Morgunblaðið - 02.11.1946, Blaðsíða 16
VEÐURÚTLITIÐ: Faxaflói:
Hvass suð-suðvestan hryðjur.
Laugardagur 2. nóvember 1946
SAGA um hvítan manli,
sem býr með mannætum. —<
Bls. 9.
Úlvegsmenn ræða
hin alvariegu við-
horí
FULLTRÚAFUNDUR
Landssambands íslenskra út-
vegsmanna hefst hjer í bæn-
um á mánudaginn 4. nóv. n.k.
Fulltrúarnir munu ræða hin
alvarlegu viðhorf, sem nú
blasa við um rekstur fiski-
skipaflotans. Útvegsmenn
menn munu að sjálfsögðu
gera sitt ýtrasta til þess að
finna og skapa leiðir, til þess
að tryggja rekstur langsam-
lega þýðingarmesta atvinnu-
vegs þjóðarinnar, sjávarút-
vegsins.
Eins og kunnugt er liggur
mikill hluti fiskibátaflotans ó-
hreyfður um þessar mundir,
en vertíð nálgast óðum, þessi
mikli „uppskerutími“ sjó-
manna,útvegsmanna og þjóð-
arinnar allrar.
Ferðasaumavie!
Guðmundur vann
skákina
ÖNNUR skákin í einvíginu
um skákmeistaratitil íslands
milli Asmundar Asgeirssonar
og Guðmundar Agústssonar
hófst í fyrrakvöld áð Þórscafé.
Guðmundur hafði hvítt og
Ijek drotningarpeði. Ásmundur
svaraði með slavnesku vörn-
inni, en fekk þröngt og vanda-
samt tafl. Umhugsunartími
hans gekk til þurðar án þess að
honum tækist að rjetta hlut
sinn og 'í 29. leik gerði hann
skyssu sem gaf Guðmundi köst
á að vinna peð með betri stöðu
eða mann, þar sem Ásmundur
hefði fengið einhverja sóknar-
möguleika. Guðmundur valdi
fyrri kostinn og er skákinni var
frestað eftir 36 leiki, átti Guð-
mundur ljettunna stöðu. Skák-
in hófst að nýju í gærkvöld og
Á BRESKU iðnaðarsýningunni í London, sem nefnd
er „Bretar geta framleitt það“, eru margar nýjung-
ar. Þar á meðal er þessi saumavjel, sem hjer sjest
á myndinni. Vjelin gengur fyrir rafmagni, en hefir
þar á meðal þann kost, að hægt er að leggja hana
saman og setja í handtösku, sem ekki er stærri en
ferðaritvjel.
Jónasi fialyrímssyni reisiur
minnisvarði á æskustöðvum hans
Frá frjettaritara vorum á Akureyri, fimmtudag.
YMSIR málsmetandi Eyfirðingar hafa nú bundist samtök-
um um að gangast fyrir því að skáldinu Jónasi Hallgríms-
syni verði reist veglegt minnismerki á æskustöðvum skálds-
ins í Öxnadal. Hafa þeir gefið út ávarp til Eyfirðinga og
annara landsmanna, um að þeir leggi fje til sjóðsstofnunar í
þessu augnamiði.
Ávarpið. 'f'
Ávarpið er svohljóðandi:
Allir þeir, sem um Öxnadal
fara minnast Jónasar Hallgríms
sonar. Ljóð hans hafa gefið
náttúru landsrns nýjan svip.
Hólar og fjöll og drangar eru
í augum vegff randans minnis-
lauk 4 leikjum seinna meðmerki um listaskáldið góða.
sigri Guðmundar.
Keppendurnir hafa nú sinn
vinninginn hvor.
Næsta skák hefst á morgun
kl. 1 að Þórscafé. Þá hefir-Ás-
mundur hvítt.
velarböfðingi
PÁLL STEFNSSON á Ás-
ólfsstöðum hefir á þessu ári
gegnt hreppsnefndar- og odd-
vitastörfum í Gnúpverja-
hreppi í hartnær 30' ár, en ljet
á síðastliðnu vori af þeim
störfum.
