Morgunblaðið - 02.02.1947, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 02.02.1947, Blaðsíða 1
12 siður og Lesbók 34 árgangUT 27. tbl. -— Sunnudagut* 2. febrúar 1947 Isafoldarprentsmiðja h.f. _ A FRAKKAR VILJA ALÞJOÐASTJORIM I RUHR Stjórnin: Viðræður flokkanna halda áfram EFTIR þeim fregnum að dæma, sem Morgunblaðið fjekk í gærkveldi af stjórnarmyndun inni virtist alt standa við það sama. Voru samninganefndirn- ar enn að ræða ýmis atriði í stjórnarsamningnum, verka- skiftingu o. fl. Ekki hefir neitt heyrst, hverj- ir verða ráðherrar í ráðuneyti Stefáns Jóh. Stefánssonar, ef honttm tekst að koma því sam- an. Viðræður flokkanna halda áfram í dag. Pólverjar seeida Brelum orðsend- ingu Varsjá í gærkvöldi. EINN af talsmönnum pólsku stjórnarinnnr hefuri játað það, að engin ákæra' hafi enn verið lögð fram í sambandf við hantöku konu þeirrar, sem til þessa hefur verið starfsmaður við sendi- ráð Breta í Varsjá. Stjórn Póllands hefur hinsj vegar tilkynt, að konunni' verði sjeð fyrir verjanda. í sambandi við þetta mál, hafa frjettaritarar símað blöðum sínum, að pólska' bresku nýja orðsendingu. — stjórnin hafi sent þeirri Ekki er þó talið, að hún standi í sambandi við kosn- mgarnar í Póllandi 19. jan. s.l. — Reuter. Hannsóknamefnd sameinuðu þjóð- anna t Aþenu Aþenu í gærkvöldi. Rannsóknarhefnd samein- uðu þjóðanna, sem send hef- ur verið til að rannsaka kæru grísku stjórnarinnar á hendur Júgóslövum, Búlgör- um og Albönum, kom í dag saman til fundar í Aþenu. Einn af talsmönnum nefnd arinnar hefur tilkynt, að hún muni fyrst um sinn hafa ,að- setur í grísku höfuðborginni, þar sem hún sje eina borgin, þar sem viðunandi starfs- skilyrði sjeu fyrir nefndina og aðstoðarmenn hennar, en meðal þeirra eru menn frá 15 löndum. Síðar meir mun rannsókn- arnefndin fara til grísku landamæranna og kynna sjer ástandið þar. — Reuter. Hernámssvæði Frakka í Þýskalantíi ii mmm i Vol#m*'*cw* SPröm A/tenkin KOBIE Coene™ Btngtn. wm Offenbvrg ffotUyetí Sdutgdu SssSií Á uppdræííinum sjest hernámssvæSi Frakka í Þýskalandi. í sambandi við friðarskiimáiaumræðumar er rætt um kröfur F rakka viðvíkjandi Saar og Rínárhjeruðunum. Cioskir verslunarmenn í Jerúsalem mótmæla Jerúsalem í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgun'olaðsins frá Reuter. YFIRMENN Palestínulögreglunnar komu saman til fundar í Jerúsalem í dag, til að ræða hið nýja viðhorf, sem skapast hefir við þá skipun Sir Alan Cunningham, landstjóra Palestínu, að flytja á brott breskar konur og börn og þá aðra breska borgara, sem ekki þurfi nauðsynlega að vera áfram í Palestínu. Leiðtogar Jewish Agency komu einnig saman til fundar, en lítið er vitað um það enn, hvaða ákvarðanir þeir hafa tek- ið, ef nokkrar. Fá að hafa meðferðis 20 sterlingspund. 3>- einstakling verið gefið leyfi til að taka með sjer 20 sterlings- púnd í penir^um og tvær ferða töskur af fatnaði og öðru smá- dóti. Verslunarmenn í Jerúsalem hafa mótmælt þessum brott- Þeim 2,000 fjölskyldum, sem flutningum harðlega, sjerstak- flytja.