Morgunblaðið - 02.11.1946, Blaðsíða 1
16 síður
S3. árgangur.
248. tbl. — Laugardagur 2. nóvember 1946
Ísaíoldárprentsmiðj a h.l.
London í gærkveldi.
RÚSSLAND, Tjekkóslóvakía
og Júgóslavía hafa hafnað'
þeirri .beiðni- stjórnar Banda-
ríkjanna og Bretlands, að al-
þjóðaráðstefna verði kölluð
saman, til að tjalla um sigling-
ar á Dóná. Trygve Lie, aðal-
ritari sameinuðu þjóðanna, til- '
kynti þetta í gærkveldi, en jafn !
framt er þess getið að ofan-!
greind ríki sjeu fús til að taka !
þátt í ráðstefnu um þessi mál, !
ef lönd þau, sem Dóná rennur j
um, fallist á þetta.
Dóná og umferð um fljótið
hefir verið talsvert 1 frjettun-
um að undanförnu, og telja
Bretar og Baadaríkjamenn, að
ganga beri þannig frá þessum
málum, að frjálsar siglingar-um
þessa mikilsverðu flutninga-
leið verði tryggðar í framtíð-
inni. — Reuter.
ÞEGAR bygging sameimiðu þjóðanna í New York var
opnuð, var Tryge Lie aðah'iíara UNO afhentur lykillinn
að byggingunni við Iráííðlega athöfn. Á myndinni sjest
er varaborgarstjóri New Yorkborgar, Yinccnt R. Impell-
itticri, afhenti Lie lykilinn, sem nefndur hefir verið
friðarlykillinn.
ilTýSS meS-* "
tofnlánadeildin
‘jekk 800 þús.
i gær
1 GÆR var enn sett nýtt met í kaupm vaxtabrjefa Stofn-
lánadeildarinnar Voru skráð kaup á brjefum fyrir 800
þúsund krónur. Þetta er glæsilegt framhald þeirrar
góðu byrjunar sem var tvo fyrstu dagana.
ÞAÐ VAR ánægjulegt að líta inn í afgreiðslusal Lands-
bankans í gær. Hinn stóri salur vav þjettskipaður
fólki, sem var að kaupa vaxtabrjef Stofnlánadeildár-
innar. Enn sem fyrr var mest eftirspurr. í smáum
brjefum. Það er almenningur, sem hier er að verki,
og það er góðs viti.
GéS feyrjaan, en meira effir.
EN ÞÓTT vel hafi gengið sala vaxtabrjefanna þá þrjá
daga, sem salan hefir staðið, mega menn ekki halda
að nú sje bráðum fullnægt þörfinni. Vantar mikið á
að svo sje.
Stofnlánadeildin þarf að selja vaxtabrjef fyrir 40 milj-
ónir króna á þessu og næsía ári, til þess að vel sje sjeð
fyrir nýsköpun sjávarútvegsins. Þetta fje verður þjóð-
in að leggja fram.
Berlín í gærkvöldi.
BANDARÍKJAMENN hafa
í hyggju að minka setulið sitt
í Þýskalándi all verulega, og
mun herafli þeirra þar að öll-
um líkindum verða töluvert
minni en hinna hernámsveld-
anna.
í Berlín munu Bandaríkja-
menn ætla sjer að hafa als um
8,000 manns, en til þessa hafa J
þeir haft þar um 30,000 menn.
— Reuter.
Einkaskeyti til Morgunbláðsins frá Reuter.
Haifa í gærkvöldi.
BRESKU skipin „Empire Heywood“ og „Ocean Vigor“, lögðu
í dag af stað til Cyprus með 1279 af Gyðingum þeim, sem í
morgun komu til Haifa með skipinu „San Dimitrio“. Gyðingar
þessir höfðu í hyggju að komast til Palestínu án leyfis bresku
yfirvaldanna, en flugmenn kom uauga á skip þeirra, og það
var flutt til hafnar undir eftirliti.
Flitpjsl hrapar
í Frakklandi
París í gærkvöldi.
MILLI 20 og 25 mnns munu
ahhfa farist í dag, er flutninga
flugvjel hrapaði til jarðar ná-
lægt Sein Legar la Montagne
í Frakklandi.
Maður nokkur, sem kom að
flaki flugvjelarinnar, hefur
tjáð frjettamönnum, að hún
hafi verið af þýskri gerð. Vjel
in var á leiðinni frá París til
Casablanca, þegar slysið vildi
til.
Enginn þeirra, sem í fllug-
vjelinni voru, mun hafa kom-
ist af. —Reuter.
Gaæp i!!a úf.
