Morgunblaðið - 12.09.1945, Síða 2

Morgunblaðið - 12.09.1945, Síða 2
MORGDNBLAÐIÐ JVTiSvikudagur. 12. sept. 1945, íslensku systurnar, sem voru í verstu loftdrdsunum d Leipzig MEÐAL farþega með e.s. Lagarfossi frá Norðurlöndum á dögunum, voru systurnar Þór- ey og Arndís, dætur Hannesar heitins Stephensen á Bíldudal. Þær systur hafa um langt skeið dvalist í Þýskalandi, Arn- dís fór þangað árið 1937, en Þórey 1938. Fóru þær báðar til frænku sinnar Salóme Þorleifs- dóttur Nagel, sem ásamt manni sínum veitir forstöðu tungu- málaskóla í Leipzig. Þórey út- ski'ifaðist úr Verslunarskólan- um árið 1938 og sigldi til frek- ara náms í þýsku, en Arndís hafði stundað nám við Kvenna- skólann hjer og fór út í sama tilgangi. Tíðindamaður Morgunblaðs- ins náði tali af þeim systrum, skömmu eftir heimkomuna og spurði frjetta. — Hvernig tók þýska þjóðin stríðsyfirlýsíngunni? — Það sló miklum óhug á þjóðina. Við skólann, sem við vorum í, voru bæði nemendur og kennarar af ýmsum þjóðern- um, en þeir voru látnir afskifta lausir.. Þurftu í hæsta lagi af gefa sig fram við lögregluna við og við. Við systurnar gátum farið allra okkar ferða, þótt við værum útlendingar. Fyrsta stórárásin á Leipzig. — Setti ófriðurinn strax mik inn svip á borgina? — Nei, maður varð eiginlega ekkert var við stríðið, nema hvað myrkvunin var hvimleið. Fyrsta stór loftárásin var gerð á Leipzig þann 4. desember ’43. Þá var jeg ekkj stödd í borg- inni — skýtur Arndís inn í. Árásinni var beint að því hverfi, sem jeg bjó í, segir Þór- ey. Þar voru engin loftvarna- byrgi, ekkert öruggt skjól að leita í. Til að byrja með vorum við nú reyndar ekki ^trúuð á, að um loftárás væri að ræða, því að komið hafði fyrir, að loft árásarmerki væru gefin án þess að til árásar kæmi. Það var um nótt, þegar fyrstu sprengjurnar tóku að falla. Ein sprengjan f jell á húsið okkar. braut stykki úr þakinu, fór inn um vegg á næsta húsi og sprakk þar. í húsinu okkar brotnuðu allar hurðir og rúður sprungu. Árás- in stóð yfir í ca. 20 mínútur og jeg á engin orð sem fá lýst þeim ósköpum, er gengu á, segir Þór- ey. Þegar árásinni var lokið, var ekki gefið neitt merki, því að allar loftvarnaflautur höfðu skemmst. Við reyndum nú eftir mætti að slökkva eldinn, sem kviknað hafði, en það gekk illa og þarna missti jeg allar eigur mínar, nema hvað jeg átti dá- litið af fötum í tösku niðri í kjallara. í þessu húsi var einn- ig íbúð frænku minnar og skól- inn sjálfur. Þetta var annars heimavistarskóli og starfrækt- ur í nokkrum húsum. — Hvernig var að öðru leyti umhorfs í hverfinu eftir árás- ina? Kvenna-slökkvilið, — Það var óhugnanleg sjón, sem'blasti við mánni, þegar út Frásögn Arndísar og Þóreyjar Hannesdætra steypti sjer niður að brautun- um og skaut á farartækin. Mátti oft heyra sprengingarnar og oft sáum við biíreiðar standa í björtu báli á vegunum. Systurnar Arndís og Þórey Hannesdætur, sem voru í Leipzig í mestu loftárásunum. var komið. Stórir hlutar íbúðar og verslunarhverfanna stóðu 1 björtu báli. Slökkviliðið var nær eingöngu skipað konum, en þeir karlmenn, sem í borg- inni voru unnu í ruðningssveit- um öðru hvoru. — Hvað var gert til að bæta fólki tjón sitt? — Eftir loftárásir, fengu all- ir, sem misst höfðu eigur sín- ar, einhverja uppbót hjá skrif- stofum, er stofnsettar voru í þeim tilgangi að bæta úr sár- ustu neyðinni. Þar fekk jeg til dæmis skömmtunarseðil fyrir fataefni