Sveitungar hans og. vinir
efnd util samsætis á heimili
hans, Ásó'xfsstöðumí Þjórsár-
dal og vottuðu honum þakkir
sínar fyrir störf í þágu sveitar-
fjel. og hreppsbúa í ræðum og
rímuðum orðum.
Færðu þeir Páli að skilnaði,
myndarlega gjöf, sem virð-
ingar og vináttuvott.
Þannig reisti hann sjer minnis-
varða á æskustöðvunum og hjá
þjóðinni allri.
En eftir er hlutur þeirra, sem
heiðra vilja minningu hans þar
heima í dalnum. Nokkrir menn
hafa bundist samtökum um
sjóðstofnun til þess að koma
upp minnismerki um Jónas
Hallgrímsson heima á æsku-
stöðvunum. Eolilegt má teljast
að Eyfirðingar hafi forgöngu í
málinu, en margir aðrir lands-
menn *unu vilja leggja fram
skerf nokkurn. Nauðsynlegt er,
að þátttaka í sjóðstofnuninni
verði almenn. svo að veglegur
minnisvarði geti risið upp hið
allra fyrsta. Þeir sem undir á-
varpið rita beina þeirri áskor-
un til Eyfirðinga sjerstaklega,
svo og til anr.ara landsmanna,
er Ijá vilja þessu rnálefni lið,
að þeir leggi hjer hönd að og
láti ríflegt fje af hendi rakna
í þessu skyni og sýni rpeð því
minningu skáldsins verðskuld-
aða virðingu.
H. Vald.
ingarnar eru í dag
STUDENTARAÐSKOSN-
INGARNAR eru í dag. Enn
sem fyr verða höfuðátkökin
milli „Vöku“, fjelags lýðræðis
sinnaðra stúdenta, annars veg
ar og fjelags róttækra stúd-
enta hinsvegar, en fjelag rót-
tækra á sjer tvo auðsveipa
fylgifiska, fjelög, sem hafa
leikið fyrir það hlutverk flugu
manna meðal lýðræðissinn-
aðra stúdenta og tíðast sýnt
því mikla þjórislund. Þessi
útibú úr fjelagi róttækra stúd
enta eru fjelag frjálslvndra
stúdenta og Stúdentafjelag
lýðræðissinnaðra sósíalista.
Gegn þessari þrenningu
berst „Vaka“, eina fjelagið,
sem jafnan hefir barist ske-
leggri baráttu gegn kommún-
istum og nasistum, og er því
hið eina rjetta fjelag ailra
þeirra stúdenta, sem vilja út-
rýma áhrifum öfgastefnonna
og vinna af heilum huga að
efii.ngu iýðræðisins. Allir stúd
entar, sem falsiaust pnna
frelsi og lýðræði munu því í
dag vinna kappsamlega að
glæsilegum sigri „Vöku“.
ísfiskur til Bretlands í
okt. fyrir nærri 2
miiljónir króna
í OKTÓBERMANUÐI seldu 13 íslensk fiskiskip ísfisk á mark-
aði í Brettlandi. Sald voru samtals 27,509 kit, íyrir 69,504 ster-
lingspund, en það mun vera sem næst í íslenskum krónum kr.
1.714.359,38. Aflahæst skipanna er bv. Forseti, Reykjavík. 2840
kit. Hæst sala var hjá.bv. Gylfa, Patreksfirði, er seldi fyrir
6749 pund.
<
Skipin seldu flest í Fleet-
wood, þau sem þar seldu eru
þessi: Forseti se'.di 2840 kit,
fyrir 2764 sterlingspund Kópa
nes seldi 2071 kit, fyrir 4399(
pund, Karlsefni seldi 1990 kit,
fyrir 5111, Belgaum seldi 2488
kit, fyrir 4903 kit, m.s. Frey-
faxi seldi 700 kit, fyrir 3272
Júní seldi 2205 kit fyrir 5525
pund, Baldur seldi 2580 kit
fyrir 6527 pund og Maí seldi
2145 kit fyrir 6337 sterlings
pund, þá seldi Geir 1715 kit
fyrir 5527 pund og Vörður
2138 kit, fyrir 5829 pund.
í Grimsby seldu tveir togar-
ar: Gylfi 2562 kit, fyrir 6749
sterlingspund og Júpiter 2245'
kit, fyrir 6023 pund. — í Hull
seldi Haukanes 1830 kit, fyrir
6358 sterlingspund.
