Morgunblaðið - 19.12.1944, Qupperneq 1
16 síður
31. árgangur.
260. tbl. — Þriðjudagur 19. desember 1944.
Isafoldarprentsmiðja h.f.
ÞJÓÐVERJAR RYÐJAST AFTUR INN í
BELGÍU OG LUXEMBURG í G AGNSÓKN
Báðir aðilar
um gang
bardaganna
Einkaskeyti til Morgunblaðsins
frá Reuter.
BÁÐIR AÐILAR lýstu þvl
yfir í dag varðandi sóknina
á- Véstttrvígstöðvurium, að um
Jiana yrði ekkert'tilkynt opin-
bérlega ttm hrið. Þannig kvað
Jiérstjórn bandamanna svo á,
að ekkert yrði látið uppi um
]>að, hverjar borgir Þjóðverj-
ar tækju af bandamönnum,
éðá yrðu teknar af þeim aft-
tir. Er þetta sagt gert af ör-
yggisástæðum, þar sem víg-
Jíttan virðist ekki vera ve!
sámfeld sem stendur, sökum
a ðgerða fallhlífahermannanna
þýsku.
' Þjóðverjar kveða einnig
ekki verða skýrt opinberlega
frá neinu því, sem gerist í
sókn þessarri fyrst í stað,
Jieldui- bíði það síðari tíma.
Frjettaritari vor með herj-
um bandamanna símar í kvöld
að Þjóðverjar auki mikið á
skriðdrekatölu sína á sóknar-
svæðinu. — Einnig kveður
Jiann loftárásum Þjóðverja
halda áfram í kvöld af mikilli
hörku.
Bandaríkjamenn kváðust í
gær hafa skotið niður 98 þýsk
ar flugvjelar, en misst sjálfir
31, Þjóðverjar sögðust hafa
grandað 48 Bandárikjaflug-
vjelum en misst 28 sjálfir.
Hitler skipulagði sóknina
Þýska útvarpið segir, að
Ilitler Jiafi sjálfur skipulagt
gagnsókn þá, sem nú er hafin,
og hafi liann alllegi verið önn-
uni kafinn við það verk, svo
aþðsýnt sje, að hann hafi
naumast tíma haft til ræðu-
Jittlda.
Sóknarsvæði Þjóðverja
/ '-'olland /
© essf a/ '
f \ O. SOLINGEN .
■•■j-xi+y'-w ' ■■ ■ ■ / - v.. W \
W -TS-/A \ I A/ / <CX/ O C'
AACHrKTi> u ss £ L 0 ° RF
KÓLN
\® BONN
>Í -I já
LVKtnfUuM&* pMA NHEJl
. MFT7C. ■ 'arw
AG/NOT- UNIEN—^
á3£úF/\STíSV»I*l
RANKRie
'BASEL
Á kortinu hjer fyrir ofan má sjá gagnsóknarsvæði Þjóðverja, en
það nær frá Luxemburg og alt norðurundir landamæri Hollands
Það eru nokkru fyrir suðvestan Köln, sem Þjóðverjar eru komn-
ir inn í Belgíu. — Þá sjest einnig á kortinu Saarhjeraðið, þar sem
barist er af hörku.
Bretar koma ó sam-
bandi milli Aþenu
og Piræus
London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgun-
blaðsins frá Reuter.
Síðdegis í dag var aftur byrjað að berjast í Aþenu eftir
nokkurt hlje. Beittu Bretar skriðdrekum og brynvögnum til
þess að gera færa vegina milli Aþenu og Rafnarþorgarinnar
Piræus, og var leiðin að sögn fregnritara orðin fær vopnuðum
faratækjum undir kvöldið.
Miklar lcftárásir
s. I. sólarhring
Um 1300 flugvjelar Breta
rjeðust í nótt sem leið á ýmsar
stöðvar Þjóðverja, aðallega
samgöngumiðstöðvar að baki
vígstöðvanna, svo sem Munchen
Ulm, Hanau og' Munster. — Mót
spyrna var víða hörð,_ og mistu
Bretar 17 flugvjelar í árásum
þessum.
í dag fóu svo um 500 ameísk
a* spengjuflugvjela til áása á
járnbrautarstöðvar í Köln
Elas-menn hófu hinsvegar
snarpar árásir á tvennar stöðv-
ar í Aþenu, er halla tók degi.
Einn flokkur þeirra allmikill
rjeðist á aðalbækistöð breska
flughersins í borginni, en ann-
ar á fangelsi það, sem aðalsam
starfsmenn Þjóðverja eru
geymdir í, meðal annars sá, sem
var forsætisráðherra landsins,
meðan það var hernumið af
Þjóðverjum.
Breskar orustuflugvjelar,
vopnaðar rakettubyssum, vörðu
aðalstöðvar flughersins, og
hrundu áhlaupi Elas-manna á-
samt landher. Ennfremur náðu
Bretar allmikilvægri hæð í
borginni á vald sitt.
Elas-menn kveiktu í fyrr-
nefndu fangelsi, • en Breskir
hermenn hleyptu föngunum út
jg tóku þá i gæslu. Ekki er vit
að, hvað um forsætisráðherra
þann var, sem þar var inni.
