Morgunblaðið - 23.12.1944, Blaðsíða 11
Laugardag'inn 23. des. 1944.
MORGUNBLAÐIÐ
11
Fjelagslíf
GUÐSPEKISFJELAGH)
' Samkoma í húsi fjelagsins
annað kvöld, aðfangadags-
kvöld kl. 11.
Stntt erindi. Hljómlist.
Kaup-Sala
SMOKING
til- sölu á háan mann á Njáls-
götu 55.
LÍTI® BÝLI
eða hxis með stórri lóð i ná-
grenni við Reykjavík óskast
keyt í vor. Tilboð sendist Mbl.
fyrir áramót merkt
. „Lítið býli.
SÓFI
og tveir djúpir stólar, glæsi-
legt sett, ónotað til sölu,
Lágt verð.
II úsgagnaverslunin Baidurs-
götu 9.
NÝ HRÆRIVJEL
til sölu. Tilboð s'endist Mbl.
merkt „Hamilton Beach“.
LEIKFÖNG
af öli um fáanlegum gerðum,
handa börnum á öllum aldri.
Búðin, Bergstaðastræti 10.
ÞJÓÐHÁTÍÐAR
ÖSKUBAKKINN
er ágæt jólagjöf. Fæst hjá
Geir Konráðssyni og í Tó-
baksverslunum.
NOTUÐ HÚSGÖGN
keypt ávalt hæsta verði. —
Sótt heim. — Staðgreiðsla. —
Sími 5691. — Fornverslunin
Gretíisgötu 45.
KAUPUM GÓLFTEPPI
ÚTVARPSTÆKI
og önnur vel með farin hús-
gögn.
Söluskálinn,
Klappastíg 11, Sími 5605.
HÁRLITUR
fleiri litir, nýkominn. Versl.
Reynimelur, Bræðraborgarst.
Vinna
HREIN GERNIN G AR
Pantið í tíma. Sími 5571. —
Guðni.
HREINGERNINGAR
húsamálning, settar í rúður.
öskar & Öli. — Sími 4129.
Tapað
ARMBANDSÚR
tapaðist á götu í gær. Skilist
til afgr. Morgunblaðsins.
GYLT BRJÓSTNÁL
hefir tapast. Skilist á Skóla-,
vörðustíg 11A, sími 3345.
KARLMANNSVESKI
með peningum, nótum og vega
brjefi, tapaðist í fýrradag eða
kvöklið áð^r. Vinsamlegast
skilist til lögreglunnar.
Fundið
BRJEFPOKI
með ýmsiun vörum hefir ver-
ið skilinn eftir lijá
Hafliða Baldvmssyni.
— Þorsteinn sýslumaður
Framh. af bls. 5.
jeg út kvíarnar og hefi nú lengi
tímarit og ljóðmæli. Síðan færði
nerslu á sagnfræðina, íslensk
safnað öllum flokkum eða
greinum íslenskra bóka. En á
tiltölulega lítið af þýðingum.
Hefi jeg gengið fram hjá þeim.
— Hvaða bókaflokkar eru
fullkomnastir í safni þínu?
— Miðað við söfn annara
hygg jeg, að hjá mjer sje til-
tÖlulega best safn guðsorða-
bóka. Jeg á t. d. nær allar út-
gáfur af verkum Hallgríms
Pjeturssonar. Mig vantar víst
3 útgáfur af rúmlega 60, og eru
þá taldar þýðingarnar á latínu,
kínversku, dönsku og ensku.
Utfarar- og æfiminningasafn
mitt er allsæmilegt, eftir því
sem um er að gera, og mun
ekki annarsstaðar meira vera.
— Jeg hefi heyrt, að þú ætt-
ir rímnasafn gott.
— Já, jeg á flestar prentaðar
íslenskar rímur, en Hrappseyj-
arútgáfu af Ulfarsrímum á jeg
ekki alveg heila og hefi orðið
að iáta ljósprenta nokkur blöð
ií hana.
— Mikið kapp er í ykkur
bókasöfnurum að hafa sem full
komnast safn íslenskra bóka.
— Já. Nokkuð gætir þar metn
aðar, að vera ekki lakar sett-
ur en aðrir, sem við þetta fást.
'Verðmæti safnsins eða hvers
bókaflokks er líka mun meira,
ef sem minst vantar sjald-
gæfra bóka.
