Morgunblaðið - 19.12.1944, Blaðsíða 2
rj
MÖRGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 19. des. 1944.
Frelsisráh Dana stjórnar jpjóbinni
KINGAÐ ER nýlega kominn
t<iýr starfsmaður til danska
eendiráðsins, Anker Svart að
oafni. Hann tekur m. a- við
etarfi því, er Ole Killerich hafði
■ f.em blaðafulltrúi.
Hann hefir verið í Englandi
-ísíðan í febrúar 1940. Fór þang-
að til háskólanáms, og lauk
-•neistaraprófi í málum við há-
skólann í Sheffield. — Hann
er málamaður mikill, les ís-
lensku og skilur hana allvel
-%)á töluð er. Hann hefir í 1 Vj
ár unnið við danska útvarpið
4 London og verið samhliða
- etarfsmaður danska ráðsins
í gær hafði hann tal af blaða
tnönnum á heimili de Fontenay
«endiherra. Sagði hann ýmis-
fegt frá frelsisbaráttu danskra
föðurlandsvina, m. a. um starf
semi „Frelsisráðsins danska“,
setn svo er nefnt, og er eins-
fconar leynileg stjórn landsins.
Frelsisráð Dana, sagði Anker
Svart fulllrúi, var stofnað í
ágúst 1943. Þá fundu menn það
á sjer, að til þess myndi draga,
sern verða vildi. Að landið yrði
stjórnlaust þá og þegar, eins
og varð eftir uppreisnina 29.
ágúst
Þá mynduðu forystumenn
þeirra flokka og smáhópa, sem
höíðu risið gegn Þjóðverjum,
aíísherjar samlökum i milli, og
mynduðu Frelsisráðið.
ítáð þetla er því sprottið upp
úr jarðvegi leynisamtakanna,
en á ekki upptökin að samtök-
um þessum..
Stefnxiskráin.
í október sama ár gaf ráðið
út stefnuskrá sína. Er hún í 6
liðura og svohljóðandi:
1. „Frelsisráð Danmerkur“ er
rJcipað fulltrúum þeirra dönsku
sanitaka, sem sameiginlega og
í samræmi við öskir þjóðarinn-
ar vilja berjast gegn þýska her-
námsliðinu, þar til Danmörk
htýtur á ný frelsi og sjálfstæði.
2. Tekinn hefir verið í ráðið
futltrúi frjálsra Dana erlendis,
en vjer viðurkennum fullkom-
íega hið mikilvæga starf þeirra
í þágu Danmerkur.
. 3. Fulltrúar í ráðinu lofa há-
tiðlega að setja þetta takmark
ofar allri flokksstefnu og sjer-
hagsmunum í starfi sínu fyrir
frelsi Danmerkur.
4. Ráðið mun ná sambandi
við þjóðina með aðstoð hinna
óháðu blaða, en hlutverk þeirra
er að benda á þær leiðir, sem
liggja til frelsisins, og — þótt
etarfsskilyrðjn sjeu erfið — að
flytja þjóðinni hinar sönnu upp
lýaingar, sem Þjóðverjar banna
Útvarpi og blöðum að birta.
5. Ráðið vinnur fyrir hinar
lýðræðislegu hugsjónir, og berst
elcki aðeins gegn hinum utan-
aðkomandi óvinum, heldur og
einnig hinum dönsku nasistum,
liðhlaupum og þeim, sem gefist
bafa upp.
6. Hlutverk ráðsins er að
skipuleggja mótspyrnuna gegn
Þjóðverjum á öllum sviðum og
cne0 öllum þeim tækjum, sem
|-j.lóðin hefir yfir að ráða.
Eins og sjesl af stefnuskrá
þessari, er aðaláherslan lögð á
aS sameina þjóðina í andslöðu
hennár gegn Þjóðverjum, og
léggja allar flokkaerjur til hlið
ar á meðan styxjöldin stendur
Örjúfanleg samtök um
alt landið
Anker Svart fulltrúi
segir frá
Anker Svart.
Leyniblöðin um alt.
