Morgunblaðið - 02.02.1947, Qupperneq 1
12 siður og Lesbók
34 árgangUT
27. tbl. -— Sunnudagut* 2. febrúar 1947
Isafoldarprentsmiðja h.f.
_ A
FRAKKAR VILJA ALÞJOÐASTJORIM I RUHR
Stjórnin:
Viðræður flokkanna
halda áfram
EFTIR þeim fregnum að
dæma, sem Morgunblaðið fjekk
í gærkveldi af stjórnarmyndun
inni virtist alt standa við það
sama. Voru samninganefndirn-
ar enn að ræða ýmis atriði í
stjórnarsamningnum, verka-
skiftingu o. fl.
Ekki hefir neitt heyrst, hverj-
ir verða ráðherrar í ráðuneyti
Stefáns Jóh. Stefánssonar, ef
honttm tekst að koma því sam-
an.
Viðræður flokkanna halda
áfram í dag.
Pólverjar seeida
Brelum orðsend-
ingu
Varsjá í gærkvöldi.
EINN af talsmönnum
pólsku stjórnarinnnr hefuri
játað það, að engin ákæra'
hafi enn verið lögð fram í
sambandf við hantöku konu
þeirrar, sem til þessa hefur
verið starfsmaður við sendi-
ráð Breta í Varsjá.
Stjórn Póllands hefur hinsj
vegar tilkynt, að konunni'
verði sjeð fyrir verjanda.
í sambandi við þetta mál,
hafa frjettaritarar símað
blöðum sínum, að pólska'
bresku nýja orðsendingu. —
stjórnin hafi sent þeirri
Ekki er þó talið, að hún
standi í sambandi við kosn-
mgarnar í Póllandi 19. jan.
s.l. — Reuter.
Hannsóknamefnd
sameinuðu þjóð-
anna t Aþenu
Aþenu í gærkvöldi.
Rannsóknarhefnd samein-
uðu þjóðanna, sem send hef-
ur verið til að rannsaka
kæru grísku stjórnarinnar á
hendur Júgóslövum, Búlgör-
um og Albönum, kom í dag
saman til fundar í Aþenu.
Einn af talsmönnum nefnd
arinnar hefur tilkynt, að hún
muni fyrst um sinn hafa ,að-
setur í grísku höfuðborginni,
þar sem hún sje eina borgin,
þar sem viðunandi starfs-
skilyrði sjeu fyrir nefndina
og aðstoðarmenn hennar, en
meðal þeirra eru menn frá 15
löndum.
Síðar meir mun rannsókn-
arnefndin fara til grísku
landamæranna og kynna sjer
ástandið þar. — Reuter.
Hernámssvæði Frakka í Þýskalantíi
ii mmm
i
Vol#m*'*cw*
SPröm
A/tenkin
KOBIE
Coene™
Btngtn.
wm
Offenbvrg
ffotUyetí
Sdutgdu
SssSií
Á
uppdræííinum
sjest hernámssvæSi Frakka í Þýskalandi.
í
sambandi við friðarskiimáiaumræðumar er rætt um kröfur
F rakka viðvíkjandi Saar og Rínárhjeruðunum.
Cioskir verslunarmenn í Jerúsalem
mótmæla
Jerúsalem í gærkveldi.
Einkaskeyti til Morgun'olaðsins frá Reuter.
YFIRMENN Palestínulögreglunnar komu saman til fundar í
Jerúsalem í dag, til að ræða hið nýja viðhorf, sem skapast hefir
við þá skipun Sir Alan Cunningham, landstjóra Palestínu, að
flytja á brott breskar konur og börn og þá aðra breska borgara,
sem ekki þurfi nauðsynlega að vera áfram í Palestínu.
Leiðtogar Jewish Agency
komu einnig saman til fundar,
en lítið er vitað um það enn,
hvaða ákvarðanir þeir hafa tek-
ið, ef nokkrar.
Fá að hafa meðferðis
20 sterlingspund.
3>-
einstakling verið gefið leyfi til
að taka með sjer 20 sterlings-
púnd í penir^um og tvær ferða
töskur af fatnaði og öðru smá-
dóti.