Annars yakir það sama fyrir
mjer enn í dag með bókasöfn-
uninni, eins og þegar jeg var í
skóla, að afla sjálfum mjer sem
'mestra gagna í þeim fræðum,
sem jeg ann. Þetta er mjer ekki
síður áhugamál nú, þegar liðið
er á dag og lækkar sól. Hing-
að t.il hefi jeg haft mjög tak-
markaðan og slitróttan tíma til
þess að fást við sagnfræðileg
störf. En þegar árin færast yf-
ir og annríkið fer að minka,
hugsa jeg gott til þess að geta
notið bókanna við athuganir
mínar og grúsk um söguleg
efni.
Jeg veit, að þú munir kann-
ast við, hvernig það er, að koma
inn i bókasafn, þar sem vegg-
irnir eru þaktir bókum. Frá
slíkum veggjum andar til
manns þöglri vináttu, ep hægt
að velja eftir geðblæ eða áhuga
máli þá og þá stundina, hver
bókin er tekin í það og það
sinn til fróðleiks eða skemt-
unar.
Jeg spurði Þorstein, hvort
hann hefði gert skrá yfir safn
sitt.
Hann sagðist aldrei hafa haft
tíma til þess .að ganga frá slíku
verki. En hann hefir bókaskrá
Fiskesafnsins. Úr því hann á
hátt upp í það eins mikið og
þar er, í sumum greinum. Gæti
hann látið sjer nægja að merkja
við þær bækur í bókaskrá
Halldórs Hermannssonar yfir
Fiskesafn, sem ekki eru í bóka
safni hans sjálfs í Búðardal, og
notað síðan hina vönduðu skrá
Halldórs fyrir sitt safn. En
það vorp ekki bans orð. Mjer
datt það í hug á eftir.
Jeg spurði Þorstein að því,
áður- en við skildum, hvort hon
um dytti ekki í hug að hverfa
úr Dalasýslu, eftir meira en
aldarfjórðungs þarveru.
— Að visu er staðurinn nokk
uð afskektur, segir Þorsteinn.
En jeg er orðinn svo gróinn í
hjeraðinu, að jeg á erfitt með
að hreyfa mig þaðan. Kann líka
altaf betur við mig í sveit en
kaupstað.
Mesta áhyggjuefni mitt nú,
viðvíkjandi framtíð hjeraðsins,
er það, hvernig takast má að
auka þar jarðrækt í stórum
stíl og tryggja með því, ásamt
bættum mörkuðum fyrir ílfurð
irnar, afkomu hjeraðsbúa.
★
Þá var samtalinu lokið. Nema
hvað þessi sextugi skólabróðir
minn mintist á, að jeg ætti við
tækifæri að bregða mjer í heim
sókn til hans.
Þorsteinn og' hans ágæta frú,
Aslaug Lárusdóttir, eru svo
gestrisin og alúðleg heim að
sækja, sem frekast verður á
kosið.
En jeg benti Þorsteini á það
að lokum. að ef jeg kæmi ein-
hvern tíma vestur eftir til hans,
og fengi aðgang að eldtryggu
bókasafni hans. væri óvíst
hvort jeg fengist til að hreyfa
mig þaðan fyrsta sprettinn.
V. St.
358. dagur ársins.
Þorláksmessa.
Haustvertíðarlok.
10. vika vetrar.
Árdegisflæði kl. 11.30.
Síðdegisflæði kl. 17.55.
Næturlæknir er í læknavarð-
stofunni, sími 5030.
Næturvörður er í Ingólfs Apó-
teki.
Næturakstur annast Bá. Aðal-
stöðin, sími 1383.
Ljósatími ökutækja frá kl.
14.50 til kl. 9.50.
Morgunblaðið mun koma held-
ur í seinna lagi til kaupenda í
fyrramálið, aðfangadag, en venja
er til.
Hafnarfjarðarkirkja. Aðfanga-
dagskvöld: Aftansöngur kl. 6 síð-
degis. — Sr. Garðar Þorsteinss.
Fimtugur er í dag Sveinn Þor-
kelsson, kaupmaður, Sólvalla-
götu 9.
Hjúskapur. f dag verða gefin
saman í hjónaband af síra Sig-
urbirni Einarssyni Guðríður
Steindórsdóttir og Steinþór Ei-
ríksson. — Heimili þeirra er á
Þormóðsstöðum.
