Morgunblaðið - 22.11.1944, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 22.11.1944, Blaðsíða 1
31. árg'ang'ur. 237. tbl. — Miðvikudaginn 22. nóvember 1944. Isafoldarprentsmiðja h.f OFSALEG GAGNÁHLAUP ÞJÓÐVERJA Grískir skæruliðar afvopnaðir London í gærkveldi. . PAPANDROU, forsætisráð- herra Grikkja, hefir falið Sko- bie, yfirmanni bresku og grísku ! herjanna í Grikklandi, að sjá j um, að allir grískir skæruliðar i yrðu afvopnaðir fyrir 10, næsta ’ mánaðar, en svo hafði verið gert ráð fyrir, er skæruliðarnir < samþyktu að láta vopnin af hendi. — En það ér talið að i forsætisráðherrann hafi tekið þetla aftur upp, vegna þess, að nokkrir af ráðherrum hans hafa hótað að segja af sjer, ef allir skæruliðar í Grikklandi verði ekki vopnlausir hinn 10. des. n. k. — Reuter. 25 mi!j. manna unnu í þágu hern- aðarins í Breilandi Lonaon í gærkveldi: ERNEST BEVEN, verkamála ráðherra Breta ljet svo um mælt í ræðu í dag, að rjett áður en innrásin byrjaði, hefðu 25 miljónir manna í Bretlandi, af 46, starfað í þágu hernaðarins. Sagði Bevin, að þetta myndi þykja ótrúleg tala, en væri samt rjett. Bevin sagði, að þegar her- mennirnir kæmu heim að stríð- inu loknu, þá væri ekki nóg að háfa það, eins og eftir að síðasta stríðið endaði, að hrópa húrra fyrir þeim, heldur yrði að sjá hverjum einasta fyrir vinnu við hans hæfi. — Reuter. Kesselring særður! London í gærkveldi. Undanfarna daga hafa verið að berast lausafregnir um það, að Albert Kesselring marskálk ur, herstjórnandi Þjóðverja á Ítalíu, hafi særst hættulega fyrir nokkru. Ekki hefir það fylgt fregnunum, með hvaða hætti þetta á að hafa orðið. — Þjóðverjar hafa ekki minst neill á það, að Kesselring hafi orðið fyrir áfalli. Svisslendingar skila föngum. London: Svisslendingar eru nú byrjaðir að skila bandamönn um aftur föngum, sem flúið höfðu til Svisslands og verið þar í haldi. — Eru þessir menn uhdir aðrar reglur settir, en þeir hermenn, sem urðu að leita inn yfir landamæri Sviss, er Frakkiand fjell. — Þeir fá ekki heimfararleyfi fyrr en ó- ffiðnum lýkur. Jarðarför Rommels Myndin hjer að ofan var tekin við útför Rommels mar- skálks, sem fram fór fyrir skemstu, og var hann grafinn á kostnað þýska ríkisins. Fjöldi háttsettra herforingja stóð heiðursvörð. Rommel var á góðum batavegi og hafðist við á heimili sínu, en sló skyndilega niður aftur og dó skömmu síðar. 17. júní er þjóðhátíðardagur 1. desember fánadagur Frá ríkisstjórninni hefir blað inu borist eftirfarandi tilkynn- ing: MEÐ forsetaúrskurði um fánadaga o. fl. frá 17. ágúst 1944 er ákveðið, að 1. desember skuli vera fánadagur í minn- ingu þess, að þann dag árið 1918 gengu sambandslögin í gildi, en með þeim var ísland viðurkent frjálst og fullvalda ríki, 17. júní 1944 var lýðveldi stofnað á íslandi. Mun því sá dagur hjer eftir verða þjóðhá- tíðardagur Islendinga eins og 1. desember var frá 1918—1944. Fárvirði á Leyte-ey London í gærkveldi: Engir bardagar hafa verið undanfarna sólarhringa á Leyte-ey, Filipseyjum, vegna þess að s. 1. sunnudag gekk felli bylur ógurlegur yfir eyna, og er ekki fárviðri þessu slotað að fullu enn. — Japanar segja í fregnum sínum, að þeim hafi tekist að laska eitt af orustuskip um Bandaríkjamanna mjög mikið með flugvjelasprengjum. — Reuter. Þjóðverjar að fara frá Albaniu London í gærkveldi: Þjóðverjar eru nú, að því er virðist, að yfirgefa Albaniu að fullu, og hefir þá landið verið á valdi erlendra manna í hálft sjötta ár, eða síðan Musolini rjeðist á landið. Þjóðverjar hafa nú farið að fullu og öllu úr höfuðstað lands ins, Tirana, og aðal hafnarbær landsins, DurazZo, er einnig á valdi hinna albönsku skæru- liða, sem öll þessi ár hafa hald ið uppi baráttu gegn ítölum og Þjóðverjum. — Eitthvað mun enn vera um þýska herflokka nyrst í landinu, en þeir eru á norðurleið. — Reuter. Barisl sunnan Ravenna A Italíuvígstöðvunum hefir lítið verið um að vera i dag, og er það helst, að bardagar hafa verið allharðir fyrir sunnan Ravenna, þar sem breskar sveit ir úr áttunda