Morgunblaðið - 28.02.1948, Síða 12
VEÐUBÚTLITIÐ: Faxaflói:
Sunnan og suðvéstan átt. Ail-
Iivast með köflum og skúrir.
Gengur í suðaustur kalda síðd.
RÆKTUN HEIMSKUNNAR.
. ___ __ fr
Eftir Anders Örne. Sjá bl.s, 7.
Hernaððrflugvje!
lendir eífir radar
tækjum i Kefiavík
RISAFLUGVIRKI lenti á
Keflavíkurflugvelli í gærmorg-
un er veðrið var sem verst og
varð áhöfn vjelarinnar að styðj
ast eingöngu við radartæki til
leiðbeiningar við lendinguna.
Flugvirki þetta er á leið frá
Bandaríkjunum til Munchen í
Þýskalanai og mun fara 'hjeðan
í kvöld.
Von er á öðru risaflugvirki
frá Bandaríkjunum til Kefla-
víkur um helgina.
menn 11—1200 krónur.
Barnahjáípinni bár-
ust margar gjafir
ígær
SKRIFSTOFU Barnahjálparinn
ar í Búnaðarbankahúsinu bár-
ust í gær allmargar peninga-
gjafir. Meðal þeirra voru 1355
kr. frá vinnuflokki Halldórs
Magnússonar Hringbr. 190, frá
Bakarasveir.afjelaginu 500, frá
skipshöfninni á Andey Ak. 700
kr. og frá skipshöfninni á Akra^
borg EA 1250 kr. Bæði þessi
skip stunda síldveiðar hjeðan.
Þá gaf starfsfólk Hagstofunnar
705 kr., O. Ellingsen 1000 kr.,
Mjöll h.f. 500, bílstjórar á meira
prófsnámskeiði 420 kr. og drer.g
ur, Gísli Kjartansson, afhenti
í gær söfnunarlista og hafði
hann safnað inn á hann 665 kr.
_ _ ___ *•
VinnustSðvuninni í
Slykkishólmi lokið
Stykkishólmi, föstud.
Frá frjettaritara vorum.
VINNUSTOÐVUN í Stykkis-
hólmi er lokið. Var á fundi í
Verkalýðsfjelaginu í dag sam-
þykkt með öllum greiddum at-
kvæðum að ganga að tilboði
atvinnurekenda.
Almenn dagvinna karla hækk
ar í grunnlaun um 15 aura á
klukkustund, og verður kr. 2,60
Vinnulaun kvenna verða kr.
1,85 á klst.
DOX.OítES SWANSON heitir þessi unga stúlka og þykir hún mjög
efnilegur skautahlaupari. Hlaut hún nýlega „drottningarnafnbót“ í
Winnipeg fyrir leikni sína í þessari fögru íþrótt. Foreldrar hennar
eru J. W. Swanson og frú og eiga þau heima á 184 Niagara Street í
Winnipeg.
slands-mynd Loíts sýnd
o rf * r 3%
og ISvipjoð
Verður sýnd hjer í Tjarnarbíó
ÍSLANDSKVIKMYND LOFTS er nú komin heim aftur, en hún
var send vestur til Kodak í Bandaríkjunum og þar voru gerðar
nokkrar myndir eftir frummyndinni. Hafa tvær filmur þegar
verið seldar til Bandaríkjanna og verða sýndar á næstunni í Chic-
ago, Minnepolis og San Franciseo. En síðar fer myndin til Kanada
og verður sýnd þar á vegum Þjóðræknisfjelags Islendinga, allvíða.
Dr. Beck sjer um sýningar <
Dr. Richard Beck prófessor í
Grand Forks hefur tekið að sjer
að koma myndinni á framfæri í
Bandaríkjunum og Kanada og
hefur hann sýnt mikinn áhuga
fyrir því máli, en kvikmyndin er
eins og kunnugt ér hin besta
landkynning.
Margir vinir Lofts Guðmunds-
sonar hjá Kodak hafa skrifað
honum og farið lofsamlegum orð-
um um hana, en í brjefi frá fje-
laginu sjálfu segir að „myndin
sje einstaklega vel tekin“ og að
þeir, sem hafa sjeð þessa kvik-
mynd hafi aðrar skoðanir á ís-
landi og íslendingum, en þeir
höfðu áður.
