Morgunblaðið - 02.10.1947, Side 7

Morgunblaðið - 02.10.1947, Side 7
Fimmtudagur 2; okt. i!947 M ORGUTSBLAÐÍb 7 men & 'enjamín ^JJriótjdnóóon: Nýjar hugvekjur efíir íslenska kennimenn ÞAÐ þótti vel við eiga að gefa út nj'fjar hugvekjur eftir íslenska kennimenn í tilefni af 100 ára afmæli Prestaskólans, sem haldið verðux hátíðlegt í dag. Hefir Prestaf jr.lag íslands safnað hugvekjunum saman og sjeð um útgáfuna, en' ísafoid- arprentsmiðja h.f. gefið bókina út með mikilli prýði og selur hana við vægu verði í skraut- bandi. Nú hefir um stund verið lítil hugvekjuöld, meðan vjer höfum setið að striðsgróðan- um í glaumi og gleði, aðrar þjóðir sveittust bióðinu, ljetu lífið milljónum saman á vígvöll um eða hrundu mður af hungri og harðrjetti. En bráðum tekur alvaran við, þegar einnig vjer þurfum að fara að hugsa um, að ráða bætur á gjaldþroti heimsmenningarinnar, og þá er það ætlun prestastjettarinnar, að kristindómurinn hafi enn sem fyrr hinar bestu tillögur fram að flytja, sje hann tekinn alvarlega og eigi aðeins um hönd hafður til háliðabrigðis og fyrir siðasakir á tyllidögum. Að minnsta kosti er vert að veita því athygli, sem hann leggur til málanna. Jeg hefi undanfarna daga verið að blaða í Nýjum hug- vekjum eftir nálega áttatíu ís- lenska kennimenn og eru þess- ar hugvekjur glóggur spegill af því, hvernig fagnaðarerindi Krists er boðað með þjóð vorri á fimmta tug 20. aldarinnar. Þarf enginn að óttast að á þeim sje neinn syfjublær. Það er grip ið hispurslaust á viðfangsefn- unum og reynt að gera þeim nokkur sldl í stuttu máli. Jeg greip af handahófi niður í bókina og fyrir mjer verður hugvekja sr. Gunnars Árnason- ar á Æsustöðum- Vegurinn“ (bls. 20). „Vegur Krists er öllum best- ur og sá eini, sem fær er alla leið ævinlega. En hver er þá þessi vegur, eða hver er hin" kristilega lífs- breytni, — kannt þú að spyrja. Og það vill svo ve] til, að það svar er ekki torfundið: Verið með sama hugarfari og Jesús Kristur var, segir postulinn. Og það hugarfar er auðsætt og því auðlýst. Það er hugarfar kær- leikans — sjálfsfórnarinnar. Sá, sem ávinnur líf sitt með því að slíta því öðrum til bless- unar, hann ratar lífsveginn. Þetta eru sannindin um lífið og veginn“. Aftur gríp jeg niður á bls. 321 og verður fyrir mjer niður- lagið af hugvekju sjera Helga Sveinssonar: Hamingja Jesú Krists: „Það þýðir ekki að ætla að búa um sig í þægilegu sæti eins og í leikhúsi og krefjast þess, að nú sje tjaldið dregið til hlið- ar og þá muni hamingjan birt- ast i öllum glæsileik sínum. Þegar tjaldið er dregið til hliðar, þá er leiksviðið tómt. Það ert þú sjálfur, sem átt að fara inn á leiksviðið og leika hlutverk þitt. Og ef þú ferð rjett með það hlutverk, finnur þú hamingjuna, annars ekki. Hamingjan er ekkert loka- takmark í sjálfu sjer. Hún er aðeins möguleiki, sem mannin- um er gefinn til að berjast á- . fram til nýrra sigra, nýs vaxt- ar og æðri þegmjettar í ríki himnanna. Og hina sönnustu og dýpstu hamingju finnur sá andi einn, sem er í órofa tengsl um við hið fagra, góða og full- komna, og finnur návist guðs! Enginn er eins og þú. Enginn hefir sjeð það sama og þú. Eng- inn hefir sömu möguleika og þú. Enginn á dýprj skynjun á hinu eilífa og ósegjanlega en þú, sem harðdrægm stjórnmála menn, fjárplógsmenn, -guðsníð- ingar og svallarar ofsækja. Eng inn er hamingjusamari en þú, — maðurinn, sem Kristur hefir sent til að frelsa heiminn. „Sæl- ir eru þeir . . .