Verslunarmenn í Jerúsalem
hafa mótmælt þessum brott-
Þeim 2,000 fjölskyldum, sem flutningum harðlega, sjerstak-
flytja.á á brott, hafir nú verið lega hvað viðvíkur karlmönn-
tilkynt livernig brottflutningn- um.
um verði hagað. Hefir hverjum I
Framh. á bls. 12
Vilja að bandamanna-
þjóðirnar vinni allar
að friðarskilmálutn
London í gærkveldi. -
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
TILLÖGUR Frakka um friðarskilmála fyrir Þýskaland
verða lagðar fyrir fulltrúafund utanríkisráðherranna í
Laneaster House n. k. þriðjudag. Frakkar leggja meðal
annars til, að Ruhr-hjeraðið, aðal iðnaðarsvæði Þjóðverja
verði sett undir alþjóðastjórn og ennfremur leggja þeir
til a£> friðarskilmálarnir verði ræddir í fjórum aðalat-
rið’um.
Tillögur Frakka eru þessar:
1) Fundur utanríkisráðherra stórveldanna
í IVIoskva.
2) Fundur fulltrúa, sem taki saman upp-
kast að friðarskilmálum fyrir Þjóðverja
með hliðsjón af samþyktum Móskva-
fundarins.
3) Friðarfundur 29 bandamannaþjóða til að
athuga uppkast fulltrúanna og
4) Annar fundur fjórveldanna tii þess að
ganga endanlega frá friðarskihnálunum.
Inglnn fundur
„hinna þriggja
sióru" á næsiiinni
Washington í gær.
TRUMAN Bandaríkjafor-
seti gat þess í dag við trlaða-
menn, að sjer væri ekki
kunnugt um að í ráði væri
að halda fund „hinna þriggja
stóru“ á næstunni og enda
sagðist hann ekki sjá að þörf
væri fyrir slíkan fund.
I frjettum frá Moskva hef-
ur verið gefið' í skyn að slík-
ur fundur væri æskilegur og
raunar líklegur á næstunni.
• -\ \
Tullugu manns farasi
í flugslysi
París í gærkveldi.
FRÖNSK Dakotaflugvjel
fjell í dag til jarðar í námunda
við Lisabon, með þeim afleið-
ingum, að 20 manns, sem í vjel-
inni voru, ljetu lífið.
Flugvjel þessi var á leiðinni
frá París til Lisabon, en orsök
slyssins er talin hafa verið ill-
viðri.
Flugvjelin sprakk í loft upp,
er hún fjell til jarðar.
—Reuter.
150,000 fiugfarfmp
LONDON: — British Over-
seas Airways Corporation hefir
tilkynt, að ílugvjelar fjelags-
ins hafi flutt um 150.000 far-
þega 1946.
Tillagan um Ruhr.
Frjettaritari Reuters i París
símar, að tillögur Frakka um
alþjóðastjórn Ruhr-hjeraði sjeu
eingöngu hagfræðilegs eðlis og
að Frakkar sjeu ekki þarmeð
á neinn hátt að flýja frá fyrri
tillögum sínum um Ruhr og
Rínarlönd, en það er að þau
verði skilin frá Þýskalandi,
eins og komið hefir fram í
frönskum blöðum og ræðum
franskra stjórnmálamanna. ít-
arlegur texti af tillögum Frakka
liggur enn ekki fyrir, en búist
er við að tillögurnar í heild
verði birtar á mánudag.
Þátttaka allra bandamanna.
Hitt er vitað, að Frakkar
leggja til að allar bandamanna-
þjóðir, sem börðust gegn Þjóð-
verjum fái að fylgjast með öll-
um skýrslum fundar utanríkis-
ráðherranna, é,n tillits hvort um
sjerhagsmuni einstaks ríkis er
að ræða eða ekki. Vilja Frakk-
arý að bandamannaþjóðir, smá-
ar sem stórar fái jafnan tillögu-
rjett á við hina ,þrjá stóru“.
Með þessum hætti yrðu allar
bandamannaþjóðirnar jafn und
ir það búnar að taka þátt í loka
friðarfundinum.
Miðlunartillaga.
Stjórnmálafrjettaritarar
benda á, að tillaga Frakka.sje
tilraun til að miðla málum frá
tillögum Rússa, sem vilja úti-
loka allar smáþjóðirnar frá um
ræðunum um friðarskilmála
Þjóðverjum til handa, þar til að
lokaráðstefna verður haldin og
tillögum smáþjóðanna hinsveg-
ar, að allar bandamannaþjóðir
eigi að taka þátt í öllum stig-
um undirbúningsins undir frið-
arskilmálana.