Morgunblaðið - 12.03.1947, Blaðsíða 11
Miðvikudagur 12. mars 1947
MORGUNBLAÐIÐ
11
í^3x®*®^^<®^<®<®>3xS*$<$^x®<®<®3x®«®x®3 ]
Fjelagslíf
V
Ármenningar!
Handknattleiksfl.
karla, 1. og 2. aldurs-
flokkur, áríðandi æfing í
kvöld, kl. 7 í íþróttahúsinu.
Mætið stundvíslega.
Stjórnin.
Árshátíð
Karlakórs iðnaðarmanna
er ákveðin laugardaginn 22.
mars. — Nánar auglýst síðar.
í>®®®®<®<®®<®®*®<®<®*®<®<®x®<®®<®<®®<®®
I.O.G.T.
St. MÍNERVA, nr. 172
Fundur í kvöld kl. 8,30.
2. flokkur annast. — Æ.T.
St. EININGIN, nr. 14
. Fundur í kvöld kl. 8,30.
Kosning fulltrúa til þing-
stúkunnar. Spilakvöld. — Æ.T.
®®*®®®®®®<®®<®®*®®S*®*®®<®®*®®<®«
Tilkynning
Hjálpræðisherinn
Æskulýðsherferð
í kvöld kl. 8,30 samkoma.
Ungt fólk frá K.F.U.M. og K.
talar.
Allir velkomnir!
Föroykst möti verður í kvöld
kl. 8,30 á Bræðraborgarstíg 34.
Allir Föroyingar velkomnir.
Vinna
Tökum
i BLAUTÞVOTT.
Efnalaug Vesturbæjar h.f.,
Vesturgötu 53, sími 3353.
IIREIN GERNIN G AR
Pantið í tíma.
Sími 5571.
GUÐNI BJÖRNSSON.
3 Danir um tvítugt, sem
hafa stundað landbúnaðar-
storf, ennfremur 2 handverks-
menn (trjé- og járnsmiður),
óska eftir atvinnu á íslandi í
sumar. — Tilboð sendist Vagn
Olsen Folkehojskolen, Ry, Dan
mark.
Vanur bcitingamaður óskar
að taka að sjer beitingu í á-
kvæðisvinnu. Uppl. í síma
6111.
Hjólsagarhlöð, bandsagar-
blöð og handsagir o. fl. eggjárn
skerpt samdægurs.
Brínsla og skerping
Laufásveg 19, bakhús.
P
Ræstingastöðin,
(Hreingerningar)
sími 5113,
Kristjan Guðmundsson.
Tek að mjer hreingerningar
og gluggahreinsun. Sími 1327.
Björn Jónsson.
FJOLRITUN
r ' Fljót og góð vinna.
Ingólfsstr. 9B. Sími 3138.
Kaup-Sala
MINNIN G ARSP J ÖLD
bamaspítalasjóðs Hringsins
eru afgreidd í Verslun Aug-
ustu Svendsen, Aðalstræti 12
og í Bókabúð Austurbæjar.
M — SELJUM:
otuð húsgögn, karl-
og margt fleira. —
- sækjum. — Sölu-
Clapparstíg 11. —
Aðatfundur
Húsmæðrafjelapns
Húsmæðrafjelag Reykjavík
ur hjelt aðalfund sinn 6. mars
í Tjarnarlundi.
Fundarstjóri var frk. María
Maack. Eftir að búið var að
lesa starfs og fjárhagsskýrslu
íjelagsins kvaddi sjer hljóðs
form. frú Jónína Guðmunds-
dóttir, rakti ýms störf fjelags-
ins á umliðnum árum, er
væru nú orðin 13, og hefði
hún ýmist verið vara- eða
formaður öll árin. Taldi hún
fjelaginu betur borgið að
breyta þarna til og myndi
ekki síður leggja sína krafta
fram eftir bestu getu í þarfir
fjelagsins. Fór svo einkar hlý-
legum orðum um samstarf
fjelagskvenna við sig og ætti
þaðan ljúfar minningar. Ósk-
aði fjelaginu meiri þróttar og
getu í framtíðinni og þá
meiri árangurs. — Benti á
sem eftirmann sinn: frú
Helgu Marteinsdóttur er væri
frábærlega dugleg og ágæt
kona.
Var Helga Marteinsdóttir
kosin formaður fjelagsins.
