Morgunblaðið - 06.02.1948, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 06.02.1948, Blaðsíða 2
 MORGUNBLAÐIÐ Föstudagur 6. febrúar 1948 Fjárhagsáætlun fleykjavíkurbæjar: Haldið verður úfiram umbótum í húsnæðismálum, bætt aðstaða átgerðarinnar og öflugur stuðningur við íþróttir og heilbrigðismál Tillögur Sjálfstæðismanna og ræða borgarstjóra á bæjarstjórnarfundi í gær A fundi í bséjarstjórn Reykja víkur í gær var fjárhagsáaétlun bæjarins fyrir árið 1948 til síð- ari umræðu. Hóf Gunnar Thoroddsen borg arstjóri umræður um fjárhags- áætlunina. Gat hann þess í upp- hafi máls síns, að hann hefði á síðasta fundi, er fjárhagsáætl unin var lögð fram, gert ítar- lega grein fyrir afkomu bæjar- ins, á s.l. ári og framkvæmd- um, sem unnið hefði verið að á vegum hans og stofnana hans. öæti mál hans af þeim ástæð- um því orðið styttra nú. Síðan 'aneri borgarstjóri sjer að sjálfri íjárhagsáætluninni. Þau vinnu brÖgð hefðu verið við höfð, að bæjarráð hefði rætt öll erindi, sém borist hefðu ásamt breyt- jngartillögum, sem þar hefðu komið fram. Það hefði síðan komið sjer samar. um nokkrar breytingartillögur, sem allir flokkar þess stæðu að. En auk þess hefðu nú verið lagðar fram aðrar breytingartillögur frá hin um ýmsu flokkum. Breytingartillögue bæjarráðs. Borgarstjóri gerði síðan grein fyrir þeim breytingartillögum, sem bæjarráð stóð sameiginlega íað. Fyrsta tillagan var um hækk- un til tannlækninga í skólum, úr 130 þús. kr. í 150 þúsund. Fjárveiting til þessa hefði verið miðuð við það að einn tannlækn ir starfaði í hverjum hinna 4 barnaskóla bæjarins. En tannlæknarnir hefðu að- eins unnið hálfan daginn í skól unum en hinn helminginn hefðu þeir stunöað atvinnu sína annarsstaðar. Með viðbót- arfjárveitingunni væri hinsveg ar að því stefnt, að fá einn skóla tannlækni, sem unnið gæti í þágu skólanna allan daginn. Næsta breytingartillaga var urn að lækka ræstunarkostnað Austurbæjarbarnaskólans, sem þótt hefði óeðlilega hár, úr 170 þús. í 130 þús. kr. Hinsvegar legði bæjarráð til að viðhalds- kostnaður sama skóla hækkaði t.im sömu upphæð. Þá lagði bæjarráð til að Lúðrasveitin Svanur fengi 25 þúsund kr. styrk, þar af 15 þús. kr. til hljóðfærakaupa. Sú upp- hæð hefði einnig v'erið á síðustu fjárhagsáætlun en ekki verið notuð vegna þess að hljóðfær- in hefðu ekki fengist. Hjer væri því einungis um endurfjárveit- ingu að ræða. Hækkun til íþróiíamála Þá skýrði borgarstjóri frá því að brjef hefði borist frá íþrótta- bandalagi Reykjavíkur þar, sem farið \ æri fram á íhlutunarrjett því til handa um það, hvernig þvi fje væri varið, sem veitt væri til íþrótta og útiveru. — Bæjarráð hefði fallist á að æski legt væri að hafa samráð við jþessi samtök, sem öll íþrótta- f jelög í bænum væru í, um þessi mál og lagði því til að ein heild- arfjárveiting væri veitt til þeirra og skyldi henni varið eft- ir ákvörðun bæjarráðs að fengn «m tillögum í. B. R. Jafnframt lagði bæjarráð til að upphæðin yrði hækkuð um 40 þús. kr. vegna umsókna, sem borist hefðu vegna ýmsra í- jíróttafara og framkvæmda í þágu íþróttalífsins í bænum. 