og eitthvað af pening- um. — Urðuð þið varar við and- nasistiskan áróður? Systurnar halda því fram, að pólitík hafi aldrei verið þeirra sterka hlið, en segja þó. Fjöldi manna vissi, að við vorum ekki nasistar og flestir þeirra, sem við þekktum voru það heldur ekki. — Voru svo loftárásir nokk- urn veginn stöðugar frá því í desember 1943? — Fram að 20. febrúar var allt nokkurn veginn rólegt. Þó kunna að hafa verið gerðar einhverjar árásir, en þeim hefir þá verið beint að öðrum borg- arhlutum en þeim, er við vor- um í. En þennan dag og aðfara nótt hans, voru gerðar tvær stórárásir. Annari árásinni var beint að hverfi okkar, en hinni að verksmiðjuhverfi. í þessari árás brunnu enn tvö af húsum skólans til grunna og hús það, er við systur bjuggum í skemd- ist mikið af völdum elds. Það brann af því þakið og svo urðu eðlilega miklar skemmdir af vatni. í þetta sinn aðstoðuðu nokkrir karlmenn við slökkvi- starfið og hefur það sjálfsagt bjargað húsinu frá að brenna til grunna. Árásin stóð í eina klukkustund og við hjeldum okkur allan þann tíma niður í kjallara. Skólinn fluttur. — Var ekki farið að hugsa til þess að koma skólanum á óhultari stað? | — Jú. Eftir þessa árás var hann fluttur til Thuringerwald. Þangað fór jeg með skólanum, ■ segir Arndís, en Þórey varð 1 eftir í Leipzig. — Þjer hafið þá verið í Leip- zig, þegar járnbrautarstöðin var eyðilögð, Þórey? — Já, jeg var meira að segja stödd á stöðinni sjálíri, er árás in var gerð. Jeg var að leggja upp í ferðalag. Þetta var kl. 9 að morgni. Þegar jeg ætlaði að fara að stíga inn í vagninn, var loftvarnarmerki gefið. Þarna skammt frá var ágætt loftvarn- arbyrgi, en jeg leitaði ofan í kjallarann undir járnbrautar- stöðinni sjálfri. Þegar jeg kom þangað niður, hafa þar vafa- laust verið fyrir þúsundir manna. Þetta var sem sje ein stærsta járnbrautarstöð í Ev- rópu, ef ekki sú stærsta. Sprengja í Ioftvarnabyrgi. Kjallaranum undir stöðinni var skift niður í stóra sali, sem rúmuðu nokkur hundruð manns hver. Brátt fórum við að heyra sprengjurnar falla til jarðar og springa. Allt í einu var sem okkur væri bókstaflega sópað til. Sprengjur höfðu fall- ið niður um kjallaraloftið í næstu sölum og drepið eða lim- lest fólk svo þúsundum skifti. Jeg efast um, að enn sje búið að upplýsa hvað margir ljetu lífið i þessari árás. Ljósin höfðu öll slokknað, en við urðum þess vör, að hjúkr- unarlið og aðrir björgunarliðs- menn voru að störfum þarna inni. Atburðirnir gerðust i svo skjótri svipan, að það er næst- um ómögulegt að gera sjer grein fyrir fyrir því, eftir á, hvað raunverulega skeði. Jeg sat þarna í 45 mínútur. Allan tímann bjóst jeg við, að næsta sprengja fjelli niður í þann sal, sem við sátum í, en til þess kom ekki. Þegar árásinni var lokið, og fólkið ætlaði að fara að þyrpast út, höfðu útgöngu- dyrnar lokast, en tálmununum varð þó fljótlega rutt úr vegi. •— Það hefur líklega ekki ver ið mikið eftir af járnbrautar- stöðinni eftir öll þessi ósköp? ! — Stöðin sjálf eyðilagðist. -r- Þá tepptust allar járnbrautar- samgöngur í um það bil viku, en þá hafði tekist að gera við tein- ana til bráðabirgða. Allir þeir íbúar Leipzigborgar, sem því gátu við komið, reyndu eftir þetta að flytjast út í sveitina. Einnig voru margir sem dvöldu um nætur fyrir utan borgina. Þó var allt daglegt líf furðu fljótt að fá á sig venjulegt snið. Gjöreydd borg. — Hver var síðasta