Morgunblaðið - 05.12.1944, Qupperneq 1
OBREST
1 BREST
VE NINS ULA
ST.BRIEUX
ÉM^OQRIeÍÍ^
OCCUPIED
BY GERMAN5
(60,000)
REMNES
'ANNES
WJTany
^00,000 6ERMANS
'STILL ENTRENCHED
;on atlantk: coast.
ANGERS
V SK
IANTES
■<'Pillaged & burned
,by'German column
'frórn Allðntíc Coast
'60 piies away I -
/CHERISAY
(Village)
LA ROCHEIiE
RjyOiarente
;Fy R A N C E
(South - Wcst Coustj
BORDt'AUXi
Bfitar hreinsa
vestnrbakk 11 Inos
London í gærkveldi. Einkaskeyti lil Morgun-
blaðsins frá Reuter.
ÞRIÐJI HER Bandaríkjamanna undir stjórn Pattons
hefir komist yfir Saarfljótið rjett hjá Saarleutern, náði
hann þar óskemdri brú á sitt vald, og hefir einnig náð
nokkru landsvæði handan árinnar. Skjóta nú Þjóðverjar
á brúna af falibvssum sínum í Siegfriedvirkjunum, og
eru mjög harðir bardagar þegar háðir austan árinnar.
Bretar hófu í fyrrinótt mikil áhlaup á stöðvar Þjóð-
verja við Venloo, borgarinnar vestan Maas, og hefir nú
tekist að hreinsa algjörlega til á vesturbakka þessa fljóts,
alt frá ósum. — Þjóðverjar hafa sprengt flóðgarða við
Arnheim, og flæðir þar vatn yfir vígstöðvarnar. — Víðast
hvar um vígstöðvarnar sunnar eru bardagar mjög harðir.
Þjóðverjar hafa enn stór
svæði á vesturströnd
Frakklands
KORTIÐ hjer að ofan birtist nýlega í hinu kunna breska
vikublaði „The Sphere“, og með eftirfarandi skýring: „Mörgum
mánuðum eftir hina svonefndu „frelsun“ Frakklands, munu
margir vafalaust verða hissa á að heyra það, að Þjóðverjar
hafi ekki nærri allsstaðar verið neyddir til að gefast upp í
Frakklandi, eða til þess að fara úr hafnarborgum þar á strönd-
inni.
Sókn Rússa
heldur áiram
London í gærkveldi:
Rússar halda áfram hraðri
sókn í Suður-Ungverjalandi, og
eru framsveitir þeirra nú ekki
nema um 40 km. frá Baleton-
vatninu mikla. Talið er að Þjóð
verjar ætli að gera það lið í
varnarkerfi sínu.
Þá hafa Rússar sótt talsvert
fram, bæði í áttina til autur-
rísku landamæranna og einnig
til Budapest, meðfram Dóná að
vestan. Mótspyrna Þjóðverja og
Ungverja er enn af mjög skorn
um skamti.
Annarsstaðar á Austurvíg-
stöðvunum er mjög lítið um að
vera. — Reuter.
A vesturströnd Frakklands,
við Atlantshafið, er enn um
60.000 manna þýskur her, sem
heldur öllum borgum og höfn-
um á þeirri strönd frá Lorient
alt niður til árinnar Gironde.
Eftir að Amerikumenn höfðu
lekið Brest, beindu þeir sókn
sinni suður á bóginn, en ekki
lengi. Bráðlega -beygðu þeir til
auslurs, og eltu Þjóðverja til
Parísar og landamæra Þýska-
lands. Það starf, að yfirbuga
Framh. á 2. síðu
Blaðamaður látinn
í fangabúðum
Frá danska sendiráðinu:
Hinn kunni danski blaðamað
ur og rithöfundur, Peter de
Hemmer Gudme, cand. theol.
ritstjóri, andaðist nýlega í
t haldi hjá Þjóðverjum. Hann var
^sóttur af Gestapo s. 1. föstudag,
|og andaðist í dag í Shelhúsinu,
en þangað var farið með hann.
Japanar sækja
fram í Kína
Chungking í gærkveldi:
Japanar sækja hratt fram í
Kweichow-fylki í Suður-Kína,
og nálgast óðfluga borgina
Kweiyang, sem er höfuðborg
fylkisins. Hefir mótspyi-na
Kínverja ekki verið mikil, og
veldur því liðsskortur á þessum
slóðum. Hjer í Chungking eru
menn áhyggjufullir og sumir
halda að stjórnin muni flytja
úr borginni lengra inn í landið,
áður en langt líður, en Japanar
hafa aldrei verið komnir eins
nálægt höfuðborginni og þeir
eru nú. — Reuter.
Gallagher kosinn
formaður.
London: Þingmaður breska
kommúnistaflokksins, W. Gal-
lagher, hefir nýlega verið kjör-
inn formaður flokksins á þingi
hans, sem haldið var hjer í borg
inni.
