Morgunblaðið - 03.12.1944, Side 1
ÞJÓÐVERJAR MISSA SAARLEUTEN
Sklldu, en sætiust aftur
Þeim virðist ekki líða amalega, hjónunum á myndinni, en
það er kvikmyndaleikarinn Gary Grant, og t'rú hans, Barbara
Hutton, miljónaerfingi. Þegar myndin er lekin, eru þau nýbúin
að sætlast eftir sex vikna skilnað, sem þau sögðu að hefði vcrið
mesti misskilningur.
Hrði sókn Rússa í
suður-Ungverjalandi
London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgun-
blaðsins frá Reuter.
STALIX gaf út dagskipan í dag, þar sem hann skýrir frá
því, að herir Tolhukins hafi umhfnfarna daga sótt ni.jög hratt
i'ram í snðurhluta Ungverjalands. Er sókninni beint í norður
o.g norð.vestnr, og eru franisveitir hersins ekki allangt frá
Halatonvatninu. Er sótt fram vestan Dónár, og hafa verið
teknir bæirnir Paks og Kaposvar, ásamt f.jölda þovpa.
Sprengja brýrnaryfir
Rín hjá Strasburg
London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgun-
blaðsins frá Reuter.
BANDAMENN hafa náð fyrstu borginni í Saarhjerað
inu. Það voru amerískar hersveitir úr her Pattons, sem
ruddust inn í borgina Saarleuten (Saarlouis) snemma í
dag, og seint í kvöld berast svo frjettir um það,að borg
þessi sje nú algjörlega á valdi bandamanna, eftir miklar
viðureignir í henni og umhverfis hana. Annarsstaðar við
Saarfljótið heíir verið haldið uppi harðri stórskotahríð
af Þjóðverja hálfu.
Þjóðverjar hafa nú sprengt í loft upp brýrnar þrjár á
Rín, sem eru gegnt Strasburg, og eru tvær þeirra gjör-
hrundar. Þar suðurfrá, og einnig norðar, eru miklar or-
ustur. Bandaríkjamenn eru komnir í úthverfi bæjarins
Julich á Aachensvæðinu.
Fólk flytur á brott
frá Ruírr og Rínar-
bygðnm
London í gærkveldi.
ÞYSKA stjórnin hefir opin-
berlega fyrirskipað brottflutn-
ing alls fólks frá Ruhrhjerað-
inu og Rinarbygðum, nema
þess, sem vinnur störf, sem eru
svo nauðsynleg, að þau mega
ekki niður falla. Þó fá verka-
menn að flytja burtu, ef heim-
ili þeirra hafa hrunið í loftárás
um, þótt þeir vinni þýðingar-
mikil verk, en yfirleitt munu
Þjóðverjar nú vinna að því að
flytja verksmiðjur sínar úr
vesturhjeruðum landsins.
— Reuter.
ítalir reiðir Brelum
London í gærkveldi.
. MIKIL gx-emja kemur fram
í blöðum vinstri flokkanna ít-
Ölsku í dag, vegna ræðu þeirr-
ar, sem Anthony Eden flutti í
neðri málstofu breska þingsins
í gær. — Sögðu blöðin, að ít-
aiir hefðu verið freklega móðg
aðir með ræðu þessari, og enn-
fremur, að Bretar styrktu til
valda stjórnir, sem andstæðar
væru lýðræðinu, bæði á Ítalíu,
Belgíu og Grikklandi. — Bo-
nomini reynir enn að mynda
stjórn á Ítalíu, en gengur enn
mjö gilla. — Reuter.
Barisl um hæðir
á Mið-Ílalíu
London í gærkveldi: — All-
harðir bardagar hafa verið á
Italíuvígstöðvunum í gær og í
dag, og hefir ýmsum veitt bet-
ur. Þjóðverjar náðu með á-
hlaupi fallhlífahermanna all-
mikilvægum hæðum, en ind -
verskar hersveitir úr áttunda
hernum breska náðu þorpi einu
á sitt vald eftir þriggja daga
bardaga. — Reuter.
Stjórnarskifti
í Rúmeníu
London í gærkveldi.
STJÓRN Sanatescu, sem set-
ið hefir að völdum í Rúmeníu
í rúman mánuð, hefir nú orðið
að hröklast frá við lítinn orð-
stír, og er nú alt í óvissu um
myndun nýrrar stjórnar. Við-
sjár eru miklar milli stjórn-
málaflokka í landinu, og heimta
kommúnistar, að meiri vinátta
verði höfð við Rússa. — Mik-
hael konunguf hefir beðið Ra-
descu hershöfðingja að reyna
að mynda stjórn. -- Reuter.
Þnr scm Rússar eru konmir.
lengst til vesturs, eru þeir
ekki ttema rúnia hundrað km.
frá landamau'um Austnrríkis,
en heriun, sem tók Paks, er
1 :)Q km. frá Budapest.
þessi sóktt Rússa er gerð á
80 ktn. víglínu, og hel'ir verið
sótt fram alt að 30 knt. á sól-
at'hritig. — Þjóðverjar segja,
að hvorki þeir sjálfir nje Ung
verjar hafi haft þarna nokk-
urt'lið að ráði, svo eigi sje að,
undra þótt sókn Rússa lutfi
verið ltröð. Kveðast þeir nú
vera að senda lið á vettvang.