Ráðið hefir samband við al-
menning gegnum leyniblöðin,
sem alls eru 40 að tölu, og er
það útbreiddasta gefið út í 50
þús. eintökum. Blöð þessi ei’u
öll fjölrituð, og koma út einu
sinni í viku eða sjaldnar, svo
sem einu sinni í mánuði. Fer
öll dreifing þeixra fram með
leynd, en svo vel skipulögð, að
engin leið er fyrir Þjóðverja
að hindra útbreiðslu þeirra.
Frelsisráðið danska gefur út
fyrirskipanir sínar í leyniblöð-
unum, og komast þær þannig
til allrar þjóðarinnar. Allir
hlýða fyrirskipunum þess, þó
enginn viti hvaða menn eru í
ráðinu, hve margir þeir eru,
eða hvar þeir eru. Svo mikil
leynd er yfir því, að fullvíst er
talið, að menn geti verið í Frels
isráðinu, án þess að eiginkonur
þeirra og nánasla skyldulið hafi
hugmynd um það.
Meðan lögreglan danska starf
aði, studdi hún óbeinlínis starf
föðurlandsvinanna. Fjekst hún
aldrei til þess að. taka menn
fasta, nema þá, sem brytu I
bága við dönsk lög. En þegar
danska lögreglan tók menn
höndum, sem voru Þjóðverjum
hlyntir, komu Geslapo menn
jafnan og heimtuðUf að þeir
yrðu látnir lausir, enda þótt
þeir hefðu hin mestu afbrot á
samviskunni.
Starfsemi dönsku íögregl-
unnar var til ómelanlegt stuön-
ings fyrir slarfsemi ættjarðar-
vinanna.
Nú er danska lögreglan úr
sögunni, sem kunnugt er, yfir
2000 lögreglumenn í fanga-
búðum Þýskalands- Fjöldi í
fangabúðum í Suður-Jótlandi,
en um 6000 liðsmönnum lög-
reglunnar tókst að hverfa og
halda sjer í felum.
Illvirkjar.
Um hið illræmda Schalburg
lið sagði hr. Svart m. a.:
Lið þetta er afsprengi frá frí-
liðunum, sem sendir voru til
Rússlands á sínum tíma. Voru
f jálfboðafliðar frá Danmörku,
Noregi, Finnlandi og víst Hol-
landi og Belgíu settir í eina
hersveit í Rússlandi, hina svo-
kölluðu Víkingasveil. Hún
fjekk hina verstú útreið á víg-
stöðvunum. Dönsku sjálfboða-
liðarnir komu heim. Ælluðu
Þjóðverjar að noia þá til þess
að æsa dönsku þjóðina annað
hvort til fylgis við nasista,
ellegar til fljótræðis ofstopa
gegn Þjóðverjum, þegar hinir
dönsku sjálfboðaliðar komu til
Hafnar, þá mættu þeir hinum
mesta kulda. Enda kom það þá
á daginn, að margir þeirra voru
„kunningjar“ lögreglunnar,
glæpamenn af ýmsu tagi.
Þetta heimsnúna lið var svo
dubbað upp í illræðismanna
flokk, til að starfa i þjónustu
Þjóðverja f Danmörku. Er nafn-
ið tekið upp eftir einum liðs-
foringja, Schalburg, sem fjell
á Rússlandsvígslöðvunum og
átti að verða einskonar dansk-
ur „Horst Wessel“. Flokki þess
um hafa Þjóðverjar sigað út í
mörg og margskonar ódæðis-
verk.
Þefarar rjettdræpir.
Um „útrýming" þefara sagði
Svart m. a.:
Þegar þefari er líflátinn í Dan
mörku, þá er það ekki gert í
hefndarskyni, heldur sem nauð
vörn. í dönskum lögum eru
ákvæði um slíkt.