1 þessu sambandi skýrði borg- arstjóri frá því að íþróttaráðu- nautur bæjarins hefði sagt starfi sínu lausu vegna þess að fræðslumálastjórnin hefði sett það að skilyrði fyrir því að hann gæti tekið að sjer starf við Há- skólann. Þá lagði bæjarráð til að Skóg ræktarfjelag Reykjavíkur fengi 30 þús. kr. styrk og væri það sama upphæð og áður. Til sorpeyðingarstöðvar lagði bæjarráð til að tekinn yrði upp nýr liður, 250 þús. kr., byrjunar- framlag. Ennfremur að liðurinn til fasteignakaupa og innlausn- ar á erfðafesturjettindum yrði hækkaður um hálfa milj. kr. upp í eina milj. kr. Væri sú hækkun óhjákvæmileg vegna kaupa bæj- arins á fasteignum í sambandi við skipulagsbreytingar. Til leikvalla og dagheimila lagði bæjarráð til að 800 þús. kr. yrðu veittar. Síðasta breytingartillaga bæj- arráðs var um að taka upp nýj- an lið, 1 milj. kr. framlag til, síldarverksmiðju í samræmi við fyrri samþyktir bæjarstjórnar. Breytingartillögurnar hækka útgjöldin um 2,3 milj. kr. Þegar borgarstjóri hafði skýrt breytingartillögur bæjarráðs skýrði hann frá því að þaar mundu hækka útgjöldin um 2,3 miljónir króna og svaraði það til þess að heildarútsvarsupp- hæðin þyrfti að hækka um 5 af hundraði, en sú hækkun væri í nákvæmu samræmi við fólks- fjölgunina j. bænum á árinu 1947 en hún hafði orðið 5 af hundraði. Þá gat borgarstjóri þess að reynt hefði verið að ná sam- komulagi í bæjarráði um lán- töku vegna Sogsvirkjunarinnar en það hefði ekki tekist. Bæjar- ráð stæði því ekki sameinað að slíkri tillögu en hún myndi verða ílutt af einstökum bæjar- fulltrúum. Þörf nýrra skólabygginga Borgarstjóri mintist þessu næst á það, að við afgreiðslu síðustu fjárhagsáætlunar, hefði verið samþykt tillaga um að fela fræðsluráði að gera áætlun um skólaþörf bæjarins á næstu árum. Hefði fræðslufulltrúi unn ið að henni og hefði hún nú ver- ið lögð fram. Kvað hann mikla nauðsyn bera til þess að koma upp nýj- um skólum í bænum, bæði vegna hinnar miklu fólksfjölgunar og breytinga þeirra, sem gerðar hefðu verið á fræðslulöggjöf- inni. Er þessi áætlun um skóla- þörfina birt á öðrum stað í iplað- inu. Borgarstjóri kvað það velta á fjárhagsgetu bæjarsjóðs og rík- issjóðs, hvernig gengi að fram- kvæma þessa áætlun. En skóla- byggingarnar hlytu einnig að koma til kasta Fjárhagsráðs^ þar sem fjárfestingarleyfi þyrfti til þeirra. Á s.l. ári hefði skóla- byggíng fyrir íbúa Kleppsholts- ins strandað á því að fjárfest- ingarleyfi fjekst ekki. Þá gerði borgarstjóri einnig grein fyrir þremur hækkunar- tillöfum frá fræðsluráði í sam bandi við fjárhagsáætlunina vegna kostnaðar við skólana. Námu þær samtals 100 þús. kr. Sameiginlegt álit í húsnæðis- málunum. Bæjarstjórn varð sammála um að bera fram sameiginlegt álit þeirra flokka, sem fulltrúa eiga í bæjarstjórn, um þá stefnu, er tekin verður í húsnæðismálun- um. Alit þetta er mjög samhlj. þeirri tillögu er Sjálfstæðis- menn höfðu gert og ætluðu sjer að flytja, er ekki varð vitað um samkomulags vilja hinna flokk- anna. Alitið er svohlj.: Bæjarstjórn ítrekar fyrri stefnu- yfirlýsingar sínar um að útrýmt verði heilsuspillandi íbúðum í bænum. Hún hefir í þeim tilgangi bygt 72 íbúðir við Skúlagötu, sem allar voru teknar til afnota á s.l. ári og 32 íbúðir við Miklubraut, sem tilbúnar verða í ár. Til þess að ná því marki, er að framan greinir, telur bæjarstjórnin eink- um nauðsynlegt: Að lögð sje rík áhersla á að ljúka byggingu þeirra íbúðar- húsa, sem nú eru í smíðum. Að haldið sje áfram íbúðar- húsabyggingum svo sem áður er ráð fyrir gert og lögð á það meg- in áhersla að koma upp tveggja og þriggja herbergja einföldum heilsusamlegum