Sýningar í Svíþjóð
Eitt eintak af kvikmynd Lofts
fer til Svíþjóðar og verður sýnd
þar víða. Verða að öllum líkind-
um haldnir fyrirlestrar með
myndinni og hefur ritstjóri
stærsta blaðsins í Eskiltuna sýnt
mikinn áhuga fyrir því, að fá
kvikmyndina. Stendur Loftur nú
í samningum við hann um málið.
Sýningar hjer
Að öllu forfallalausu verður ís-
landsmyndin sýnd í Tjarnarbíó
n.k. mánudagskvöld. — Eins og
kunnugt er var sýningum hjer
hætt snögglega í haust og áður,
en allir fengu tækifæri til að sjá
hana, sem vildu. En Loftur sendi
myndina vestur af ótta við, að
hún myndi skemmast, ef sýn-
ingum yrði haldið áfram hjer og
vildi hann ekki eiga það á hættu
áður en búið væri að taka eftir
myndinni.
Kvikmyndin hefur vcrið stytt
lítilsháttar, „en þó mátti jeg til
að bæta nokkrum blómarósum í
hana“, sagði Loftur í viðtali við^
Morgunblaðið.
20 keppendur í
flokkaglímu
Reykjavíkur
FLOKKAGLÍMA Reykjavíkur
fer fram á morgun í þróttahús-
inu við Hálogaland
Keppt verður í þremur þyngd-
arflokkum og þar að auki
drengjaflokki (innan 18 ára).
Keppendur eru alls skráðir 20.
í þyngsta flokki eru 4 kepp-
endur, Gunnlaugur Ingason, Á,
og KR-ingarnir Ágúst Stein-
dórsson, Sigurður Sigurjónsson
og Magnús Óskarsson. — í 2.
flokki eru Rögnvaldur Gunn-
laugsson, KR, Steinn Guðmunds
son, Á, og Unnar Sigurtryggva-
son, UMFR. — I 3. flokki keppa
Aðalsteinn Eiríksson, KR, Grjet
ar Sigurðsson, Á, Helgi Jóns-
son, KR, Ingólfur Guðnason, Á,
Ólafur Jónsson, KR og Sigurður
Hallbjörnsson, Á. — í drengja-
flokki keppa: Ármann Lárus-
son, UMFR, Bragi Guðnason,
UMFR, Geir Guðjónsson UMFR,
Gunnar Ólafsson, UMFR, Har-
aldur Sveinbjörnsson, KR, Hilm
ar Sigurðsson, UMFR og Ingvi
Guðmundsson, Á.
Stofnfundur Æskulýðs-
sambands Reykjavíkur
er í kvöld
STOFNÞING sambands æskulýðsfjelaganna hjer í Reykjavík
hefst í kvöld kl. 8,30 í Háskólanum. —- Eins og skýrt hefur verið
frá hjer í blaðinu, þá verður það hlutverk Æskulýðssambandsins,
að hrynda í framkvæmd byggingu Æskulýðshallarinnar.
fundinum í kvöld
Alfreð Andrjesson
skemlir í Gamla Bíó
ALFREÐ Andrjesson leikari,
sem fyrir nokkru er kominn
heim eftir rúmlega ársdvöl á
Norðurlöndum hefur ákveðið að
halda fyrstu skemtun sína eftir
heimkomuna í Gamla Bíó n.k.
mánudagskvöld klukkan 9 e. h.
Alfreð ætlar að syngja þar
hýjar gamanvísur og leika
nokkra skopþætti. — Er orðið
langt síðan Reykvíkingar hafa
fengið tækifæri til að skemta
sjer hjá Alfreð og má búast við
mikilli aðsókn hjá honum.
Aðstoðarmaður hans við
skemtunina er Jónatan Ólafs-
son, sem leikur á píanó.
í FYRRINÓTT var dálítil
síldveiði í Hvalfirði Yfirleitt
mun afli skipanna hafa verið
lítill.
I gær komu hingað 14 skip
með samtals 6270 mál síldar.
Nokkuð af síld skipanna var ný,
en yfirleitt tveggja til þriggja
daga gömul.
I gær var verið að lesta
Straumey, Sindra og Ói. Bjarna
son og tóku þeir síld beint úr
skipunum. Ennfremur var unn-
ið að lestun Banan, en þessi
síld kemur úr þró.
Skipin sem kómu í gær voru
þessi: Gylfi EA með 400 mál.
