Morgunblaðið - 01.11.1947, Side 9
Laugardagur 1. nóv. 1947
MORGVNBLAÐIÐ
9
TVEIR MENTASKÓLAR í REYKJAVÍK
ENN HAFA risið nokkrar um-
ræður um það, hversu leyst
verði úr húsnæðisvandræðum
þeim, sem Menntaskólinn í
Reykjavík á við að stríða, og
hver verða skuii örlög hins
gamla og virðulega skóla við
Lækjargötu. Við höfum heyrt,
að fyrir bæjarstjóm Reykjavík-
ur liggi nú fyrirspurn kennslu-
málaráðuneytisins um það,
hvar Reykjavíkurbær vilji veita
lóð fyrir nýtt menntaskólahús.
En í annan stað hefur Jónas al-
þingismaður Jónsson lagt enn á
ný fram þingsályktunartillögu
um það, að gamla Mentaskóla-
húsið skuli varðveitt sem skóla-
hús, ríkið taki eignamámi þær
lóðir, sem áður lágu undir skól-
ann og þar verði reístar nægi-
legar byggingar fyrir þarfir
hans. Nú munu vera nærri 20 ár
síðan Jónas Jónsson hreyfði
þessu fyrst, er hann var kenslu-
málaráðherra og fór fram á það
við Reykjavíkurbæ, að hann
gæfi skólanum lóðir þessár. Við
því var þá dauðheyrst, því mið-
ur.
130 metra langur
mentaskóli
Fyrir rúmu ári var það efst á
baugi hjá ýmsum valdamönn-
um, að reisa nýtt skólahús í
Laugarnesi fyrir 500—600 nem-
endur, en leggja niður kennslu í
Menntaskólahúsinu. Þá skrifuð-
um við grein í MbL, þar sem við
sýndum fram á þar m.a., hvert
óhagræði það væri flestum, sem
skólann sækja, að hann væri í
þeim útjaðri. Flestir þeir, er við
okkur ræddu, töldu okkur hafa
rjett að mæla. En enginn valda-
manna ansaði þessu hvorki til
samþykktar nje andmæla.
Þó fór svo, að hætt var við að
reisa skólahús í Laugarnesi og
var borið því við, að landrými
þar þyrfti að nota til annars.
Við höfðum bent á skólastað í
Háteigstúni, einhverjum feg-
ursta stað Austurbæjar. — Þ.ar
hafa nú verið reist venjuleg í-
búðarhús. Þá var ráðgert, að
reisa skólahúsið í norðurhlíð
svonefndrar Golfskálahæðar. Á
teiknistofu skipulagsstjóra,
Harðar BjarnasoncU*, var gerð
teikning af skólahúsi á þeim
stað, og þó að mestu eftir teikn-
íngu af nýjum sænskum skóla.
Átti það hús að vera þrjár hæðir
og ....... 130 m. langt (þetta
er ekki prentvilla, eitt hundrað
og þrjátíu metrar á lengd,
Mentaskólinn er 30 m langur)
og auk þess margar viðbygging-
ar, hús handa rektor, leikfimis-
salur og gríðarstór samkomu-
salur, með föstum sætum, svo
að ekki var þó annar staður fyr-
ir danssamkomur nemenda, en
gangar í kjallara. Tæp 40% af
húsrúminu virtist ætlað kennslu
stofum, en 60% fór í ganga,
stigahús, fatageymí.lvir og ann-
að. Á hverri hæð var 130 m.
langur gangur, eðá sámt. nærri
hálfur km. Teikningu þessa
fengum við kennarar að sjá
rjett í svip, svo að þessar tölur
kunna að vera eitthvað óná-
kvæmar.
Enda höfum við allar frjettir
af þessum bygging rmáli á skot-
spónum og höfum aidrei verið
tilkvaddir til ur mðna um þessi
efni. Að ytra útliti virðist bygg-
Eftir Einar Magnússon og Sig-
urkarl Stefánsson
Menntaskólahúsið í Reykjavík.
ing þessi hin reisulegasta og vit-
anlega með einhverskonar
turni, enda henni ætlað það hiut
verk, fyrst og fremst, að loka
þeim hring gríðarstórra skóla-
bákna, sem hafa verið reist eða
reisa skal á hæðunum í og um-
hverfis Reykjavík. Hvort þessi
langa, þriggja hæða bygging
hefði orðið þægilegt og hægt
skólahús fyxir feitiagna, aldraða
kennara, er svo annað mál.
6 hœða skólahús
Hið næsta, er við frjettum á
skotspónum um þessi mál, er til
laga húsameistara Reykjavíkur-
bæjar, Einars Sveinssonar, Til-
lögur hans eða uppdrætti höfum
við ekki sjeð, og förum því hjer
eftir sögusögnum annarra, er
við teljum áreiðanlega.