Fulltrúi Breta í Aþenu hefir
rætt við forsetisráðherrann,
Papandreu í dag og ennfremur
við erkibiskupinn í Aþenu, sem
talinn var líklegur til að geta
myndað allra flokka stjórn. —
Ekki er vitað um, hvérnig þáð
tekst. Á Vestur-Grikklandi
vaða Elas-skæruliðar uppi af
miklum ákafa.
Rjúfa víglírLu banda-
manna á 3 stöðum
London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgun-
blaðsins frá Reuter.
ÞAÐ ER NÚ ORÐIÐ LJÓST, að Þjóðverjum hefir í
hinni miklu gagnsókn sinni gegn stöðvum fyrsta ameríska
hersins. tekist að rjúfa varnarstöðvar bandamanna á
þrem stöðúm á um 100 km. langri víglínu og sækja víða
fram. Er það einkum gagnvart belgisku borginni
Malmedy, sem þeir eru sumsstaðar komnir langt inn í
Belgíu. Þá eru þeir einnig komnir inn í Luxemburg á
einum stað, en fallhlífahermenn, sem látnir voru svífa
til jarðar að baki vígstöðvum bandamanna, hafa eyðilagt
aðflutningsleiðir og gert Bandaríkjamönnum erfitt um
vömina. — Þá hafa Þjóðverjar beitt óhemju miklum
flugher, ekki einungis á sóknarsvæðinu, heldur og um
allar vígstöðvarnar, norðan frá Hollandi og suður að
landamærum Sviss. Ógurlegar loftorustur voru háðar yf-
ir vígstöðvunum í gær, en í dag var flugveður mjög vont.
Bandaríkjamenn hafa gert allar nauðsynlegar gagnráð-
stafanir.
Síðustu frjettir
London í gærkveldi.
Seint í kvöld bei'ast þær
fregnir frá frjettariturum á
Yesturvígstöðvunum, að Þjóð-
verjar munu hafa sótt fram
um 25 km. í gagnsókn sinni,
en.þar sem bannað er að
riéfna nöfn nokkurra staða
eða borga, er óvíst um þau
atriði. Þannig er ekkí víst,
hvort boi'gin Malmedy í Belg-.
íu er á valdi Þjóðverja eða
bandamanna. — Reuter.
Fórst yfir Japan
London: Einn af frjettaritur-
um Associated Press, John
Andrew, er álitinn hafa farist
í árásarferð gegn Japan. Hann
var í risaflugvirki, sem ekki
kom aftur úr slíkri árás.
Rússar hreinsa
Suðaustur-Ung-
verjaland
London í gærkveldi.
I herstjórnartilkynningu
Rússa í kvöld er tilkynt, að her
sveitir Malinowskys hafi nú
að fullu hreinsað fjallahjeruð
Suðaustur-Ungverjalands og
sjeu nú ekki meira en 25 km.
frá landamærum Slóvakíu. —
Telja Rússar sig hafa tekið
2000 þýska og ungverska fanga
á þessum slóðum, en aðrir Þjóð
verjar og Ungverjar, sem þarna
voru, munu hafa sloppið yfir
landamærin inn í Slóvakíu og
Tjekkoslovakíu. ■— Auk þessa
greina Rússar frá því, að þeim
hafi nú tekist að komast inn í
Tjekkoslovakíu norðaustan
Miskoltz. Ekkert er rætt um
bardaga við Budapest í tilkynn
ingum aðila í dag
Alvarleg sókn.
Þjóðverjar segjast 'hafa
komið Bandarrkjamönnum
algjörlega á óvart með þess-
ari sókn sinni, en frjettarit-
arar bandamanna á vígstöðv
unum segja, að sókn þessi
geti orðið all-alvarleg, ög
fái Þjóðverjar stöðugt liðs-
auka. Beita þeir þarna mjög
öflugu skriðdrekaherfvlki,
sem talið er það besta, sem
þeir hafa enn til. Þegar skrið
drekarnir hafa ruðst í gegn,
kemur stórskotaliðið, ásamt
fótgönguliðinu á eftir. —
Bandaríkjamenn grafa nú
skotgrafir og búast til varn-
ar í ákafa.
Sóknarsvæðið.
Sóknin er háð á 100 km.
víglínu, alt frá því rjett fvrir
sunnan Aachen, á móts við
Epinal í Belgíu og suður á
móts við Ettelbrúck í Lux-
emburg. Það virðist vera
gegnt borginni Malmedy í
Belgíu, sem Þjóðverjar hafa
náð stærstu landsvæði aftur
á sitt vald. enda brutust þeir
þar í gegn á stærstu svæði,
og að baki víglínanna . þar
höfðu flestir fallhlífaher-
mennirnir verið látnir síga
til jarðar.
Snarpar orustur í Saar,
I Saarhjeraðinu, einkum
nærri Saarleutern, hafa
mjög harðir bardagar stað-
ið í dag, og hefir Bandaríkja
mönnum tekist að vinna
nokkuð á þar sumsstaðar,
einkum í námd við Dilling-
en. Þjóðverjar skjóta jafnt
og þjett af fallbyssum í
Framh. á 2. siðn.