðherra og skipulagsmálaráðherra. Þekt astur af hinum nýju ráðherrum er Tien hershöfðingi, sem verð ur hermálaráðherra. Hann hefir stjórnað kínverskum hersveit- um, síðan styrjöldin við Japana hófst. — Reuter. Áhlaup Rússa í Leftlandi London í gærkveldi: Þjóðverjar greina frá því, að Rússar hafi byrjað snarpar árás ir á stöðvar þýska hersins í Lett landi og teflt fram miklu liði. Þá segja Þjóðverjar, að orðið hafi vart mikilla herflutninga Rússa fyrir austan vígstöðvarn ar í Pólllandi og Austur-Prúss landi. Rússar segjast hafa sótt nokk uð fram í Ungyerjalandi, tekið þar ýms þorp, eigi allf jarri Budapest. Orusturnár eru sí- fellt jafnharðar á þeim slóðum. Laval er hjá Petain. London: Þýska frjettastofan sagði nýlega, að Laval byggi nú í sveitasetri einu í Suður- Þýskalandi, ásamt Petain og frú hans. Einnig segir fregn þessi, að flestir af ráðherrum Vichy- stjórnarinnar búi í borg einni þar nærri. Sfjérnar sékninni að sunnan Bandamenn sækja nú harð- lega að vörnum Þjóðverj'a við Belfort, og er þar kominn 7. hcrinn ameríski, sem gekk á land á strönd Suður-Frakk- lands. Yfirmaður hans er Jocob L. Devers hershöfðingi, sem sjest hjer á myndinni. 500 svikarar sleppa úr fangelsi i Belgíu Briissel í gærkveldi: Meðliniir úr föðurlandsvina sveitunum belgísku hafa á ein um stað mótmælt fyrirskipun- um stjórnarinnar um að þeir skuli láta af hgndi vopn sín, með því að ráðast á fangelsi í smáþorpi einu, þar sem 500 svikarar voru í haldi. Sluppu svikararnir allir úr fangelsinu. Flestir fanganna náðust þó aftur, eða gáfnst upp fyrir breskum hermönnum. Nokkr- um tókst þó að komast í al- menningsvagna til Brussel og er verið að leita þeirra. Þétta atvik var einn þáttur í mótmælum um land alt gegn fyrirskipUnum stj órnarinnar. Kínverjar í Bamau London í gærkveldi: Kínverskar hersveitir eru nú komnar inn í Bamau í Norður- Burma, en þar er mikilvæg bækistöð Japana. Var gerð hörð hríð að borginni af steypiflug- vjelum bandamanna, áður en Kínverjar ruddust inn í bæinn. Er þar nú barist ákaflega. — Annarsstaðar í Burma er lítið um að vera, sem stendur — Reuter. Fjórir herir bandamanna berjast á þýskri grund. London í gærkvöldi. — Einkaskeyti lil Morgunbl. frá Reuler. Eftir Denis Marlin: SEINT í kvöld barst fregn um það hingað til London, að gjörvöll kastalaborgin Metz væri á valai þriðja hers- ins ameríska. Hefir herinn auk þess sótt fram sunnan borgarinnar og norðan, og er nú sumsstaðar kominn vfir 3 km. inn fyrir landamæri Þýskalands. Aftur standa nú franskar hersveitir við Hín. Hersveitir þessar brutust gegn um Belfort skarðið, fóru framhjá borginni og einangruðu hana og eru nú komnar að Rín nærri Mulhausen. Ilalskur sendiherra lil London. London í gærkveldi: Hingað til London kom í dag sendiherra ítala, sem hjer mun setjast að. Er þetta kunnur stjórnmálamaður frá fornu fari, en var sviftur embættum öllum af Mussolini og mönnum hans. Hane er meðlimur eins af hinum frjálslyndu stjórnmála- flokkum á Ítalíu. — Reuter. Barisl suðauslur aí Forli London í gærkveldi: Bardagar eru ekki miklir á Italíu, er einkum barist fyrir suðaustan borgina Forli, og tókst Þjóðverjum að ná þar aft ur nokkrum þýðingarmiklum hæðum. Flugvjelar bandamanna frá Italíu, hafa stutt landherinn all mikið, og huk þess ráðist á járn brautir Þjóðverja í Brenner- skarði og laskað þær. Byltingartilraun í Boliviu-. London í gærkveldi: í Boli- viu hefir verið gerð tilraun til stjórnarbyltingar, en fregnir þaðan herma, að tekist hafi að kæfa byltingartilraun þessa þegar í byrjun. — Reuter. Brasilía tekur við. Sótt inn í Saarhjeraðið. Alls standa nú hlutar fjög- urra herja bandamanna á þýskri grund. Eru það annar herinn breski, og 9., fyrsti og 3. herinn ameríski. Hafa banda menn allstaðar unnið nokkuð á síðastliðinn sólarhring, þótt mótspyrna sje víðast hörð, og veður heldur ekki sem hag- stæðast. Síðustu fregnir af víg- svæðinu herma, að bardagarn- ir fari víðasthvar harðnandi. Frakkar í Belfort. Hersveitir Frakka, sem brut- ust norður um Belfortskarðið, hafa nú einnig rutt sjer braut inn í virkisborgina Belfort. Er síðast frjettist, höfðu þeir þeg ar allmikinn hluta af borg þessari á valdi sínu, en hún ligg ur_í skarði milli Jura- og Vog- esafjalla. Ekki er nú annað sýnna, en Þjóðverjar muni hörfa úr stöðvum sínum í Vogesafjöllunum. Hefir þegar orðið vart við hersveitir á und anhaldi eftir dölunum í fjöll- um þessum. Frakkar hafa tek- ið þar borgina St. Dyer og tvær aðrar. Taka Metz. Það voru þýskar landvarnar- sveitir og S. S.-sveitir, sem síð ast vörðust í Metz, voru þær skildar eftir þar, er meginher- inn fór. Ekki er talið að þær hafi verið fjölmennar. — Nokk- ur af virkjunum umhverfis borgina verjast hinsvegar énn. Bardagar um Metz voru aldrei mjög harðir, en eru það aftur á móti norðar, við Aix la Chap- elle, en þar hafa lengi geisað mestu orustur Vesturvígstöðv- anna. Þjóðverjar gerðu þar gagnárásir með skriðdrekum í dag. London: Samið hefir verið um það, að herskipafloti Brasil íumanna skuli taka við varð- gæslu á Suður-Atlantshafi af flota Bandaríkjamanna, en hann hefir haft það með hönd um að undanförnu. Aachenvígstöðvarnar. Þar hafa breskar hersveitir sótt nokkuð fram frá bænum Geilenkirchen, sem þeir tóku í gær, en mótspyrna Þjóðverja á þessum slóðum fer stöðugt Framh. á 2. síðu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.