Morgunblaðið - 12.03.1947, Side 12
VEÐURUTLITIÐ: Faxaflói:
FRA UMRÆÐUNUM um
Austan kaldi. — Úrkomulaust
a5 mestu.
Miðvikudagur 12. mars 1947
fjárhagsáætlunina. — Bls. 7.
Kertaljós á veitingahúsi
Vegna kolaskortsins í Bretlandi, hefir orðið að gæta mikils sparn-
aðar við rafmagnsnotkun. Hjer á mjndinni sjst hvernig kerta-
ijós eru nú notuð á veitingahiisum, en nú segja frjettir, að
skortur sje jafnvel orðinn á kertum líka.
StórSeEd hækkun
á tóbuki
Skyndiiög frá Alþingi í gær
í GÆR var úttbýtt í neðri deild frumvarpi um breytingu á
lögum um einkasölu ríkisins á tóbaki. Er lagt til að hámarks-
álagning á tóbaki megi hækka úr 150 af hundraði í 250 af hundr-
aði.
Ef þessi verðhækkun yrði notuð til fulls, mun það samsvara
því, að sígarettupakkinn yrði í útsölu kr. 4,80, í stað kr. 3,60
nú.
Sendiherra Frakka
afhendir forseta
skiiríki
SENDIHERRA Erakklands,
-herra Henri Voillery, afhenti
forseta íslands embættisskil-
ríki sín við hátíðlega athöfn
að Bessastöðum, þriðjudaginn
11. þessa mánaðar.
Sátu sendiherrahjónin síðan
hádegisverð í boði forseta og
frúar hans, ásamt utanríkisráð
herra hjónunum og nokkrum
öðrum gestum.
Sendiherrann hefur starfað
sem fulltrúi Frakklands hjer á
landi frá því árið 1938, fyrst
sem ræðismaður, en síðan sem
stjórnarfulltrúi.
( Frá utanríkisráðuney tinu).
Skemlifundiir Heim-
dallar
HEIMDALLUR, fjelag ungra
Sjálfstæðismanna heldur kvöld
skemtun í Sjálfstæðishúsinu
annað kvöld kl. 21. Á skemtun-
inni mun Gunnar Bjarnason
ráðunautur flytja ræðu, Einar
Markússon, píanóleikari leikur,
Stúlkur munu syngja og leika á
guitara og kvikmynd verður
sýnd. Að lokum verður svo
dansað.
Aðgöngumiðar að skemtun-
inni verða seldir í skrifstofu
flokksins í Sjálfstæðishúsinu
frá kl. 1 í dag. Heimdallur hefir
haldið nokkrar slíkar kvöld-
skemtanir sem þessa í vetur og
hafa þær verið fjölsóttar og
mjög vinsælar.
Eiggerl Sfðfánsson syngur
annað kvöld
Það er annað kvöld kl. 7,15,
sem Eggert Stefánsson, söngv-
ari, heldur kveðjuhljómleika
sína til söngsins, síðustu hljóm
leika sína í Reykjavík. — Við
hijóðfærið verður dr. Victor
Urbantschitsch.
Hljómleikarnir verða í Gl.
Bíó. — Á söngskránni eru m.a.
þessi lög:
Jeg lít í anda liðna tíð, eftir
Kaldalóns, Amarilli mia bella,
éftir Guilio Caccini, Beautiful
Dreamer. eftir Forster, Santa
Lucia Lomtana, eftir Mario,
The lost Chord, eftir Sullivan
og fleiri erlend og íslensk lög.
Aðgöngumiðar að hljómleik
imum fást í bókaverslun Sig-
fúsar Eymundssonar, hljóð-
færaverslun Sigríðar Helga-
dóttur og í bókabúð Lárusar
Blöndal.
Síðasfi farmurinn
fíl Siglufjarðar
Síldarvcrtíðinni hjer við
Reykjavík er lokið.
Allir bátar hafa hætt veið-
um og í gær fór síðasti síldar-
farmurinn norður til Siglu-
fjarðar í bræðslu. Það var m.s.
Andvari, sem flutti milli 500
og 600 mál. j _ t
Fi-umvarpið var flutt að tii-
hlutan fjármálaráðherra og af-
greitt með hraða gegnum báðar
deildir og lögfest.
