Morgunblaðið - 02.02.1947, Síða 6

Morgunblaðið - 02.02.1947, Síða 6
6 MORGUNtíLAÐIÐ Sunnudagur 2. febr. 1947 I or Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson Ritstjórar: Jón Kjartansson, Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.) Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og aígreiðsla, Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjaid kr. 10,00 á mánuði innanlands, kr. 12,00 utanlands. í lausasölu 50 aura eintakið, 60 aura með Lesbók. Nú er að íinna ráð ENN hefir síldin-komið mönnum á óvart og brjálað allar áætlanir og útreikninga sjerfræðinga og annarra, sem hafa talið sig hafa vit á hlutunum. Nú er það Kollaf jarðar- síldin sem hefir leikið á menn. . Frá því um miðjan desember hefir verið slík mergð síldar í Kollafirði, að kunnugir telja að á þessu litla svæði hafi verið miljónir síldarmála. Óg það er með öllu órann- sakað, hvort ekki sje sama eða svipuð síldarmergð ann- arsstaðar hjer í sundunum. Fullyrða ýmsir að svo sje. Einn daginn sáu menn síld vaða hjer rjett utan við hafn- argarðana í Reykjavík. Og Hafsteinn Bergþórsson skýrði frá því hjer í blaðinu í gær, að bóndi einn inni í Hval- firði hafi fyrir skömmu fen^ið lánaðan ofurlítinn netbút, lagt honum í fjöruna meðan lágsjávað var, en á næsta flóði tíndi hann fulla körfu af síld úr netinu. Geta menn af þessu ráðið, að mikið hefir verið af síld í firðinum þenna daginn. ★ Það er tiltölulega mjög lítið sem unt hefir verið að hagnýta af þessari miklu og dýrmætu björg. Orsökin er sú, að skort hefir hentug veiðarfæri til þess að veiða síld- ina, og svo ekki síður hitt, að enginn viðbúnaður hefir verið til í landi, til þess að hagnýta aflann. Hafsteinn Bergþórsson segir, að 25 bátar hafi stundað síldveiði í Kollafirði að undanförnu. En aðstaða þessara báta hefir verið erfið á alla lund. Fyrst er það, að bátarnir hafa ekki haft hentug veiðar- færi. Þeir hafa aðallega orðið að notast við reknet. En sú veiði er miklu seinvirkari, sem kunnugt er, en snurpi- nótaveiðin. En gallinn er sá, segir Hafsteinn, að hjer hafa ekki verið til hentugar snurpinætur fyrir Kollafjarðar- síldina. Síldin er mjög misstór og þarf því möskvastærðin að vera minni en notað er við Norðurlandssíldina. En slíkar snurpinætur hafa verið ófáanlegar hjer. ★ En þrátt fyrir hinn mjög svo ófullkomna útbúnað, sem ’bátarnir hafa haft við síldveiðina, er mesta furða hvað þeir eru búnir að afla. Segir Hafsteinn, að hátt á 6. þús. tunnur hafi farið í frystihúsin, 2500 tunnur hafi verið seldar til Svíþjóðar, 3700 tunnur seldar til Englands og um 14 þús. mál til bræðslu, sem verið er að flytja norður lil Siglufjarðar. Þetta er enginn smáræðisafli á þessum stutta tíma, þeg- ar litið er á allar aðstæður. En þetta sýnir einnig, hvílíkt íeikna verðmæti hjer hefir farið forgörðum og sem hægt hefði verið að bjarga, ef góður aðbúnaður hefði verið fyr- ir hendi, bæði á sjó og landi, til þess að hagnýta björg- ina sem best. ★ Það eru ekki mörg ár síðan, að svo mikil vantrú var ríkjandi hjer á landi í sambandi við síldarútveg, að vart íengust aðrir en spákaupmenn að koma nálægt þessari c tvinnugrein. Menn, sem voru gjaldþrota annað árið, en stórauðugir hitt. Með komu síldarverksmiðjanna gerbreyttist þetta. Og nú er svo komið, að þessi atvinnuvegur er síst áhættu- samari en aðrar greinar sjávarútvegsins. Vel og dyggilega hefir verið unnið hin síðari ár til þess r.