Morgunblaðið - 01.12.1944, Page 1

Morgunblaðið - 01.12.1944, Page 1
31. árgangnr. 245. tbl. — Föstudagur 1. desember 1944 Isafoldarprentsmiðja h.f ÞJÓÐVERJAR TREYSTA VARNIR SAAR Tvær næfurárásir á London í gærkveldi: . Amerisk risaflugvirki gerðu í fyrrinótt tvær árásir á Tokio, höfuðborg Japan. Voru báðar árásirnar gerðar af allmiklum hópum flugvjela. Skýjað var, og sprengjunum varpað gegn- um þykni. Gátu flugmenn því ekkert sjeð sem gæfi t'il kynna, h-ver árangur hefði orðið. — Ekki tókst Japönum að granda neinu af risaflugvirkjunum, enda var loftvarnaskothríð ekki mikil. — Japanar tilkyntu árásir þessar í útvarpi sínu, svo að segja þegar eftir að þær voru um garð gengnar. — Flugvjel- arnar komu frá Saipan-eyju. — Reuter. Ólrúlegf hraðamet yfir Allanlshaf London í gærkveldi: . Sett var í gær nýtt met í flugi yfir Atlantshaf, sem kann að virðast æði ótrúlegt. Það var bpesk Mosquitoflugvjel, sem metið setti, og flaug yfir haf- ið, 3668 km. leið, á einum sex klukkustundum og 8 mínútum, vjelin fór með öðrum orðum yf ir 10 km. á mínútu. Flugmað- urinn var kanadiskur, — vjelin bygð þar vestra. — Reuter. Foringi Ungverja Danmörfc fefcin í UNNRA 'Libertyskip rifin. London: Verið er að byrja að rffa allmörg Libertyskip í höfnum í Bretlandi. Hafa skip þessi skemst af óvinavöldum, og borgar sig ekki að gera við þau. Engin önnur skip verða rifin a ðsvo kofnnu. Fyrir skömmu studdi Hitler na.sistaflokkinn í Ungverjalandi til valda og var þá maðurinn hjer á mvndinni gerður að rík- isleiðtoga Ungverja, en hann heitir Szalasi og hefir um mörg ár verið forsprakki ungverskra nasista. Ný útlagasljérn Pélverja London í gærkveldi. Varaforseta Póllverja í Lond on hefir nú tekist að mynda nýja stjórn. Hann er jafnaðar- maður, og í stjórn hans eiga sæti tveir jafnaðarmenn, tveir af hinum kristilega flokki og tveir lý ðræðissinnar. Enginn fulltrúi er í stjórninni frá bændaflokkinum, en meirihluti fráfarandi stjórnar og Nikolai- zek forsætisráðherra, var af þeim flokki. Ur fráfarandi stjórn er aðeins hermálaráðherr ann einn í hinni nýju. — Reuter. FRÁ LONDON berast þær fregnir, að Danmörk hafi ver- ið tekin upp í U.N.N.R.A. -— lljálpar og viðreisnar- stofnun hinna sameinuðu, þjóða. Cohn deildarstjóri hefir ver ið skipaður fulltrúi Danmerk- ui’. Cöhn deildarstjóri er f Ameríku, en þar til hann kem ur til London, mun sendi- berra Dana þar, Grev Re- ventloW, vera fulltrúi Dan- merkur. — (Samkv. danska útvar])inu hjer). Harðir bardagar á Ílalíu London i gærkveldi: Bardagar hafa verið óvenju harðir á Ítalíu í gær og í dag, og er það að nokkru leyti vegna batnandi veðurs. Þjóðverjar l hafa víða gert snörp gagná- | hlaup gegn fimta hernum, og j sumsstaðar unnið talsvert á. — I Áttundi herinn heldur áfram sókn sinni, en mótspyrnan er I ákaflega hörð, og hefir lítt á unnist. Flugveður hefir verið illt, og flugvjelastuðningur við heri bandamanna nærfelt eng- , inn. — Reuter. Rússar vinna ú i norð nustur Ungver jnlnndi London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgun- blaðsins frá Reuter. Stalin gaf út dagskipan í kvöld, og tilkynnti þar, að Rússum hefði síðustu daga orðið æði mikið ágengt í Norð- austur Ungverjalandi og í Slóvakíu. Hafa Rússar meðal annars tekið bæinn Eger í Ungverjaiandi, en hann er skammt fyrir suðvestan Miskoltz, sem mikið hefir verið barist um. Láns- og leigu- skipulag lil styrj- aidarloka London í gærkveldi. Churchill forsætisráðherra tilkynti í dag í neðri málstof- unni, a ðláns- og leigufyrir- komulagið verði látið halda á- fram, eftir að styrjöldinni við Þýskaland er lokið, en breytt að nokkru. Verður verðmæti þess, sem þjóðirnar skiptast á, varla meira en helmingur þess, sem nú er, að því er Churchill sagði, og kvað hann Breta eftir það geta farið að flytja út bæði járn og stál og ýmsar vörur unnar úr þessum málrhum. — Reuter. (hurchill sjötugur í gær í Suður-Ungverjalandi ræða Rússar ekki um orustur að þessu sinni,' en Þjóðverjar segja, að þeim hafi tekist að stöðva sókn þessa rússneska og júgóslavneska hers, sem komst yfir Dóná og gat sótt fram til borgarinnar Petz, er tekin var í gær. Fregnir Rússa í gær sögðu einnig frá feikna miklu varaliði þýsku, sem þarna væri komið á vettvang, og