“ Margir lesa skáldskap sjer til gamans, en það er engu-síður skemmtilegt að lesa hugvekjur sjer til gagns. Á þetta ekki síst við um þær hugvekjur, sem fjalla um það, sem öllum kem- ur við: eðli og tngang lífsins, þau siðalögmál, sem ekki þýð- ir að brjóta, og þær hugsjónir, rem verið hafa eldstólpinn í menningarbaráttu kynslóðanna. Ekkert af þessu er nokkru sinni nógu vandleea hugsað nje því framfylgt, og því hefir svo margt sigið á ógæfuhlið fyrir ein-staklingum og þjóðum og mannkyninu í heild þegar eng- inn kann fótum sínum forráð. Fyrir rúmum 20 árum- gaf Prestafjelag íslands út Ilundrað hugvekjur. Var þeim ágætlega vel-tekið og seldust þær upp á skömmum tíma. Jeg trúi ekki öðru en þessar hugvekjur verði. einnig keyptar og lesnar af ung um og öldnum. Eiginlega ætti svona hug- vekjusafn að koma út á hverju ári frá íslenskri prestastjett. Það er tilbreyting fyrir Iþá, sem eins og cðlilegt er leiðist að hlusta alltaf á sóknarprest- inn sinn, og eru farnir að kunna hann utanað. Hje.r taka margir til máls og hafa ýmis- legt að segja. Auk þess fylgja myndir af prestunum og ævi- ágrip eflir biskup landsins. Fjölbreytnin ætti því að vera meiri, enda er óhætt að segja að margar þessar hugvekjur eru verulega snjallar. Benjamín Kristjánsson. Kveðið til Benna EINS og kunnugt er hefur Bókaútgáfan Norðri geíið út að undanförnu þrjá bókaflokka ætlaða til lesturs börnum og unglingum, hinar svo kölluou Beverley Gray-bækur, Benna- bækur og Óskabækur. -— Allir þessir bókaflokkar hafa náð mikilli hylli unglinga og jafnvel fullorðinna líka. Af Eenna-bók- unum eru þegar komnar út þrjár bæ-kur, er nefnast: Benni í leyniþjónustunni, Benni í frum- skógum Ameríku og Eenni. á perluveiðum. Nýskeð barst forlaginu kvæði frá einum aðdáanda Berma, ó- nafngreindri stúlku, og er það svohljóðandi: Norðri þiggðu þökk frá- mjer, þú átt g'óöa penna, en kærast þakkir kann ,ieg þjer fyrir Ivalla, Áka og Benna. Ekki litlu ausa má úr ævintýra brunni. Mjer leiddist ekki að lesa um þá í leyniþjónustunni. Enn var flogið upp í loft — ekki að spyrja að slíku, slapp frá bráðum bana oft Benni í Ameríku. Oft mín sála um það bað yfir fjöll og heiðar: Ó, bara jeg mætti bruna af stað með Benna á perluveiðar. Jeg er engin Jessabil jeg er úrval kvenna. Góði Norðri, gerðu vel og gefðu mjer fleiri Benna. Fleiri Benna-bækur eru væntanlegar á næstunni, og verð ur þá efláust hægt að verða við beiðni þessarrar vel hagmæltu stúlku, sem endaði ljóðabrjef sitt til forlagsins með þessarri ástarvísu til Benna: Arma báls en ekki táls um þinn háls jeg spenni, hrind mjer ei, þá ein jeg dey, elskulegi Benni. Norðri hefur bcðið blaðið að geta þess, ao æskilegt væri aS skáldkonan gæfi sig fram, svo að hægt væri að senda henni Benna-bækurnar áritaðar með þakklæti fyrir ljóðið. SKI PAUTíiCRÐ RIKISINS Aðvörun Hjer með skal athygli vakin á því, að vörur sem sendast áttu með Esju í þessari viku til Akureyrar, Siglufjarðar, Húsavíkur og Kópaskers verða allar sendar með mótorskipinu Straumey EA 381, og vörur, sem áttu að sendast með Esju til Hornafjarðar, Djúpavogs, Breiðdalsvíkur og Stöðvar- fjarðar verða sendar með mót- orbátunum Hvanney og Sæv- ari, Hornafjarðarvörur að mestu leyti með Hvanney. — Þetta eru sendendur beðnir að athuga vegna vátryggingar varanna og fleira. Unglingur j óskast til að vera úti með | 2 stálpaðar telpur frá kl. | 10—6 á daginn. Uppl. í |j síma 4109. 