ð tryggja síldarútveginn. Hver verksmiðja af annarri hefir risið upp og hinar eldri stækkaðar og endurbættar. En síldin heldur áfram sínum dutlungum. Þegar búið er með ærnum kostnaði að reisa nægar verksmiðjur við vestanvert Norðurland, finnur síldin upp á því að sýna sig ekki á þessum slóðum 2—3 ár í röð. Og nú kemur þetta nýja fyrirbrigði, Kollafjarðarsíld- in, sem enginn átti von á. En við megum ekki gefast upp, heldur vera viðbúnir að taka á móti síldinni hvar sem hún kemur að landi. Og rú er að finna ráð til að hagnýta vetrarsíldina hjer syðra. Það verður að gerast fljótt og vel. ÚR DAGLEGA LÍFINU „Reykjavík vorra daga“. SJÁIÐ Reykjavík í eðlileg- um litum. — Eitthvað á þessa leið væri hægt að hugsa sjer auglýsingu fyrir kvikmynd Óskars Gíslasonar, sem hann nefnir „Reykjavík vorra daga“ og frumsýnd var í gær í Tjarn- arbíó. Og það þarf ekki að efa, að bæjarbúar þyrpast niður í Tjarnarbíó til að sýna sig og sjá aðrá og til þess að sjá bæ- inn sinn í eðlilegum iitum. Um kvikmynd Óskars mætti margt segja. — Það væri hægt að gagnrýna hana á ýmsa lund, en það sem fyrst og fremst verð ur að minna á er að kvikmynda vjelin lýgur ekki og þær mynd ir, sem hjer sjást, sýna Reykja vík eins og hún er. , Vafalaust mun það renna upp fyrir mörgum gömlum Reykvíking, sem sjer þessa mynd, að óvíða er sólarlagið og sólaruppkoman jafn unaðs- leg og hjer við Faxaflóan. — Esjan nýtur sín ekki til fulls á þessum fáu litmyndum og hún verður aldrei litkvikmynduð svo gagn verði í vegna þess, að til þess þyrfti að taka 24 kl.- stunda filmu af henni og þó væri það ekki nóg. • Of nærri nefinu. JÁ, ÞAÐ eru gullfallegar myndir í „Reykjavík vorra daga“ og það er nú einhvern- veginp þannig, að menn -sjá ekki þá fegurð, sem þeir búa við daglega og þurfa því að fara í bíó til að sjá borgina sína í eðlilegum litum. En menn geta haft gott af því að fara í bíó til að sjá hve margt fagurt er til hjer við höf uðstaðinn og síðan njóta feg- urðarinnar af eigin reynd. Á þennan hátt einn getur kvikmynd Óskars orðið eins og' hver önnur opinberun fyrir Reykvíkinga. — Og ef hún get- ur sýnt okkur eitthvað nýtt, hve miklu meiri möguieikar eru þá efeki til, að opna augu ókunnra fyrir dásemdunum. Kvikmynd Óskars þarf að fara víða um land og víða um heim. — | • Kostir ogf, gallar. ÓÖKAR Gíslason væri meiri galdramaður en hann hefði leyfi til að vera, ef hann hefði. gert fulkomna kvikmynd af Reykjavik vorra daga, enda vantar mikið á að svo sje. -— E'lestar myndirnar eru vel teknar, ágætlega lýstar og í ,,fókus“. Enda væri annað ekki sæmandi þaulreyndum ljós- myndara. En það er einkum efnisröð- un myndarinnar, sem ,er ábóta- vant. Það er slegið úr einu í annað. — ,,Aðalleikendurnir“„ sem er fallegt ungt fólk, nýt- ur sín ekki í þögulli myndinnl og það er ekki laust við stund- um, að manni detti í hug, hvern fjáran þau sjeu að flækjast fyr- ir Óskari sí og æ þegar hann fer um bæinn með kvikmynda- vjelina sína. Sumir, sem myndir eru tekn- ar af koma eins og skrattinn úr sauðaleggnum. — Listamenn ina er gaman að sjá við vinnu sína, en heldur hefði ieg t. d. viljað fá að skygnast inn í leik- hús augnablik í kvikmyndinni, en að horfa framan í smettið á okkur kollegunum. • Gæti gert mikið gagn. EN NÚ hefi jeg týnt til hið helsta, sem hægt er að gagn- rýna myndina. Og þó — það verður aldrei verulegt gagn að þöglum myndum nú orðið. Fólk kann ekki við þær, en býst við tal iog tónum. Óskar Gíslason á þakkir skyldar fyrir að hafa ráðist í þetta fyrirtæki einn án þess að stofna fjelag með stórum blaða mánnafundum og löngum hrós greinum fyrirfram. Hann hefir boðað framhald á myndinni og það er gleðilegt, þegar hann hefir gert það fram hald, ætti hann að taka sig til og skera þá 4 klukkustunda mynd niður í 1 Vi klukkutíma og senda það út um borg og bý. Það gerir ekkert til þó v.ið heimafólkið sjáum alt. saman, því við höfum gaman af því, sem ókunnugum kann að leið- ast. — Og myndin gæti gert mikið gagn til að kynna höfuðstað- inn. En það er með styttingu kvik mynda, eins og styttingu blaða greina, að enn er sú blaða- grein óskrifuð, sem ekki má bæta með því að skera af henni. • Oryggismerkið. HUGMYNDIN