Hafdís 950, Huginn II. 550, Hug-
inn I. 450, Richard 400, Böðvar
850, Snæfell 350, Kristján 100,
Ásbjörn 70, Gunnbjörn 400,
Frcyja RE 450, Hafborg 100,
Auður 200 og Helga 1000.
Ennfremur eru nú hjer í höfn
inni Knob Knot og Hrímfaxi.
Ársþing Í.B.R. hófsl
I fyrradag
FJÓRÐA ársþing íþróttabanda-
lags Reykjavíkur hófst í Tjarn-
arcafé s.l. fimtudagskvöld. For-
maður bandalagsins, Ólafur Sig-
urðsson, setti þingið og bauð full
trúa velkomna. Forseti þingsins
var kjörinn Guðjón Einarsson,
en varaforseti Jens Guðbjörns-
son. Ritarar voru kosnir Þor-
björn Guðmundsson og Gunnl. J.
Briem.
Á þinginu voru mættir 57 full
trúar frá 18 íþróttafjelögum og
bandalögum.
Ólafur Sigurðsson gaf skýrslu
um störf Bandalagsstjórnarinn-
ar, sem voru fjölþætt, og einnig
voru reikningar bandalagsins,
íþröttahúss ÍBR og Slysatrygg-
ingarsjóðs lesnir og samþyktir.
Síðan liófust umræður um
ýms mál, er fyrir þinginu lágu,
en þingfundi svo frestað í 10—
14 daga.
Á fundinum í kvöld setur for-
maður undirbúningsn, þingið,
en síðan verður gengið að fund-
arstörfum. Að því loknu flytur
formaður undirbúningsnefndar
framsöguræðu um málið alment
og lagt verður fram frumvarp
að lögum fyrir sambandið. Síð-
an verða svo umræður um frum-
varpið og að þeim loknum kosin
nefnd manna til þess að athuga
lögin, en þessi nefnd skilar svo
áliti og breytingatillögum á
framhaldsstofnfundi, sem hald-
inn verður í Háskólanum á
mánudagskvöld.
Á mánudagsfundinum verður
svo endanlega gengið frá stofn-
un Æskuíýðssambands Reykja-
víkur og stjórn þess kosin.
30 fjelög
hafa tiínefnt fulltrúa.
í gær höfðu 30 fjelög tilkynt
þátttöku sína til biskupsskrif-
stofunnar, eða til undirbúnings-
nefndarinnar. Þessi tala mun þó
enn hækka nokkuð. Hjer munu
nú vera starfandi í bænum um
40 æskulýðsfjelög. Fjölmennu.st
þeirra eru íþróttaf jelögin, æsku-
lýðsfjelög stjórnmálaflokkanna,
skólafjelög, skátafjelög og kristi
leg æskulýðsfjelög.
Fjáröflunardagur
5. Þ. á Akranesi
Á FJÁRÖFLUNARFUNDI
Barnahjálpar Sameinuðu þjóð-
anna 29. þ. m. verða á Akra-
nesi þrjár kvikmyndasýningar,
sem öllum ágóða af Verður var-
ið til Barnahjálparinnar.
Sýningamar fara fram í Bíó-
höllinni og lætur allt starfsfóik
vinnu sína í tje án endurgjalds.
Áður en sýningarnar hefjast
verða flutt ávörp, sem þeir
flytja: sr. Jón Guðjónsson sókn-
arprestur, Friðrik Hjartar skóla
stjóri og Guðlaugur Einarsson
bæjarstjóri.
Mikill hugur er í Akurnesing-
um, að geta styrkt þetta mann-
úðarstarf S. þ. á sem best.an
hátt.
Aðalfundur Málara-
•meistarafjelags
Reykjavíkur
AÐALFUNDUR Málarameist-
arafjelags Reykjavík var hald-
inn s.l. sunnudag.
Formaður fjelagsins var kos-
inn Einar Gíslason í 17. sinn.
Varaformaður var kosinn Sæ-
mundur Sigurðsson, ritari Jök-
ull Pjetursson og gjaldkeri Karl
Ásgeirsson, allir endurkjörnir,
og Óskar Jóhannsson, aðstoðar-
gjaldkeri.
Á aðalfundinum var samþykt
að gefa eitt þúsund krónur til
Barnahjáipar Sameinuðu þjóð-
anna og auk þess gáfu fundar-
menn 11—1200 krónur.