Morgunblaðið - 21.12.1944, Síða 1
flr T ^ <»
umMapt
16 síður
31. árgang'ur.
262. tbl. — Fimtudag'ur 21. desember 1944.
Isafoldarprentsmiðja h.f.
JÞöffn og þoka yiir VesturvígstöSvunum
EN BRESKIR ÞINGMENN TELJA
ÁSTANDIÐ HIÐ ÍSKYGGILEGASTA
Elasmenn taka aðaSstöð
breska flughersin
§
Scobie setur skærulið-
um úrslitakosti
Stjórnar sókn
Þjóðverja
London í gærkveldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins
frá Reuter.
HJÁLP SÚ, sem Bretar
hugðust senda til aðalstöðva
flughers síns í námd við
Aþenu, kom of seint, og
auðnaðist hjálparliðinu, sem
fór með skriðdrekunum, að-
eins að bjarga úr höndum
Elas manna fáeinum mönn-
um af þeim 320, sem voru
í stöðvum þessum. Hinir
voru annað hvort feldir eða
handteknir, og stöðin
sprengd í loft upp. — í dag
síðdegis setti Scobie, hers-
höfðingi Breta í Grikklandi,
Elas-mönnum úrslitakosti
og kvað allsherjarsókn
verða hafna gegn þeim á
morgun f. h., ef þeir hefðu
ekki gefist upp fyrir þann
tíma.
I dag síðdegis dreifðu bresk-
ar flugvjelar flugmiðum yfir
Aþenuborg, þar sem svo var
á kveðið, að óbreyttum borg-
urum bæri að hafa sig á brott
frá fallbyssustöðvum Elas-
manna, þar sem árás yrði haf-
in á þær á morgun, bæði af
flugvjelum, stórskolaliði og fót
gönguliöi, og eigi linnt, fyrr
en fallbyssur þessar væru eyði
lagðar með öllu. — Þýskar
fregnir herma, að búlgarskar
hersveitir Wafi gengið í lið með
Elas mönnum, en breskar fregn
ir segja, að hægra sje nú alt
um uppskipún hergagna úr skip
um bandamanna í Piræus.
Framh. á 2. siðu.
Sókn Þjóðverja heldur áfram
en er hægari sumstaðar
London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgun-
blaðsins frá Reuter.
ÞOKA GRÚFÐI YFIR Vesturvígstöðvunum í dag. og
þoka var yfir öllum frjettum, sem þaðan bárust. Þó kom
ýmislegt fram víðsvegar að, sem gefið gat til kynna,
hvernig ástandið væri þar. Þannig sagði Arthur Green-
wood. forvígismaður breskra jafnaðarmanna á þingi, að
jafnaðarmenn vildu ekki gera neitt vantraustsatriði úr
Grikklandsmálunum á þingi, vegna þess hve ískyggilegt
ástandið á Vesturvígstöðvunum væri. — Borist hafa
fregnir um það, að Þjóðverjar flytji í ákafa liðsauka til
vígstöðvanna, og einnig um hitt, að mótspyrna Banda-
ríkjamanna fari harðnandi. Þó er sami þunginn og áður
í sókn Þjóðverja, en engir staðir eru nefndir, sem barist
hefir verið um í dag.
_______________________ Sóknin á mánudaginn.
Nú er það ljóst orðið, að
á mánudaginn var voru
Þjóðverjar kömnir hálfa
leið frá landamærum Belgíu
til hinnar miklu iðnaðarborg
Berklarannsékn á öllum Beyk
víkingum á næsta ári
BÆJARRÁÐ hefir samþykt að bæjarsjóður taki þátt í kosln-
aði við allsherjar berklarannsókn á íbúum Reykjavíkur, sem
fyrirhuguð er á næsta ári. Er hjer um að ræða hið mesta
nauðsynjamál, sem lengi mun hafa verið í undirbúningi.
Sigurður Sigurðsson berkla-
yfirlæknir skrifaði bæjarráði
þann 14. nóvember varðandi
þátttöku bæjarsjóðs í þessari
rannsókn og var málið tekið
fyrir á fundi bæjarráðs þann 15.
þ. m. Bæjarráð samþykti að
veita fje í þessu skyni, en fól
borgarstjóra afgreiðslu málsins
að öðru leyti fyrir hönd bæjar-
ins.
Nákvæmur undirbúningur.
Berklavarnayfirvöldin munu
hafa haft það í undirbúning
alllengi, að láta berklaskoða
alla bæjarbúa. Er talið, að ekki
fari hjá því í jafn stórum bæ
og' Reykjavík er, að ný sjúk-
dómstilfelli komi í dagsins ljós
við skoðunina. En vegna þess,
hve þröngt hefir verið á berkla
hælunum hefir ekki verið unt,
að taka við fleiri sjúklingum.