á á brott, hafir nú verið lega hvað viðvíkur karlmönn- tilkynt livernig brottflutningn- um. um verði hagað. Hefir hverjum I Framh. á bls. 12 Vilja að bandamanna- þjóðirnar vinni allar að friðarskilmálutn London í gærkveldi. - Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter. TILLÖGUR Frakka um friðarskilmála fyrir Þýskaland verða lagðar fyrir fulltrúafund utanríkisráðherranna í Laneaster House n. k. þriðjudag. Frakkar leggja meðal annars til, að Ruhr-hjeraðið, aðal iðnaðarsvæði Þjóðverja verði sett undir alþjóðastjórn og ennfremur leggja þeir til a£> friðarskilmálarnir verði ræddir í fjórum aðalat- rið’um. Tillögur Frakka eru þessar: 1) Fundur utanríkisráðherra stórveldanna í IVIoskva. 2) Fundur fulltrúa, sem taki saman upp- kast að friðarskilmálum fyrir Þjóðverja með hliðsjón af samþyktum Móskva- fundarins. 3) Friðarfundur 29 bandamannaþjóða til að athuga uppkast fulltrúanna og 4) Annar fundur fjórveldanna tii þess að ganga endanlega frá friðarskihnálunum. Inglnn fundur „hinna þriggja sióru" á næsiiinni Washington í gær. TRUMAN Bandaríkjafor- seti gat þess í dag við trlaða- menn, að sjer væri ekki kunnugt um að í ráði væri að halda fund „hinna þriggja stóru“ á næstunni og enda sagðist hann ekki sjá að þörf væri fyrir slíkan fund. I frjettum frá Moskva hef- ur verið gefið' í skyn að slík- ur fundur væri æskilegur og raunar líklegur á næstunni. • -\ \ Tullugu manns farasi í flugslysi París í gærkveldi. FRÖNSK Dakotaflugvjel fjell í dag til jarðar í námunda við Lisabon, með þeim afleið- ingum, að 20 manns, sem í vjel- inni voru, ljetu lífið. Flugvjel þessi var á leiðinni frá París til Lisabon, en orsök slyssins er talin hafa verið ill- viðri. Flugvjelin sprakk í loft upp, er hún fjell til jarðar. —Reuter. 150,000 fiugfarfmp LONDON: — British Over- seas Airways Corporation hefir tilkynt, að ílugvjelar fjelags- ins hafi flutt um 150.000 far- þega 1946. Tillagan um Ruhr. Frjettaritari Reuters i París símar, að tillögur Frakka um alþjóðastjórn Ruhr-hjeraði sjeu eingöngu hagfræðilegs eðlis og að Frakkar sjeu ekki þarmeð á neinn hátt að flýja frá fyrri tillögum sínum um Ruhr og Rínarlönd, en það er að þau verði skilin frá Þýskalandi, eins og komið hefir fram í frönskum blöðum og ræðum franskra stjórnmálamanna. ít- arlegur texti af tillögum Frakka liggur enn ekki fyrir, en búist er við að tillögurnar í heild verði birtar á mánudag. Þátttaka allra bandamanna. Hitt er vitað, að Frakkar leggja til að allar bandamanna- þjóðir, sem börðust gegn Þjóð- verjum fái að fylgjast með öll- um skýrslum fundar utanríkis- ráðherranna, é,n tillits hvort um sjerhagsmuni einstaks ríkis er að ræða eða ekki. Vilja Frakk- arý að bandamannaþjóðir, smá- ar sem stórar fái jafnan tillögu- rjett á við hina ,þrjá stóru“. Með þessum hætti yrðu allar bandamannaþjóðirnar jafn und ir það búnar að taka þátt í loka friðarfundinum. Miðlunartillaga. Stjórnmálafrjettaritarar benda á, að tillaga Frakka.sje tilraun til að miðla málum frá tillögum Rússa, sem vilja úti- loka allar smáþjóðirnar frá um ræðunum um friðarskilmála Þjóðverjum til handa, þar til að lokaráðstefna verður haldin og tillögum smáþjóðanna hinsveg- ar, að allar bandamannaþjóðir eigi að taka þátt í öllum stig- um undirbúningsins undir frið- arskilmálana.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.