stórárás- in á Leipzig meðan þjer dvöld- uð þar? — Ef jeg man rjett, þá var síðasta árásin á okkar borgar- hluta gerð þann 27. febrúar að degi til. Þá urðu enn miklar skemmdir á síðasta skólahús- inu, sem uppi stóð, en neðsta hæð þess stendur þó enn. — Mátti nú segja, að varla væri orðið líft í þessari nær gjör- eyddu borg. Það var helst í út- hverfum Leipzig, að skemmd- irnar voru minni. Eftir þessa árás flutti jeg ásamt frænku minni til Thuringen, en eins og fyrr segir, fór systir mín þang- að, er skólinn fluttist. — Þið hafið þá fengið að vera í friði úti í sveitinni? — Já, fyrst um sinn. Við urð- um þó alltaf varar/við, þegar flugflotar bandamanna flugu þarna yfir. Síðustu dagar styrj- aldarinnar voru hryllilegir á þessum slóðum. — Flugvjelar bandamanna gerðu án afláts árásir á bílabrautirnar. — Til- sýndar sáum við hvar hver flugvjelin á fætur annari Bandaríkjamenn koma. — Hvenær urðuð þið fyrst varar við hersveitir Bandaríkja manna? — í miðjum apríl. Þá voru loftvarnaflautur látnar hvína í fimm mínútur, en það táknaði, að þetta væri vígsvæði. Nokk- urum stundum síðar heyrðum við þarna heima hjá okkur vjelaskrölt skriðdreka og ann- ara farartækja. Á þessum slóð- um hleyptu Bandaríkjamenn ekki einu einasta skoti af. —■ Kona, sem við þektum í bæn- um Eisenberg, sem er á stærð við Reykjavík og er þarna í ná- grenninu, sagði okkur svo frá, að enginn hefði vitað um ferðir Bandaríkjamanna fyrr en þeir voru komnir inn 1 miðjan bæinn og allt var á þeirra valdi. Þeir hleyptu af nokkrum skotum, en aðeins til viðvörunar. Nokkru síðar komu þeir að skólanum og rannsökuðu þar allt hátt og lágt í leit að vopn- um. — Hvernig fjell á með Þjóð- verjum og amerísku hermönn- unum? Eftir því, sem við gátum næst komist, fjell vel á með þeim, enda voru hermennirnir mjög prúðir í framkomu. Þar með var stríðinu lokið fyrir þeim systrum, Þóreyju og Arndísi. Þær komust með að- stoð sænska sendiherrans í Lú- beck til Hamborgar, en þaðait komust þær fyrir atbeina danska Rauða krossins til Dan- merkur. Inn yfir dansk-þýsku( landamærin óku þær þann 27. júní s.l. Sv. Þ. ! Nýtt veitingahús opnað á Hverfisgötu 116 1 GÆR var opnað hjer í bænum nýtt veitingahús á, Ilverfisgötu 116, í húsi Sveins Egilssonar bifreiðasala, þar sem norski herinn hafði áður veitingastofu. Ilefir því verið valið nafnið Þórscafé. Eigend- ur.þess eru hinir vel þektu veitingamenn, Ragnar Jóns- son, sem áður hafði veitinga- sölu í Golfskálanum ogBaldvin Guðmundsson, sem lengi var bryti á Gullfossi og síðar á Esju. j ar veitingar, lausamáltíðir, kaffi og smurt brauð. Þál * niuiiu þeir einnig ætla sjer aðf, 'ieigja húsnæðið til samkvæma, og fundarlialda. Sjerstök á- hersla verður lögð á vandað'i an mat og góða framreiðslu. Munu bæjarbúar almeimlj fagna opnun þessa nýja glæsis- lega veitingahúss, sem sannasti sagna er meði sýnu vistlegrjj •blæ en flestar aðrar stofnanit* af því tagi, sem almenningur! hefir átt kost að kvnnast h Sálarkynni eru þarna sjer- staklega vistleg, björt og rúm- góð. Aðalsalurinn er ea. 150 fermetrar og rúmar um 150 manns, en auk þéss er annar minni salur. — Þeir fjelagar hyggjast selja þnrna nbskon- Kvikmyndir þjóðnýttaí LONDON: Tjekkneska stjórn hefir skipað svo fyrir, að kvik- myndagerð þar 1 landi skult þjóðnýtt þegar í stað, og má| enginn hjer eftir gera kvik- mýndir, néma ríkið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.