hörðum bardögum. Hvorugir segja frá neinum meiriháttar viðureignum ann- arsslaðar á vígstöðvunum. Við Budapest virðist nú algert hlje á bardögum, og sama má segja um Auslur-Prússland og Lett- land. London í gærkveldi. CHURCHILL, forsætisráðh. Breta varð sjötugur í dag, og var honum ákaflega fagnað, er hann kom á þingfund. Heilla- óskir bárust honum óteljandi, bæði frá Bretlandi og samveld- islöndum þess og frá löndum annara bandamanna. —Reuter. Stö&ss&ar stórorssstur á Machensvæðsnu London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgun- blaðsins frá Reuter. ÞJÓÐVERJAR styrkja nú eftir mætti varnir Saarhjer- aðsins, sem her Pattons sækir að. Flytja þeir þangað vara lið og mikið stórskotalið, og er stórskotahríð þeirra á þess- um vígstöðvum mjög hörð. Telja sumir fregnritarar, að Þjóðverjar noti langdrægar fallbyssur í Siegfriedlínunni, til að skjóta á her Pattons. Hafa Þjóðverjar gert yfir 10 gagnáhlaup á her Pattons í dag, en yfirleitt hefir Amer- íkumönnum tekist að sækja fram á þessum slóðum um allt að 1500 metra til jafnaðar. — Enn eru miklar or- ustur háðar norður á Aachensvæðinu, og hafa breytingar orðið litlar þar um slóðir. í Elsass sækja Bandaríkjamenn og Frakkar fram suður með Rín. Sóttu frelsisvinina í gamalli llugvjel til Noregs Frá norska blaðafulltrúanum: EINHVER kunnasta flug- vjelin í norska flugflotanum er gamall Catalina flugbátur, er heitir „Vingtor”. Þetta er elsta flugvjelin í hinni frægu norsku flugsveit „333”. Nýlega hefir verið skýrt frá afreksverki, sem áhöfn þessarar gömlu flug vjelar vann fyrir skömmu, en áhöfnin er að mestu gamlir flotaflugmenn, sem komist hafa undan frá Noregi. Vingtor var álitin óhæf til hernaðaraðgerða sökum elli og var búið að ákveða að nota hana til æfinga eingöngu, en alt í einu kom skipun um, að áhöfn hennar skyldi vera við- búin að fara í sjerstaka og hættulega ferð. Nokkrir frelsis vinir í Noregi voru í hættu staddir. Þeir höfðu neyðst til að eyðileggja útvarpstæki sín og Gestapo var á hælunum á þeim. Vingtor átti að bjarga þeim, þar sem þeir földust á Noregsströnd. Foringi áhafnarinnar á Ving- tor, Harry Rasmussen að nafni, var ekki seinn á sjer að kalla áhöfnina saman og þeir lögðu út í þessa hættulegu ferð, þótt þeir gætu verið nærri vissir um að þeir myndu ekki koma heim aflur. Allt vall á því, að flugvjelin hitti á þann stað er frelsisvin- irnir voru, því ekki myndi vinn ast tími til að leita þeirra, áður en Þj óðverjarnir yrðu varir við ferðir flugvjelarinnar. Þetta tókst. Vingator lenti nákvæm- lega á þeim stáð, er frelsisvin- irnir voru fyrir. Meðal þeirra var tveggja ára drengur og móð ir hans. Það liðu nákvæmlega 12 mínútur frá því flugbátur- inn settist og þar til hann var kominn í loft á ný. Sóknin til Saar er nú háð á um 80 km svæði, og er þar barist án afláts. Hefir þar orðið vart við fjölmennt varalið Þjóð- verja, og er víða barist í ná- vígi. Sunnar sækja Banda- ríkjamenn og Frakkar suður með Rín frá Strassburg, og mæta þar einnig snarpri mótspyrna Þjóðverja, sem hafa þar gnægð skriðdreka- byssna og annara fallbyssna •— Er sókn bandamanna að- allega beitt í áttina til borg- arinnar Colmar. Við ána Röhr Að þessari á eru banda- menn nú komnir á um 9 km svæði. — Er þarna um slóðir mikill vatnsagi, og ekki auðvelt um hemað. .—■ Þjóðverjar berjast einnig af mikilli hörku. Hefir sókn bandamanna á Aachenvíg- stöðvunum yfirleitt ekki numið nema um 1500 metr- ujn að jafnaði. Eru fram- sveitir nú um 7 km frá Dur- en, og hafa þær náð á vald sitt nokkrum þorpum. Flug- vjalar bandamanna hafa get að aðstoðað landherinn mjög mikið í dag. farið alls í 1100 flugferðir á þessu svæði. Við Atlantshafið Þar má segja, að Þjóðverj ar hafi enn á sínu valdi allt svæðið frá Lorient og suður að La Rochelleee. Ekki hefir frjettst um neinar orustur að ráði þarna suður frá, en við Dunkerque er enn nokk uð um bardaga, þótt höfuð- áhlaup bandamanna á borg ina sje ekki byrjað enn. Sló leikstjórann niður. London: George Sanders, kvikmyndaleikari, lenti nýlega í rifrildi við leikstjóra sinn, og sló hann niður. Þegar leikstjór inn stóð upp aftur, tókust þeir í hendur og sættust samstundis.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.