Morgunblaðið - 26.11.1944, Blaðsíða 1
16 siður
LÁTLAUSAR ORUSTUR VESTAN KÖLN
r
Osamlyndi
í lfalíusf|órn
Róm í gærkveldi.
]>( )NOMINI, forsætisráð-
herra 'ltalíu, gekk út af fundi,
sem hann hafði boðað í kvöld,
með öllurn leiðtógum stjórn-
málaflokkanna. — Talið er að
-]>ar hg.fi orðið magnaðar deil-
.ur milii hægri- og vinstri
flokkauna í stjórninni og
veiti frjálslyndir og katólskir
kröfum kommúnísta og jafn-
.aðarmanna snarpa mótspyrnu.
— Noel Charles, breski sendi-
lierrann. heimsótti. síðar for-
sætisráðherrann, og krafðist
•að vera látinn vita um ]>að á
.klukkustundar fresti, hvað
gerðist 1 málunum, og hvern-
ig Bonömini gangi að bjarga
hinni sex flokka stjóm, sém
nýtur trausts hernámsþjóÖ-
anna. — Reuter.
GEILENKIRCHEN
ýf^JULICH
aldenhövén!
♦ öVdtwéílérí
NETHER
Iands
GERMANY
AFDENi
INDÉN
ESCHWÉILER:
LANGERWEHE
Ö^VURSELÉNjl
■ J| CRUCIFIX
Æ_hill
DUREN
iNOfHBERG'
<RÉN
EILENDÖRF1
v'STOLBERG
V.t\VÖ ../*0«tSSiN.CH
BI8GEL
húrtgén;
fQRfsr
BELGiUM
| S'CHMÍDTj
Leigin til Köln
5TATUÍE MILES
Á kortinu hjer að ofan sjást þær borgir á leiðinni til Köln,
seni Bandamenn sækja nú að. Eru Bandaríkjamenn nú komn
ir mjög nálægt Julich, sem sjest á kortinu, og einnig eru þeir
komnir gegnum Hortigen-skóginn, eftir að hafa barist þar í
10 daga samfleytt.
af þýskum borgurum
London í gærkveldi:
GÖBBELS ferðaðist nýlega
um ýmsar borgir í Vestur-
Þýskalandi, þeirra, er verst
hafa orðið leiknar af loftá-
rásum, og hjelt ræður víða. —
Hann sagði, að jafnvel óvinirn-
ir kölluðu vörn Þjóðverja
kraftaverk, og kvað svo á, að
það yrðu óvinirnir, en ekki
Þjóðverjar, sem leggja myndu
hiður vopnin um síðir. — Sagði
Göbbels að framkoma borgara
í hinum stórskemdu þýsku borg
um, sýndi, að ómögulegt væri
áð buga þýsku þjóðina. Allir
fundirnir enduðu með þvi, að
Hitler var hyltur af afskapleg
um fögnuði af mannfjöldanum.
— Reuter.
160 þúsund flólfa-
menn í Svíþjóð
Stokkhólmi: Nú eru í Sví-
þjóð als 160 þús. erlendir flótta
menn og skiptast þannig eftir
þjóðernum: 30 þús. Finnar, 27
þús. Norðmenn, 16 þús. Danir,
7 þús. Eistlendingar af sænsk-
um ættum, 6 þús. annarra
flóttamanna frá Eystrasalts-
löndunum, 5500 Þjóðverjar,
1000 Pólverjar, 1000 Hollend-
ingar og Frakkar og nokkur
hundruð Jugoslava og Belgíu-
manna. Þá eru og í landinu
45.000 finsk börn. — Auðvitað
hefir þessi flóttamannafjöldi
ýms vandamál í för með sjer,
en tekist hefir yfirleitt vel að
leysa úr þeim.
Uppþofi í Bruxelles
Margir menn drepnir
London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgun-
blaðsins frá Reuter.
BARDAGI varð í Bruxelles, höfuðborg Belgíu, í dag, er mann-
fjölda, sem var í kröfugöngu, lenti saman við lögregluna. Var
skotvopnum beitt og fjeliu allmargir menn, en aðrir særðust
hættulega. Ekki er enn vitað um tölu fallinna og særðra.
Svo stóð á, að meðlimir stjórn
málasamtaka nokkurra voru
fylktu liði á leið til staðar, þar
sem halda átti útifund mikinn.
Leið mannfjöldans lá meðfram
svæði, þar sem allar kröfugöng
ur og útifundir eru bannaðir á,
vegna þess að á því eru margar
stjórnax-skrifstofur. Lögreglu-
Vörður var um þetta svSéði, en
fylkingin hugðist stytta sjer
leið yfir það, og ruddist gegn-
um lögregluvörðinn.
Greip þá lögreglan til skot-
vopna, og hófst þarna bardagi,
sem varð bæði harður og lang-
ur. Kalla varð marga lækna og
hjúkrunarlið á vettvang, en
leikhús eitt var tekið, fyxúr
bráðabirgðaskýli fyrir hina
særðu.
Norðmenn berjasl
á Vesturvígstöðv-
unum
t *■ '■— .yjf —»•
London í gæi-kveldi.
Hjer hefir veiúð kunnugt
gert, að norskir hermenn taki
þátt í baráttunni á Vesturvíg
stöðvunum. Börðust þeir með
al annarra staða á eyníxi
Waleheren við Ilolland.
