Morgunblaðið - 18.10.1947, Page 12

Morgunblaðið - 18.10.1947, Page 12
12 iriORGU ISBLAÐIÐ Laugardagur 18. okt. 1947 — Meðal annara orða... Framh. al bls. 8 kór þessi mun aðeins eiga að koma fram í útvarpinu einu sinni til tvisvar í mánuði, að við eigum marga ágæta kóra, sem sjálfsagt mundu fúsir til að láta útvarpshlustendur heyra til sín, og loks, að sýni- legt er, að útvarpskórinn mundi aðeins að sáralitlu leyti geta dregið útvarpsdagskrána upp úr því fábreytnisfeni, sem hún er sokkin í — þegar allt þetta er athugað, finnst mjer eins og jeg gæti bent á svo ótal margar aðrar leiðir til að eyða þessum 70—75.000 krónum. Því það er fábreytnin og deyfðin, sem er meinsemdin. Sannleikurinn er sá, að á því herrans ári 1947, er ríkisút- varpið enn í sömu barnafötun- um og það var í, þegar það fyr- ir 17' árum fyrst leit dagsins ljós. — Og þau eru orðin gat- slitin, fötin. • • Er það til dæmis ekki næsta ægileg tilhugsun, að maður skuli enn einu sinni eiga eftir að opna fyrir tækið sitt og hlusta á 90 mínútna leikrit, sem í engu verður ólíkt leikritinu þar á undan, nema ef vera skyldi að tækið, sem síðast var notað til líkja eftir eimpípu- blæstri, í þetta sinn verði stað- gengill rómantísks næturgala eða marrandi hurðar? Og er það ekki sannast að segja voða- legt, að kvölddagskrá útvarps- ins 30. júlí í ár verður sjálfsagt vart talin kljenni en dagskráin eitthvert kvöldið í næstu viku, þótt útvarpsefnið þetta um- rædda sumarkvöld hafi verið á þessa leið: 19,30 Tónleikar: Óperulög (plötur), 20.00 Frjett ir 20,30 Útvarpssagan, 21,00 Tónleikar: Norðurlandasöng- menn (plötur), 21,15 Erindi: Nýjar leiðir (Are Waerland, heilsufræðingur), og loks frjett ir. — o • Enginn vafi er á því (mundi jeg ljúka brjefi mínu), að eng- inn einn maður á sök á, að út- varpið skuli eftir öll þessi ár vera eins og seinþroska barn í vöggu. Fullvíst er og, að deyfð hlustendanna má þar að nokkru um kenna. Margir þeirra 'virð- ast orðnir „rótgrónir við system ið“, og hinir ánægðustu. En það nær ekki nokkurri átt — og þar hygg jeg að flestir sjeu mjer sammála — að útvarps- efnið sjálft liggi í öskustónni innan um skrifstofueyðiblöð og launakvittanir og uppdrætti af nýjum útvarpshöllum. Útvarpsmenn verða að gera sjer það ljóst, að það er jafn auðvelt að loka fyrir tækið sitt, hvort sem hljóðneminn stendur í glæsilegri nýbyggingu eða bragga einhverssstaðar á an- nesjum. Því það er útvarpsefnið —- dagskráin — sem þyngst er á metaskálunum, þegar útvarps hlustendur dæma um gildi rík- isútvarpsins. Asbjörnsons ævintýrin. ■ Ógleymanlegar sögur Sígildar bókmentaperlur, barnanna. fímm snfsiúfiia krossgáfan Lárjett: — 1 klóra — 6 eld- stæði — 8 tvíhljóði — 10 slagur — 11 afl — 12 íþróttafjelag ■— 13 slá — 14 stafur — 16 ana. Lóðrjett: — 2 hávaði — 3 herbergið — 4 fljót — 5 mála — 7 sáldrað — 9 reiðihljóð — 10 for — 14 fæði — 15 eins. Lausn á síðustu krossgátu. Lárjett: — 1 rígur — 6 ólm — 8 ab — 10 il — 11 glóðina — 12 ná — 13* gg — 14 net — 16 sýgur. Lóðrjett: — 2 íó — 3 glaðleg — 4 um — 5 ragna — 7 slagi — 9 blá — 10 ing — 14 ný — 15 tu. iiiiiffiiimiiimiiiiiimimiimiMiiiiiMitiiiiiMiiiiiiitimi: AU GLY Sl (V G ER GULLS IGILL l iiiiMmMimiiiMMiiiiiimiiMiimiiiiiuiiimmiimmmra Húsmæðrafjelag fteykjavík- ur. — Konur, munið basarinn n. k. mánudag. Komið gjöfum fyrir sunnudag til Jónínu Guð mundsdóttur, Barónsstíg 80, Helgu Marteinsdóttur, Engihlíð 7, Kristínar Sigurðardóttur, Bjarkarstíg 14 og Ingva And- ersson, Skólavörðust. 