Morgunblaðið - 26.02.1948, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 26.02.1948, Qupperneq 11
í'immtudagur 26- febrúar 1948 MORGUNBLAÐIÐ 11 Tilkynning K. f. u. k. — U.D. Fundur í kvöld kl. 8,30. Frú As'rid Hannesson annast fundinn. Allar ungar stúlkur hjartanlega velkomnar FILADELFIA Almenn samkoma í kvöld kl. 8,50. Einar Gíslason frá Vestmannaeyjum talar. Allir velkomnir. Hjálpræðisherinn. 1 kvöld kl. 8,30. Söngsamkoma. Allir velkomnir. I.O.G.T. St. Andvari no. 265. Framhaldsstofnfundur í kvöld kl. 8,30. Fjelagar fjölmennið á fundmn og komið með nýja innsækjendur. Æ.T. St. Frón no. 227. Fundur í kvöld kl. 8,30 á Frikirkju vegi 11. Framkvæmdanefnd stórstúk unnar heimsækir. — Eftir fundinn halda systurnar bögglauppboð til égóða fyrir sjúkrasjóðinn. • Æ.T. Kaup-Sala Sagó-grjón Sagó-mjöl Kartöflumjöl Búðingar, margar teg. Súpur í dósum og pökkum „Maggi“-teningar ,,Marmite“- og „Oxo“-kraftur „Sandw.-spread“ Sardinur í tómat og olíu „Snitti“-baunir og grænar baunir. í dósum Rækjur — Rauðrófur — Spínat Marmelade — „Pickles“ Sósur margar teg. Sírop, ljóst og dökkt Gólfbón margar teg. ÞORSTEINSBÍJÐ Hringbraut 61, sími 2803. Hefi kaupanda að góðu iðnaðar- plássi. — F asteignasölumiðstöðin Lækjarg. 10B. — Simi 6530. NotuB húsgögn bg lítið slitin jakkaföt keypt hæst irerðL Sótt heim. Staðgreiðsla. Simi 1691. Fomverslunin, Grettisgötu 45. Vinna HREINGERNINGAR Magnús Guðmundssoh. Sími 6290. RÆSTINGASTÖÐIN. Tökum að okkur hreingeraingar. Simi 5113. Kristján og Pjetur. „Lyngun" Fer hjeðan fimtudaginn 26. þ. m. til Vestur- og Norður- lands. Viðkomustaðir: ísafjörður, Siglufjörður, Akureyri. H.f. Eimskipafjel. íslands Frá Hollandi og Belgíu frá Amsterdam 11. mars, frá Antwerpen 13. mars. EINARSSON, ZOÉGA & Co. h.f. Hafnarhúsinu, Símar 6697 & 7797 2)a 57. dagur ársins. Næturlæknir er í læknavarð stofunni, sími 5030. Næturvörður er í Laugavegs Apóteki, sími 1616. Næturakstur annast Hreyfill, sími 6633. I.O.O.F. 5=129226814 — □ Helgafell 59482277, IV-V-2 Söfnun S.Þ.: Sjúklingur 50 kr., Þórður Rúnar 25 kr. 85 ára er í dag Guðný Guð- mundsdóttir, Vallargötu 26, Keflavík. Danski sendikennarinn Mar- tin Larsen, byrjar háskólafyr- irlestra sína um ,,Den danske Litteraturs og det danske Sprogs Udvikling i förste Halv del af det 18. Aarhundrede“ fimtudaginn þann 26.Mebrúar kl. 6,15 e. h. í II. kenslustofu háskólans. —Eyrsti fyrirlest- urinn verður um Ludvig Hol- berg. Hjónaband. Síðastl. laugar- dag voru gefin saman í hjóna- bandband ungfrú Sesselía Lax- dal og Smári Guðmundsson. — Heimili ungu hjónanna er Bú- staðahverfi 4. Hjónaefni. Nýlega opinber- uðu trúlöfun sína ungfrú Hrafn hildur Leifsdóttir frá Eskifirði og Jakob Halldórsson, Bræðra- borg, Seyðisfirði. Stjórn Kvennadeildar Slysa- varnafjelags íslands í Reykja- vík, þakkar bæjarbúum kær- lega fyrir vinsamlega aðstoð og fórnfýsi við merkjasölu deild- arinnar á fyrsta Góudaginn 22. þ. m. DAGSKRÁ sameinaðs Alþingis í dag kl. IV2 miðdegis: Fyrirspurn