NEW YORK — Bandaríkja-
menn eru nú að reyna að selja |
hin 6000 Libertyskip, sem bygð
voru á stríðsárunum, og ganga
þau illa út. Hefir enn ekki auðn
ast að selja nema 414 skip af i
flotanum. — Reuter.
San Dimitrio var mjög illa
á sig komið, er bresk skip
komu að því. Mikil slagsíða
var á skipinu og ákaflega er-
fitt að koma því til hafnar.
Aðbúnaður Gyðinganna um
borð var og hinn versti, en
það er einar 700 smálestir á
stærð.
Gyðingar í Haifa gerðu
verkfall, þegar er skipið kom
til hafnar. Gerðu verkfalls-
menn tilraun til að fara í hóp-
göngu niður að höfninni, en
breskur her og lögregla kom
í veg fyrir það. Til að mót-
mæla því, að Gyðingunum á
San Dimitrio var ekki leyft að
fara í iand, hafa Gyðingar á-
kveðið alsherjarverkfall á
sunnudg.
Aðrar fregnir herma, að í
gær hafi tveir breskir her-
menn látið lífið skamt frá
Haifa, er jarðsprengja sprakk
undir bifreið þeirra, en tveir
menn særðust.
Barisf á fornum
slóðum
London í gærkveldi.
KÍNVERSKAR stjórnarher-
sveitir og kommúnistar berjast
nú við Marco Polo brúna í ná-
grenni Peiping, en þar sló fyrst
í bardaga milli Japana og Kín-
verja, er styrjöldin í Kína hófst
1937.
Formælendrr lýðveldisflokks
ins kínverska hafa nú tilkynt,
að flokkurinn hafi gefist upp
við að koma á samkomulagi
milli stjórnar Chang Kai Shek
og kommúnista. ■— Reuter.
Slys í BerSín
Berlín í gærkveldi.
SEX manns Ijetu lífið í
Berlín í gær, vegna troðnings í
neðanjarðarbrautum borgarinn-
ar.Slys þessi vildu til með þeim
hætti, að fólk fjell niður á járn-
brautarteinana, er neðanjarð-
arlestirnar urðu yfirfullar.
Grundvölltsr sjátfstæðissns.
ALLIR ÍSLENDINGAR vilja sjálfstæði landsins. En hið
stjórnarfarslega sjálfstæði er ekki nóg. Með nýsköpun
atvinnuveganna er lagður grundvöllurinn að efnahags-
legu sjálfstæði þjóðarinnar.
MEÐ NÝSKÖPUNINNI er verið að byggia grundvöllinn
að framtíð þjóðarinnar. Nú gefst þjer tækifæri til að
leggja fram þinn skerf til nýsköpunarinnar, með því
að kaupa hin ríkistrygðu vaxtabrjef Stofnlánadeildar.
Kauptu vaxtabrjef þitt strax í dag!
GistíhúsðYerkfalll
í WashingSsn af-
Ijell
Washington í gærkveldi.
TILKYNT var í Hvíta hús-
inu í kvöld, að leyst væri nú
vinnudeila sú milli gistihúsa-
eigenda og starfsmanna gisti-
húsa, sem valdið hefir því að
13' stærstu gistihúsin í borg-
inni hafa verið svo að segja
óstarfhæf um þriggja vikna
skeið. Fjellust verkfallsmenn-
irnir á miðlunartillögur stjórn
arinnar. — Reutor.
Washington í gærkveldi.
í UNDIRBÚNINGI er nú
sending matvæla til Indlands
fyrir fje, sem Henry Wallace,
fyrverandi verslunarmálaráð-
Varnir Dardanella-
sunds ræddar
London í gærkvöldi.
FORSETI Tyrklands hefur
flutt ræðu, þar sem hann
gerði að umtalsefni beiðni
Rússlands um sameiginlegar
varnir Tyrkja og Rússa við
Dardanellasund.
Forsetinn kvaðst ekki efast
um það, að þörf væri á því, að
sáttmálinn .um vörn sundanna
yrði endurskoðaður, en hann
taldi nauðsynlegt að alþjóða-
ráðstefna yrði látin fjalla um
þau mál.
LTm sambúð Breta og Tyrkja
sagði forsetinn,- að hún væri
hin ákjósanlegasta, . enda
hefðu þessi ríki með sjer her-
varnarsamning. — Reuter.
Hirt í íunglskini
herra Bandaríkjanna, hefir
staðið fyrir að safna. Söfnun
þessi var upphaflega hafin,
vegna þeirra stórfeldlegu tjóna,
sgpa urðu að völdum vatna-
vaxta og veðurs í Indlandi í
sumar.
LONDON. — Vegna þess
hversu mikið lá á að koma
sykurrófnauppskeru Bretlands
í hús, var unnið að uppskerunni
í tunglsljósi cft og tíðum og
gekk vel.