3 inuinitnnu Stúdent óskar eftir vel launaðri atvinnu til áramóta. Til- boð sendist afgr. Mbl. sem fyrst, merkt: „Áríðandi — 356“. BÍ.ST AÐ ALGLÝSA í MORGLMIL4ÐIMJ Stá iLa óskast í vist. Gott sjer- j herbergi. Valgerður Stefánsdóttir Garðastræti 25. immnmaiiBaflii-iiiiitiiMiiiiiimiimiiiiiittttiMiiitMictMia Asbjörnsons ævintýrin. — Óglejrmanlegar sögur Sígildar bókmentaperlur. bamanna. líllllllllflMIIIIIIIIIIMIMMIIIIIII SKIPSTJÓRA- OG STÝRIMANNAFJELAGIÐ GRÓTTA heldur skemmfiifund í Tjarnarcafé, uppi, föstudaginn 3. okt. kl. 8 e. h. fyrir fjelaga og gesti. Ýmislegt til skemtunar. Aðgöngumiðar verða afhentir í Versl. Boston, Lauga- veg 8 og hjá formanni fjel. Bergst. 14. NEFNDIN. VepnaviilípEi. i Nanking í gærkvöldi. HERSVEITIR kínversku stjórn arinnar hafa tekið ýmsar þýð- ingarmiklar stöðvar af komm- únistum meðfram járnbrautinni frá Ciiangchun og Mukden og einnig hafa þeir sótt langt norð- ur fyrir Ilwaiten, sem þeir her- tóku nýlega. Hinsvegar hafa kommúnistar unnið nokkuð á við járnbraut- ina frá Tientsin til Mukden. -— Hafði ait verið rólegt á þeim vígstöðvum í tvo mánuði og kemur sókn kommunista þar stjórninni nokkuð á óvart. — Stjórnarsinnar hafa. hörtckið flutningaskip, sem var að flytja mikið af hergög.num til komm- únista. — Reuter. <*> Eslenskir guðfræðingar 1847—1947. Ihílíðarrit á aldarafmæli Prestaskólans. 1. bindi: Sjera Benjamín Kristjánsson: Saga Presta- skölans og Guðfrœðisdcildar Háskóla íslands. Þctta er mjög ítarleg lýsing á aðdraganda að stofnun PreStaskólans — sem þá þótti stórt fyrirtæki —, starfi hans í rneir en 60 ár og starfi guðfræðideildarinnar eftir að Háskóli íslands tók til starfa. Myndir fylgja af kenn- un:m, sem starfað hafa að guðfræðikennslunni þetta tímabil, svo og gömlu prestaskólahúsunum í Hafnar- stræti og Austurstrætk 2. bindi: Björn Magnússon dósent: Kandidatatal 1847 —1947. Viðbætir: Kandidatar frá Kaupmannahafnar- háskóla. Hjer er um að ræða geysifróðlegt og merkilegt rit, sem kostað hefir höfund þess óhemju vinnu og fyrirhöfn pg ómissandi verður hverjum þeim fræðimanni, sem fæst við ættfræði og persónusögu. — Myndir fylgja æfiágrip- um allflestra guðfræðinganna, alls yfir 400 myndir. Það fer ekki hjá þvi, að íslenskir Guðfrœðirigar 1847 —1947 verði talið eitthvert merkasta rit sinnar tegundar, er út hefir verið gefið hjer á landi, enda ekkert verið til sparað af höf. og útgef. hálfu, til þess að svo mætti verða. Ritið er 727 bls. i Skírnisbroti, með hátt á 5. hundrað myndum, en kostar þó ekki nema 100 krónur. Fæst hjá bóksölum og útgefanda, sem sendir það gegn póstkröfu hvert á land sem er. JJ.f. Júftur Reykjavik. — Sími 7554. — Pósthólf 732.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.