til ríkisstjórnar- innar um tilkostnað og reikn- ingsskil við byggingu síldar- verksmiðja á Skagaströiid og Siglufirði (169. mál, Sþ.) (þskj. 385). — Hvort leyð skuli. Efri deild: í dag að lpknum fundi í safh- einuðu þingi: 1. Frv. til 1. um breyt. á 1. nr. 108 frá 31. des. 1945, um bygg- ingasamþyktir fyrir sveitir og þorp, sem ekki eru löggiltir verslunarstaðir (165. mál, Ed.) (þskj. 367). — 2. umr. 2. Frv. til 1. um landshöfn í Höfn í Hornafirði (66. mál, Ed.) (þskj. 79). — Frh. 3. umr. 3. Frv. til 1. um innflutning búfjár (103. mál, Ed.) (þskj. 359). — Frh. einnar umr. 4. Frv. til 1. um breyt á 1. nr. 39 7. aríl 1943, um húsaleigu (155. mál, Ed.) (þskj. 327). — Frh. 1. umr. (Atkvgr.). Neðri deild: í dag að loknum fundi í sam- einuðu þingi: 1. Frv. til 1. um skráning skipa (106. mál, Ed.) (þskj. 380). — 3. umr. 2. Frv. til 1. um sements- verksmiðju (61. mál, Nd.) (þskj. 73). — 3. umr. 3. Frv. ti.l 1. um bann gegn minkaeldi o. fl. (93. mál, Nd.) (þski. 129, n. 373, 374). — Frh. 2. umr. 4. Frv. til 1. um sóknargjöld (84. mál, Nd.) (þskj. 108, n. 378). — 2. umr. 5. Frv. til 1. um eignarnám á ræktuðum og óræktuðum bygg ingarlóðum á Sauðárkróki sunvi an Sauðár (67. mál, Nd.) (þskj. 81, n. 379). — 2. umr. (Ef leyft verður). ÚTVARPIÐ í DAG: 8.30 Morgunútxarp. 9.10 Veðurfregnir. 12.10—13.15 Hádegisútvarp. 15.30—16.30 Miðdegisútvarp. 18.25 Veðurfregnir. 18.30 Dönskukennsla. 19.00 Enskukennsla. 19:25 Þingfrjettir. 19.40 Lesin danskrá næstu viku. 20.00 Frjettir. 20.20 Útvarpshljómsveitin (Þórarinn Guðmundsson stjórnar):' Lagaflokk ur eftir Tschaikowsky. 20.45 Lestiy Islendingasagna (Einar Ól. Sveinsson prófessor). 21.15 Dagskrá Kvenrjettindafjelags Islands. — Erindi: Blinda sttilkan (frú Ástriður Eggertsdóttir). 21.40 Frá útlöndum (Benedikt Grön- dal blaðamaður). 22.00 Frjettir. 22.05 Passíusálmar. 22.15 Danslög frá Sjálfstæðishsúinu-. 23.15 Dagskrárlok. Frjálsar kosningar í bandaríska hlula Kóreu - Rússar neifa kosningum Lpke Success. PHILIPP C. JESSUP, fulltrúi Bandaríkjynna hjá Sameinuðu þjóðunum sagði í dag að litla alsherjarþingið ætti að gera það að tillögu sinni að haldnar yrðu frjálsar kosningar í þeim hlut- um Koreu, sem hægt væri. Kvað hann best yrði að byrja kosn- ingarnar í syðsta hluta lands- ins og færa sig síðan norður á bóginn. „Bandaríkin hafa alltaf álitið Kóreu frjálst land, en ekki her- tekið land, og okkur finnst ekki nema sjálfsagt að þar verði haldnar frjálsar kosningar og landinu ekki skift í tvo hluta eins og nú er.“ Þessvegna, sagði Jessup, er ekki nema sjálfsagt að halda kosningarnar, þrátt fyrir andstöðu Rússa. Litla alsherjarþingið hefur haft Koreumálið til athugunar að undanförnu, eða síðan Koreu nefnd gafst upp á að sjá um að frjálsar kosningar færu þar fram, vegna þess að Rússar neit uðu nefndinni um að ferðast um landssvæði sitt. Equador. Bolivia, Argentína og Kína studdu tillögu Banda- ríkjanna um að Litla alsherjar- þingið ráðleggi Koreuncfndinni að láta fara fram