Forsefi Ssiands æskir
þess a§ 12 maniia
nefníSia Bjúki sfðrfum
ffyrir S. nóv.
Frá skrifstofu forseta ís-
lands barst blaðinu eftir-
farandi tilkynning:
FORSETI ÍSLANDS
kvaddi formann Sjálfstæðis-
flokksins Ólaf Thors forsætis-
ráðherra til fundar við sig
föstudaginn 1. nóv. árdegis, til
viðræðna um störf tóíf manna
nefndarinnar.
Að loknum viðræðunum fól
forseti forsætisráðherra, að
flytja tólf manna nefndinni
þau boð, að hann teldi æski-
legt að nefndin reyndi að
ljúka störfum fyrir föstudag
8. nóv.
Trieste í gærkvöldi.
MINNINGARGUÐS-
ÞJÓNUSTA var haldin í Tri-
este í dag, til minningar um
þá, sem Þjóðverjar drápu í
borginni á styrjaldarárunum.
Guðsþjónustan var haldin á
stað þeim, sem SS-sveitir
Þjóðverja notuðu til að
brenna lík fórnardýra sinna.
Þarna voru af lífi teknir bæði
Júgóslavar, ítalir og Gyðingar
Fyrir guðsþjónustunni stóð
andfasistiskur fjelagsskapur
Júgóslava og ítala. — Reuter.
Hutidrað ára áriíS
skáldsins Esaias
Tegnér
í DAG eru liðin 100 ár síð-
an hið mikla sænska skáld,
Esajas Tegnér dó. íslendingar
þekkja hann best af Friðþjófs-
sögu, sem sungin hefir verið og
lesin hjer lengi í hinni ágætu
þýðingu Matthíasar Jochums-
sonar. Þetta mun einnig vera
það verk hans. sem mestri hylli
náði og var það fljótt þýtt á
flest Evrópumál.
Tegnér var prestssonur frá
Vármlandi og *var fæddur 13.
nóvember 1782. Hann innritað-
ist í háskólann í Lundi 1799 og
lagði stund á klassisk mál, og
orti um leið kvæði, sem ekki
voru neitt sjerstakt. Þau voru
í stíl 18 aldarinnar. En eftir
aldámótin varð hann hrifinn af
hinni þýsku rómantík og
frönsku frelsisbaráttunni og
einnig höfðu fyrstu kvæði Ohl-
enschlágers áhrif á hann. Þ6
var það styrjöld Svía við Rússa
1808 sem olli mestum straum-
hvörfum í skáldskap hans eins
og einnig var um Runeberg.
Þetta stríð áleit Tegnér vera
styrjöld Vesturlanda gegn villi-
mennsku austursins, sænskt
frelsisstríð og gaf þ§ssi tilfinn-
ing hans skáldgáfunni byr und-
ir báa vængi.-
Árið 1812 varð hann prófess-
or í Lundi og 1823 biskup í
Váxjö og þar gaf hann út Frið-
þjófssögu, þar sem norrænt vík-
ingalíf er lofsungið, svo sem
kunnugt er. I þessu verki er
hann talinn ná hæst, en einnig
skrifaði hann óbundið mál og
er sjerstaklega frægur fyrir
brjef sín, sem voru ákaflega
djarflega og hreinskilnislega
rituð.
Það var Tegnér, sem fyrstur
skoraði á Norðurlöndin að vinna
einhuga saman, er hann krýridi
vin sinn, skáldið Öhlenschláger.
Tegnér liggur grafinn í Váxjö
við dómkirkjuna þar í brekku
móti suðri, sem hallar niður að
fallegu vatni.
A þessarri ártíð skáldsins
munu íslendingar hugsa til
hans, mannsins sem gaf þeim
Friðþjófssögu. Hann hefir með
rjettu verið hylltur sem einn
af stórmennum Norðurlanda.
HÆTT VIÐ FLUGPÓST.
London. — Hætt hefir ver-
ið flugpóst ferðum til Færeyja
frá Bretlandi, en þessar ferð-
ir höfðu verið farnar um tals-
vert langan tíma.