hernum hafa gert hörð áhlaup á stöðvar Þjóð- verja. Breytingar hafa ekki orð ið. — Flugher bandamanna frá Ítalíu hefir gert miklar árásir á hersveitir Þjóðverja, sem hörfa norður eftir fjallvegum Jugoslaviu. Hafá verið eyðilagð ar 153 bifreiðar fyrir Þjóðverj um. — Reuter. ' Reymei að si&Svts sóknina tzl Msshr ÞJÓÐVERJAR gera nú ofsaleg gagnáhlaup á þær hersveit- ir bandamanna, sem næst eru komnar Ruhrhjeraðinu. Beita Þjóðverjar þarna fyrir sig skriðdrekum, stórskotaliði og fleiri flugvjelum, en um langan tíma. — Sunnar eru Þjóðverj- ar á undanhaldi undan frönskum hersveitum, ’ og halda þeir austur yfir Vogesafjöllin. Nærri Mulhause hafa þeir teflt fram varaliði, en halda hægt undan á svæðinu Belfort-Saar- briicken. Sjerstaklega snörp hafa gagnáhlaup þeirra verið við Thiionville, þar sem sókn vinstri arms 3. ameríska hersins er nú mjög hæg. — EisenhoWer talaði við blaðamenn í bæki- stöðvum sínum í dag. Ráðisl á rakeliu- stöðvar London í gærkveldi: 1 DAG varð vart stöðva í Ilollandi, þar sem Þjóðverjar geyma og skjóta hinu nýja rakettuvopni sínu, V — 2, og fór síðan hópur Spitfireflug- vjela til árása á stöðina, sem var inni í skógi einum. Gerðu flugvjelarnar steypiárás á Stöð þessa og urðu af miklar sprengingar. — Síðan ljetu flugvjelarnar fallbyssuskot- hríð dynja á stöðinni. Einn flugmaðurinn sagðist þafa skotið á rakettuskeyti, sem staðið hefði upp á end- ann, en það -sprakk ekki. Sagði hann skeytið vera al- veg eins að útliti, og hann liefði gert sjer í hugarlund af lýsingum. — Reuter. Sprengjur á Japan í gær Washington í gærkveldi: í dag var gerð loftárás á flug vjelaverksmiðju eina mikla í Japan, og gerðu risaflugvirki árásina. Þau komu frá bæki- stöðvum í Kína, og lentu í ill- viðri yfir Kínahafi, svo meiri hlutt þeirra var sendur til þess að varpa sprengjum á Shanghai | og Nangking. Japanskar orustuflugvjelar rjeðust að risaflugvirkjunum, og kom til mikilla loftbardaga. Voru 20 japanskar orustuflug- vjelar skotnar niður. Er þetta í fyrsta skipti, sem nokkuð að ráði hefir verið um orustuflug vjelar yfir Japan, er flugvjelar Bandaríkjamanna hafa ráðist á landið. — Reuter. Tjónið í Coventry, London: Það er nú vitað, að als hafa eyðilagst 54.000 hús í bresku borginni Coventry af völdum loftárása. Als fórust þar 1252 manns af völdum árás anna, en tæp tvö þúsund særð- ust alvarlega. Leiðin til Köln. Barist er af miklum ákafa á leiðinni til Köln, og einnig um- hverfis borgina Erschweiler, en hún er nú að nokkru leyti umkringd af herjum Banda- ríkjamanna. Er sumsstaðar bar ist þarna í návígi. Þá tefldu Þjóðverjar í dag fram miklu af orustuflugvjelum, bæði venju- legum og þrýstiloftsknúðum og rjeðust með þeim gegn flugvjel um bandamanna. Urðu af all- miklar loftorustur. ,,Við bcrjumst sem óðir menn“. í viðtali sínu við blaðamenn í aðalstöðvum sínum í dag', sagði Eisenhower meðal ann- ars: „Við verðum að berjast sem óðir menn. Jeg heimta meiri birgðir af öllu tægi, her- mennirnir verða að hafa alt sem fengist getur“. Eisenhower bjóst við að baráttunni um Þýskaland myndi ljúka vestan Rínar og spáði miklum orust- um. Ennfremur sagði hershöfð- inginn, að herförin gegn Walc- heren-ey, hefði verið mjög djarfleg. Hörfa inn í Elass. Vegna þess, að franskar her- sveitir eru komnar að Rín, suð ur við''svissnesku landamærin og ógna Þjóðverjum fyrir sunn an Rín-Rhone skurðinn með innikróun, hefir þýska liðið þarna lagt á undanhald. Er tal ið að hjer sje um 10 herfylki að ræða, og halda þau hratt und- an, en ekki er auðvelt að veita þeim eftirför. Bretar sækja hægt og sígandi að Þjóðverjum við Maasfljót of anvert, og eru þar nú um 5 km. frá ystu ramgervu varnarstöðv um Þjóðverja við borgina Ven- lo, en borgin er svipaða 'vega- lengd frá hinum ystu stöðvum. Talið er að Þjóðverjar muni verja þessa borg í lengstu lög. Stjórnmálasambandi slitið. London: Tilkynnt hefir verið í Tokio, að Japanar hafi slitið stjórnmálasambandi við Finn- land.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.