Peningagjafir til Vetrarhjálp-
arinnar: Starfsf. Heildv. Garðars
Gíslasonar kr. 120,00, Óli J. Óla-
son kr. 100,00, starfsf. Landssím-
ans og Póstmálaskrifstofunnar
kr. 430,00, G. Helgason & Mel-
sted h.f. kr. 200,00, starfsf. hjá G.
Hel^áson & Melsted h.f. kr. 75,00
Verslunin París kr. 100,00, H. Ól-
afsson & Bernhöft, kr. 500,OQj S.
B. kr. 25,00, starfsf. á skrifstofu
Vegamálastjóra kr. 145,00, starfs
fólk í Landsbanka íslands krónur
425,00, starfsf. hjá Litlir & Lökk
h.f. kr. 95,00, starfsf. á Tollstjóra
skrifstofunni kr. 150,00, starfsf.
Belgjagerðarinnar h.f. kr. 250,00,
Kristján Siggeirsson kr. 500,00.
— Kærar þakkir. — F.h. Vetrar-
hjálparinnar í Reykjavík.
Stefán A. Pálsson.
ÚTVARPIÐ í DAG:-
20.00 Frjettir.
20.20 Jólakveðjur.
Tónleikar (af plötum).
Danslög (til kl. 1 e. miðn.).
Straujárnin komin
Raftækjaverslunin
GLOÐIN
Skólavörðustíg: 10. Sími 5740.
Konan xnín,
JÓSEFÍNA LÁRUSDÓTTIR
andaðist í nótt eftir langa vanheilsu.
Jarðarförin fer fram frá Dómkirkjunni föstu-
daginn 29. þ. m. og hefst kl. 1,15 e. h. með húskveðju
á heimili dóttur okkar og tengdasonar, Ránargötu 20.
Jarðað verður í gamla kirkjugarðinum.
Reykjavík, 22. desember 1944.
Jóh. Jóhannesson, fyrv. bæjarfógeti.
. Það tilkynnist vinum og vandamönnum að
ODDUR JÓNSSON
frá Mýrartungu
andaðist á Vífilsstöðum 13. des. Lík hans verður flutt
vestur til greftrunar að Reykhólum. Kveðjuathöfu
fer fram við líkhús Landspítalans miðvikudaginn 27.
des. (þriðja í ^ólum) kl. 3 e. h.
Fyrir hönd f jarstadds .föðurs
Ámi Óla.
Það tilkynnist hjer með, að konan mín,
DÓMHILDUR GUÐMUNDSOÓTTIR
andaðist að heimili okkar, Kirkjuveg 29. Keflavík
þann 21. þ. m.
Guðmundur Pjetursson.
Móðlr okkar og* tengdamóðir,
MARGRJET GOTTSKÁLKSDÓTTIR
andaðist að heimili sínu, Óðinsgötu 14 A, aðfaranótt
22. þ. m.
Guðrún Benediktsdóttir. Guðmundur Benediktsson.
Jóh. Reyndal. Þórdís Vigfúsdóttir.
Móðir okkar,
HELGA EIRÍKSDÓTTIR frá Stekk
andaðist 21. þ. m. í Sjúkrahúsi Hafnarf jarðar.
Fyrir hönd okkar systkinanna
Jón Sigurðsson.
Faðir okkar og tengdafaðir,
MAGNÚS EINARSSON
frá Seli, andaðist í gær að heimili sínu Framnesvegi 14.
Böm og tengdaböm.
Jarðarför mannsins míns, föðnr okkar og tengda-
föður,
JÓHANNESAR JÓNSSONAR, trjesmiðs
fer fram frá Dómkirkjunni fimtudaginn 28. des.
Athöfnin hefst frá heimili hins látna. Njálsgötu
58 kl. 1 e. hád.
Kristín Jónsdóttir, böm og tengdaböm.
Þökkum innilega sýnda samúð við andlát og
jarðarför eiginkonu minnar,
KATRÍNAR EIRÍKSDÓTTUR.
Jóhannes Bjamason og vandamenn.
Innilegt þakklæti til allra þeirra, er sýndu okkur
samúð og hluttekningu við andlát og jarðarför tengda-
föður míns og afa,
ODDS HELGASONAR
frá Hlíðarhúsum.
Jóhanna Friðriksdóttir og Böm.