Orusturnar
á Aachensvæðinu
eru enn sem fyrr harðast
ar milli bæjanna Julich og
Einnich, og hafa Bandaríkja
mepn fótfestu í báðum þess
um bæjum, þ. e. a. s. út-
hverfum þeirra. Þarna skift
ast á áhlaup og gagnáhlaup
í sífellu, og hefir aðstaðan
breyst lítið s.l. sólarhring.
Báðir aðilar eru sagðir halda'
uppi ákaflegri stórskotahríð
yfir ána Röhr. Hafa Þjóð-
verjar sent allmikinn liðs-
auka til þessara vígstöðva
að sögn.
Þjóðverjar farnir frá
Colmar?
Lausafregnir af þýskum
rótum runnar, herma í
kvöld, að Þjóðverjar hafi
vfirgefið borgina Colmar,
fyrir sunnan Strasburg. Þótt
staðfesting hafi ekki fengist
á fregn þessari, er hún ekki
talin ósennileg, þar sem her
sveitir Frakka og Banda-
ríkjamanna munu nú komn
ar mjög nærri henni í sókn
sinni suður með Rín.
Átökin við Saarfljótið.
Bandaríkjamenn komust í
nótt sem leið í myrkri yfir
Saarfljótið fyrir norðan
Saarleutern, og tókst að ná
á vald sitt brú vfir ána þar.
Hafa þeir getað notað hana
til liðsflutninga í dag, þótt
Þjóðverjar ^kjóti stöðugt á
hana af fallbyssum. — Eitt-
hvað mun enn vera • barist
í borginni Saarleutern enn,
þótt ekki hafi fregnin um
það verið staðfest, að Þjóð-
veriar hefðu náð borginni
aftur.
Ula lcikinn bær.
London: í bænum Crayford
í Kent í Suður-Englandi, hefir
hvert hús skemst tvisv&r að
meðaltali í loftárásum og flug-
skeytarárásum Þjóðverja.
Miklar éeirðir
í Grikklandi
London í gærkveldi:
Herlög eru nú í gildi í Aþenu,
höfuðborg Grikklands, og bar-
dagar hafa verið þar tíðir í dag,
aðallega á milli tveggja and-
stæðra skæruflokka, hins
vinstrasinnaða Ellasi og annara
íhaldssamari. Breskir hermenn
hafa verið á vettvangi, en ekki
þurft að grípa til vopna sinna.
Yfirmaður breska hersins í
Grikklandi, Scobie, hérshöfð-
ingi, ljet þau boð út ganga í
dag, að allir meðlimir hinna rót
tæku skæruliðaflokka (Ellas),
yrðu að yfirgefa Aþenu. All-
marga af þeim hafa breskir her
menn þegar afvopnað. Frestyr
sá, sem skæruliðarnir fá til þess
að vera komnir burtu úr Aþenu
óg Piræussvæðunum, er til mið
vikudags, og verður litið á
hvern þann sem fjandmann,
sem þá verður eftir á hinu
bannaða svæði.
I ávarpi Scobies segir hann,
að hann muni hjálpa stjórn
landsins gegn óábyrgum minni-
hlutaflokkum, sem sjeu að
reyna að hrifsa völdin í sínar
hendur, og spilla fyrir einingu
þjóðarinnar.
I. A. M.-flokkurinn, en hon-
um tilheyra Ellas-skæruliðarn-
ir, hefir eins og kunnugt er tek
ið ráðherra sína úr ríkisstjórn-
inni, og hvetur nú til verkfalla.
Hafa vagnstjórar lagt niður
vinnu, og einnig hafnarverka-
menn, svo ekki er hægt að skipa
upp vörum, sem bandamenn
senda til hjálpar hinum hungr-
aða lýði.
Deilan, sem liggur til grund-
vallar fyrir óspektum þessum
og flokkadráttum, er mjög göm
ul. Einu sinni blossaði hún svo
ákaft upp, meðan Grikkland
var hernumið af Þjóðverjum,
að grísku skæruliðarnir gáðu
einskis annars en að drepa hvor
ir aðra. —; Reuter.
Frægur Asíufræð-
ingur myrtur
London í gærkveldi:
Einn af þeim bresku mönn-
um, sem kunnastur var Asíu-
málum, Sir Eric Teichman, var
myrtur í dag. Kvaðst hann
hafa heyrt skot og gekk út, en
kom ekki aftur og fanst and-
aður síðar, skotinn í öxl og
brjóst. Sir Teichman var 60
ára að aldri, og hafði meirihluta
æfinnar verið í Asíu, aðallega
Kína, í þágu bresku stjórnar-
irtnar, og ferðast þar mjög víða.
— Reuter.
31.' árgfangnr.
248. tbl. — Þriðjudagur 5. desember 1944.
Isafoldarprentsmiðja h.f
BANDAMENN KOMIMIR YFER SAAR- ÁIMA
i