Einnig báðust þær undan
endurkosningu úr stjórninni:
frú Kristín Sigurðardóttir,
Guðrún Pjetursd. og frú
Ingibjörg Hjartard.
Þessar konur hlutu stjórn-
arkosningu: Jónína Guð*
mundsd., Soffía Ólafsd., Mar-
ía Maack, Margrjet Jónsd.,
Guðrún Ólafsd., Inga And-
reasen.
Varastjórn: Jónína Jónsd.,
Guhnfríður Rögnvaldsd. og
Guðrún Pjetursd.
Endurskoðendur: Kristín
Sigurðard., Ingibjörg Hjartar
dóttir.
Er kosningu lauk, tók til
máls Guðrún Pjetursd., o,g'
þakkaði fráfarandi formanni
velunnin störf í þágu fjelags-
ins, og alt það mikla erfiði, er,
hún hefði á sig lagt öll árin
til að þoka málum þess áleið-
is. Þakkaði samstarfið er sjer
væri ljúft að minnast. Sagði
að bót væri í máli að frú
Helga - Marteinsdóttir væri
fylsta trausts verð og frú Jón-
ína yrði hennar önnur hönd-
og aðstoð. — Bað svo konur
rísa úr sætum og votta frú
Jónínu virðingu sína og þakk
læti. Var hún ákaft hylt af
fundarkonum.
María Maack bauð hinn
nýja formann velkominn með
nokkrum vel völdum orðum
og hressílegum. Var frú Helga
einnig hylt af fundarkonum
og boðin velkomin í formanns
sætið.
Er búið var að kjósa í allar
nefndir hófst kvikmyndasýn-
ing og að lokum dans.
rj^)ll(jlóli
Einar Markússon, píanóleik-
ari, er nýlega kominn úr hljóm
leikaferð til Akureyrar. Þar
hjelt hann tvenna hljómleika
við góðar undirtektir og um
leik hans var farið lofsamleg-
um orðum í Akureyrarblöðum.
Tapað
Lítil' peningahudda tapaðist
í gær, í eða frá Pósthúsinu. •—
Vinsamlega skilist á Víðimel
58. —
71. dagur ársins.
Næturlæknir er í læknavarð
stofunni, sími 5030.
Næturvörður er í Ingólfs
Apóteki, sími 1330.
Næturakstur annast Hreyf-
ill, sími 6633.
Föstuguðsþjónusta í Dóm-
kirkjunni í kvöld kl. 8,15.
Síra Jón Auðuns prjedikar.
Hallgrímskirkja. Föstuguðs-
þjónusta í. Austurbæjarskólan
um í kvöld kl. 8,15. Sr. Sigur-
björn Árnason.
Föstumessa í Fríkirkjunni í
kvöld kl. 8,15. Sr. Árni Sig-
urðsson.
50 ára verður í dag Gunnar
Alexandersson frá Sandi, Urð-
árbraut 2, Kársnesi, Fossvogi.
Hjórtaband. í dag verða gef-
in saman í hjónaband ungfrú
Anna Sigurjónsdóttir og Þor-
geir Pjetursson, matsveinn,
Laufásveg 20.
Minningarspjöld Minningar-
sjóðs s. Skúla Skúlasonar fyrr
um frófasts í Odda, til styrkt-
ar sjúkum, fást í Bókaverslun
Sigfúsar Eymundssonar.
ÚTVARPIÐ í DAG:
8,30—9,00 Morguntónleikar.
12,10—13,15 Hádegisútvarp.
15,30—16,30 Miðdegisútvarp.
18.25 Veðurfregnir.
18.30 íslenskukensla, 2. fl.
19,00 Þýskukensla, 1. fl.
19.25 Þingfrjettir.
20,00 Frjettir.
20.30 Kvöldvaka: a) Hjálmar
Gíslason frá Winnipeg:
Frumbýlisár íslendinga í
Vesturheimi. Síðara erindi.
b) Kvæði kvöldvökunnar. c)
Oscar Clausen, rithöfundur:
Presturinn í Valþjófsdal og
útlægu systkinin; síðari
þáttur. d) Áttmenningjarnir
syngja.
22,00 Frjettir.
22,15 Tónleikar: Harmóníku-
lög (plötur).
22,45 Dagskrárlok.
Ho!menko!!enmófið;
Á FIMTUDAG var keppt í
svigi við Holmenkollen. —
Keppt var í karla og kvenna-
flokkum.