Sje það sannað á mann, að
hann hafi vísað þýsku lögregl-
unni á danskan ætljarðarvin, og
Daninn af þeim orsökum hafi
verið tekinn höndum, komist
í lífshættu eða verið líflátinn,
þá er hinn brollegi Dani meðal
ættjarðarvina talinn rjett-
dræpur. Og hann er líflátinn
hvar sem vera skal, t. d. aki
hann á reiðhjóli eftir alfara-
vegi, getur einhver, sem það
verk á að vinna, ekið á hjóli
sínu til hans og skotið hann
með skammbyssu*
Komið hefir til orða, að dansk
ir ættjarðarvinir tækju gisla.
En horfið er frá því, vegna þess
að slík aðferð samræmist ekki
norrænni rjeltlætiskend.
Danska frelsisráðið er í ná-
inni samvinnu við bandamenn.
Kemur það oft í Ijós, eins og
t.d. við árásina á byggingar Ar-
ósa háskóla, er 24 Moskilo-
flugvjelar eyddu aðalstöðvum
Gestapo á Jótlandi. Þar fórust
450 nasistar, og nokkrir Danir,
einkum nasislai', og skjalasafn
þeirra eyðilagðist. Varð þetla
ættjarðarvinum mikill Ijettir.
Anker Svarl skýrði frá fyr-
irællunum Frelsisráðsins þeg-
ar hernáminu ljelti af. Hefir
allítarlega stefnuskrá vbrið
birt í leyniblöðunum. Þar er
fylgl þeirri meginslefnu, að end
urreisa fult lýðræði í landinu,
og halda uppi dönskum lögum
og rjettarfari undir eins og
ráðrúm er lil þess.
Til úfsvarsgreiðenda
RJETT þykir að vekja at-
hygli útsvarsgiæiðenda á aug-
lýsingu borgarstjóraskrifstof-
unnar urp greiðslu útsvara nú
fyrir áramötin, sem birt er um
þessar mundir í blöðum og út-
varpi.
Eins og kunnugt er, var num
in úr gildi fyrir þrem árum
sú regla, að draga skatta og
úlsvör, sem gjaldandi hefði
greitt á árinu, frá skattskyld-
um tekjum hans, áður en tekju
skattur var ákvarðaður.
Niðurjöfnunarnefndin hefir
fylgt sömu reglu við álagningu
útsvara síðan. Samkvæmt ein-
róma samþykt bæjarráðs mun
niðurjöfnunarnefndin hinsveg-
ar taka fult tillit til þess, við
ákvörðun útsvara á næsta ári,
hvort gjaldandi skuldar bæj-
arsjóði útsvar eða ekki.
Má telja líklegt að niður-
jöfnunarnefnd hagi álagning-
arreglum sínum þannig, að
vangreiddum útsvörum verði
bætt við útsvarsslcyldar tekjur
gjaldandans, áður en útsvar
hans verður ákvai'ðað og er
það í samræmi við þá reglu
sem áður gilti, er útsvar og
skattar voru því aðeins dregin
frá skattskyldum tekjum, að
gjöldin voru greidd fyrir ára-
mót næst á undan skattlagn-
ingunni.
Er vafalaust heimilt að taka
upp slíkar álagningarreglur
um útsvör, enda þótt reglan sje
úr gildi numin,'að því er tekur
til tekjuskattsálagningar. Þeir
bæjarbúar, sem enn skulda út-
svör sín árið 1944, og þá ekki
síður þeir, sem kunna að skulda
eldri útsvör, ættu að gefa að-
vörun borgarsljóraskrifstofunn
ar gaum og greiða skuldir sín-
ar fyrir áramótin.
Þó má geta þess, að fram-
angreind álagningarregla verð
ur ekki látin gilda um þá gjald
endur, sem greiða útsvör sín
reglulega af kaupi, skv. sam-
komulagi við innheimtuskrif-
stofu bæjargjaldanna, en það
eru einkum fastir starfsmenn
fyrirtækja, og standa kaupgreið
enduy skil á útsvarsgreiðslum
þeirra.
Þessir gjaldendur,' nálega
þriðjungur allra útsvarsgjald-
enda bæjarins, þurfa ekkert að
óttast, þó að þeir eigi nú vel-
flestir eftir að greiða tvær af-
borganir af útsvarinu 1944,
enda verður hin nýja álagning-
arregla tekin upp í því skyni
eingöngu, að koma í veg fyrir
vanskil á útsvörum.
