Morgunblaðið - 26.11.1944, Side 1

Morgunblaðið - 26.11.1944, Side 1
16 siður LÁTLAUSAR ORUSTUR VESTAN KÖLN r Osamlyndi í lfalíusf|órn Róm í gærkveldi. ]>( )NOMINI, forsætisráð- herra 'ltalíu, gekk út af fundi, sem hann hafði boðað í kvöld, með öllurn leiðtógum stjórn- málaflokkanna. — Talið er að -]>ar hg.fi orðið magnaðar deil- .ur milii hægri- og vinstri flokkauna í stjórninni og veiti frjálslyndir og katólskir kröfum kommúnísta og jafn- .aðarmanna snarpa mótspyrnu. — Noel Charles, breski sendi- lierrann. heimsótti. síðar for- sætisráðherrann, og krafðist •að vera látinn vita um ]>að á .klukkustundar fresti, hvað gerðist 1 málunum, og hvern- ig Bonömini gangi að bjarga hinni sex flokka stjóm, sém nýtur trausts hernámsþjóÖ- anna. — Reuter. GEILENKIRCHEN ýf^JULICH aldenhövén! ♦ öVdtwéílérí NETHER Iands GERMANY AFDENi INDÉN ESCHWÉILER: LANGERWEHE Ö^VURSELÉNjl ■ J| CRUCIFIX Æ_hill DUREN iNOfHBERG' <RÉN EILENDÖRF1 v'STOLBERG V.t\VÖ ../*0«tSSiN.CH BI8GEL húrtgén; fQRfsr BELGiUM | S'CHMÍDTj Leigin til Köln 5TATUÍE MILES Á kortinu hjer að ofan sjást þær borgir á leiðinni til Köln, seni Bandamenn sækja nú að. Eru Bandaríkjamenn nú komn ir mjög nálægt Julich, sem sjest á kortinu, og einnig eru þeir komnir gegnum Hortigen-skóginn, eftir að hafa barist þar í 10 daga samfleytt. af þýskum borgurum London í gærkveldi: GÖBBELS ferðaðist nýlega um ýmsar borgir í Vestur- Þýskalandi, þeirra, er verst hafa orðið leiknar af loftá- rásum, og hjelt ræður víða. — Hann sagði, að jafnvel óvinirn- ir kölluðu vörn Þjóðverja kraftaverk, og kvað svo á, að það yrðu óvinirnir, en ekki Þjóðverjar, sem leggja myndu hiður vopnin um síðir. — Sagði Göbbels að framkoma borgara í hinum stórskemdu þýsku borg um, sýndi, að ómögulegt væri áð buga þýsku þjóðina. Allir fundirnir enduðu með þvi, að Hitler var hyltur af afskapleg um fögnuði af mannfjöldanum. — Reuter. 160 þúsund flólfa- menn í Svíþjóð Stokkhólmi: Nú eru í Sví- þjóð als 160 þús. erlendir flótta menn og skiptast þannig eftir þjóðernum: 30 þús. Finnar, 27 þús. Norðmenn, 16 þús. Danir, 7 þús. Eistlendingar af sænsk- um ættum, 6 þús. annarra flóttamanna frá Eystrasalts- löndunum, 5500 Þjóðverjar, 1000 Pólverjar, 1000 Hollend- ingar og Frakkar og nokkur hundruð Jugoslava og Belgíu- manna. Þá eru og í landinu 45.000 finsk börn. — Auðvitað hefir þessi flóttamannafjöldi ýms vandamál í för með sjer, en tekist hefir yfirleitt vel að leysa úr þeim. Uppþofi í Bruxelles Margir menn drepnir London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgun- blaðsins frá Reuter. BARDAGI varð í Bruxelles, höfuðborg Belgíu, í dag, er mann- fjölda, sem var í kröfugöngu, lenti saman við lögregluna. Var skotvopnum beitt og fjeliu allmargir menn, en aðrir særðust hættulega. Ekki er enn vitað um tölu fallinna og særðra. Svo stóð á, að meðlimir stjórn málasamtaka nokkurra voru fylktu liði á leið til staðar, þar sem halda átti útifund mikinn. Leið mannfjöldans lá meðfram svæði, þar sem allar kröfugöng ur og útifundir eru bannaðir á, vegna þess að á því eru margar stjórnax-skrifstofur. Lögreglu- Vörður var um þetta svSéði, en fylkingin hugðist stytta sjer leið yfir það, og ruddist gegn- um lögregluvörðinn. Greip þá lögreglan til skot- vopna, og hófst þarna bardagi, sem varð bæði harður og lang- ur. Kalla varð marga lækna og hjúkrunarlið á vettvang, en leikhús eitt var tekið, fyxúr bráðabirgðaskýli fyrir hina særðu. Norðmenn berjasl á Vesturvígstöðv- unum t *■ '■— .yjf —»• London í gæi-kveldi. Hjer hefir veiúð kunnugt gert, að norskir hermenn taki þátt í baráttunni á Vesturvíg stöðvunum. Börðust þeir með al annarra staða á eyníxi Waleheren við Ilolland. — Reuter. Sektaður fyrir Parísar- ferðir. London: Nýlega setti Keitel, herráðsforingi Þjóðv.erja, inn í embætti nýjan forseta fyrir æðsta