íbúðum. Bæjarstjórnin skorar því á rík- isstjórn og Fjárhagsráð að gera þessar framkvæmdir mögulegar með nauðsynlegum fjárfestingar leyfum og lánveitingum samkv. ákvæðum 3. kafla laga nr. 44, frá 1946 um opinbera aðstoð við byggingar íbúðarhúsa, enda sje þessum byggingarframkvæmdum tryggt mannafl og efni með því m. a. ef nauðsyn krefur, að fresta öllum framkvæmdum sem ekki eru jafn aðkallandi vegna al- mennmgsheilla. Ályktunartillögur Sjálfstæðismanna. Bæjarfulltrúar Sjálfstæðis- manna lögðu fram svohljóð- andi tillögur til ályktunar í sam bandi við afgreiðslu fjárhags- áætlunarinnar: Franikvæmdasjóður. Bajarstjórn samþykkir að láta renna í framkvæmdasjóð það af striðs gróðaskatti, sem umfram verður eina milljón króna af því sem kemur 3 ■ lilut bæjarins. Skattamál. Bæjarstjórn Reykjavikur skorar á Alþingi að breyta gildandi skattalög gjÖf í það horf, að hlutur bæjar- og sveiTarsjóða af stríðsgróðaskatti verði aukinn upp í 75 af hundraði. Sparnaður í rekstri bæjarins. Bæ'jarstjórn ályktar að fela hag- fræðingi bæjarins og forstöðumanni endurskoðunarskrifstofu bæjarins að halda áfram því starfi, sem þeir hófu á siðastliðnu ári, samkv. ályktun bæj arstjómar, að gera tillögur um endur bætur og sparnað í rekstri bæjar og bæjarstofnana, i samráði við forráða menn hverrar starfsgreinar. Vöggustofa. Bæjarstjórnin telur liina brýnustu þörf á að koma upp vöggustofu liið allra fyrsta og telur húsið Hliðarenda henta vel til þeirra nota. Felur hún bæjarráði og borgarstjóra að láta nú þegar fara fram núkvæma athugun á þvi, hvort húsið henti best til þess að vera vöggustofa, dagheimili eða leikskóli. Húsnæði ungbarnaverndar. Bæjarstjórn telur, að húsnæði það. sem ungbarnavernd Liknar ó við að búa, sje alveg ófullnægjégidi, og felur borgarstjóra að halda áfram tilraun- um til þess, í samráði við bæjarráð, hjúkrunarfjelagið Likn og fjelags- málaráðuneytið, að útvega hentugt húsnæði fyrir ungbarnaverndina, þangað til reist hefur verið heilsu-' verndarstöð Reykjavíkur. Fávitaliæli. Bæjarstjórn Reykjavikur skorar enn á Alþingi og rikisstjóm að koma sem fyrst á fót fávitahæli eins og lög nr. 18 frá 1936 gera ráð fyrir. Þykir bæjarstjóm miður að ekkert skuli hafa orðið úr framkvæmdum ó sið- asta ári, enda þótt fje væri heimilað í þessu skyni í fjórlögum fyrir 1947. íþróttamál Bæjarstjórn ákveður að haga fram kvæmdum og undirbúningi á íþrótta svæðinu í Laugardalnum á þessu ári í samræmi við tillögu Laugardals- nefndar þannig: Að lokið sje við að gera stóra fram ræsluskurðinn úr Laugardalnum til sjávar. Að jafnframt sje endurskoðuð heild arframræsluáætlunin og framræsl unni haldið áfram, svo að henni verði allri lokið ó árinu. Að byrjnð verði á því að sljetta landið fyrir iþróttaleikvanginn. Að fyrri áætlanir um íþróttaleik- vanginn sjeu endtirskoðaðar af Laugardalsnefnd og endanlegar til lögur síðan lagðar fyrir bæjarstjórn Að gerðar sjeu teikningar að sund laugum og mannvirkjum í sam- bandi við þær, i samræmi við sið- ustu tillögur Laugardalsnefndar, og byrjað á framkvæmdum að fengnu samþykki bæjarráðs. ÆskulýSshöIl og tómstundaheimili. Bæjarstjórn Reykjavikur ályktar að lýsa yfir eftirfarandi: Ef mynduð verða almenn samtök æskulýðsfjelaga í bænum, sem standa álmenningi opin, ón tillits til stjórnmálaskoðana, í þeim til- gangi að byggja og reka æskulýðs- höll, tjáir bæjarstjórnin