Ný Ijóðabók Guð-
mundar Böðvars-
sonar
Komin er út ný Ijóðabók
eftir Guðmund Böðvarsson. —
Hún nefnist Undir óttunnar
himni, og er gefin út af Heims-
kringlu. — Guðmundur Böð-
varsson er löngu orðinn kunn-
ur fyrir ljóð sín, og hafa fyrri
bækur hans selst mjög vel og
líkað ágællega.
í þessari bók eru 21 kvæði,
mörg þeirra mjög falleg, eins
og t. d. fyrsta kvæðið, í vor.
Kemur greinilega fram í kvæð
unum ást bóndans til slarfs
síris óg1 ’úmhverfiB.
Minningarorð
Þorsieinn
ísieiksson
Röddin er þögnuð, starfinu
er lokið, en minningin lifir um
dáðríkan mann.
Þorsteinn ísleiksson var fædd
ur að Núpakoti undir Eyjafjöll-
um, 13. október 1849. í dag verð
ur hann jarðsunginn að sókn-
arkirkju sinni, að Krossi 1 Land
eyjum.
Þorsteinn var óvenjulegur
maður, fyrir geðprýði sína og
glaðværð. Hann fann altaf til
með öðrum og kunni að hafa
áhrif á meðbræður sína með
glaðværð sinni og þroska. Hann
vissi ætíð, að þroski mannsins
er undir því korhinn að geta
skilið og fundið til með öðrum.
Skilgóður maður, sem jeg
mat mikils, hefir sagt mjer, að
í honum hafi hann fundið best-
an lífsförunaul. Þorsteinn var
óvenjulegur maður, hann skrif-
aði óvenjulega fagra rithönd,
sem bar vissulegu vilni um gott
hjarlalag. Hann var gæfumað-
ur. Hann eignaðist ágæta konu
og börn, sem gáfu ríkulegan
ávöxt. Að slíkum manni er mik
il eflirsjá. En aldurinn var orð-
inn óvenjulegur, því syrgjum
við hann ekki, heldur unnum
honum hvíldai'. Hvíldin var vel
þegin og guð hefir gefið hon-
um góða heimför. Við skiljum
oft lítt meðbræður okkar og
metum þá ver en skildi. En eitt
er víst, að hann, sem- við nú
kveðjum, honum var Ijóst, að
guðseðlið í hverjum manni er
fagnaðarerindið til hinna guð-
hræddu jarðarbúa.
Við kveðjum þig með lofn-
ingu fyrir honum, sem gaf þjer
lífið. Steindór Gunnlaugsson,
Fleiri Gyðingar
handteknir
London: Enn hafa verið hand
teknir í Gyðingalandi 12 of-
beldismenn, hermir fregn frá
Jerúsalem. Voi'u menn þessir,
sem grunaðir eru um að vera
meðlimir óaldarflokka, hand-
samaðir í borgunum Haifa og
Tel Aviv.
Vestur-
vígstöðvarnar
Framh, af bls.
Siegfriedvirkjunum á fram
sveitir Pattons um þessar
slóðir. — Sunnar hefir 7.
hernum tekist að færa sig’
nokkuð nær Rín, en Þjóð-
verjar skjóta á þær sveitir
úr Maginotvirkjunum. Suð-
ur við Colmar er viðnám
Þjóðverja mjög öflugt, svo
hart, að Frakkar hafa orðið
að láta talsvert undan síga,
Sparaður fiugher.
Flugmálasjerfræðingar
líta svo á, að loftárásir Þjóð
verja hafi verið svo öflugar,
sem raun ber vitni um,
vegna þess að þeir hafi að
undanförnu sparað sprengju
flugflota sinn mjög mikið,
beitt honum svo að segja
ekkert. Þá hafi þeir nú feng-
ið nýjar orustuflugvjelateg-
undir, ýmsar þjettiloftsknún
ar og ákaflega hraðskreiðar.