Þá seg'ja Rússar frá þvi í
lierst jórnartilkynningu sinni,
að þcim ltáfi orðið allvel á-
gengt í Tjekkoslovakin. Kom-
ttst þeir þar yfir ána Ondava,
og tóku nokkúr þorp. Ekki
virðist sókn Rússa t Austur-
Prússlandi hvrjuð.
Ilvcro'i amtai'sstaðar á Aust
lU'vígstöðvnnum voru ncinar
orustur háðar að ráði, enj
frainvarðai'skærui' allsnarpár.
Eyðileggingin
í Norður-Noregi
Frá norska blaða-
fulltrúanum:
í OPINBERRI skýrslu er
eyðileggingunni í Norður-Nor-
egi lýst sem hjer segir: Kirke-
nes er gjöreyðilagt, og í nyrðri
hluta Suður-Varangurs er eyði
leggingin 50%, í Vadsö 85%.
Meðfram Varangursfirðinum
og alt til Vestur-Tana er alt
gjöreyðilagt og einnig meðfram
ströndinni frá Berlevaag til
Mehavn. Um 1000 manns var
flutt nauðugt frá Berlevig, en
um 300 komst upp í fjöllin. —
Eins og nærri getur, er ástand-
ið þannig, að ilt er að lýsa þvi.
FYRIR skömmu sprengdu
danskir spellvirkjar í loft upp
tvo gufukatla, sem átti að
flytja til Þýskalands. Voru þeir
í verksmiðju Burmeister
Sundrung innan
grísku stjórnarinnar
London í gærkveldi.
ILT ÁSTAND er enn í Grikk
landi og órói mikill meðal
fólksins. Ekki er ástandið betra
innan stjórnarinnar, en sex ráð
herrann hafa sagt af sjer
vegna misklíðarinnar út af af-
vopnun skæruliðanna. Þrátt
fyrir þetta hefir forsætisráð-
herrann lýst því yfir, að stjórn
in muni sitja að völdum áfram
og láta ekki slíkt á sig fá.
Allmiklir árekstrar urðu um
tíma milli tveggja andstæðra
skæruliðsflokka, en nú hefir
tekist að koma aftur á ró og
reglu að mestu leyti, hvað
þeim viðvíkur. Hafa breskir
hermenn unnið að því að halda
uppi ró og reglu sumsstaðar í
landinu. — Reuter.
De Gaulle í Moskva.
London í gærkveldi: — De
Gaulle kom til Moskva í dag,
og voru í för með honum utan-
ríkisráðherra hans og foringi
franska herforingjaráðsins. —
Molotov utanríkisfulltrúi Rússa
tók á móti De Gaulle og fje-
lögum hans.
Enginn dæmdur
vegna Pearl Harbour
Washington í gærkveldi.
VITNISBURÐIR, sem fram
hafa komið við rannsókn út af
árásinni á Pearl Harbour, hafa
leitt í Ijós, að því að talið er,
að engum manni verði stefnt
fyrir herrjett vegna árásarinn-
ar, hvorki úr her Bandaríkj-
anna eða flota. Áður höfðu
. menn búist við því, að ýmsir
I
sem stjornuðu t Pearl Harbour,
er Japanar rjeðust á staðinn,
myndu fá þunga dóma.
Harðast barist
á þrem svæðum.
A Vesturvígstöðvunum
eru orustur nú mestar á
þrem svæðum: Við Saarleut-
en, sunnan Strasburg og
norður við Julich. Banda-
menn hafa getað sótt tals-
vert fram á svæðinu fyrir
sunnan og norðan Strasburg
Er þar sótt meðfram Rín, og
er skothríð Þjóðverja yfir
fljótið mjög hörð. Víða uppi
í fjöllunum eru harðir bar-
dagar háðir, og er vörn Þjóð
verja allsstaðar hin snarp-
astaa.
Ákaflegir bardagar
við Jiilich.
Orusturnar á Aachensvæð
inu halda áfram af jafnmik-
illi hörku og að undanförnu,
en breytingar hafa orðið
mjög litlar eins og áður.
Þó hafa bandamenn nú, sem
áður er sagt getað komist i
úthverfi bæjarins Júlich, á
leiðinni til Köln, en þeir
hafa lengi verið mjög nærri
honum. Áhlaup og gagn-
áhlaup skiftast á í sífellu. og
þorp sem bandamenn höfðu
í gær, eru í höndum Þjóð-
verja í dag.
Við Saarfíátið breiða.
Saarfljótið er í mjög mikl-
um vexti og afal ilt yfirferð-
ar, og hefir orðið vart við
það, að Þjóðverjar væru að
gera viggírðingar handan ár
innar. Altaf er stórskotahríð
þeirra söm og jöfn, og veld-
ur það bandamönnum mikl-
um erfiðleikum.
Hjeldu þeim veislu.
London: — Borgarbúar í
Antwerpen hafa haldið for-
ingjum herdeildar þeirrar, sem
tók brogina, mikla kvöldveislu
í þakkai’skyni fyrir að þeir los
uðu borgina undan hernámi
Þjóðverja.