Ráðherra kvaðst ekki þurfa
að fjölyrða um þá miklu nauð-
syn ríkissjóðs fyrir auknum
tekjum. Væri mjög aðkallandi
að hækka verð á tóbaki, þar
sem nú lægju fyrir miklar
birgðir. sem ekki hefðu verið
settar í umferð. Gerðar hefðu
verið ráðstafanir til að draga
úr sölu tóbaks meðan Alþingi
fjallaði um hækkunina til þess
að koma í veg fyrir að menn
söfnuðu óþarfa birgðum.
Ráðherra tók það skýrt fram,
að ekki væri þar með sagt, að
nauðsynlegt verði að nota heim
ild þessa til hins ýtrasta, en
nauðsynlegt væri að hafa hana
nokkuð rúma.
Einar Olgeirsson talaði fyrir
hönd Sósíalista. Kvaðst hann
skilja hina miklu fjárþörf rík-
issjóðs, en þar sem stefna ríkis-
stjórnarinnar lægi ekki skýrt
fyrir, sæi hann ekki ástæðu að
greiða atkvæði með frumvarp-
inu.
Mál þetta gekk síðan greið-
lega í gegnum Nd.
En í Ed. stóð Brynjólfur
Bjarnason upp og heimtaði ,að
málið færi í nefnd. Kvaðst hann
vera á móti slíkri gífurlegri
hækkun meðan alt væri á huldu
um stefnu ríkisstjórnarinnar.
Sem von var þótti ráðherra
þessi framkoma Brynjólfs harla
undarleg, þar sem hann legst
á móti því, að munaðarvara sje
hækkuð til að afla ríkissjóði
tekna á sama tíma og flokks-
menn hans í fjárveitinganefnd
'hafa lagst á móti hóflegum nið—
urskurði á útgjöldum ríkisins,
og hótað að kljúfa nefndina. Það
er ekki hægt að gera hvort-
tveggja í senn, að standa á móti
niðurskurði útgjalda ríkisins og
að berjast Ái móti tekjuöflun
ríkissjóðs.
Annars væri alger óþarfi að
senda málið í nefnd. Það lægi
ljóst fyrir, annað hvort væru
menn með eða móti hækkun-
inni. Og hjer væri ekkert á
huldu ríkissjóð vantaði stór-
auknar tekjur nú þegar.
Síðafi var felt að setja mál-
ið í nefnd með 9:3 atkvæðum
og gekk málið síðan greiðlega
gegnum deildina, og var afgr.
sem lög frá Alþingi.
Vildi ekki oröuna
PARÍS: — Stalin marskálk-
ur neitaði nýlega að þyggja
franska orðu, á þeim grund-
velli að leiðtogar rússnesku
stjórnarinnar tækju ekki á
móti erlendum heiðursmerkj-
um.
Yanofsky vari efstur
mei 8 vinningK
YANOFSKY-SKÁKMÓTINU lauk í gærkvöldi, með því að
Kanadameistarinn Yanofsky fór með sigur af hólmi. Hann
sigraði biðskákina við Eggert Gilfer sem telfd var í gærkvöldi.
Biðskák þeirra Guðmundar S. Guðmundssonar og Ásmundar;
Ásgeirssonar lauk með jafntefli.
tóeðmæli nauðsyn-
leg með veilinga-
íeyfum
MATSVEINA- og veitinga-
þjónafjelag íslands hjelt aðal-
fund sinn í fyrrakvöld.
Á fundi þessum var sam-
þykt að verja 5000 krónum úr
sjóði til kaupa á» Stofnlána-
deildarbrjefum.
Fundurinn taldi rjett, að
settar yrðu ákveðnar reglur
um meðmæli með þeim veit-
ingaleyfum, sem sótt væri um
til bæjaryfirvaldanna. Taldi
fundurinn eðlilegt, að þeir ein
ir fengju veitingaleyfi er hefðu
iðnrjettindi í þessum greinum.
Við kosningu stjórnar var
Böðvar Steinþórsson endurkos
inn formaður. Kristmundur
Guðmundsson, gjaldkeri, María
Jensdóttir, endurk. ritari. Emil
Bjarnason kosinn varaformað-
ur og Marbjörn Björnsson,
fjármálaritari. — í trúnaðar-
ráð voru kosnir: -Tryggvi Þor-
finnsson, Edmund Erikson, Sig
urður Gíslason og Garðar Jóns
son.
