Morgunblaðið - 19.10.1945, Síða 1
Göring fremstur striðsglæpamanna
I
i
I
Aímenningsálit í
Argentínu hallast á
sveif með Pérón
London í gærkvöldi. Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
SVO VIRÐIST, sem almenningsálitið í Argentínu sje nú að
hallást á sveif með Péron varaforseta, sem fyrir skömmu var
r.eyddur til að segja af sjer og settur í hald. — í gærkvöldi til-
kynti Farrel forseti nýja ríkisstjórn af svölum forsetahallarinnar
cg var þá Péron allt í einu þar kominn með honum og var fagnað
ákaflega, einkum af kvenþjóðinni.
í stjórnma voru teknir margir af stuðningsmönnum Pérons.
Uppþot og verkfall.
Fylgjendur Pérons, en meðal
þeirra er meiri hluti verka-
manna, lýstu yfir allsherjar-
verkfalli í Argentínu í dag í
mótmælaskyni við það, að hann
hefir verið í haldi. .Stöðvaðist
vegna þess öll umferð í landinu
og urðu miklir erfiðleikar af.
Verkfallsmenn fóru 1 miklar
hópgöngur um Buenos Ayres og
æptu á Péron.
í nótt sem leið urðu allmikil
uppþot í Buenos Ayres og fleiri
borgúm. Var sumstaðar beitt
vjelbyssum, en manntjón varð
ekki mikið. Voru þarna á ferð-
inni fylgjendur Pérons og and-
stæðingar hans, sem lenti víða
saman.
Ekkert hefir heyst um mann
þann, síðustu daga, sem tók við
embætti varaforseta af Péron.
Ógrynni demanta
finnast í Japan
Tokio í gærkvöldi.
BANDARÍKJAMENN hafa
fundið ógrynni af demöntum í
vörslum ríkisstofnunar nokk-
urrar í Tokio. Voru demantarn
ir geymdir í loftþjettum flösk-
um í kjallara stofnunarinnar.
Verðmæti þessara demanta
nemur samtals 7.500 þúsundum
sterlingspunda. — Ofangreind
stdfnun var sett á laggirnar
1943, og hafði hún það hlut-
verk með höndum að afla ým-
issa hráefna utan japanska rík-
isins.-Reuter.
Tito sakaður um
prestaofsókuir
London í gærkvöldi.
I DAG var lesin í útvarpi frá
Vatikaninu skýrsla frá biskupi
katólsku kirkjunnar í Júgó-
slavíu. I skýrslu þessari er Tito
marskálki borið það á brýn, að
hann hafi haldið uppi ofsókn-
um gegn prestum katólsku
kirkjunnar í Júgóslavíu. Hafi
hann látið setja fjölda presta í
íangelsi, en síðan hafi margir
þeirra verið líflátnir. — Reuter.
Kl íslendingar
sæmdir Fálka-
orðunni
FORSETI ÍSLANDS sæmdi
nýlega eftirgreinda menn hinni
íslensku fálkaörðu, samkvæmt
tillögu orðunefndar:
Geir Zöega, vegamálastjóra,
sem unnið hefir af miklum
dugnaði að bæta vegi iandsins
og samgöngukerfi þess, stjörnu
stórriddara hinnar *íslensku
fálkaorðu.
Ásgcir Sigurðsson, skipstjóra*
Sigurjón Á. Ólafsson, fyi-v. al-
þingismann, Friðrik V. Ólafs-
son, sem hafa unnið mikið starf
í þágu íslensku sjómannastjett-
arinnar og þjóðarinnar. Marin-
us E. Jessen, skólastjóra, sem
unnið hefir mikið starf í þágu
vjelstjórastjettar landsins. Frið
finn Guðjónsson, leikara, sem
um langan aldur hefir lagt veg-
legan skerf til íslenski'ar leik-
listar. P. L. Mogcnsen, lyfsala,
sem um mörg ár hefir verið í
þjónustu hins opinbera og hefir
ávalt kappkostað að auka vin-
áttu Dana og íslendinga. Áður-
nefndir menn voru sæmdir stór
riddarakrossi hinnar íslensku
fálkaorðu.
Þá hafa eftirgreindir menn
verið sæmdir riddarakrossi hinn
ar íslensku fálkaorðu:
Árni Einarsson, kaupm.
Benedikt Jónasson, verkfr.
Jón Árnason, prentara.
Hallgr. Jónsson, fv. skólastj.
Einar Thorlacius, fv. prófast.
Sigurður Gíslason, lögreglu-
þjónn.
Upphitunarbann
afnumið.
LONDON: Bannið við upphit
un húsa á Bretlandi og Norður-
írlandi hefir verið afnumið al-
gerlega. Kolaframleiðsla Breta
er að aukast.
Rjettarhöld yfir 24
nasistaforingjum hafin
London í gærkveldi. Einkaskeyti lil MbL
frá Reuter.
í MORGUN var í Berlín rjettur settur í máli 24 helstu for-
vígismanna nasismans og um leið helstu stríðsglæpamannanna
meðal þýsku þjóðarinnar. Alþjóðaherrjettur dæmir mál þeirra. I
rjettinum var lagt fram ákæruskjal, 30 þúsund orð, sem Bretar,
Frakkar, Bandaríkjamenn og Rússar hafa tekið saman. Mun
það vera stærsta ákjæruskáal, sem nokkurn tíma hefir verið
samið. Þar eru allir sakborningarnir ákærðir, bæði sameiginlega
og hver í sinu lagi.
Er ákæruskjalið hafði verið lagt fram, var sakborningum til-
kynt, að þeir yrðu að hafa undirbúið vörn sína innan 30 daga.