— Reuter.
Sektaður fyrir Parísar-
ferðir.
London: Nýlega setti Keitel,
herráðsforingi Þjóðv.erja, inn í
embætti nýjan forseta fyrir
æðsta herrjetti Þýskaland. —
Heitir sá von Scheele, hers-
höfðingi.
London: Ríkur kaupsýslu-
maður einu hjer í boi’g hefir
verið sektaður um mikla fjár-
hæð fyrir það, að fljúga þrisv-
ar til Parísar í leyfisleysi yfir-
valdanna.
MandesisBesaB vsmma á
susttsstaðar
Gífurleg stórskotahríð Þjóðverja
London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgun-
blaðsins frá Reuter.
HERIR bandamanna á Vesturvígstöðvunum hafa enn
átt í stórorustum í dag, og tekist að sækja víðasthvar
fram, þótt ekki hafi þeir unnið mikið á. Sumsstaðar hafa
þeir orðið að láta sjer nægja að hrinda gagnáhlaupum
Þjóðverja, sjerstaklega á Geilenkirchensvæðinu, þar sem
Þjóðverjar hafa hafið óhemju harða stórskotahríð að
hersveitum Breta og Bandaríkjamanna. Segja frjetta-
ritarar eftir hermönnum, að þeir hafi aldrei orðið varir
við að Þjóðverjar eyddu eins mikið af skotfærum, eins
og við Geilenkirchen í dag og undanfarna daga, enda hafi
þeir stuttar aðflutningsleiðir, og flugvjelar bandamanna
hafa ekki að undanförnu getað stutt landherinn að neinu
ráði með árásum á samgönguleiðir Þjóðverja.
Svíar banna
„Jilterbug"-
dans
London: Breska blaðið Post
skýrir frá því, að fyrir nokkru
hafi gi’ipið um sig' í sænskum
boi’gum, æði í að dansa hinn
svonefnda ,,Jittei’bug“-dans, —
Kvað svo ramt að þessu, að fólk
fjekk taugaáföll af þreytu, en
annað varð svo máttfarið, að
það komst ekki hjálparlaust
heim, eftir að hafa dansað eins
og vitlaust heila nótt, en sumt
tognaði.
Spunnust nú megnar blaða-
deilur um þetta mál, og loks
fór svo að bannað var að dansa
,,Jittei’bug“. Forsendur voru
þær, að þetta væri í rauninni
ekki dans, heldur menningar-
snautt spark út í loftið, sem
hefði allskonar ill áhrif á æsku
lýðinn, væi’i siðspillandi og
andstyggilegt á að horfa.
Óeining meðal
Grikkja
London í gærkveldi:
Allmikið ósamlyndi er enn
meðal stjórnmálaflokka í Grikk
landi, og hafa ýmsir flokkar
skæruliðanna brugðist illa við
því, að þurfa að afhenda vopn
sín, en þau áttu að verða af-
hent fyrir 10. n. m. — Hefir
annar aðalforingi skæruliðanna
í þessu máli nú neitað að
undirrita samning við stjórn-
ina um afhendingu vopnanna.
Viðsjár eru í Aþenu, en fregn-
ir hei’rna, að full eining sje inn
an ríkisstjórnarinnar.
Við Duren og Julich.
Bandamenn nálgast borgirn-
ar Duren og Julich hægt og síg
andi, en eru komnir nær hinni
síðarnefndu, en um hana ligg-
ur járnbrautin austur til Köln
(sjá kort). Hafa Bandaríkja-
menn nú átt í miklum orustum
í Hörtigen-skóginum í 10 daga,
en eru nú komnir gegnum
hann og sjá til Duren, sem er
nokkur austar. Eru herirnir
þarna komnir á Kölnsljettuna,
um 40 km. frá Köln sjálfri.
Sicgfriedvirkin órofin.
Fregnritari vor á þessum víg
stöðvum símar í kvöld, að
bandamönnum hafi hvergi tek-
ist enn að br]5tast algjörlega
gegnum Siegfriedvirkjakerfið,
enda sje það mjög breitt um
þessar slóðir, en í dag var veð
ur nokkru skárra en í gær, og
hægt að beita flugvjelum tals-
vert. Rjeðust þær á samgöngu-
leiðir Þjóðverja. Þýskar flug-
vjelar ljetu einnig nokkuð til
sín taka, og sumir fregnritarar
segja, að flugsprengjum hafi
verið skot.ið á vígstöðvar banda
manna við Geilenkirchen.
flHPm ti~~ti nni
Frakkar náðu ekki brúnum.
Bi’ýi’nar þrjár yfir Rín nærri
Strasburg, standa enn, og mis-
tókst Frökkum að ná þeim með
skyndiáhlaupi. Mistu þeir við
það skriðdreka og urðu frá að
hverfa. Bandamenn hafa tekið
um 2000 þýska fanga í Stras-
burg, og enn er ekki andstaða
Þjóðverja í borginni brotin að
fullu. — Frönskum skólabörn-
um var gefið frí í dag, til þess
að safna saman bensínbrúsum,
sem tæmdir eru og kastað á
leiðinni til vígstöðvanna.
Elsassvígstöðvar.
Sjöundi her Pattons er nú
kominn yfir ána Saar á nokkr-
um stöðum, og hefir sótt þar
fram. Sunnar eru grimmilegar
orustur háðar.