sig reiðu- búna til að leggja til ókeypis lóð undir slíka byggingu og greiða 50% byggingarkostnaðar, enda greiðist þá byggingarkostnaður, scm svarar 40% úr fjelagsheimila sjóði, en 10% greiðist af fjelaga- samtökunum. Framlag bæjarins er þvi skilyrði bundio, að samkomulag náist við samtök æskulýðsfjelaganna um fyr irkomulag og rekstur stofnunar- innar. Jafnframt verði stefnt að þvi að -koma upp tómstundaheimili fyrir börn og unglinga í hinum ýmsu bæjarhverfum. Felur bæjarstjórnin harnavérndarnefnd og leikvalla- og dagheimilanefnd að gera áætlun um þörf slíkra heimila og leggja fyrir ba'jarstjórn tillögur um fraiQ kvæmdir. tTtvegsmál. Á undanförnum árum hefir bæjaií stjórnin stuðlað að kaupum 10 ný> tisku togara og 13 nýrra vjelbáta til bæjarins. Af þessum 10 togurum eru 6 þegar komnir og hinir 4 væntan- legir á þessu ári. Af vjelbátunum eru 12 komnir og einn væntanlegur inn an skamms. Nú verður að leggja höfuðáherslvi á að bæta aðstöðu til útgerðar frá bænum. 1 þessu sambandi vill boéjarstjórnin leggja áherslu á, að þegar ó þessu ári verði framkvæmdur sá hluti af tillögum hafnarstjórnar um stækkun á höfninni, sem nær til byggingar gaiðs frá Ingólfsgarði, lengingar Ing ólfsgarðsbryggju og byggingar einnar nýrrar bryggju í kvínni austan Faxa garðs. Bæjarstjórnin vill í framhaldi af forgöngu sinni um byggingu nýrrar síldarverksmiðju, sem ákveðið hefir verið að verði í skipi, sem hafi bæki- stöð í Reykjavík, leggja áherslu á að skipinu verði búinn staður vestur við Grandagarð. Bæjarstjómin ákveður að þegar skuli hafist handa um lagningu Mýr argötu frá Ægisgötu að athafnasvæði vesturhafnarinnar, til að bæta sam- göngur við vesturhluta hafnarinnar, Ræddi borgarstjóri nokkrar þessara tillagna en kvað sum- um þeirra verða gerð skil af öðrum bæjarfulltrúum Sjálf- stæðismanna. í sambandi við húsnæðismál- in, sagði borgarstjóri, að treg- lega hefði gengið að á fram- lag ríkissjóðs til þeirra bygg- inga, sem bærinn hefði ráðist inga, se mbærinn hefði ráðist í. Ennfremur hefði synjun á fjárfestingarleyfi hamlað fram kvæmdum. En hann kvaðst: vona að Fjárhagsráð sæi hina brýnu nauðsyn fyrir aukningu íbúðarhúsnæðis í bænum. Varðandi sparnað á rekstri bæjarins væri það að segja, að nefnd hefði unnið að því. að gera tillögur um það og hefði hún skilað áliti. Mætti vænta ýmsra endurbóta í þessu efni. Hann kvað vöggustofu vera már, sem mikil nauðsyn væri á að leysa. Ef húsið Hlíðarendi yrðj tekið til þeirra nota þyrfti að sjá leikskólanum, sem þar hefur verið fyrir öðru húsnæði, Um byggingu fávitahælis. sagði borgarstjóri, að það væri mjög illa farið að þrátt fyrir það að Alþingj hefði árið 1936 sett löggjöf um byggingu slíkr ar stofnunar fyrir forgöngu frú Guðrúnar Lárusdóttur, þá skyldi enn ekkert hafa verið aðhafst í því máli. í fyrra hefði Alþingi samþykt tillögu um fjárveitingu til þess a5 hefja. framkvæmdir, frá Jó- hanni Hafstein og sjer. En enn hefði samt ekki verið hafist handa. Tvær lánsheimildir. í lok ræðu sinnar minntist borgarstjóri á tvær lánsheim- ildir, sem bæjarráð legði til að> veittar yrðu. í fyrsta lagi tif. framkvæmda við hagnýtingu jarðhitans í Mosfellsdal og £ öðru lagi til að taka bráða- birgðalán til greiðslu á dagleg um útgjöldum bæjarsjóðs, enda verði láni greitt af tekjum árs- ins 1948.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.