Þrír fyrstu menn í karla-
flokkj voru Dalman (Sví-
þjóð), annar Arentz (Norgur)
og þriðji varð Eiriksen (Nor-
egur).
í kvennaflokki sigraði May
Nilsson (Svíþjóð), önnur
varð Laila Schoug-Nielsen
(Neregi) og þriðja varð S.
Tomasson (Svíþjóð).
Mótið fór fram sem tví-
keppni og urðu úrslit þessi í
karlaflokki: 1. Eiriksen N 306
stig. 2. Arentz N með 311
stig og þriðji varð Dalman S
með 315 stig. í kvennaflokki
f jekk flest stig May Nilson S
236 stig og önnur varð Laila
Sehoug-Nielsen N með 255
stig Þriða varð S. Tomasson.
í hermannakeppni urðu úr-
slit þau, að Norðmenn höfðu
1. og 3. sæti og Frakkland 2.
sæti.
Mikill fjöldi áhorfenda var
á mótinu, enda var veður hið
besta þó frast væri milli 8 og
10 stig.
Norska útvarpið skýrði frá
þessum úrslitum í frettum
sínum kl. 8 á fimtudagskvöld.
Þar var ekki minst á hvaða
árangur íslendingarnir hefðu
náð.
Gunnar Akselson.
•v/?>«><|x®®®<®®<®®<®3*®®®®®®®<S*®«*l*®®<®®®®<®®i><®<®®<®®<S*®®<*x®®<®®<***<
Þakka hjartanlega auðsýnda vinsemd og
virðingu á sextugsafmæli mínu hinn 23. febr-
úar síðastliðinn.
Sjerstaklega þakka jeg stjórn og starfs-
mönnum mínum við Síldarbræðslustöðina að
Dagverðareyri, Vjelsmiðjunni Hjeðinn og
Norska Sendiráðinu.
<«x«xí^x®x$x$x®xí
J. Jentoft Indbjör.
£*®<®<®<®<®®3>®<®<®<®<®®<®®<®®<®®s-®<®®<®<®®®<®®®»*x.
Vanan landmann
vantar strax til Sandgerðis á m.b. Björn. —
Uppl. gefur Stefán Franklín, simi 7665, og
Karl Jónsson, Sandgerði, sími 5.
Dóttir okkar og systir,
DAGBJÖRT,
andaðist á Landakotsspítala sunnudaginn 9.
þ. m.
Sigríður Guðmundsdóttir, Eiríkur Kristjánsson
og börn.
Systir okkar og mágkona
SIGRÍÐUR GUNNARSDÓTTIR
frá Flugu
andaðist að heimili okkar aðfaranótt 11. þ. m.
Jóhanna Gunnarsdóttir,
Gísli Þorvarðssson, Papey.
Móðir mín og tengdamóðir, amma og lang-
amma
STEINUNN JÓNSDÓTTIR, frá Höfða,
andaðist á Elliheimili Hafnarfjarðar þ. 11.
þ. m.
Guðjón Benediktsson, Elínborg Jónsdóttir,
börn og barnabörn.
Jarðarför konunnar minnar, móður okkar,
tengdamóður og ömmu
GUÐRÚNAR SIGURÐARDÓTTUR
frá Fremstagili
fer fram föstudaginn 14. mars frá heimili
okkar, Langholtsveg 37, kl. 1 e. h.
Athöfninni í kirkjunni verður útvarpað.
Agnar Bragi Guðmundsson
börn, tengda- og barnabörn.
Jarðarför
GUÐMUNDAR PJETURSSONAR
trjesmiðs N
fer fram frá Dómkirkjunni fimtudaginn 13.
mars og hefst með húskveðju frá heimili hans
Sjafnargötu 3 kl. 1 e. h.
Aðstandendur.
Þökkum innilega auðsýnda samúð við and-
lát og jarðarför elsku litla drengsins okkar
ARNAR.
• Helga og Sveinn Ingvarsson.
Hjartanlega þökkum við öllum vinum og
vandamönnum, en sjerstaklega viljum við
þakka hjónunum Ingibjörgu Guðnadóttur og
Þórði Kristjánssyni, Miðhrauni, og Jóhönnu
Halldórsdóttur og Jóhannesi Þorgrímssyni,
Eiðhúsum, fyrir auðsýnda samúð og virðingu
við fráfall og jarðarför föður okkar
NARFA JÓNSSONAR.
Halldóra Narfadóttir, Veronika Narfadóttir.