Viðbót við Vífilstaðahæli.
í sumar hefir því verið reist
nýtt sjúkrahús hjá Vífilstöðum
með rúmum fyrir um 70 sjúk-
linga. Um áramót tekur vinnu-
hæli S. I. B. S. til starfa og
munu þá losna allmörg rúm á
Vífilsstöðum.
Mjög þýðingarmikið mál.
Þessi væntanlega berklarann
sókn á bæjarbúum er hið þýð-
ingarmesta heilbrigðismál, sem
ráðist hefir verið í langa lengi
hjer í bænum.
Frá frjettariturum hlutlausra
þjóða í Berlín berast fregnir, að
Hitler liafi sjálfur skipulagt gagn
sókn Þjóðverja á Vesturvígstöðv
unum, en falið síðan Von Rund-
stedt marskálki, sem hjer sjest á
myndinni að ofan, að fram-
kvæma hana samkvæmt eigin
vilja og getu.
Síðustu frjettir
London: í nótt kl. 2 bárust
fregnir um það, að Þjóðverjar
sæktu stöðugt fram. Þeir eru
taldir beita 200.000 manna her
í sókninni, þar af 6 skriðdreka-
herfylkjum. Bandaríkjamenn
verjast vasklega og hefir sums-
staðar tekist að stöðva Þjóð-
verja. Ógurlegar orustur, þær
hörðustu, sem háðar hafa verið
!á Vesturvígstöðvunum, geysa.
Þoka er enn þykk yfir öllu víg-
svæðinu.
Bandaríkjamenn
sækja frara á
Filipseyjmn
London í gærkveldi.
Mótspyrna Japana á Mindoro
ey, Filipseyjum er þvínær eng-
in, enn sem komið er, og á
Leyte hafa þeir tekið aðalbæki
stöð Japana. Virðist svo, sem
Japanar muni frekar leggja á-
herslu á það, að verjast land-
göngu á öðrum eyjum, en ætli
að hætta vörn þessara tveggja
eyja. — Amerískar flugvjelar
hafa skotið niður margar flug-
vjelar fyrir Japönum.
— Reuter.
Fyrirætlanir um
aukninou vatns-
veitunnar
Á SÍÐASTA bæjarráðsfundi
var samþykt að fela Helga Sig-
urðssyni, forstjóra vatnsveit-
unnar, að ljúka áætlunum um
aukningu hennar svo fljótt,
sem við verður komið og honum
^heimilað að ráða verkfræðing
, til aðstoðar eftir þörfum og eft
ir því, sem föng eru á.
Morgunblaðið ' hefir snúið
sjer til Helga Sigurðssonar og
.spurt hann um, hvað liði
framkvæmdum í þessum efn-
Jum. Sagði Helgi að málið væri
til athugunar og yrði hafist
handa svo fljótt sem auðið
(
væri, en ekki hefði hann enn
ráðið vei'kfræðing' í þessu
skyni.
ar Liege, sem talið var í gær,
að fólk væri farið að flýja
úr. Einnig er nú staðfest, að
þeir voru komnir inn í Lux-
emburg, svo langt,. að þeir
voru^aðeins 25 km. frá höf-
uðborg fylkisins, Luxem-
burg. — Nú virði.st hraðinn
í sókninni vera heldur
minni, enda hafa banda-
menn teflt fram miklu vara
liði. Þjóðverjar segjast víð-
ast hvar hafa sigrast á þess-
um herflokkum, jafnskjótt
og þeir komu fram á sjón-
arsviðið, og vitað er, að enn
eiga allfjölmennir herflokk
ar bandamanna í bardögum
við Þjóðverja, að baki
fremstu víglínu manna von
Rundstedts, sem sagt er að
Hitler hafi nú gefið frjálsar
hendur til að stýra sókn þess
ari eftir eigin geðþótta.
Þokan hindrar flugherinn.
Þjóðverjum er mikill hag
ur að þokunni, sem hefir í
allan dag verið svört og
þykk á bardagasvæðinu.
Hafa bandamenn ekki get-
að beitt flugher sínum neitt.
Þjóðverjar halda uppi mik-
illi skothríð á stöðvar Breta
og Kanadamanna í Hollandi
og einnig á Aachenvígstöðv
unum. og telja sumir frjetta
ritarar þetta benda til þess,
að þeir muni máske einnig
láta til skarar skríða með
gagnsókn þar líka
Framh. á 2. síðu