herrjetti Þýskaland. — Heitir sá von Scheele, hers- höfðingi. London: Ríkur kaupsýslu- maður einu hjer í boi’g hefir verið sektaður um mikla fjár- hæð fyrir það, að fljúga þrisv- ar til Parísar í leyfisleysi yfir- valdanna. MandesisBesaB vsmma á susttsstaðar Gífurleg stórskotahríð Þjóðverja London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgun- blaðsins frá Reuter. HERIR bandamanna á Vesturvígstöðvunum hafa enn átt í stórorustum í dag, og tekist að sækja víðasthvar fram, þótt ekki hafi þeir unnið mikið á. Sumsstaðar hafa þeir orðið að láta sjer nægja að hrinda gagnáhlaupum Þjóðverja, sjerstaklega á Geilenkirchensvæðinu, þar sem Þjóðverjar hafa hafið óhemju harða stórskotahríð að hersveitum Breta og Bandaríkjamanna. Segja frjetta- ritarar eftir hermönnum, að þeir hafi aldrei orðið varir við að Þjóðverjar eyddu eins mikið af skotfærum, eins og við Geilenkirchen í dag og undanfarna daga, enda hafi þeir stuttar aðflutningsleiðir, og flugvjelar bandamanna hafa ekki að undanförnu getað stutt landherinn að neinu ráði með árásum á samgönguleiðir Þjóðverja. Svíar banna „Jilterbug"- dans London: Breska blaðið Post skýrir frá því, að fyrir nokkru hafi gi’ipið um sig' í sænskum boi’gum, æði í að dansa hinn svonefnda ,,Jittei’bug“-dans, — Kvað svo ramt að þessu, að fólk fjekk taugaáföll af þreytu, en annað varð svo máttfarið, að það komst ekki hjálparlaust heim, eftir að hafa dansað eins og vitlaust heila nótt, en sumt tognaði. Spunnust nú megnar blaða- deilur um þetta mál, og loks fór svo að bannað var að dansa ,,Jittei’bug“. Forsendur voru þær, að þetta væri í rauninni ekki dans, heldur menningar- snautt spark út í loftið, sem hefði allskonar ill áhrif á æsku lýðinn, væi’i siðspillandi og andstyggilegt á að horfa. Óeining meðal Grikkja London í gærkveldi: Allmikið ósamlyndi er enn meðal stjórnmálaflokka í Grikk landi, og hafa ýmsir flokkar skæruliðanna brugðist illa við því, að þurfa að afhenda vopn sín, en þau áttu að verða af- hent fyrir 10. n. m. — Hefir annar aðalforingi skæruliðanna í þessu máli nú neitað að undirrita samning við stjórn- ina um afhendingu vopnanna. Viðsjár eru í Aþenu, en fregn- ir hei’rna, að full eining sje inn an ríkisstjórnarinnar. Við Duren og Julich. Bandamenn nálgast borgirn- ar Duren og Julich hægt og síg andi, en eru komnir nær hinni síðarnefndu, en um hana ligg- ur járnbrautin austur til Köln (sjá kort). Hafa Bandaríkja- menn nú átt í miklum orustum í Hörtigen-skóginum í 10 daga, en eru nú komnir gegnum hann og sjá til Duren, sem er nokkur austar. Eru herirnir þarna komnir á Kölnsljettuna, um 40 km. frá Köln sjálfri. Sicgfriedvirkin órofin. Fregnritari vor á þessum víg stöðvum símar í kvöld, að bandamönnum hafi hvergi tek- ist enn að br]5tast algjörlega gegnum Siegfriedvirkjakerfið, enda sje það mjög breitt um þessar slóðir, en í dag var veð ur nokkru skárra en í gær, og hægt að beita flugvjelum tals- vert. Rjeðust þær á samgöngu- leiðir Þjóðverja. Þýskar flug- vjelar ljetu einnig nokkuð til sín taka, og sumir fregnritarar segja, að flugsprengjum hafi verið skot.ið á vígstöðvar banda manna við Geilenkirchen. flHPm ti~~ti nni Frakkar náðu ekki brúnum. Bi’ýi’nar þrjár yfir Rín nærri Strasburg, standa enn, og mis- tókst Frökkum að ná þeim með skyndiáhlaupi. Mistu þeir við það skriðdreka og urðu frá að hverfa. Bandamenn hafa tekið um 2000 þýska fanga í Stras- burg, og enn er ekki andstaða Þjóðverja í borginni brotin að fullu. — Frönskum skólabörn- um var gefið frí í dag, til þess að safna saman bensínbrúsum, sem tæmdir eru og kastað á leiðinni til vígstöðvanna. Elsassvígstöðvar. Sjöundi her Pattons er nú kominn yfir ána Saar á nokkr- um stöðum, og hefir sótt þar fram. Sunnar eru grimmilegar orustur háðar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.