Verður þeim gefinn kostur á að fá sjer þýska verjendur. Rjettur
verður síðan settur í Núrnberg einhvern tíma í næsta mánuði,
og mun Lawrence, breskur dómari, hafa þar forsæti.
HERMANN GÖRING er talinn
fyrsti maður á lista stríðsglæpa
manna. Hitler hefði hlotið þann
sess, ef til hans hefði náðst.
Politísk morð
í Grikklandi
Aþena í gærkvöldi.
í OPINBERRI skýrslu, sem
hjer hefir verið birt, segir, að
tvær síðustu vikurnar í sept-
ember síðastliðnum hafi 43
menn verið myrtir af póiitísk-
um ástæðum. — Kommúnistar
eru taldir sekir um 6 þeirra,
þjóðernissinnar um 9, en glæpa
menn úr ýmsum flokkum um
28. — Reuter.
Engin ráðstefna
hinna þriggja stóru
í vændum
Washington í gærkvöldi.
Á BLAÐAMANNAFUNDI í
dag sagði Truman forseti, að
ekki hefði verið ráðgert, að hin
ir þrír stóru kæmu saman á
ráðstefnu til þess að lagfæra
þau mistök, sem urðu á utan-
ríkisráðherrafundinum í Lond-
on. — Forsetinn sagðist aðeins
hafa fengið eina orðsendingu
frá Stalin, eftir að fundurinn
var haldinn, og hefði þar ekk-
ert verið vikið að þessum
vandamálum.
Bretar taka borgina
Bandoeng á Java
London í gærkvöldi. Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
ÚTVARPIÐ í Hilversum skýrir frá því, að í dag hafi breskar
hersveitir verið að ná á sitt vald borginni Banoeng á Java, sem
er aðalmiðstöð þjóðernissinna. Útvarpsstöð þjóðernissinna þar
í borg heiir samt haldið áfram útsendingum í allan dag. — Ind-
verskar hersveitir eru á leiðinni til borgarinnar Semarang, þar
sem ofstækisfyllstu þjóðernissinnarnir hafast við. Ætla þær sjer
að ná henni á sitt vald.
Soekarno fús að semja.
Abdul Kadir ofursti, sem er
meðlimur í hollenska ráðuneyt
inu, sem fer með mál nýlendn-
anna í Austur-Indíum, segir,
að dr. Soekarno, foringi þjóð-
ernissinna á Java, sje reiðubú-
inn að semja við hollensk stjórn
völd. Kadir, sem sjálfur hefir
rætt við dr. Soekarno um þessi
mál, segir, að þjóðernissinnar
vilji komast að svipuðum samn
ingum við Hollendinga og Fil-
ipseyingar gerðu við Banda-
ríkjamenn. í viðræðum þessum
sagðist dr. Soekarno ekkert
ráða við hina ungu ofstæðis-
menn í hópi þjóðernissinna.
Vilja ekki hafa erlenda drottn-
ingu.
Dr. Hatt, annar leiðtogi þjóð-
ernissinnaa, flutti í dag ræðu
í útvarp. Komst hann meðal
annars svo að orði: „Við verð-
um að gera okkur það ljóst,
að sú sjálfstjórn, sem Hollend-
ingar munu bjóða okkur, er
engan veginn eftirsóknarverð.
Hvers vegna þurfum við að
beygja knje fyrir erlendri drotn
ingu? Við viljum ekki hafa
neina hollenska drottningu. —
t Javabúar vilja lýðræðisstjórn,
sem samræmist frelsishugsjón-
um þeirra, pólitískt og efnalegt
lýðveldi".
Ákæruskjalið.
Efni ákæruskjalsins var ekki
birt fyrr en í kvöld. Hefst það
á ákærum á hendur öllum sak-
borningunum sameiginlega. Eru
þeir ákæröir fyrir að hafa unn
ið að framgangi nasismans og
bera þannig óbeint ábyrgð á
stefnu þessari, sem setti sjer
að markmiði heimsyfirráð og
kynþáttaofsóknir. Stefnu, sem
leiddi til heimsstyrjaldar,
fjöldamorða af hálfu Þjóðverja
og pyntinga á miljónum manna.
Aðalákærurnar á hendur sak-
borningunum sameiginlega eru
í þrennu lagi: í fyrsta lagi eru
þeir sakaðir um að háfa, ásamt
öðrum, undirbúið árásarstríð
með samningsrofum og öðru of-
beldi. I öðru lagi um að hafa
framið striðsglæpi á tímabilinu
1. sept. 1939—8. maí 1945, bæði
í Þýskalandi og öllum öðrum
löndum, þar sem Þjóðverjar
voru við völd. I þriðja lagi um
að hafa á tímabilinu fyrir 8.
maí 1945 framið miskunnar-
l'ausa glæpi í Þýskalandi, látið
myrða og ofsækja miljónir
manna. alla þá, sem ekki vildu
í einu cg öllu fylgja helstefnu
nasismans.
Göring efstur á blaði.
I skjalinu eru ákærur á hend
ur Hitler, sem hann hefði orð-
ið að svara fyrir, ef hann væri
á lífi. En að honum frágengn-
um er Göring efstur á blaði,
þegar sá kafli skjalsins hefst,
þar sem sakborningarnir eru
ákærðir hver í sínu lagi. Ein
aðalákæran á hendur Göring
er sú, að hann beri ábyi'gð á
pyntingunum i fangabúðum
nasista.
5.700.000 Gyðingar
„hurfu“.
Þá koma Alfred Rosenberg,
sem var forsætisráðherra Pól-
lands og þess hluta Rússlands,
sem Þjóðverjar náðu á sitt
vald, Julius Streicher. ritstjóri
Gyðingahatarablaðsins „Der
Stúrmer“, og Robert Ley, yfir-
Framh. á 2. aíðu