um öryggis- merkið handa bifreiðastjórum, sem mist hefir verið á hjer í dálkunum, er að fá meiri og meiri stuðning. Eihs og kunn- ugt er tók eitt af vátrygging- arfjelögunum upp þá góðu ný- breytni, að hafa iðgjöld lægri fvrir bifreðastjóra, sem varlega aka og ekki valda slysum. Nú hefir eitt af dagblöðun- um minst á öryggismerkið og ljáð hugmyndinni lið. Þetta er ekki stórvægilegt atriði í þjóðlífinu en gæti samt haft góðan árangur og því sjálf sagt að reyna það. * Mannrán? HARÐORÐ skammarbrjéf hefir mjer borist í tilefni af því, að í norskri árbók, eða almanaki er Gunnar Huseby kúlukastari talinn vera norsk- ur í báðar ættir. Finst brjefritara að hjer sje um hið frekasta mánnrán að ræða. En varla er ástæða til að vera svona uppvægur. Gunnar er, eða hefir verið góður í- þróttamaður og er Evrópu- meistari í kúluvarpi. En með allri virðingu fyrir þeim góða manni Huseby. Ætli það væri kanske hægt að komast að sam komulagi við frændur vora um það, að þeir fái Huseby, en rjett ur okkar til Leifs hepna verði ekki vjefengdur framar? I MEÐAL ANNARA ORÐA . . . . + áyglýsingasfarfsemi í Holiywoed ÞEGAR Bette Davis var að leika í lcvikmynd, sem tekin var í Kaliforníueyðimörkinni, birtu Bandaríkjablöðin fregnir af því, að hún hefði falið ofan á risakaktus. Miljónir manna lásu um það, að 49 kaktusþyrn- ar hefðu stungist í hinn dýr- mæta líkama hennar. Þegar Carole Lombard sagði við kvik myndatökustjóra, , að henni mundi ánægja af þvi, að greiða „Sam frænda“ hærri skatt, heyrði einn af auglýsingamönn um l^vikmyndafjelags hennar þetta og símaði það blöðunum. Frjettin kom á forsíðu daginn eftir. Þetta eru tvö dæmi um aug- lýsingastarfsemi Hollywood. — Betty Davis sagan var uppspuni frá rótum, ungfrúin hefir aldrei sest á risakaktus. En umrnæli Carole Lombard voru sönn og juku mjög á vinsældir hennar. Sat á strútseggi. Þrátt fyrir einstaka uppá- tæki, sém kynnu að fá menn til að ætla, að auglýsingastjór- ar kvikmyndafjelaganna væru ekki með öllum mjalla (ein- hver gárungi fann upp á því, að sitja í 3 vikur á strútseggi, til að vekja athvgli á mvnd- inni „The Egg and I“), hefur auglýsingabrjálæðið farið mink andi upp á síðkastið. En óneitanlega eru þau ein- kennileg sum uppátsgkin, sem auglýsingamennirnir finna upp • á, enda þótt þau eigi að heita má að byggjast á sann- leikanum. Ung kvikmyndasfjarna frá Dallas trygði Suðurríkjamál- lýsku sína fyrir miljón dollara. Lloyd’s Ijet hana fá trygging- arskýrteini og blöðin ætluðu að rifna af hrifningu. Það, sem auglýsingamanni ungfrúarinnar láðist að geta um, var, að trygg ingin gilti aðeins í 24 klukku- stundir. Þegar myndin „Fanginn frá Zenda“ var frumsýnd í New York, var send sjerstck flug- vjel eftir beim 12 :nönnum, sem ennþá bjuggu í Zenda, Ontario. Blöðin tilkyntu, að .allir íbúar borgarinnar Zenda‘ hefðu komið til New York til að sjá myndina. Enginn gat auðvitað borið á móti þessu. Þessi auglýsingaaðferð hafði það í för með sjer, að varla var til sá maður, sem ekki hafði heyrt kvikmyndarinnar getið. . Hinir 400 auglýsingamenn Hollywood fá frá 50 dollurum á viku upp í allt að 100,000 dali á ári. Einn af fremstu auglýs- ingastjórum Hollywood hafði um skeið 150,000 dollara árs- laun. Það var hann, sem fann upp á því, að halda frumsýn- ingu á „Destination Tokyo“ í kafbát, sem lá á botninum á San Francisco flóa. Slökkviliðið gabbað. Ein af frægustu auglýsinga- brellum Hollywood stóð í sam- bandi við myndina „Á hverf- anda hveli“. Þegar bruni At- lanta var kvikmyndaður, náðu kvikmyndastjórarnir sjer í for síðufrjettir, með þeirri einföldu aðferð, að tilkynna ekki fyrir- fram, að eftirlíking þessa stór- kostlega bruna mundi verða kvikmynduð. Svo þegar kveikt Framh. á bls. 8

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.