kosningar í þeim hlutum lartdsins- sem hún fengi leyfi til að koma í. — Finnland Frh. af bls. 7. mjólkur- og smjörbirgðastöð Helsingsfors. Og mest af mjólk þeirri og smjöri, sem kemur nú til borgarinnar frá öðrum stöð- um, fer á svarta markaðinn. Það hefur jafnvel heyrst orða- sveimur um, að skip, á leið til Finnlands, hlaðinn landbúnað- arvörum frá Danmörku, hafi verið látið breyta um stefnu, og sigla til Lenir.grad. — Ekki alls fyrir löngu var hvískrað um það, að kona nokkur, sem kvartaði yfir því í brauðbúð, að brauðið, sem börnin hennar ættu að fá, væri tekið og sent til Rússlands, hafi verið hand- tekin af Valpo, ríkislögreglunni — Ef til vill eru báoar sögurnar ósannar, en þeirri staðreynd verður samt ekki mótmælt, að megnið af matvælum þeim, sem ættu að vera á friálsum mark- aði, sjást þar aldrei. Herforingi veikur WASHINGTON: — John J. Per- shing yfirmaður bandarísku herj- anna í heimstyrjöldinni 1914—’18 og nú er 88 ára, hefur verið veik- ur undanfarið. — Læknar hans sögðu hann þó heldur betri í dag. Þakka innilega öllum þeim, sem sýndu mjer vinsemd og virðingu á áttræðisafmæli mínum. ArnheiSur Magnúsdóttir. , Hjartans þakkir til ykkar allra er heimsóttu mig og glöddu 20. febrúar s.l. fyrir blómin, skeytin og allar gjafirnar. Guð blessi ykkur öll. SigríSur Jánasdóttir, Njarðargötu 25. /V ý h ó k : Litið til baka annað bindi endurminninga Matthíasar Þórðarsonar frá Mónm, er komið í bókaverslanir. Efni þessa bindis er m. a.: 1. Akranes og Akurnesingar fyrir 50 ámm. 2. Tíu ára starfsemi með dönskum mælinga- og landgæsluskipum við Island. 3- Mannskaðmn mikli 1906. 4. Islands Færeyjafjelagið. 5. Minnst lítið eitt sjóferða í misjöfnu veðri. 6- Tveir góðvinir og fjelagar. 7. Stórmerkir hugsjóna- og athafnamenn. 8. Minnst atburðar á Reykjavíkurhöfn 12- júni 1913. 9. Sjaldgæfir atburðir, sem jeg tel í frásögur fær- andi. Margt fleira er í þessu bindi, sem bæði er fróðlegt og skemmtilegt og prýtt fjölda mynda. Aðalútsala hjá H.f. Shrd 7554. Timburhús ■ ■ á eignarlóð i Vesturbænum til sölu. Húsið er ein hæð, : ris og kjallari. Á hæðinni er 3ja herbergja ibúð, í risi : 2 herbergi og eldunarpláss, en í kjallara eitt herbergi • og eldhús. Húsið er á hitaveitusvæðinu. Vcrður allt laust • til íbúðar fyrir vorið- j ■ STEINN JÓNSSON lögfr., : Laugaveg 39. Simi 4951- Jarðarför konunnar minnar GUÐRÚNAR JÓHANNESARDÓTTUR fer fram frá Akraneskirkju laugardaginn 28. febrúar og hefst með bæn að heimili okkar, Skagabraut 25, kl. 1 e.li. Fyrir mína hönd og barna okkar. Jón Si'gur'Ssson. Innilegar þakkir færum við frændum okkar og vinum nær og fjær fyrir auðsýnda samúð við fráfall og jarðar- för föður okkar og bróður HALLDÓRS JÓNSSONAR á Kjörseyri. Alveg sjerstaklega þökkum við sveitungmn okkar fyrir fagran vott virðingar og vinsemdar er þeir sýndu minn ingu hins látna. Kjörseyri, 22! febrúar 1948. SigríSur Halldórsdóttir, Pjetur Holldórsson, SigríSur Jónsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.