22. Framh. af bls. 5 bæri til þess að hefjast' handa um úrlausn dýrtíðarmálanna og verðbólgunnar. Fjárhagsráð vill enn ítreka nauðsyn þess og jafnframt benda á, að vegna hinna yfir- standandi örðugleika, verður eigi komist hjá að spara enn meira allar innfluttar neysluvör ur, en leggja alla stund á að efla útflutningsframleiðsluna.“ Tilkyianing iil bifreiðastjóra Að gefnu tilefni skal hjer með brýnt fyrir bifreiða- stjórum, að hverskonar ofhleðsla á bifreiðum er strang lega bönnuð. Má hleðsla aldrei vera meiri en bifreiða- eftirlitsmenn hafa ákveðið og skrásett í skoðunarvottorð Brot gegn þessu varða sektum. Lögreglustjórinn i Reykjavík, 17. október 1947 Sigurjón Sigurðsson ■— settur — ÖEÉÍÖ F. 17. okt. 1857. — D. 16. mars 1947. Llver lifði hjer í ljósi vona, og lengi fyllti hið auða svið? Gengin er veg sinn gömul kona, Guðrún sem oftast var kend við Hlið. Þó höggvið sje ekki hærra en svona. Hver er það nú sem tekur við? Búið hafði í Bænum lengi — búin lengi í hinstu för. Gæfan fyrrum við gleðistrengi gaf henni ríflegt' þrelc og fjör, og nú á efra ára vengi ekkja hún-bjó við fábreytt kjör. Störfin af höndum öll hún innti — yfir sitt langa runna skeið. Svo þau oss bert á manninn minnti miskunarverk er gjörði á leið. Hún harla lítið sínu sinnti —- sífelt að hugsa um þann sem leið. Hún var við alt til líknar lagin — það líf hennar var og hjartans fró, og þegar leið á ævidaginn hún átti að hafa næði og ró •—■ — oft var á ferli um allan Bæinn í erindum þess er fjærri bjó. •— Títt var að gesti að garði bæri til gistingar, bæði af landi og r.jó, harla lítið þó húsið væri —- ’ hjartað fann altaf rými nóg, og alltítt var það hún ofan færi úr sínu rúmi i þrönga kró. Áður fyrr bjó hún úti’ við sæinn, útvegsmannskona traust og merk. Bæði inni og úti við bæinn afburðasnjöll við skylduverk, og manni sínum til liðs var lagin — lífsstefnan var svo hrein og sterk. Nú eru hjer um luktar leiðir lífið horfið á æðra svið. Hann sem að allra götur greiðir göngu hennar tryggir sjer að lilið og ástarfaðminn blítt útbreiðir, blessar og vcitir himinfrið. /. B. P. X ] • I I MÁLFLUTNINGS- SKRIFSTOFA | Einar B. Guðmundsson. ! i Guölaugur Þorláksson | Austurstræti 7. Símar 3202, 2002 Skrifstofutími kl. 10—12 og 1—5. = i 'UUIIIICfHHIHHIIIUMUHIIIItimiMMIimilHllllimiHHUB wJJjáÍpio tii aÍ rjrœÍa iandic). cJdajjik i iíerf í JandjrceÍíiaíjóÍ. V ’ -/'L-' úiný/ýí .JiÍijip.'.r'.ií-j 29- X-9 ^ ^ Eftir Robert Storm | Kalli: Heyrðu mig nú, hvernig getur þú dæmt um það, hvort taka þarf af mjer fótinn? Maðurinn: Jeg gleymdi að geta þess — jeg er læknir. En þetta e rþinn fótur, ekki minn. Það er sjúkrahús hjerna skammt frá. Jeg skal flytja þig þangað. Kalli: Nei, bíddu. Maðurinn: Jeg hjelt ekki þjer mundi geðjast að þessu .... Kalli. — Kalli: Hvað segirðu? Hvernig veistu hver jeg er? — En meðan þessu fer fram, er Phil Corrigan að leita Kalla. Hann fer hús úr húsi, en enginn getur gefið hon- um neinar upplýsingar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.