I fjelaginu eru nú 60 skráðir
meðlimir.
Fræðslufundur fyrir
nemendur í akstri
AÐ TILHLUTUN Bifreiða-
kennárafjelags Reykjavíkur og
Slysavarnafjelagsins verður
haldinn fræðslufundur fyrir
alla þá, sem nú læra undir hið
minna bílpróf. Fundur þessi
fer fram í Tjarnarcafé uppi, og
hefst kl. 5 e.h. á morgun (fimtu
dag). Á fundinum verða m. a.
sýndai' kvikmyndir um hjálp í
viðlögum og umferðarreglur.
Allir bifreiðakennarar ættu að
hvetja nemendur sína til þess
að sækja þennan fyrsta fræðslu
fund, en gert er ráð fyrir að
þeir verði fleiri.
Töku Bandaríkja-
skips mótmæil
Haag í gærkvöldi.
BANDARÍKJASTJÓRN hef-
ur sent hollensku stjórninni orð
sendingu, vegna töku Banda-
ríkjaskipsins Martin Behrman
undan Cheribon á Java. Telja
Bandaríkin að taka skipsins sje
órjettlætanleg, en sendiherra
Bandaríkjanna í Hollandi, dr.
Stanley Hornbeck, hefur þegar
rætt mál þetta við hollensku
yfirvöldin. — Reuter.
Yahofsky vann sex skákir
af sjö er hann telfdi á mótinu.
Hann gerði tvö jafntefli, við
þá Ásmund Ásgeirsson og
Árna Snævarr.
Ásmundur Ásgeirsson var
annar með 5 vinninga. Hann
tapaði einni skák fyrir Guð-
mundi Ágústssyni og gerði
tvö' jafntefli, við Guðmund S.
Guðmundsson og Yanofsky.
Guðmundur S. Guðmundsson
var þriðji með 4 vinninga.
Hann tapaði einni skák, fyrir
Yanofsky og gerði 4 jafntefli.
Næstir koma þeir Baldur
Möller og Guðmundur Ágústs
son með 3 vinninga hvor. Þá
þeir Eggert Gilfer og Wade
með 2(4 vinning hvor og síð-
astur er Árni Snævarr með 2
vinninga.
Þegar blaðið fór í pressuna
var hraðskákin mjög stutt á
veg komin.
—..— ♦ ♦
Aflafrjeftir að
norðan
• í Norðlendingafjórðungi hóf
ust veiðar í febrúar í flestum
veiðistöðvum, þó að enn sjeu
aðeins fáir bátar byrjaðir á
ýmsum stöðum. ICest var út-
gerð frá Siglufirði og Dalvík.
Frá Siglufirði stunduðu 3 ,
bátar róðra og fóru fest 4 sjó-
ferðir. Var afli þeirra frá 5—9
smál. í sjóferð, en fiskurinn var
fremur smár og mikið af ýsu.
Frá Dalvík hafa 4 bátar^
stundað línuveiðar og einn tog
veiðar. Fóru líhubátarnir 8 sjó
ferðir og öfluðu 3,5—7 smál. í
sjóferð. Hefur mest af fiskn-
um verið saltað, en eitthvað
sett í hraðfrystihús.
Frá Skagaströnd stundaði að
eins einn bátur veiðar ‘ með
línu og afla'ði vel, eða 5—6
smál. í sjóferð og fór als 10
sjóferðir. Var aflinn hraðfryst
ur.
Frá Ólafsfirði var einungis
um útgerð opinna vjelbáta að
ræða á línu og voru þeir 4 og
fóru 8 sjóferðir. Var aflinrt
sæmilegur. Einn bátur hóf það
an togveiðar, en var rjett byrj-
aður. .
.Frá Hrísey var einnig aðal-
lega um að ræða útgerð opinna
vjelbáta og öfluðu þeir vel og
sama er að segja um Húsavík,
nema að afli hefur verið þar
rýrari.
Margir af bátunum í Norð-
lendingafjórðungi eru eins og
jafnan áður á vetrarvertíð í
Faxaflóa bæði á línu- og botn-
vörpuveiðum og ennfremur
eru nokkur skipanna á síld-
veiðum sunnanlands eða í síld
arflutningum.
(Frá Fiskifjelaginu).