Einar Sveinsson vill ekki láta
hætta kennslu í gamla Mennta-
skólahúsinu, enda var hann
nemandi þar. En það mun í ráði
einhverra skipulagsmeistara, að
reisa 6 hæða hús á löðunum frá
Bankastræti að Bókhlöðustíg,
og því er hinn gamli stílhreini
Menntaskóli fyrir þeim grjót-
kössum, sem þar eiga að rísa.
Tillaga Einars Sveinssonar er
því sú, að því er okkur er sagt,
að losa gamla húsið af grunnin-
um, setja það á vagn, snúa því
um 90°, aka því að Bókhlöðu-
stíg og setja það á grunn með-
frarn honum beint á móti Mið-
stræti, skilst okkur. Á grunni
Menntaskólans skal svo reisa
sex hœöa skólahús!
Olrkur er sagt, að þessi tillage
sje borin fram í alvöru en ekki
gríni.
Erfiðlega mætti þó búast við,
að gengi að koma nemendunum
á sjöttu hæð út í frímínútUr og
bað þó að lyftur yrði í húsinu,
þær kynnu iíka stundum að bila
og margur feitlaginn, aldraður
kennarinn mundi verða móður
ú hlaupunum upp og niður stig-
ana. Annars þarf ekki um þessa
tillögu að ræða.
Tveir menntaskólar
Hverjar nýjar tillogur valda-
manna kunna að vera á döfinni
nú, vitum við ekki. En hinsvegar
viljum við enn á ný minna á
tillögur okkar í málinu, er við
höfum áður borið fram í Morg-
unblaðinu.
/ Reykjavik eiga aö vera tveir
menntaskólar. annar á aö vera
i Menntaskólanum viö Lœkjar-
götu, en handa hinum á aö reisa
hús í Austurbanum. þar koma
ýmsir staðir til greina, m.a.
Golf skálahæðin.
í Reykjavík er n'i um 50 þús,
íbúar, en á Akureyri 6 þúsund.
í Akureyrarskolanum eru á
f jórða hundrað nemendur og get
ur því ekki talist óeðlilegt, þó að
menntaskólanemendur í Reykja
vík, sem heíur 8 .sinnum fleiri
íbúa, væru 800. Enginn mun nú
telja, að óþarfi sje að hafa einn
menntaskóla á Akureyri. Hví
skyldi þá vera óþarfi, .að Reykja
vík hefði tvo?
Á meðan valdamenn hafa ver-
ið að bolláleggja um að yfirgefa
gamla Menntaskólann og byggja
ýmist 130 jnetra langa ranghala
í útjöðrum bæjarins eða 6 hæða'
skýjakljúfa í miðbænum, hefur
verið reist myndarlegt heima-
vistarhús handa Akureyrarskól-
anum. En Reykjavíkurskólinn
á ekki einu sinni einn bedda
fyrir utanbæjarnemendur. Enda
er það svo, að utánbæjarnem-
endum er svo til ókleift að
stunda nám hjer í Reykjavík
vegna húsnæðisleysis og fyrir
dýrleika sakir. I ess vegna va.
það þarft verk, er Bjarni skóla
stjóri á Laugarvatni íjekk þv:
framgengt, að þar heíur veric
reist snoturt hús ti) þess af
hefja þar byrjun að mennta
skólakennslu.
I lögenum um mcr.ntaskóla e:
það fram tekið, að þricji mcr.ta
skólinn, sem stofnaxður verður,
skuli vera í svelt. Te’ja má mjög
líklegt, að á r.æstu árum rísi sú
skóJi á Laugarvatni, þó að vil
teljum, að af sögulegum ástæo-
um æíti hann heldur að \ c;a í
Gkálholti, en bændaskólirn aft-
ur á móti á Laugarvatni. Þarf
því ekki annað eri að bæta því
ákvæði ir.n í lögin, að síðan
skuli stofnaður annar mennta-
skóli í Reykjavík.
Mannmargir skólar
óheppilegir
Lóðir þær, sem Menntaskól-
inn í Reykjavík átti áður, eiga
aftur að hverfa til skólans. En
þar á EKIÍI aö reisa neinar
byggingar til að hýsa fleiri nem
endur, en rúmast með góðu
móti í gamla skólahúsinu. Þar
á aðeins að reisa nýtt leikfimis-
h's, st.ofur fyrir eðlisfræði og
efnafræðikennslu og lítið
heimavistarhús, auk rektorsbú-
staðar. Við höfum áður sýnt
fram á, að mannmargir skólar
eru í alla staði verri en fámenn-
ir. í Menntaskólanum eins og
hann er nú, er ágætt rúm fyrir
10—12 bekkjadeildir, eða 250—
300 nemendur. Nú eru í skólan-
um’ á fimmta hundrað nemend-
ur og mundu vera miklu fleiri,
ef utanbæjarmenn sæju sjer
möguleika á húsrúmi í Reykja-
vík.
Þess vegr.a á að reisa nýjan
menntaskóla í Austur'oænum.
Ekki 13(þ metra langa skýja-
borg með turni eða sex hæða
skýjakljúf, með stórfeldum
göngum og til að vera mihnis-
merki hugvitssamra húsameist-
ara, er mundi kosta tugi millj.,
heldur snoturt og haganlegt
SKÓLAIIÚS, sem er fyrst og
fremst ætlað til kennslu og
þyrfti ekki að kosta rema svona
hriðjung eða minna af því fje,
em er íarið í byggingu Gjó-
nannaskólans,
Túsrún t'l bráöabirgða
. N er okkur 1 jáð, að efnahag-
jr ríkiscjóðs muni ckki svo góo-
ir að sir.ni, að mikið f je verði af
ögu næsíu ár til byggingar nýs
menntaskólahúss. Okkur er því
3jóst, að nokkur ár muni líða,
þar til slíku húsi, þótt ekki væri
;tórt, yroi í:omið upp, enda
ganga allar slíkar byggingar
seint hjer. Fyrir því veröur að
íinna einhver ráð. til a3 fá hús-
rúm til bráðabirgða fyrir
kennslu í menntaskólanum.
Nú þegar hefur orðið að hefja
síðdegiskennslu í 4 bekkjum*
Menntaskólans. Sjáum við því -
ekki annað ráð vænna tn' ;iflT
svo verði um sinn, þar til nýtt'
menntaskólahús rís af grunni (
Austurbænum. En það sem gera
á strac er að samþykkja tillögu
Jónasar Jónassonar um eignar-
nám á lóðunum fyrir ofan
Menntaskólann. Þar eru nokkur
<
gömul, en sæmileg hús. í ein-
hverju þeirra gæti rektor fengiíí
bústað til bráðabirgða, en hann
býr nú í leiguíbúð. En í öðrura
mætti koma upp vísi að heima-
vist, svo að utanbæjarnemendui-
af Suður- og Vesturlandi hefðu
einhvefja möguleika á ódým
húsnæði í Reykjavík.
Ýmsir hafa haldið því frarn,
að þessar lóðir og hús sjeu svo
dýr, að ríkissjóður hafi ekki
efni á að kaupa þau. Þetta er
hin mesta firra. Hjer er cngi*
verðmæti eytt hvorki erlendum
gjaldeyri nje vinnu, þó að þessar
lóðir og þessi hús skipti um eig-
endur. Það eina, sem skeður, er
það, að ríkissjóður tekur nokkra
peninga úr sínum vasa og læt ur
í vasa nokkurra skattþegna.
sem nú eiga þessi hús og þessar
lóðir og fær þessi verðmæti i
staðinn. Og þá þekkjum við illa
forráðamenn ríkissjóðs á Al-
þingi og í ríkisstjórn, ef þetr
hafa ekki einhver ráð til þess
að láta þessa peninga flytjast
smám saman aftur á milli vasa.
Við höfum ennþá einu si»ná
gert grein fyrir-skoðunum okkar
á þessu máli og þeim tillögum,
sem að okkar viti eru skynsam-
legastar og minnst kostt:r a<f*
framkvæma. En við viljum
bæta því við, að hjer er ekki að-
eins um ,,praktiska“ hiutr a<J
ræða. Sá, sem staðið hefur hvort
heldur að degi eða kvöldi a
tröppum gamla Menntaskólans
og horft niður eftir skólabrúnnt
til Dómkirkjunnar og Alþingis-
hússins með nið heillar aldar að
baki sjer, hann fyllist sársauk.a
við þá tilhugsun, að flytjast úr
þessura hoimi gamalla minr.inga
og ofufselja hið aldna hús -td
niðurrifs eða annarlegri starf-
semi.
Einar Magnusson.
Sigurkarl Stejánsson.
imarmnar i russ-
netfci leppnkjuuum
Búdapest í gærkvöldi.
KVÖLDBLÖÐIN hjer í Búda-
pest birtu í dag \mdir stóruxu
fyrirsögnum fregnir af því, að
hinn opinberi ákærandi ung-
versku stjórnarinnar hefði sak
að Zoitan Pfeiffer lei ðtog.v
annars stærsta stjórnarand-
stöðuflokksins í iandinu um
sviksamlega starfsemi, sem
beint hefði verið gegn stjórnar-
völdum landsins.
Blöðin bæta þ\í við freg.il
þessa, að ákærandinn hafi far
ið þess á leit við ungverska
þingið, að það 'svifti Pfeiffec
þinghelgi sinni, svo hægt sjc
að hantaka hann.
Pfeiffer tjáði blaðamöníium
í dag, að ásakanir ákærandans
væru helber uppspuni.
— Reuter.